Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Blaðsíða 34
34 | Viðtal 18.–20. mars 2011 Helgarblað það að verkum að mig langar til að lifa.“ Togstreitan í hjónabandinu Frá því að Jón gerðist grínisti til að bjarga fjárhagnum hefur líf hans verið eins og opin bók, en hann hef- ur aldrei rætt mikið um konu sína eða börn í fjölmiðlum. „Ég hef allt- af hlíft fjölskyldunni við því. Konan mín vill ekki að ég sé að ræða hana eða hjónaband okkar í fjölmiðl- um. Hún er ekki þessi týpa. Hún vill halda sínu fyrir sig. Ég er aftur á móti meira út á við og þetta hefur skapað togstreitu í hjónabandinu. Okkur hefur samt tekist að vinna úr því og finna rétta jafnvægið. Hún styður mig í því sem ég þarf að gera. Ég er ekki tilbúinn til þess að draga mig í hlé strax þó að ég gæti alveg eins tekið upp á því einn daginn. Hverfa alveg í hversdags- leikann. Áður en ég geri það lang- ar mig til þess að nýta þau tækifæri sem eru í boði og kanna lífið aðeins betur. Það er svo margt sem ég á eft- ir að gera. Ég vil ekki liggja á dán- arbeðinum og horfa yfir farinn veg ósáttur við brostna drauma, eins og pabbi.“ Erfiðast að missa mömmu Faðir Jóns lést fyrir tveimur árum. „Hann var maður sem taldi sig ekki eiga tækifæri í lífinu og var mótað- ur af hörku lífsins.“ Foreldrar hans háðu harða lífsbaráttu og voru illa farin eftir strit, fátækt og sjúkdóma. Alkóhólismi hafði áhrif á heim- ilislífið þó að Jón segi að heimili hans hafi ekki staðist samanburð við staðalmyndina af alkóhólísku heimili. „Foreldrar mínir voru gott fólk. En þeir voru tilfinningalega heftir og þegar ég fæddist var ég til- finningasprengja. Ég lít ekki svo á að ég hafi verið erfitt barn heldur að ég hafi hagað mér eðlilega í óeðli- legum aðstæðum. Allt sem ég gerði var til þess að kalla eftir viðbrögðum og fá athygli.“ Í árslok kvaddi Jón svo móður sína og hafði þá misst báða foreldra sína á tveimur árum. „Það var sárt að kveðja pabba. Hann fékk krabba- mein og var veikur í nokkra mánuði en við vissum hvað var í vændum. Mamma dó aftur á móti skyndilega og það var erfiðara að kveðja hana. Við vorum vinir en ekkert mjög náin, þannig séð. Ég held bara að það sé annað að missa móður sína en föð- ur. Það hefur eitthvað með upprun- ann að gera. Móðir mín ól mig og á meðan hún lifði átti ég alltaf skjól hjá henni. Eftir að hún var farin gat ég aldrei snúið aftur til baka. Það var eins og það lokuðust dyr að baki mér. Ég get ekki lýst þessu öðruvísi. Stór hluti af mér er farinn. Kannski af því að ég var búinn að missa báða foreldra mína og stóð einn eftir.“ Sorgin sameinar Hann gerir stutt hlé á máli sínu. Á veggnum hangir listaverk sem Banksy gaf Jóni, honum til ómældr- ar ánægju. Verkið er af grímuklædd- um manni sem kastar blómum til fólksins og hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá Jóni. Hann starir á myndina í smástund en heldur svo áfram: „Dauðinn er svo merkilegur af því að hann sameinar fólk. Þegar fólk gengur í gegnum sorg saman verða tengslin dýpri. Það myndast einhver skilningur sem ekki er hægt að útskýra. Allt í einu verður svo ljóst hvað það er sem skiptir mestu máli í lífinu,“ segir hann hugsi. Hann hefur áður farið í gegnum djúpa lægð, en af öðrum toga. Árið 2000 lenti hann á botninum andlega og leitaði sér þá hjálpar í tólf spora samtökum þar sem hann lærði að taka á meðvirkni, sem hafði þau áhrif að annað fólk hafði óeðlilega mikil áhrif á hann. Prógrammið sem hann fór í gegnum þar hefur hjálpað Jóni að takast á við reiðina sem ríkir stundum í borginni. Tekur reiðina ekki til sín „Það er skiljanlegt að fólk sé reitt og ég tek það ekki nærri mér. Reiðin er ekki mín og ég reyni að láta hana ekki hafa áhrif á mig heldur fylgja sannfæringu minni og gera það sem ég tel rétt. Það er mjög mikilvægt að ég sé ekki meðvirkur með íbúum í borginni, því það vill enginn breyt- ingar. Sérstaklega ekki þegar það þarf að skera niður. Það er ekki hægt að rökræða við reiðan mann. Hann hefur aldrei rangt fyrir sér.“ Aðspurður segist hann ekki sannfærður um að hans leið sé sú eina rétta. „Það er ekkert rétt eða rangt. Sannleikurinn er ekki til. Í hverju máli er alltaf hægt að fara margar mismunandi leiðir en ég fylgi mínu innsæi og reyni að gæta sanngirnissjónarmiða. Ég er aldrei viss um að ég sé að gera hið eina rétta og ég tel það hollt að efast. Um leið og ég hætti að efast er ástæða til að óttast gjörðir mínar.“ Fylgir rödd álfkonunnar Innsæið hefur oft reynst Jóni vel. „Ég reyni að fylgja þessu mystíska sem við getum kallað innsæi eða rödd álfkonunnar. Álfkonan kallar á mig og ég fylgi henni. Ég veit ekki af hverju og get ekki sagt neinum frá því, því það hefur enginn séð hana og það trúir enginn á hana en ég geri það samt. Innra með mér er sterk rödd sem leiðir mig áfram. Ég veit ekkert allt- af hvað ég er að gera þegar ég fylgi innsæinu en ég finn fyrir því og veit að ég er að gera rétt. Þannig að ég fikra mig áfram, stundum í myrkri en yfirleitt kemur það smám sam- an í ljós að þetta var rétta leiðin fyrir mig.“ Besti flokkurinn er eitt af þeim verkefnum sem byrjaði svona, sem óljós hugmynd sem Jón vissi ekki hvað hann ætti að gera við en ákvað samt að gera eitthvað. „Ég vissi ekki hvað yrði en lagaði mig jafnóðum að aðstæðum og óx inn í þetta hlut- verk. Þetta hófst sem gjörningur en ég áttaði mig smám saman á alvör- unni.“ Besti flokkurinn er ekki til Hann ætlar ekki í landspólitíkina og sér ekki fram á framboð Besta flokks- ins þar. „Besti flokkurinn er ekki til í raun. Hann er hugmynd sem fæddist út frá hugmyndafræði annarra flokka, sem eru mjög innantómir, marklaus- ir og stefnulausir. Stefnuskrá þeirra er óraunveruleg og absúrd, mikil um- gjörð utan um ekkert. Svo er orðið svo mikið af fólki sem hefur alla ævi verið í skóla. Fyrir þeim eru stjórnmál ákveðinn frami en ekki hugsjón, hvað þá ástríða.“ Eintak af Frjálsri verslun liggur á borðinu, Jón tekur tímaritið upp og les bút úr forsíðuviðtali við Bjarna Benediktsson. „Mér finnst þessi gaur vera grín. Er hann alvöru?“ seg- ir hann og leggur áherslu á orð sín. Sýnir mér svo mynd af sjálfum sér í apabúningi að lesa blaðið. „Þetta er bara djók,“ segir hann. „Ég er anark- isti. Ekki af því að hann sé svo frábær heldur af því að það er ekkert frábært. Ég er ekkert betri en aðrir, og það er það enginn.“ „Góður borgarstjóri“ Fyrst eftir að Jón tók við embættinu kvartaði hann undan álagi en seg- ist vera farinn að njóta þess núna að vera borgarstjóri. „Ég var að glíma við erfiðleika í einkalífinu sem tóku á um leið og ég þurfti að setja mig inn í allt hér og læra á kerfið. En ég er farinn að hafa gaman af þessu. Ég held að ég sé góður borgar- stjóri. Ég finn að við erum að fara í gegnum erfiða tíma núna en þeg- ar við komumst í gegnum það fjölg- ar tækifærunum og þá get ég látið til mín taka. Ég held að fólk geri sér ekki grein fyrir því hversu illa borg- in er stödd. Við höfum aldrei nokk- urn tímann í sögu Reykjavíkur verið jafn illa stödd. Við eigum engan pen- ing, því það er búið að sjúga allt út úr borginni. Núna þurfum við að takast á við það og reyna að komast í gegn- um þetta. Ég var lengi að átta mig á því hversu slæm staðan er í raun og veru. Það tók okkur allt til dagsins í dag að átta okkur á því og sættast við það. Um leið og við viðurkennum aðstæð- urnar eins og þær eru verður eftirleik- urinn auðveldari.“ Gæti hætt á morgun Hann getur alveg hugsað sér að vera borgarstjóri áfram. Jafnvel lengi. Honum er samt alveg sama ef svo verður ekki. „Kannski verð ég bara alltaf borgarstjóri. Kannski verður Besti flokkurinn alltaf til. Besti flokk- urinn kom með nýja hugsun inn í borgarkerfið. Kannski þarf hann að laga sig að kerfinu fyrir næstu kosn- ingar, kannski rennur hann inn í aðra flokka og kannski hættum við öll. Ég gæti hætt á morgun og væri alveg sama þótt svo yrði. Ég er ekki í þessu til að græða á því, hvorki völd né pen- inga. Aftur á móti þykir mér vænt um það að fá að leggja mitt af mörkum og gera gagn. Ég er ekki í þessu fyrir sjálf- an mig.“ Með varalit í vasanum Borgarstjórastarfið er ferðalag fyrir honum, alveg eins og leigubílastjór- astarfið var á sínum tíma. „Ég upp- lifði það sem ferðalag þar sem ég fór í gegnum ákveðið ferli sem tók síðan enda og ég ætla ekki að fara þangað aftur. Allt er þetta reynsla en ég er ekki sá eini sem nýtur góðs af henni.“ Þannig hefur hann allaf verið, reynt að draga í sig lærdóminn sem hægt er að draga af umhverfinu. Eitt af því sem hann hefur sökkt sér ofan í eru hugmyndirnar um karlmennsku og kvenleika. Hann heillaðist algjör- lega af kvenlegri veröld móður sinn- ar og systur og klæddi sig gjarna upp sem kona. „Ég hef alltaf haft gaman af því að klæða mig í kjól og setja á mig farða. Þess vegna hef ég sérhæft mig í því að leika konur. Mér finnst ótrú- lega gaman að fylgjast með konum í mínu lífi. Varalitur er miklu meira en varalitur,“ segir hann og sýnir mér Chanel-varalit sem hann dregur upp úr jakkavasanum. Þetta er liturinn sem mamma hans notaði alltaf, rauður nr. 58. Jón erfði hann og tók hann með í dag því hann vildi sæta færis og setja hann á sig. „Mér finnst gaman að leika mér með þetta. Síðan ég tók við sem borgarstjóri hef ég verið að prófa mig áfram varðandi útlitið í vinnunni. Ég hef mætt í alls konar jakkafötum og þú sérð klippinguna. Þetta var ákveð- inn gjörningur. Einu sinni mætti ég með naglalakk í vinnuna, bara af því að mig langaði til þess. Þá var ég nú látinn vita af því að þetta sæmdi ekki embættinu.“ Líkir lífinu við sirkuslest Að setjast við skriftir eftir að hann læt- ur af embætti er eitthvað sem heillar. Jón er samt ekki viss um að hann láti verða af því. Hann vill leyfa því að ráðast hvað framtíðin ber í skauti sér. „Allir sem standa mér næst vita að það að fylgja mér er eins og ferðast með sirkuslest. Þú veist aldrei hvað gerist næst. Lífið tekur sífellt óvænta stefnu og kemur mér stöðugt á óvart. Það óvænta er svo fallegt og skemmti- legt. Það heldur okkur vakandi. Kon- an mín veit það og hún er sátt við það. Það er hvort eð ekkert til sem heitir öryggi í þessu lífi. Ytri aðstæður geta allavega ekki fært þér öryggi. Það er alltaf falskt öryggi sem er ekki hægt að stóla á, því það getur alltaf eitthvað komið upp á. Þú veist aldrei hvað gerist næst. Þú ert kannski búinn að vinna alla ævi að því að verða borgar- stjóri og svo kem ég, einhver trúður, óvænt inn í myndina og planið fer úr skorðum.“ Jón þurfti að reka sig harkalega á til að átta sig á þessu en er þakklátur fyrir þennan lærdóm. „Það var mikið frelsi sem fólst í því þegar ég áttaði mig á þessu. Nú get ég notið lífsins til fulls.“ ingibjorg@dv.is „Það leið langur tími þar til ég kyssti konuna mína aftur. Við þurftum að jafna okkur á þessu. „Álfkonan kallar á mig og ég fylgi henni. Ég veit ekki af hverju og get ekki sagt neinum frá því því það hefur eng- inn séð hana og það trúir enginn á hana.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.