Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Page 54

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Page 54
54 | Sport 18.–20. mars 2011 Helgarblað TryllTir í TalsTöðinniÞegar ökumenn í Formúlu 1 aka yfir sextíu hringi tuttugu sinnum á ári getur ýmislegt skondið gerst. Ekki síst í talstöðvarsambandi liðsstjóra, verkfræðinga og ökumanna. Heimurinn fær alltaf að heyra allt sem kemur fram og hér á eftir fylga nokkur eftirminnileg augnablik þegar menn hafa misst sig af reiði, sungið af gleði og ælt í hjálminn sinn. „FyrirgeFðu vinur, ég ældi“ Mark Webber, Japanskappaksturinn 2007. Árið 1981 þegar Nelson Piquet vann sinn fyrsta kappakstur ældi hann í hjálminn sinn í lokakeppninni. Á þeim tímum var ekki boðið upp á talstöðvar og þurfti því enginn að heyra hvað var í gangi hjá Piquet. Annað var þó uppi á teningnum hjá Mark Webber sem einmitt ældi í hjálminn sinn þegar hann ásamt hinum kepp- endunum ók á eftir öryggisbílnum. Um leið og það gerðist mælti hann þessi fleygu orð: „Fyrirgefðu vinur, ég ældi.“ Webber tókst að vinna sig upp í annað sætið en var á endanum keyrður úr keppni af engum öðrum en núverandi liðsfélaga og ríkjandi heimsmeistara, Sebastian Vettel. „raikkonen, þvílíkur helvíTis FáviTi!“ Juan Pablo Montoya, Belgíukappaksturinn 2002. n Montoya var einn af gulldrengjunum snemma á fyrsta áratug þessarar aldar. Hann ók þetta tímabilið fyrir Williams og var heldur betur í stuði á Spa- brautinni. Hann var um það bil að bæta sinn best tíma á stökum hring þegar hann kom upp að ungum ökumanni sem hann var að hringa, Kimi Raikkonen. Raikkonen hleypti honum ekki auðveldlega framhjá sér eins og siðurinn er og trylltist Montoya og kallaði þessi orð í talstöðina. Kaldhæðni örlaganna er þó sú að þeir áttu eftir að verða liðsfélagar seinna meir og svo varð Kimi Raikkonen auðvitað heimsmeistari fimm árum síðar. „We are The champions“ Jenson Button, Brasilíukappaksturinn 2009. Tímabilið 2009 í Formúlu 1 var sérstakt fyrir margra hluta sakir. Það árið mætti til leiks nýtt lið byggt á rústum Honda, Brawn GP, og fór hreinlega á kostum. Jenson Button vann fyrstu sex keppnir ársins og varð á endanum krýndur meistari í Brasilíu í lokamótinu í Brasilíu. Þegar hann kom í mark fór hann ekki að reykspóla í hringi eins og tíðkast svo oft. Hann ákvað frekar að syngja We are the champions með Queen í talstöðina svo að öll heimsbyggðin heyrði. Það eru engar ýkjur að Button hefur verið beðinn að aka frekar en syngja. „ekki láTa þér deTTa í hug að reyna það“ Christian Horner, liðstjóri Red Bull, Kanadakappaksturinum 2010. Sebastian Vettel átti hlut að máli í tveimur mjög athyglisverðum samskiptum í þessari keppni. Fyrst var boðið upp á mjög vandræðalegt augnablik þegar Christian Horner, liðstjóri Red Bull, tjáði honum að engin taktík væri í gangi sem legði upp með sigur hans í keppninni. Hann þyrfti að taka fram úr bílunum vildi hann vinna keppnina. Seinna í keppninni spurði Vettel liðstjóra sinn hver besti tíminn í brautinni væri og ætlaði sér þá að reyna bæta hann. Vettel var ekki á dekkjum sem réðu við það og auk þess var gírkassinn ekki alveg í lagi. Því sagði Horner honum einfaldlega að gleyma því. „passaðu þig á hesTi með horn“ Liðstjórn Williams, Austuríkis kappaksturinn 2001. Eitt allra fyndnasta augnablik Formúlusögunnar er án efa í Austurríki 2001 og auðvitað átti vél- byssukjafturinn Juan Pablo Montoya þar hlut að máli. Afskaplega sérstakur hlutur gerðist í æfingahring fyrir kappaksturinn þegar fréttir bárust af því að dádýr væri hlaupandi um brautina. Dádýr á ensku er „deer“ og borið fram eins og „dear“ og benti liðstjórn Montoya honum á að það væri dádýr á brautinni eða „deer on the track.“ Montoya svaraði hress á móti: „Oh, dear.“ Liðstjórn Williams vissi ekki hvort hann væri að grínast eða ekki, þannig að til að vera alveg viss var Montoya sagt að passa sig á „hesti með horn“ sem væri hlaupandi um brautina. „Felipe, vinur, verTu rólegur“ Rob Smedley, verkfræðingur Ferrari, Malasíukappaksturinn 2009. Það er líklega ekki til frægari verkfræðinur í Formúlu 1 en Rob Smedley, sá er sér um bíl Felipe Massa. Þeir félagarnir hafa orðið ansi vinsælir undanfarin ár þar sem samband þeirra virðist oft og tíðum rómantískt. Ósjaldan gefur Smedley Massa ráð um hvernig hann geti bætt við hraða og tekið fram úr bílum, eitthvað sem liðstjórar gera oftar en ekki. Ein samskipti þeirra vöktu þó mikla athygli vegna orðalags Smedleys. Í Malasíu 2009 var Massa orðinn frekar æstur í keppninni því hann vildi ná betra sæti og mætti þá Smedley eitursvalur í talstöðina og sagði það sem útleggst mun betur á ensku: „Felipe baby, be cool.“ Rob Smedley, verkfræðingur Ferrari, Þýskalandskappaksturinn 2010. Skilaboð fyrrnefnds Smedleys á síðasta tímabili eru án efa þau umtöluðustu í sögu Formúlunnar. Massa var langfyrstur á Hockenheim-brautinni og átti sigurinn vísan. Fyrir aftan Massa var liðsfélagi hans, Fernando Alonso, sem átti mun meiri möguleika á heimsmeistaratitlinum og var 41 stigi á undan Massa í stigakeppninni. Ferrari ákvað þá að senda Alonso fram úr Massa en bein skilaboð til ökumanns um að hægja á sér eru bönnuð. Smedley fór því mjög pent að þessu eða hitt þó heldur. „Jæja, allt í lagi. Fern- ando er hraðari en þú. Geturðu staðfest að þú skiljir þetta?“ Massa skildi þetta, hægði á sér og Alonso vann. Eitthvað sem hjálpaði Ferrari mikið því á endanum hefði Alonso getað orðið heimsmeistari á lokadeginum. Allt varð vitlaust vegna þessara ummæla en Ferrari slapp með 100.000 punda sekt. Ummælin eru orðin svo fræg að hægt er að kaupa boli, bolla og fleira með þessum fleygu orðum. „Fernando er hraðari en þú“ Lewis Hamilton, Ástralíukappaksturinn 2010. Lewis Hamilton átti fína keppni í Ástralíu 2010. Hann var í þriðja sæti, langt á undan næsta manni og ætlaði að gera atlögu að öðru sætinu. Liðstjórar McLaren voru þó ekki vissir um hvort dekkin myndu endast og bjuggust við því að menn á undan honum færu inn á viðgerðarsvæðið að skipta um dekk. Ákváðu þeir því að kalla Hamilton inn fyrstan. Það fór þó svo að engin annar skipti um dekk og á meðan allir ökumennirnir á undan honum héldu stöðugum tíma þurfti Hamilton að hita upp dekkin og missti því alla langt á undan sér. Hamilton varð því mjög reiður og hreytti í talstöðina hversu glötuð hugmynd þetta hefði verið. „Fáránlega glöTuð hugmynd!“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.