Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2011, Blaðsíða 9
Fréttir | 9Miðvikudagur 27. apríl 2011
Slitastjórn Kaupþings hefur höfð-
að mál á hendur nokkrum stjórn-
endum gamla Kaupþings vegna
persónulegra ábyrða þeirra vegna
hlutabréfakaupa. Hreiðar Már er
ekki einn þeirra. Því eru hverfandi
líkur á því að hann þurfi að standa
skil á nærri sjö milljarða króna skuld
sem hvílir á einkahlutafélagi hans
þar sem persónuleg ábyrgð hans var
engin.
Laun Hreiðars Más 2004 til 2008:
Ár Heildarlaun Á mánuði
2004 207 milljónir 17,2 milljónir
2005 395 milljónir 32,9 milljónir
2006 968 milljónir 80,7 milljónir
2007 907 milljónir 75,6 milljónir
2008 588 milljónir 49,0 milljónir
Samtals: 3065 milljónir
Laun Hreiðars Más
Arður og skuldir Hreiðars Más Sigurðssonar ehf.
Ár Arður Skuldir
2006 150 milljónir 3.452 milljónir
2007 96 milljónir 4.214 milljónir
2008 147 milljónir 6.007 milljónir
2009 0 milljónir 6.847 milljónir
Samtals: 393 milljónir
Arður og skuldir
HREIÐAR MÁR LAUS VIÐ
SJÖ MILLJARÐA SKULDIR
Réðust á menn
með bareflum
Tveir menn um tvítugt leituðu að-
hlynningar á slysadeild aðfaranótt
þriðjudags eftir að ráðist hafði verið
á þá í miðborg Reykjavíkur. Árásar-
mennirnir voru grímuklæddir og
vopnaðir bareflum og er talið að þeir
hafi ætlað að ræna fórnarlömb sín.
Atvikið átti sér stað skammt frá Ing-
ólfstorgi. Samkvæmt upplýsingum
frá lögreglu reyndu mennirnir að
verja sig en áverkar þeirra eru ekki
sagðir alvarlegir. Hinir grímuklæddu
árásarmenn munu ekki hafa haft
mikið upp úr krafsinu í ráninu. Árás-
armennirnir eru ófundnir.
Skemmdarvargar
á Vestfjörðum
Lögreglan á Vestfjörðum hafði í
nóg að snúast yfir páskahelgina.
Kveikt var í sinu á Ísafirði og í
Bolungarvík. Þá var brotist inn í
tvær verslanir í Bolungarvík og
brotin rúða í sendiferðabíl einnar
verslunarinnar. Þá var borinn
eldur að gamalli jeppabifreið í
Bolungarvík og gereyðilagðist
hún. Eftir rannsókn lögreglu voru
fjórar manneskjur handteknar,
grunaðar um aðild að þessum
innbrotum og skemmdarverkum.
Þau viðurkenndu aðild sína að
þessum málum og var sleppt eftir
yfirheyrslur.
Öryrkinn Anna Lísa Salómonsdótt-
ir segist reiða sig á hafragraut og að-
standendur til að ná endum saman.
Þegar hún hefur greitt alla reikn-
inga fyrir mánuðinn segist hún eiga
um þrjátíu þúsund krónur til að lifa
af út mánuðinn.
Greint var frá aðstæðum Önnu
Lísu í kvöldfréttum Ríkissjónvarps-
ins á þriðjudagskvöld. Hún er ör-
yrki sökum lungnasjúkdóms, astma
og gigtar og þarf að reiða sig á bif-
reið til að komast ferða sinna. Hún
sagðist ekki geta farið fótgangandi
eða tekið strætó sökum heilsuleys-
is. Hún segist einangrast því hún
geti lítið notað bílinn vegna þess
hversu eldsneytisverð hefur hækk-
að en uppbót til öryrkja hefur nán-
ast staðið í stað samanborið við
hækkun eldsneytisverðs.
„Þegar ég er búin að borga allt
hef ég þrjátíu þúsund á mánuði.
Það má ekkert út af bera þá svelt
ég. Ég má ekki fara í matarraðirnar
til að fá mat því ég hef ekki heilsu í
það,“ sagði Anna Lísa í samtali við
fréttastofu Ríkissjónvarpsins.
Hún segist þurfa að skera allt
niður og kaupa ódýrustu vörurn-
ar. „Það er bara hafragrauturinn og
ódýrustu vörurnar. Maður borðar
einu sinni á dag. Það er ekker ann-
að hægt,“ sagði Anna. Hún sagðist
vilja að yfirvöld myndu sýna fólki
hvernig væri hægt að lifa á örorku-
bótum. „Það held ég að þau myndu
aldrei geta.“ birgir@dv.is
Lifir á þrjátíu þúsund krónum eftir föst útgjöld:
„Borðar einu sinni á dag“
Nærist á hafragraut Anna Lísa Salómonsdóttir segist borða aðeins einu sinni á dag.
M
y
N
d
k
jÁ
Sk
o
t
A
f
v
ef
ík
iS
ú
t
v
A
R
p
Si
N
S