Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Síða 10
10 | Nærmynd 18.–20. mars 2011 Helgarblað
Björn Þorvaldsson saksóknari krefst
þess að Baldur Guðlaugsson, fyrr-
verandi ráðuneytisstjóri í fjármála-
ráðuneytinu, verði dæmdur í tveggja
ára óskilorðsbundið fangelsi fyr-
ir að hafa selt öll hlutabréf sín í
Landsbankanum, fyrir 192 milljónir
króna í september 2008, rétt fyrir hrun
íslenska bankakerfisins. Honum er
gefið að sök að hafa selt bréfin þrátt
fyrir að hafa búið yfir innherjaupplýs-
ingum um bankann sem hann fékk í
starfi sínu sem ráðuneytisstjóri – upp-
lýsingum sem aðrir hluthafar bank-
ans höfðu ekki aðgang að.
Fundaði með fjármálaráðherra
Bretlands fyrir söluna
Björn sagði í málflutningi sínum í gær
hafið yfir allan vafa að Baldur hefði
brotið af sér af ásetningi og gegn betri
vitund en ákæran er í sex liðum. Helstu
atriði hennar má sjá hér til hliðar en
Baldur er í stuttu máli ákærður fyrir
að hafa selt bréfin í Landsbankanum
í ljósi innherjaupplýsinga sem hann
hafi fengið á sex fundum samráðshóps
forsætis-, fjármála- og viðskiptaráðu-
neytisins, fjármálaeftirlitsins og Seðla-
banka Íslands um fjármálastöðug-
leika og viðbúnað. Fundirnir voru
haldnir sumarið og haustið 2008, rétt
fyrir bankahrunið. Þá á hann einnig
að hafa fengið innherjaupplýsingar á
fundi með bankastjórum Landsbank-
ans; Halldóri J. Kristjánssyni og Sigur-
jóni Þ. Árnasyni, 13. ágúst og fjármála-
ráðherra Bretlands 2. september þetta
sama ár. Nánar má lesa um ákærulið-
ina hér til hliðar.
Misræmi Baldurs og Bolla
Vitnaleiðslur hafa staðið yfir í mál-
inu frá því í febrúar. Fjölmargir menn
sem gegndu áhrifastöðum þegar fjár-
málakerfið hrundi hafa borið vitni
í málinu. Auk Baldurs sjálfs má þar
nefna báða fyrrverandi bankastjóra
Landsbankans; Sigurjón Þ. Árnason
og Halldór J. Kristjánsson og Jónas Fr.
Jónsson, fyrrverandi forstjóra Fjár-
málaeftirlitsins, fyrrverandi ráðu-
neytisstjórana Jónínu S. Lárusdóttur
og Bolla Þór Bollason. Þá hefur reglu-
vörður Landsbankans borið vitni,
sem og bankastjóri Seðlabankans og
Tryggvi Pálsson, framkvæmdastjóri
fjármálasviðs bankans.
Í vitnaleiðslunum bar ef til vill
hæst það misræmi sem fram kom í
svörum Baldurs og Bolla Þórs Bolla-
sonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra í
forsætisráðuneytinu. Baldur sagði fyr-
ir dómi að hann hefði greint Bolla frá
því að hann væri að velta fyrir sér að
selja hlutabréf sín í Landsbankanum.
Hann sagði að Bolli hefði lagst gegn
þeirri hugmynd. Þegar Bolli var sjálf-
ur spurður um málið í vitnaleiðslum
sagðist hann ekki hafa vitað af því að
Baldur ætlaði að selja fyrr en hann
var búinn að því. Bolli sagði raunar að
hann hefði ekki talið sig geta selt sín
bréf í bankanum vegna þeirra upp-
lýsinga sem hann bjó yfir stöðu sinnar
vegna. „Ég man þetta sérstaklega vel
því ég veit að ef ég hefði fengið sím-
tal fyrir söluna þá hefði ég mælt gegn
henni,“ sagði Bolli og sagðist á sínum
tíma hafa fengið símtal frá Baldri um
að hann hefði þegar selt bréfin.
Hann sagðist enn fremur sjálf-
ur eiga hlutabréf í íslensku bönkun-
um en sagðist hafa metið stöðu sína
þannig, í ljósi aðgangs að upplýsing-
um sem aðrir höfðu ekki, að hann
gæti hvorki lagalega né siðferðislega
selt bréfin.
Læsti upplýsingarnar inni í skáp
Þó fleira hafi ekki beinlínis borið í
milli í framburði Baldurs og vitnanna
var sumt sem hljómaði ekki eins.
Sem dæmi má nefna að Baldur sagði
um fundi samráðshóps um fjármála-
stöðugleika að þar hefði ekki komið
fram mikið af mikilvægum upplýs-
ingum sem ekki voru opinberar. Jón-
ína S. Lárusdóttir, sem einnig átti sæti
í hópnum, sagði hins vegar að í fund-
argerðunum hafi komið fram trún-
aðarupplýsingar sem hún mat svo að
gætu leitt til þess að áhlaup yrði gert á
íslensku bankana – ef þær kæmu fyrir
sjónir almennings. Því hafi hún geymt
fundargerðirnar í læstum skáp í ráðu-
neytinu. Jónína sagði að á fundunum
hefði verið rætt almennt um fjármála-
kerfið en einnig stöðu einstakra fjár-
málastofnana.
Fleira athyglivert kom fram í vitna-
leiðslunum. Þannig bar Sigurjón Þ.
Árnason, bankastjóri Landsbankans,
fyrir dómi að hann hefði greint Baldri
frá erfiðleikum bankans töluvert áður
en Baldur seldi bréfin. Baldur hefði
raunar setið fund þar sem farið var
yfir stöðu bankans eftir fund íslenskra
ráðamanna með breskum embættis-
mönnum. Þá hafi staðan legið ljós fyr-
ir.
Missti æru og vinnu
Dómur verður kveðinn upp inn-
an fjögurra vikna í málinu og því má
segja að komið sé að ögurstund Bald-
urs. Verði hann dæmdur sekur verður
hann á meðal þeirra fyrstu sem hlýtur
refsingu fyrir mál sem tengjast efna-
hagshruninu.
Erfitt er að leggja mat á stöðu Bald-
urs nú þegar aðalmeðferð er lokið.
Baldur sagði sjálfur fyrir dómi að hann
hefði viljað fara mjög varlega vegna
viðkvæmrar stöðu – raunar hafi hon-
um liðið „extra vel“ þegar hann seldi
bréfin og hann neitaði staðfastlega sök
í málinu við upphaf skýrslutökunnar.
Karl Axelsson, verjandi Baldurs, sagði,
þegar hann flutti málið á mánudag-
inn, fundargerðir samráðshópsins
ekki vera nægjanlega vel unnar til að
þær geti talist fullnægjandi sönnunar-
gögn. Þær væru merktar sem drög og
að fulltrúum í samráðshópnum bæri
ekki saman um það hversu ítarlegar
þær væru. Þær væru í besta falli minn-
ispunktar fundarritara.
Karl sagði enn fremur að Baldur
hefði misst bæði æruna og vinnuna
„ Í vitna leiðslun um
bar ef til vill hæst
það misræmi sem fram
kom í svörum Baldurs og
Bolla Þórs Bollasonar.
Ögurstund Baldurs
n Baldur Guðlaugsson, fyrrverandi ráðuneytis-
stjóri, bíður nú dóms n Krafist er tveggja ára
óskilorðsbundins fangelsis og þess að milljónirn-
ar verði teknar til baka n Verjandi segir fundar-
gerðir samráðs hóps ekki fullnægjandi sannanir
og segir Baldur hafa misst bæði atvinnu og æru
2009 2010 2011
Sumarið og
haustið 2008
n Baldur sat marga fundi
með ráðamönnum á Íslandi
og í Bretlandi um Icesave
og stöðu bankanna.
September 2009
n Baldur seldi bréf sín
í Landsbankanum fyrir
192 milljónir króna.
Nóvember 2009
n Sérstakur saksóknari
krefst kyrrsetningar á
eignum Baldurs.
n Karl Axelsson,
verjandi Baldurs, skrifar
grein í Morgunblaðið
þar sem hann spyr
hvort rannsóknin sé
pólitísk. Biður saksókn-
ara að fella hana niður.
Desember 2009
n Baldur krefst þess
að rannsókn FME á
sölunni verði hætt
þar sem FME hefði
áður tilkynnt honum
að ekkert yrði
aðhafst í málinu.
Desember 2010
n Verjandi Baldurs
krefst frávísunar
málsins fyrir dómi.
Febrúar og mars 2011
n Aðalmeðferð og vitna-
leiðslur fara fram fyrir
Héraðsdómi Reykjavíkur.
Saksóknari krefst tveggja
ára óskilorðsbundins
fangelsisdóms.
Mars eða
apríl 2011
n Dæmt
verður í
málinu.
Október 2010
n Sérstakur
ríkissaksóknari
gefur út ákæru
á hendur Baldri
fyrir innherjasvik.
Tímalína Baldurs
„Með innherjaupplýsingum er átt við
nægjanlega tilgreindar upplýsingar
sem ekki hafa verið gerðar opinberar
og varða beint eða óbeint útgefendur
fjármálagerninga, fjármálagerningana
sjálfa eða önnur atriði og eru líklegar
til að hafa marktæk áhrif á markaðs-
verð fjármálagerninganna ef opinberar
væru [...] [Upplýsingar teljast opinberar
þegar útgefandi fjármálagerninga hefur
birt almenningi á Evrópska efnahags-
svæðinu þær.
Úr 120. GreiN LaGa uM VerðBréFaViðSKipTi
Svona eru lögin
Ef um innherjaupplýsingar var að ræða bar
að birta þær almenningi á EES-svæðinu
og gæta þannig jafnræðis á markaði
(annars virka ekki verðbréfamarkaðir).
Innherjaupplýsingar eru þannig vaxnar
að þær geta (ef þær eru birtar) haft áhrif á
verð hlutabréfa/verðbréfa. Þar verða allir
að sitja við sama borð.
Ef þetta voru trúnaðarupplýsingar eða
upplýsingar af öðrum toga þarf að sýna
fram á að þær séu ekki innherjaupp-
lýsingar í skilningi þess sem segir hér að
ofan. Reyndur viðskiptamaður sem DV
ræddi við taldi að þær upplýsingar sem
Baldur bjó yfir væru upplýsingar sem
glöggir menn á markaði höfðu eða gátu
orðið sér úti um. Hann undraðist raunar að
Baldur hefði ekki selt bréfin fyrr, eins og
hann hefði raunar gert sjálfur.
Á móti þessu er svo aftur hægt að segja,
að um 40 þúsund íslenskir hluthafar í
íslensku bönkunum töpuðu öllum eigum
sínum í bönkunum þegar þeir féllu. Þeir
voru í góðri trú. Því má velta fyrir sér hvað
gerst hefði ef þeir hefðu allir haft sömu
upplýsingar og Baldur hafði eftir fundi
sína í samráðshópi stjórnvalda um fjár-
málastöðugleika.
Í hverju felst ágreiningurinn?
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is