Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Side 61
Sviðsljós | 61Helgarblað 18.–20. mars 2011
Endurnærir og hreinsar ristilinn
allir dásama OXYTARM
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
30+
Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is
OXYTARM
Sól og
heilsa ehf
=
Losnið við hættulega
kviðfitu og komið maganum
í lag með því að nota náttúrulyfin
Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur
days
detox
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
Bolt
inn
í be
inni
Hamraborg 11 w 200 Kópavogur w Sími: 554 2166 w www.catalina.is
Leigjum út sal fyrir veisluhöld
Um helgina spilar
Hermann ingi
Snyrtilegur klæðnaður áskilinn.
n Réttur dagsins alla virka daga
n Hamborgarar, steikar-
samlokur og salöt
n Hópamatseðlar
C
ourteney Cox er ekki spennt fyrir stefnu-
mótum á næstunni. Þetta segir hún í nýju
tölublaði tímaritsins Bazaar. „Ég hef engan
áhuga á stefnumótum akkúrat núna,“ segir
Courteney. „Ég er ekki að segja aldrei, en
það er bara eitthvað skrítið við það. Ég myndi ekki
einu sinni vita hvað myndi gerast eða hvernig
ég ætti að hitta fólk. Ég er ekki mikið fyrir það að
fara út. Ég er ekki góð í að spjalla. Mér finnst ekk-
ert gaman að fara í partí.“ Hún segir málið ekki
vera flókið: „Það er skilti á enninu á mér: Á leið úr
félagslífinu, á leið í einangrun.“
Courteney er tiltölulega nýskilin við eigin-
mann sinn David Arquette en þau voru gift í
11 ár. Hún viðurkennir að þrátt fyrir að þau séu
skilin þyki henni ennþá mjög vænt um hann. Í
viðtalinu talar hún mjög vel um hann og seg-
ir meðal annars að hann vilji engum illt og að
hann sé með gott hjartalag.
Courteney er hvað þekktust fyrir leik sinn í sjón-
varpsþáttunum Friends sem slógu rækilega í gegn.
Frá því að framleiðslu þáttanna var hætt hefur hún
leikið í nokkrum vinsælum sjónvarpsþáttum á
borð við Dirt og Cougar Town, en þeir þættir kom-
ast ekki nálægt Friends í vinsældum.
Ekki
á leið
á stefnumót
Friends-stjarnan Courteney Cox:
Þykir ennþá vænt um David Courteney virðist vera nokkuð
sátt við skilnaðinn og er ekki fúl út í David.
MYND MARIO ANZUONI / REUTERS
A
ðdáendur Justins Bieber hafa oft gengið ótrúlega langt en núna hlýt-
ur toppnum að vera náð. Eins og greint hefur verið frá hafa Selenu
Gomez borist alls kyns hótanir eftir að hún byrjaði í sambandi með
söngvaranum unga. Núna greinir breska dagblaðið Daily Mirror frá
því að tveir brjálaðir aðdáendur Biebers hafi brotist inn á hótelher-
bergi hans í Liverpool í síðustu viku. „Tvær stelpur laumuðust inn um hliðar-
dyr hótelsins og stálu fötum frá herbergisþernum,“ segir heimildarmaður
blaðsins. „Eftir að hafa skilið sín eigin föt eftir og klætt sig í þernubúningana
fóru þær með lyftu að herbergi Justins og bönkuðu á dyrnar… Eftir að hafa ver-
ið hleypt inn byrjuðu stúlkurnar, með semingi, að þrífa borð og þurrka af ryk.“
Þetta átti sér allt stað á meðan Justin var fastur á hótelherberginu vegna fjölda
öskrandi aðdáenda fyrir utan hótelið.
Brutust inn á hótel-
herbergi Biebers
Aðdáendur Justins Bieber brjótast inn:
Íbúar New York-borgar í Bandaríkjunum eru
ekki lausir við Kourtney Kardashian sem hef-
ur undanfarið dvalið í borginni við tökur á
raunveruleikasjónvarpsþættinum Kourtney
& Kim take New York sem sýndur er á sjón-
varpsstöðinni E! um þessar mundir. Kourtney
greinir frá því í viðtali við bandaríska tíma-
ritið Cliq að hún og barnsfaðir hennar, Scott
Disick, séu að velta því fyrir sér að fjárfesta í
húsnæði í borginni.
„Við förum stöðugt fram og til baka,“
segir hún. „Scott hefur verið með íbúð
í New York síðan hann fæddist svo við
erum mikið hérna. Núna eftir að við
opnuðum verslun í New York höfum
við ástæðu til að vera meira hér.“ Það
er þó ekki alveg gallalaust að flytja til
New York.
„Ef ég vildi fara eitthvert langt og
vilja taka Mason með mér væri það
erfitt því það er ekki auðvelt að vera
með barnastól í leigubíl,“ segir Kourtney.
Það ætti þó ekki að vera stórt vandamál
þar sem hún og systur hennar hafa yfirleitt
einkabílstjóra hvert sem þær fara.
LANGAR AÐ BÚA
Í NEW YORK
Kourtney Kardashian til í að flytja: