Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Blaðsíða 48
48 | Lífsstíll 18.–20. mars 2011 Helgarblað
S
kartgripahönnuðurinn
Fríða Methúsalems-
dóttir hefur undanfarin
níu ár búið og starfað á
Nýja-Sjálandi en Fríða, sem er
menntaður förðunarfræðingur,
hóf að smíða skartgripi skömmu
eftir að hún eignaðist sitt fyrsta
barn.
Það er líkt og gullið renni
með blóðinu því systir Fríðu,
Jóhanna Methúsalemsdóttir,
hefur vakið athygli fyrir skart-
gripahönnun sína og meðal
annars verið tilefnd til Menn-
ingarverðlauna DV. Fríða segir
þó að þær systur hafi lítið hugs-
að um skartgripagerð í gamla
daga heldur hafi áhuginn brot-
ist út síðar.
En hvernig kom það til að
förðunarfræðingurinn Fríða fór
að gera skartgripi?
„Ég hafði lengi gengið með
fullt af hugmyndum í kollinum
og fljótlega eftir að sonur minn,
Jesse Þórir, fæddist í janúar 2003
byrjaði ég að útfæra þessar hug-
myndir. Ég varði þá miklum
tíma með honum en sat þess á
milli á vinnustofunni heima og
smíðaði skart. Fram að því hafði
ég starfað sem förðunarfræð-
ingur í New York og Reykjavík,“
segir Fríða sem bjó og starfaði til
fjölda ára í heimsborginni áður
en hún gerði stopp á Íslandi og
fluttist svo til Nýja-Sjálands.
„Ég lærði skartgripahönnun
hér á Nýja-Sjálandi og var um
tíma lærlingur hjá mágkonu
minni sem er gullsmiður,“ segir
fagurkerinn Fríða.
Gripirnir hennar Fríðu
hafa yfir sér náttúrulegan blæ
og ákveðna ró sem er sérlega
heillandi og þeir höfða ekki
minna til sálarinnar en glysgirn-
innar.
„Ég myndi segja að þetta væri
einföld og tímalaus hönnun,“
segir hún. „Náttúran í kring-
um mig, líf mitt og fólkið sem
ég umgengst veitir mér inn-
blástur fyrir verkin. Mér finnst
skemmtilegt að gera gripina
svolítið persónulega og þess
vegna stimpla ég stundum nöfn
og orð sem eru fólki kær á skart-
ið. Orð sem hvetja og veita inn-
blástur,“ segir hún.
„Ég vinn í sjálfu sér út frá því
sem mér finnst fallegt. Ef ég sé
eða upplifi eitthvað sem mér
finnst fallegt þá fer ég lengra
með þá tilfinningu og úr verð-
ur skartgripur,“ segir Fríða sem
notar gull, silfur og leður í skart-
ið og blandar jafnvel saman
gulli og silfri ef svo ber undir.
„Það má allt!“
Hvernig er svo lífið hinum
megin á hnettinum?
„Ég myndi segja að það væri
margt líkt með Íslandi og Nýja-
Sjálandi en á sama tíma er þetta
gjörólíkt. Bæði löndin eru eyjur
og maður finnur þennan dæmi-
gerða hugsunarhátt sem ein-
kennir eyjaskeggja. Á Nýja-Sjá-
landi er andrúmsloftið þó mikið
afslappaðra og meira svigrúm
fyrir einstaklinginn að vera
hann sjálfur. Mér finnst samt
alltaf yndislegt að koma heim
til Íslands og tilfinningar mínar
til landsins verða æ sterkari eft-
ir því sem árin líða. Á Íslandi er
fjölskylda mín og ræturnar. Ís-
land er og verður alltaf staður-
inn sem ég kalla heima,“ segir
þessi snjalla og fallega kona að
lokum.
Fríða Methúsalemsdótt-
ir hannar gripina sína und-
ir merkinu Fríða Jewellerry en
hægt er að nálgast þá í gallerí-
um og verslunum á Nýja-Sjá-
landi þar sem hún hefur skapað
sér nafn en gripina má líka nálg-
ast á vefversluninni Etsy undir
slóðinni: www.etsy.com/shop/
fridajewell ery.
Einnig má gera ráð fyrir að
skartið komi í valdar verslanir í
Reykjavík í sumar. margret@dv.is
Með gullið
í blóðinu
Skartgripir Fríðu Methúsalemsdóttur
hafa yfir sér náttúrulegan blæ og ró:
Lærði skartgripahönnun á Nýja-Sjá-
landi Systurnar Fríða og Jóhanna Methúsa-
lemsdætur eru báðar skartgripahönnuðir.
Með skart
eftir mömmu
Sonur Fríðu,
Jesse Þórir, með
hálsmen eftir
móður sína.
Chanel hannar
kreppufatnað
Franski tískurisinn Chanel,
með Karl Lagerfeld í
fararbroddi, er með
frumlegar áherslur fyrir
haustið 2011 en línan
frá Chanel var frumsýnd
á pöllunum í París
í síðustu viku.
Klæðnaðurinn
er stráks-
legur og mikið um
fatnað úr grófum
ullarefnum en
Lagerfeld segir
hönnunina í takt
við tímann. Að nú
sé hart í ári og því
eðlilegt að konur
vilji klæða sig
eftir því. Óhætt
er að segja að
fatnaðurinn sé
fallegur en innblást-
urinn sækir Lagerfeld
í drungalega skóga og
gráa morgna í Þýska-
landi þegar hann var
að alast upp í seinni
heimsstyrjöldinni.
Takið eftir skónum
sem eru víðir yfir
ökklana. Þetta verður
bæði áberandi í skóm
og buxum næsta
haust.
Mjúkir
leðurskór
Íslenskar konur með lúna fætur geta
glaðst yfir því að nú er hægt að fá
skó frá merkinu Shoe The Bear á
Íslandi. Hönnuðir merkisins, Thomas
Frederikssen og Jakob Fuglsang, hafa
fengið mikið lof fyrir skóhönnun sína.
Þeir þykja hanna þægilega skó með
kvenlegum áherslum. Skórnir eru
lágbotna úr mjúku leðri. Shoe The Bear
er tiltölulega nýtt merki, stofnað 2007,
og skór frá merkinu fást nú í versluninni
GK á Laugavegi.
Tími til að
vakna
Ekkert er hvimleiðara en að vakna
grámyglaður á góðum morgni. Ýmsar leiðir
eru til þess að fríska húðina við. Gott ráð
er að skella sér í sturtu og láta renna ískalt
vatn í bláenda sturtuferðarinnar til að fá
aukið blóðrennsli til húðarinnar. Þá er gott
að nudda engifer- og sítrónutepoka létt
yfir andlitið. Aðrir vilja eiga töfralausnina
lokaða í dollu. Fyrir þá má mæla með hinu
sívinsæla Beauty Flash Balm frá Clarins eða
nýja kreminu frá Olay, Wake Up Wonder. Í
því er meðal annars B3-vítamín og mynta
sem jafnar húðlitinn.