Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Page 38

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Page 38
Hafliði fæddist á Húsavík og ólst þar upp. Hann lauk landsprófi frá Gagnfræðaskóla Húsavík- ur og hefur sótt mikinn fjölda starfs- tengdra námskeiða. Hafliði hóf störf hjá Kaupfélagi Þingeyinga á Húsavík 1959 og starfaði þar um árabil eða fram yfir aldamót. Hann stundaði einnig skrifstofustörf hjá SÍS í Reykjavík um skeið en fór síð- an aftur norður á Húsavík til starfa hjá KÞ. Þá var hann tvö ár meðhjálpari við Húsavíkurkirkju og kirkjugarðsvörð- ur á Húsavík. Hann starfaði hjá Bú- bót ehf. á Húsavík um nokkurt skeið en hefur verið tómstundafulltrúi fyrir aldraða á Hvammi frá 2003. Hafliði hefur verið virkur í marg- víslegu félagsstarfi í sinni heima- byggð. Hann sat í stjórn Verslunar- mannafélags Húsavíkur á árunum 1966–2011, sat í stjórn Framsóknar- félags Húsavíkur og nágrennis um árabil, er félagi í karlakórnum Hreim í Suður-Þingeyjarsýslu og var um ára- bil í forystusveit Völsunga. Hann söng með kirkjukór Húsavíkurkirkju og annaðist barnastarf í kirkjunni í u.þ.b. tuttugu ár. Fjölskylda Hafliði kvæntist 25.12. 1968 Laufeyju Jónsdóttur, f. 14.9. 1949, gæðastjóra hjá fiskvinnslustöðinni Vísi á Húsa- vík. Hún er dóttir Jóns Þórarinssonar, fyrrv. bónda í Fagraneskoti í Aðaldal sem er látinn, og Unnar Baldursdótt- ur húsfreyju. Börn Hafliða og Laufeyjar eru Inga Björk, f. 14.2. 1970, húsmóðir í Þýska- landi og starfrækir þar fyrirtæki ásamt sambýlismanni, Seydi Demir, og eiga þau tvo syni, Julian Tarik og Henrik Levent; Unnur Mjöll, f. 21.11. 1972, húsmóðir á Húsavík, í sambúð með Viðari Hákonarsyni og er sonur þeirra Hlynur Snær; Hjálmar Bogi, f. 18.1. 1980, grunnskólakennari á Húsavík og bæjarfulltrúi í Norðurþingi; Rakel Dögg, f. 25.7. 1981, BA í sálfræði og nemi í næringarfræði við Háskóla Ís- lands, en sambýlismaður hennar er Gunnar Jónsson. Systkini Hafliða eru Guðný Jó- steinsdóttir, f. 9.2. 1932, húsmóðir á Húsavík en maður hennar er Þor- grímur Sigurjónsson, verkamaður og bílstjóri; Hreiðar Jósteinsson, f. 28.3. 1933, sjómaður á Húsavík en kona hans er Þóra Erlendsdóttir húsmóð- ir; Hafdís Jósteinsdóttir, f. 16.6. 1942, starfrækir Fatahreinsun Húsavík- ur ásamt eiginmanni sínum, Sigurði Svavari Þórarinssyni; stúlka, f. and- vana 1.1. 1952. Foreldrar Hafliða voru Jósteinn Finnbogason, f. 3.10. 1909, d. 17.11. 1995, sjómaður á Húsavík, og Krist- jana Þórey Sigmundsdóttir, f. 25.11. 1913, d. 4.10. 1996, húsmóðir og verkakona á Húsavík. Ætt Jósteinn var sonur Finnboga, b. á Brekku í Aðaldal Þorsteinssonar, Ólafssonar. Móðir Jósteins var Hjálmfríður Jó- hannesdóttir. Kristjana Þórey var dóttir Sig- mundar Hjálmarssonar, Jónssonar, og Guðnýjar Oddnýjar Jónasdóttur frá Skeri á Látraströnd. 38 | Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 18.–20. mars 2011 Helgarblað Ragnar fæddist að Bakka og ólst þar upp. Hann var í farskóla og stundaði heimanám á barns- aldri og stundaði nám við Bænda- skólann á Hvanneyri 1957–59. Ragnar stundaði búskap á Bakka með foreldrum sínum til 1970 og var síðan bóndi á Bakka til 1999. Hann var þar síðan hlunnindabóndi um skeið og starfaði í sláturhúsi Kaup- félags Vestur-Húnvetninga hluta af árinu en er nú starfsmaður Veiði- félags Víðidalsár. Ragnar sat í stjórn ungmenna- félagsins Víðis, í stjórn Búnaðar- félags Þorkelshólshrepps og Búnað- arsambands Vestur-Húnvetninga, sat í sveitarstjórn Þorkelshólshrepps í sextán ár, sat í stjórn Veiðifélags Víði- dalsár frá 1984 og var formaður þess frá 1993–2005. Þá sat hann í stjórn Kaupfélags Vestur-Húnvetninga frá 1982–2003 og í stjórn Hólalax hf. um skeið frá 1992. Fjölskylda Ragnar kvæntist 12.6. 1971 Sigur- laugu Sigurvaldadóttur, f. 20.10. 1952, húsfreyju, bónda og verslunarmanni í kjörbúð Kaupfélags Vestur-Húnvetn- inga. Hún er dóttir Ingvars Ágústsson- ar og Sigurlaugar Sigurvaldadóttur, bænda að Ásum í Svínavatnshreppi í Austur-Húnavatnssýslu en þau eru bæði látin. Börn Ragnars og Sigurlaugar eru Gunnlaugur Auðunn Ragnarsson, f. 19.2. 1971, hagfræðingur hjá Hval hf, búsettur í Reykjavík; Ingvar Frið- rik Ragnarsson, f. 5.4. 1972, bóndi í Kolugili í Víðidal, en kona hans er Malín Person og eiga þau tvö börn; Dagný Sigurlaug Ragnarsdóttir, f. 7.7. 1977, húsfreyja og bóndi á Bakka í Víðidal. en maður hennar er Örn Óli Andrésson og eiga þau tvö börn; Anna Heiða Ragnarsdóttir, f. 17.12. 1982, húsmóðir á Hvammstanga. Systkini Ragnars: Ingibjörg Gunn- laugsdóttir, f. 7.6. 1922, d. 16.8. 1994; Jóhanna Gunnlaugsdóttir, f. 22.2. 1924, húsfreyja og fyrrv. bóndi að Móbergi á Rauðasandi, nú búsett í Reykjavík; Björn Teitur Gunnlaugs- son, f. 26.9. 1926, húsgagnasmiður, búsettur í Reykjavík; Jóhannes Gunn- laugsson, f. 9.8. 1929, fyrrv. sjómaður, búsettur í Reykjavík; Elísabet Gunn- laugsdóttir, f. 13.7. 1932, húsmóðir í Reykjavík; Aðalheiður Rósa Gunn- laugsdóttir, f. 30.10. 1934, fyrrv. starfs- maður við Tilraunastöðina á Keldum, búsett í Reykjavík; Egill Gunnlaugs- son, f. 29.9. 1936, d. 31.8. 2008, hér- aðsdýralæknir Vestur-Húnvetninga. Foreldrar Ragnars: Gunnlaugur Auðunn Jóhannesson, f. 16.11. 1894, d. 1.1. 1970, bóndi á Bakka, og k.h., Anna Teitsdóttir, f. 1.12. 1894, d. 10.7. 1978, húsfreyja. Ætt Gunnlaugur var bróðir Eysteins, föð- ur Jónasar kennara. Annar bróð- ir Gunnlaugs var Guðmundur, b. á Auðunarstöðum í Víðidal, afi Friðriks Sophussonar, fyrrv. ráðherra og fyrrv. forstjóra Landsvirkjunar. Guðmund- ur var auk þess afi Guðmundar Gunn- arssonar, formanns Rafiðnaðarsam- bandsins, föður Bjarkar söngkonu. Gunnlaugur var sonur Jóhannesar, b. á Auðunarstöðum Guðmundssonar. Móðir Jóhannesar var Dýrunn Þór- arinsdóttir, systir Þuríðar, langömmu Halldórs E. Sigurðssonar ráðherra. Móðir Gunnlaugs Auðuns á Bakka var Ingibjörg, systir Björns í Gríms- tungu, afa Björns Pálssonar, alþm. á Löngumýri, og langafa Páls Péturs- sonar á Höllustöðum, fyrrv. ráðherra, föður Páls Gunnars, forstjóra Sam- keppniseftirlitsins, en bróðir Páls er Pétur, fyrrv. yfirlæknir á Akureyri. Björn í Grímstungu var einnig langafi Ástu, móður Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar prófessors. Anna var dóttir Teits, b. í Víðidals- tungu Teitssonar. Móðir Önnu var Jóhanna, syst- ir Guðmundar landlæknis. Systir Jó- hönnu var Ingibjörg, móðir Jónasar fræðslustjóra, föður Ögmundar inn- anríkisráðherra. Jóhanna var dóttir Björns, b. á Marðanúpi Guðmunds- sonar. Móðir Björns var Guðrún Sig- fúsdóttir Bergmann, b. á Þorkelshóli, ættföður Bergmannsættar. Móðir Jó- hönnu var Þorbjörg Helgadóttir, syst- ir Sigurðar, afa Sigurðar Nordal pró- fessors, föður Jóhannesar Nordal, fyrrv. seðlabankastjóra, föður Beru Nordal safnstjóra, Guðrúnar Nor- dal, forstöðumanns Stofnunar Árna Magnússonar, Salvarar Nordal heim- spekings og forstöðumanns Siðfræði- stofunar Háskóla Íslands, og Ólafar Nordal, alþm. og varaformanns Sjálf- stæðisflokksins. Ragnar Gunnlaugsson fyrrv. bóndi á Bakka í Víðidal Hafliði Jósteinsson tómstundafulltrúi við Hvamm á Húsavík 70 ára á fimmtudag 70 ára á laugardag GGuðmundur fæddist á Siglufirði og ólst þar upp. Að loknu grunn-skólanámi á Siglufirði stundaði hann nám við Samvinnuskólann á Bifröst og útskrifaðist þaðan 1970. Guðmundur starfaði við KEA á Akureyri og í Hrísey 1970–77, vann hjá FRUM hf. við innflutning- og skrifstofustörf 1977–86, var fulltrúi hjá Heildverslun Ágústs Ármann ehf. frá 1986–2000, starfaði hjá Ármann Reykjavík 2000-2002, sem fjármála- stjóri hjá Tankinum 2002-2010 og starfar nú hjá Festingu. Guðmundur var búsettur á Siglu- firði til 1970, á Akureyri 1970–72, í Hrísey 1972–77 og hefur verið búsett- ur í Reykjavík frá 1977. Fjölskylda Guðmundur kvæntist 17.6. 1972 Mar- gréti Sigmannsdóttur, f. 3.7. 1951, sjúkraliða. Hún er dóttir Sigmanns Tryggvasonar sjómanns og Lilju Sig- urðardóttur, fyrrv. verslunarkonu. Börn Guðmundar og Margrétar eru Skarphéðinn Guðmundsson, f. 10.5. 1972, dagskrárstjóri Stöðvar 2, búsettur í Reykjavík en kona hans er Hrund Þrándardóttir, f. 9.8. 1972, sálfræðingur, synir þeirra eru Guð- mundur, f. 2.4. 2000 og Ingvar Wu, f. 1.10.2007; Margrét, f. 27.6. 1979, veit- ingamaður, búsett í Hafnarfirði, en unnusti hennar er Karl Henry Há- konarson tónlistarmaður f 22.2.1979, sonur þeirra er Jökull Ari f. 2.5.2006. Sonur Guðmundar frá því áður er Kári Arnar, f. 19.5. 1971, búsettur á Ak- ureyri. Systkini Guðmundar eru Ebba, f. 20.3. 1949, leikskólastarfsmaður, bú- sett í Hafnarfirði; Guðný, f. 1.2. 1952, starfsmaður við Seljakirkju, búsett í Reykjavík; Jóhann, f. 29.3.1953, end- urskoðandi, búsettur í Garðabæ; Val- ur, f. 23.2. 1956, d. 2000, auglýsinga- teiknari; Gunnar Rafn, f. 6.5. 1964, farmaður hjá Eimskip, búsettur í Reykjavík; Brynhildur, f. 12.11. 1965, húsmóðir, búsett í Bandaríkjunum. Foreldrar Guðmundar eru Skarp- héðinn Guðmundsson, f. 7.4. 1930, fyrrv. skrifstofustjóri við Landsbank- ann í Hafnarfirði, og Esther Jóhanns- dóttir, f. 13.8. 1930, fyrrv. iðnverka- kona. Guðmundur Skarphéðinsson skrifstofumaður í Reykjavík 60 ára á föstudag Sigríður fæddist á Húsavík og ólst þar upp. Hún varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1981, lauk B.Ed.-prófi frá Kennarahá- skóla Íslands 1985, og BA-prófi í kvik- myndafræði frá Högskolan i Skövde í Svíþjóð 2000. Sigríður sinnti kennslu af og til við grunnskóla og hefur verið fyrirlesari og gestakennari við framhaldsskóla og háskóla. Hún vann við saumaskap fram til 1995 og hélt fjölda sauma- námskeiða á þeim árum. Hún var hún kennari við Margmiðlunarskólann frá 1998–2001. Sigríður starfaði við ýmiss kon- ar dagskrárgerð og blaðamennsku frá 1984. Hún hafði umsjón með barnaefninu Vitanum á Rás 1 1999– 2007 en það var fyrsti nettengdi út- varpsþátturinn á Íslandi. Þá sá hún um kvikmyndarýni í sjónvarpsþætt- inum Mósaík í Ríkissjónvarpinu á árunum 2001–2004 auk þess sem hún var með kvikmyndarýni í Víðsjá á Rás 1 og í morgunþætti Rásar 2. Hún hefur séð um útvarpsþáttinn Kviku á Rás 1 sem fjallar um sjón- varpsefni og kvikmyndir frá 2007. Sigríður sendi frá sér sitt fyrsta skáldverk fyrir síðustu jól, bókina Geislafræði, útg. af Uppheimum. Sigríður er varaformaður Kvik- myndaráðs frá 2009. Fjölskylda Eiginmaður Sigríðar er Garðar Agn- arsson, f. 7.2. 1965, matreiðslumeist- ari og eigandi Krydds og kavíars. Foreldrar Garðars eru Guðni Agnar Einarsson, sýningarmaður við Bæjar- bíó og fyrrv. starfsmaður Sjónvarps- ins, og Guðrún Hall matráðskona. Sonur Sigríðar og Þorsteins Briem, f. 6.7. 1959, er Alexander Briem, f. 6.2. 1990, leikari í Reykjavík. Synir Garðars og stjúpsynir Sigríð- ar eru Geir Garðarsson, f. 28.2. 1993, nemi við Menntaskólann í Hamra- hlíð; Hugi Garðarsson, f. 21.11. 1997, grunnskólanemi. Systkini Sigríðar eru Helgi Péturs- son, f. 16.12. 1962, tónlistarmaður og forritari, búsettur í Reykjavík; Regína Pétursdóttir, f. 16.12. 1962, d. 22.12. 1962. Foreldrar Sigríðar eru Pétur Jónas- son, f. 23.8. 1941, ljósmyndari á Húsa- vík, og Guðný Helgadóttir, f. 12.8. 1935, húsmóðir. Ætt Pétur er hálfbróðir Kjartans Ólafs- sonar, fyrrv. ristjóra. Pétur er sonur Jónasar, verkamanns og formanns á Suðureyri Sigurðssonar, tómthús- manns í Kotnúpi í Dýrafirði Sigurðs- sonar. Móðir Jónasar var Guðlaug Indíana Jónasdóttir. Móðir Péturs er Sigríður Péturs- dóttir, b. á Laugum í Súgandafirði Sveinbjörnssonar, b. á Laugum Páls- sonar, b. á Kvíarnesi Guðmundsson- ar. Móðir Péturs var Guðmundína Jónsdóttir, hreppstjóra á Kirkjubóli Halldórssonar, b. í Fremrihúsum Ólafssonar, b. á Sléttu Svartsson- ar, Jónssonar, í Hestfirði Ólafsson- ar, Jónssonar, Indíafara Ólafssonar. Móðir Jóns var Kristín Torfadóttir, sjómanns á Snæfjöllum Ásgríms- sonar, hreppstjóra í Arnardal Bárð- arsonar, ættföður Arnardalsættar Ill- ugasonar. Móðír Sigríðar eldri var Kristjana, dóttir Friðberts, hrepp- stjóra í Vatnadal í Súgandafirði Guð- mundssonar og Sigmundínu Sig- mundsdóttur. Sigríður Pétursdóttir dagskrárgerðarmaður og kvikmyndafræðingur 50 ára á föstudag

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.