Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2011, Síða 22
22 | Fókus 18. apríl 2011 Mánudagur
Björgvin Halldórsson sýnir á sér nýja hlið á Blúshátíð Reykjavíkur:
Ryðgaður á munnhörpunni
Blúsarar landsins sameinast á Blúshá-
tíð Reykjavíkur sem hófst með pompi
og prakt um helgina. Þrennir stórtón-
leikar verða haldnir í vikunni á Hilton
Nordica á þriðjudags-, miðvikudags-
og fimmtudagskvöld. Á þriðjudag
stíga Björgvin Halldórsson, Páll Rós-
inkranz & Blúsmafían á svið. Björgvin
sýnir á sér nýja hlið með þessu góða
teymi og ætlar í þokkabót að taka upp
munnhörpuna aftur eftir margra ára
hlé eins og góðum blúsara sæmir.
„Ég er nú eitthvað orðinn ryðgaður í
þessu, ég verð nú að æfa mig áður en
ég reyni þetta,“ segir Björgvin og hlær.
Hann er hrifinn af blúsnum. „Það er
kraftur og orka í blúsnum, ég hef gam-
an af því að syngja þessa tónlist.“
Blúsmafían sem verður á sviði
með stórsöngvaranum er skipuð af
Þóri Baldurssyni, Guðmundi Péturs-
syni, Róberti Þórhallssyni, Pálma Sig-
urhjartarsyni og Jóhanni Hjörleifssyni
ásamt blásurum og bakröddum.
Á þessu kvöldi koma einnig fram
Jóhanna Guðrún og Elvar Örn Frið-
riksson ásamt hljómsveit og Blús-
hljómsveitin Ferlegheit frá Akranesi.
Á miðvikudagskvöldið mætir svo
efnilegur blústónlistarmaður frá
Bandaríkjunum, Marquise Knox,
stundum kallaður krónprinsinn frá
Mississippi. Hann er ungur og mikið
undrabarn, fæddur árið 1991, en þrátt
fyrir ungan aldur margverðlaunaður
tónlistarmaður sem spilar af næmni.
Hljómsveitin Klassart kemur fram
þetta sama kvöld.
Á skírdag koma svo fram Vasti
Jackson & The Blue Ice band og Stone
Stones sem íslenskir blúsaðdáendur
ættu að þekkja. kristjana@dv.is
Kraftur og orka í blúsnum Blúsmafían,
Páll Rósinkranz og Björgvin blúsa á Hilton
Nordica.
Krimma-páskar
Ef vorhretið heldur áfram að draga
úr útivistarþránni er ágætis hug-
mynd að taka með sér nokkra
krimma í páskafríið. Þrír góðir og
nýlegir krimmar hafa verið á met-
sölulistum bókaverslana. Öllum hef-
ur verið hampað og má mæla með.
Um er að ræða Konuna í búrinu, eft-
ir Jussi Adler-Olsen. Djöflastjörnuna
eftir Jo Nesbø og bók Åsu Larsson,
Myrkraslóð.
Åsa Larsson er sænsk og upp-
rennandi glæpasagnahöfundur,
Jo Nesbø vilja margir kalla helstu
stjörnu Norðurlanda í heimi glæpa-
sagna um þessar mundir og Jussi-
Adler Olsen hefur vakið mikla
athygli fyrir skemmtilega persónu-
sköpun sína í sérvitra rannsóknar-
lögreglumanninum Carl Mørk.
Á valdi for-
tíðarinnar
Konfúsíusarstofnunin Norðurljós
sýnir heimildamyndina Á valdi for-
tíðarinnar í Öskju, stofu 132, í Há-
skóla Íslands næstkomandi þriðju-
dag. Kvikmyndin fjallar um ungann
mann sem á erfitt með að fóta sig í
lífinu vegna skilnaðar foreldra sinna
í skugga menningarbyltingarinnar
í Kína. Sýningin er opin öllum og er
aðgangur ókeypis. Sýningin fer fram
þriðjudaginn 19. apríl á milli klukkan
17.30 og 18.30
íslensk sýning
verðlaunuð
Margmiðlunarfyrirtækið Gagarín ehf.
og Batteríið arkitektar ehf. hlutu ný-
lega 1. verðlaun í boðssamkeppni um
sýningu á samspili manns og sjófugla
fyrir Norsk Sjøfuglsenter á Værlandet
sem er eyja við vesturströnd Noregs.
Verkefnið var fyrsta samstarfsverkefni
þessara tveggja íslensku fyrirtækja en
augljóst er af verðlaunum að dæma
að samvinnan hefur gengið vel. Sam-
kvæmt fréttatilkynningu verður sýn-
ingunni komið fyrir í gamalli skipa-
smíðastöð og byggir í ríkum mæli á
gagnvirkri framsetningu en hún ber
yfirskriftina Náttúrunni er sama – en
þér?
S
afnstjóra Listasafns Árnes-
inga fannst þetta of gróft,“
segir Tinna Grétarsdóttir
mannfræðingur einn þriggja
sýningarstjóra sýningarinnar Koddu.
Sýningin sem var unnin í samvinnu
Tinnu og myndlistarmannanna
Hannesar Lárussonar og Ásmundar
Ásmundssonar hafði áður verið rit-
skoðuð og slegin af í Listasafni Árnes-
inga.
Listamenn sýndu samstöðu
Þríeykið gafst ekki upp eftir að
hafa verið fleygt út úr safni Árnesinga
og setti stefnuna á að setja upp sýn-
inguna við listvænni skilyrði. Margir
af bestu listamönnum landsins, ljós-
myndarar og hönnuðir sýndu þre-
menningunum kröftuga samstöðu og
sýningin sem opnuð var um helgina
er mun stærri en sú upphaflega.
„Sýningin hefur breyst, stækkað og
dýpkað,“ segir Tinna frá. „Nú koma að
sýningunni yfir fjörutíu listamenn og
mikil rannsóknarvinna liggur að baki
sýningunni.“
Merkileg heimild
Gögnin sem Tinna segir frá eru viða-
mikil og varða þjóðfélagið fyrir og
eftir hrun. „Við rýndum í fjölmiðla,
vefsíður, auglýsingar, hönnun, opin-
berar skýrslur og jafnvel listviðburði.
Við unnum með gríðarlega mikið af
gögnum og það var alltaf að bætast
í ekki síst í umræðum við marga af
þátttakendum í sýningunni. Þetta er
lifandi sýning og það sem er einmitt
einna áhugaverðast við hana er dýna-
míkin í aðferðarfræði hennar, grein-
ingin á gögnunum og túlkunin í list-
rænu samhengi.“
Koddu
Tinna segir heiti sýningarinnar feng-
ið úr markaðsherferðinni: Inspired By
Iceland. „Orðið er lýsandi fyrir hug-
myndafræðilega miðju þessarar aug-
lýsingaherferðar. Myndbandið var eitt
af því sem við skoðuðum í tengslum
við sýninguna. Orðið koddu kemur
fram í miðju myndbandinu. Það er
nakin stúlka sem að því virðist er ofan
í holu eða polli, kallar koddu með
barnslegri og kitlandi rödd. Okkur
skilst að þetta nektaratriði hafi verið
tekið út úr myndbandinu á YouTube,
ritskoðað. Þetta er áhugaverð sena
um hvernig vörumerkja stjórnendur
kjósa að miðla þjóðinni. Þarna er
vísað í náttúrubarnið og frjálsræðið
og svo er það konan sem hefur lengi
verið markaðssett sem neysluvara í
ferðaiðnaðinum eins og allar íslensk-
ar konur þekkja.“
Atlaga að myndmáli smáþjóðar
Sýningin er með liðsmuninum og
meiri gagnagreiningu líklega enn
beittari en hún var fyrir nokkrum
mánuðum þegar stóð til að sýna í
safni Árnesinga og Hannes Lárusson
myndlistarmaður og einn sýningar-
stjóra vill að auki meina að hún sé
löngu tímabær.
„Þetta er að mínu viti fyrsta alvar-
lega atlagan sem er gerð að myndmáli
smáþjóðar,“ segir Hannes. „Hvernig
það birtist, og hvað er undir: landið
náttúran og fólkið. Sýningin er tíma-
bær vegna þess að ég held að íslensk
myndlist hafi verið í spennitreyju
síðustu áratugi. Menn hafa verið að
kafna undir oki þessa myndmáls og
kröfunni um að standa með smáþjóð
í baráttu.“
Hræðsla við ímyndaða ógn
Kom það Hannesi á óvart hversu mik-
ið fólki var brugðið við að sjá mynd-
ir af Bjarna Ármannssyni og Svöfu
Grönfeldt? Og heldur hann að fjaðra-
fokið verði meira í kjölfar sýningar-
innar í Nýlistasafninu? „Jú, það kom
mjög á óvart að fólk hrökk við að sjá
þessar myndir. Viðbrögðin einkennd-
ust af hræðslu við eitthvert ímynd-
að vald eða ógn og í þeim felst mikið
óöryggi um stétt og stöðu innan sam-
félagsins. Þetta eru bara unnar mynd-
ir og listræn túlkun á ástandinu sem
hér ríkti fyrir hrun.
Við erum meðvituð um að þegar
verið er að hræra í jafn viðkvæmum
málum er jafnframt verið að hræra í
ákveðnum hagsmunum. Það hanga
peningar á spýtunni. Ég held að það
sé óhjákvæmilegt að það verði eitt-
hvert fjaðrafok, en ekki síst meðal
listamannanna sjálfra sem þurfa að
líta í eigin barm.“
Íslandsstofa hálf-stalínísk
stofnun
Margumtöluð er markaðsherferð-
in Inspired by Iceland, fær hún það
óþvegið?
„Herferðin er tekin fyrir, hún er
enda nýja flaggskipið. Það er líka
merkilegt að það er hálf-stalínísk
stofnun sem keyrir hana áfram, Ís-
landsstofa, það eru raunverulega
einkaaðilar sem reka hana en með fé
frá ríkinu. Þetta eru harðkjarna við-
skipti og alls ekki eins góðlátleg og
þau líta út fyrir að vera.“
Nú tekur sýningin á ástandinu fyrir
hrun og eftir hrun. Er þjóðernishyggj-
an meiri fyrir eða eftir hrun og fer hún
jafnvel vaxandi?
„Jú, frumstæðar og eiginlega kæf-
andi þjóðrembuhvatir hafa aukist
mjög eftir hrun. Það er afleitt því það
gerir ekkert annað en að standa raun-
verulegri menningu og uppbyggingu
fyrir þrifum. Gerir okkur bara að al-
gjörum jólasveinum í augum um-
heimsins. Við erum komin að alger-
um þolmörkum hvað þetta varðar.“
kristjana@dv.is
Nokkrir af þekktustu listamönnum þjóðarinnar opnuðu sýninguna Koddu í Nýlistasafninu um helgina. Sýningin
hafði áður verið ritskoðuð og slegin af í Listasafni Árnesinga í Hveragerði í nóvember. Fjörutíu listamenn leggja
fram túlkun sína á menningarpólitík og markaðsvæðingu þjóðernishyggjunnar fyrir og eftir hrun.
Hópurinn sem stendur að sýningunni Tinna
Grétarsdóttir, Bryndís Björnsdóttir myndlistarkona, Ingvar
Högni Ragnarsson, myndlistarmaður og aðstoðarsýn-
ingarstjóri, Hannes Lárusson og Ásmundur Ásmundsson.
íslensk myndlist
í spennitreyju
Morgunblaðið Gestir á sýningunni virða
fyrir sér áleitið verk um fjölmiðilinn Morgun-
blaðið.