Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2011, Qupperneq 18
18 | Erlent 18. apríl 2011 Mánudagur
Ný lög að taka gildi í Kaliforníu:
Saga samkynhneigðra skyldugrein
Líklegt er að ný lög verði samþykkt
í Kaliforníu í Bandaríkjunum, sem
kveða á um að saga og fræðsla um
réttindi samkynhneigðra verði skyld
ugrein í öllum grunnskólum ríkis
ins. Kalifornía verður þar með fyrsta
bandaríska ríkið sem setur sögu og
réttindi samkynhneigðra í nám
skrána.
Frumvarpið að lögunum hef
ur þegar verið samþykkt í efri deild
þingsins og á nú eftir að verða stað
fest í neðri deildinni. Þar ráða demó
kratar ríkjum, en frumvarpið er ein
mitt frá þeim komið og því afar líklegt
að það hljóti hljómgrunn.
Það var Mark Leno, þingmaður frá
San Francisco, sem lagði frumvarp
ið fram. „Nú erum við annars flokks
borgarar og það eru skilaboðin sem
börnin fá. Ef kennarar skerast ekki í
leikinn þegar verið er að leggja börn í
einelti vegna kynhneigðar þá fá börn
þau skilaboð að það sé eitthvað að
börnunum sem sæta einelti.“
Repúblikaninn Doug La Malfa var
ekki jafnánægður með frumvarpið og
mótmælti. „Mér þykir það ekki rétt
að nú þurfi börn að velta því fyrir sér
á unga aldri hvað kynhneigð tákni,
á sama tíma og við erum að kenna
þeim að forðast kynlíf.“
Í Kaliforníu er einnig skylda að
kenna sögu kvenna, blökkumanna,
frumbyggja Ameríku, asískra inn
flytjenda og mexíkóskra innflytjenda.
Verði frumvarpið samþykkt mun saga
fatlaðra einnig bætast á listann.
bjorn@dv.is
Berlusconi
breytir lögum
Hvernig kemstu hjá því að brjóta
lög? Silvio Berlusconi veit væntan
lega lítið um það, en hann hefur
þó fundið ágætis lausn. Berlusconi
stendur í fjölmörgum málaferlum
um þessar mundir, en í einu mál
inu er hann sakaður um að hafa
mútað breska lögfræðingnum David
Mills til að ljúga í réttarsal. Nú hef
ur Frelsisflokkur Berlusconis hins
vegar náð að breyta lögunum sem
taka til mútugreiðslna, sem gerir það
að verkum að mútur eru nú glæpur
sem fyrnist. Berlusconi þarf því ekki
að hafa áhyggjur af mútumálinu
lengur. Stjórnarandstæðingar baul
uðu og sögðu Berlusconi að skamm
ast sín þegar lögin voru samþykkt á
ítalska þinginu.
Ný mynd um
Nazerbæjev
Nursultan Nazerbæjev er einstakur
maður. Hann er forseti Kasakstan og
hefur verið það síðan landið hlaut
sjálfstæði frá Sovétríkjunum árið
1991. Nazerbæjev þykir einstaklega
vænt um sína eigin ímynd og leggur
hann mikla áherslu á persónudýrk
un á sjálfum sér. Nú hefur Nazer
bæjev styrkt gerð kvikmyndar í fullri
lengd um æsku sína, en myndin
hefur nú þegar verið frumsýnd í
Kasakstan. Augljóst þykir að mynd
in, Himinn bernsku minnar, eigi eftir
að njóta mikilla vinsælda í Kasak
stan, enda er Nazerbæjev einstak
lega vinsæll meðal þjóðar sinnar. Í
síðustu forsetakosningum, sem fóru
fram árið 2007, hlaut Nazerbæjev 96
prósent greiddra atkvæða.
Á barmi kreppu
Robert Zoellick, forstjóri Alþjóða
bankans, segir að lítið megi út af
bregða svo heimsbyggðin öll þurfi
ekki að kljást við allsherjar kreppu
á næstu árum. Zoellick hélt blaða
mannafund um helgina eftir árlegan
fund helstu leiðtoga bankans og Al
þjóðagjaldeyrissjóðsins. Zoellick
sagði að hækkandi matarverð gæti
haft skelfilegar afleiðingar í för með
sér, ekki síst í fátækari löndum Afr
íku, og að heimurinn gæti ,,misst
heila kynslóð.“ Zoellick ræddi einnig
um byltingarnar í MiðAusturlönd
um og lagði áherslu á að vestræn
ríki styddu við bakið á ríkjunum sem
hafa brotist undan einræði og hjálp
uðu þeim að laga sig að nýjum og
lýðræðislegri stjórnarháttum.
Vinsældir pókers hafa farið ört
vaxandi á Íslandi á undanförnum
árum. Á það ekki síst við um póker
sem er spilaður í gegnum internet
ið þar sem hægt er að spila hvar og
hvenær sem er. Nú gæti þessi vin
sæla iðja verið í hættu fyrir suma,
að minnsta kosti þá sem hafa spil
að póker hjá þremur stærstu póker
síðum í heimi; Pokerstars, Full Tilt
Poker og Absolute Poker. Bandarísk
yfirvöld hafa nú kyrrsett fé á öllum
reikningum sem tengjast síðunum
vegna gruns um peningaþvætti og
fjárdrátt.
Gætu tapað háum fjárhæðum
Kyrrsetningin tekur einnig til inn
eigna sem áskrifendur hafa unnið sér
inn. Þetta þýðir að þeir sem telja sig
eiga fjárhæðir inni á þessum síðum
munu líklega tapa þeim.
Simon Holliday er sérfræðing
ur um fjárhættuspil á netinu. Hann
sagði í viðtali við breska blaðið The
Independent að pókersíður, á borð
við þær sem eru nú í rannsókn, séu
eins og margir þeirra banka sem
fóru á hausinn í alþjóðlegu efna
hagskreppunni sem hófst árið 2008.
„Eigendurnir þurfa að greiða háar
upphæðir til þeirra sem hafa unnið
sér inn pening á síðunum og einn
ig þurfa þeir að greiða háar sektir.
Þessar upphæðir verða það háar að
þeir eiga ekki eftir að geta greitt þær,
þannig að þeir munu væntanlega
taka féð frá áskrifendum, rétt eins og
bankar ráðskuðust með sparifé al
mennings. Ef eigendurnir geta greitt
eitthvað til baka, verður það örugg
lega aðeins brot af því sem fólk á inni
hjá þeim, alveg eins og með bank
ana.“
Gæti verið fordæmisgefandi
Lögspekingar í Bretlandi telja að
málið gæti orðið fordæmisgefandi
fyrir fjárhættuspil á netinu. Eins og
staðan er í dag eru síður sem bjóða
upp á fjárhættuspil reknar frá stöð
um eins og eyjunni Mön, Tortola
eyjum og öðrum stöðum þar sem
fjárhættuspil er löglegt.
Fjárhættuspil á netinu er í dag
orðinn iðnaður sem veltir mörgum
þúsundum milljarða á ári hverju.
Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna
mun nú væntanlega fá úr því skor
ið hvort það standist lög að stunda
fjárhættuspil á netinu þar sem fjár
hættuspil er í raun bannað. Talið er
að málið gæti verið fordæmisgefandi
og gætu því íslenskir fjárhættuspilar
ar þurft að vara sig í framtíðinni.
n Bandarísk yfirvöld hafa fryst alla reikninga vinsælustu pókersíðna
í heimi n Sérfræðingur líkir þeim við banka sem fjárfestu fyrir ann-
arra manna fé n Málið gæti bundið enda á fjárhættuspil á netinu„Talið er að málið
gæti verið for-
dæmisgefandi og gætu
því íslenskir fjárhættu-
spilarar þurft að vara sig í
framtíðinni.
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
Vinsælt á Íslandi Póker hefur notið vaxandi
vinsælda á Íslandi undanfarin ár. Búið er að loka
þremur af stærstu póksersíðum í heiminum.
Ríkisstjóri Kaliforníu, Jerry
Brown Saga samkynhneigðra verður
skyldunámsgrein í skólum ríkisins.
Pókergróði
kyrrsettur
http://www.facebook.com/
stebbari