Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Blaðsíða 16
„Ég var mjög slegin þegar ég fékk þessar fréttir og mér finnst mjög miður að geta ekki haldið þessu starfi áfram,“ segir Oddrún Kristjánsdótt- ir, stjórnarformaður kvennadeild- ar Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands, í samtali við DV. Tveimur bókasöfnum, sem starfrækt voru á Landspítalanum í Fossvogi og við Hringbraut, var lokað í febrúar. Söfn- in höfðu verið starfrækt í meira en 40 ár, eða frá árinu 1968. Lögum sam- kvæmt ber sjúkrahúsum að starf- rækja bókasöfn. Að sögn Oddrúnar var ástæðan sem gefin var upp fyrir lokuninni sýkingarhætta auk þess sem fram hefði komið að sjúklingar dveldu nú skemur á spítalanum en áður. Boðað var til fundar í lok janúar og veittur mánaðarfrestur til að fjarlægja bæk- urnar. Það hafi verið mjög knappur tími en með hjálp starfsfólks spítal- ans hafi tekist að rýma bókasöfnin. Hún kann þeim sem lögðu hönd á plóginn miklar þakkir fyrir. Þúsundir fengu lánaðar bækur Sjálfboðaliðar á vegum Rauða kross- ins sáu alfarið um rekstur safnsins og sjúklingar voru að sögn Oddrúnar afar duglegir að nýta sér þessa þjón- ustu. Þannig voru nærri 5.700 bækur (hefðbundnar bækur og hljóðbæk- ur) lánaðar út í fyrra á þeim tveim- ur söfnum sem nú hefur verið lok- að. Nærri þrjú þúsund sjúklingar fengu lánaðar bækur í fyrra. „Þeir sem gátu lesið eða hlustað og fengu bækur voru mjög ánægðir með þjón- ustuna og sýndu okkur ávallt mikið þakklæti,“ segir hún og bætir við að gott úrval bóka, bæði nýjar bækur og eldri, hafi verið á söfnunum. Kvennadeild Reykjavíkurdeildar Rauða krossins er nú með bóka- söfn á þremur stöðum; á Grensás- deild Landspítalans, Landakoti og á Sjúkrahóteli Rauða krossins. Hún segir að nú skapist ef til vill svigrúm til að opna söfn þar sem þörf sé fyr- ir slíka þjónustu. „Sjúklingarnir eru mjög leiðir og starfsfólkið líka því þetta hefur verið dægrastytting fyrir marga. Nú er bara að bíta á jaxlinn og sjá hvort þörfin sé víðar,“ segir hún. Segja spítalann brjóta lög Upplýsing, félag bókasafns- og upp- lýsingafræða, sendi af þessu tilefni Katrínu Jakobsdóttur menntamála- ráðherra bréf. Þar segir að sú skýr- ing yfirmanns Landspítalans á lok- uninni, að bækur eigi verulegan þátt í að bera smit á milli einstaklinga, sé hæpin. Þá bendir Hrafnhildur Hreinsdóttir, fyrir hönd Upplýsingar, á að spítalinn brjóti lög með þessum aðgerðum. „Lög nr. 36/1997 um al- menningsbókasöfn ná yfir bókasöfn í sjúkrahúsum, dvalarheimilum aldr- aðra og fleiri stofnunum sem er gert að skyldu að annast rekstur þeirra. Þegar slíkt safn er lagt niður þá er það í rauninni brot á fyrrnefndri lög- gjöf,“ segir meðal annars í bréfinu en þar er einnig rakið hve víða hafi verið vegið að bókasöfnum og þjón- ustu þeirra við almenning í landinu. Skert aðgengi að bókasöfnum gangi í berhögg við upplýsingastefnu ríkis- stjórnarinnar þar sem segir að upp- lýsingalög verði endurskoðuð og að- gengi almennings og fjölmiðla að upplýsingum aukið. Félagið hvet- ur menntamálaráðherra til að taka strax í taumana og „enn fremur leita skýringa yfirmanns Landspítalans á fyrirvaralausri lokun sjúkrabóka- safnanna sem gengur þvert á lög um almenningssöfn.“ Ráðherra hefur ekki svarað bréfinu. Hlutverkið að tryggja öryggi sjúklinga Björn Zoëga, forstjóri Landspít- alans, segir ástæðu þess að söfn- unum hafi verið lokað megi rekja til þeirra breytinga sem orðið hafi í samfélaginu, fólk liggi nú skem- ur á sjúkrahúsum og flestir séu það veikir að þeir hafi hvorki þörf né getu til að grípa í bók nema að litlu leyti. Yngra fólk noti auk þess í auknum mæli aðra afþreyingu en bækur meðan á sjúkrahúslegu standi. Spurður um þær skýring- ar að bókum fylgi smithætta seg- ir Björn að það sé alls ekki aðal- ástæðan, þó vissulega sé það eitt af því sem geti gerst. „Það er erfitt að staðfesta það en hlutverk okkar er að tryggja öryggi og við reynum að draga úr sjúkrahússýkingum eins og kostur er,“ segir Björn. Spurður hvort spítalinn sé með þessum lokunum að brjóta lög, þar sem spítölum beri að starfrækja bókasafn, segir Björn að spítalinn reki bókasafn fyrir starfsmenn við Eiríksgötu. Ekkert safn sé fyrir sjúk- linga en þeir gætu mögulega fengið aðstöðu við Eiríksgötu ef þörf krefði. „Við munum aldrei brjóta lög. Ef við þurfum að gera samning við ein- hverja aðila eða eitthvað annað til að uppfylla skilyrði laganna þá ger- um við það. Það er verið að skoða þessi mál,“ segir hann en tekur fram að kvennadeild Reykjavíkurdeildar Rauða krossins hafi unnið frábært starf með rekstri safnanna á spítal- anum. 16 | Fréttir 18.–20. mars 2011 Helgarblað Á s k r i f t í síma 578-4800 og á w w w.rit.is Tryggðu þér eintak á næsta blaðsölustað Bækur teknar af sjúklingum n Bókasöfnum Landspítalans lokað eftir 40 ára sjálfboðastarf Rauða krossins n Þrjú þúsund sjúklingar nýttu sér þjónustuna í fyrra n Spítalinn brýtur lög með lokunum að mati Upplýsingar n Við munum aldrei brjóta lög, segir forstjórinn Baldur Guðmundsson blaðamaður skrifar baldur@dv.is „Bækurnar bjarga lífi manns“ Anna Kristine Magnúsdóttir blaðamaður hefur mikla reynslu af því að fá bækur til aflestrar á Landspítalanum. Hún segir að lokunin sé í hennar huga fráleit ráðstöfun. „Þetta er skandall – bækurnar bjarga lífi manns þegar maður þarf að vera langdvölum á sjúkrahúsum,“ segir hún. Anna bendir á að sjúkrahúsvist beri oft að með litlum eða engum fyrirvara og því gefist fólki ekki alltaf tækifæri til að hafa með sér bækur eða aðra afþreyingu. Þá eigi ekki allir ættingja eða vini sem geti komið til þeirra lesefni. Hún segir enn fremur að Rauða kross-konurnar séu yndislegar og hafi oft stytt henni stundir með heimsóknum utan heimsóknartíma. Hjá þeim hafi hún komist í bækur sem hún fái ekki annars staðar. „Það er svo yndislegt þegar þær koma til manns með bókavagninn,“ segir Anna sem harmar að söfnunum hafi verið lokað. Hrafnhildur Hreinsdóttir Upplýsing, félag bókasafns- og upplýsingafræða, hefur sent ráðherra bréf vegna málsins. Engar bækur fyrir sjúka Eftir fjörutíu ára starfsemi kvennadeilar Rauða krossins hefur bókasöfnum á Landspít- alanum nú verið lokað. mynd SigtRyggUR aRi jóHannSSon
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.