Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2011, Blaðsíða 26
26 | Fólk 27. apríl 2011 Miðvikudagur
„Ég var í litun áðan og er kominn með
eins svart hár og hægt er,“ segir vöðva-
fjallið og rithöfundurinn Egill Einarsson,
betur þekktur sem Gillz eða Þykki. Egill fer
með hlutverk í spennumyndinni Svartur á
leik sem byggð er á samnefndri skáldsögu
Stefáns Mána og hefur þess vegna þurft að
gangast undir minniháttar útlitsbreytingu.
Er hann kominn með kolbikasvart hár.
„Ég er ógeðslegur,“ segir hann kíminn.
„Þetta er svo svakalega svart hár að fólk
hefur verið að ruglast á mér og Ásgeiri Kol-
beins. Ég tek því nú samt sem hrósi, að vera
líkt við „Kolbarann“. Ég er samt ekki alveg
búinn að venjast þessu. Mér líður svolítið
eins og ég sé á leiðinni á Skímó-ball,“ segir
Egill en hárið er ekki það eina sem breytist
við Egil.
„Svo fæ ég líka tattú yfir alla höndina.
Og ekki bara eitthvert tattú, heldur træbal,
takk fyrir. Þar sem ég læt ekki sjá mig í
ræktinni í öðru en hlýrabol eiga allir eftir að
sjá tattúið. Það á nú samt sem betur fer að
fara á einum mánuði,“ segir Egill.
Egill hefur verið með ýmiss konar hár-
greiðslur í gegnum tíðina en aldrei hefur
hann verið svarthærður. „Ég var með fjólu-
blátt hár í MK sem var ógeðslegt. Mér fannst
það samt töff þá. En þetta er eins og ég segi
alltaf, hár vex. Hjöbbi félagi minn [Hjörvar
Hafliðason knattspyrnuspekingur, innsk.
blm.] er til dæmis búinn að vera með sömu
greiðsluna frá því hann var tólf ára. Ég og
hársnyrtirinn okkar, Robbi Carter, erum
alltaf að reyna að fá hann til að breyta til en
það gengur ekkert. Menn verða að flippa
aðeins með hárið á sér. Ég verð allavega
svona ógeðslegur í einhverjar þrjár vikur,“
segir Egill Þykki Einarsson.
tomas@dv.is
Gillz orðinn svarthærður og fær bráðum træbal-húðflúr:
„ÉG ER ÓGEÐSLEGUR“
Svarthærður Gillz Þykki er breyttur maður þessa dagana. MYND SIGTRYGGUR ARI
GEIR ALLTAF
Í BOLTANUM
Söngvarinn Geir Ólafsson er mikill
fótboltaunnandi og einnig mikill Valsari.
Hann hefur undanfarna daga verið að slá
í gegn í liðnum „álitið“ á sparkvefsíðunni
fotbolti.net þar sem hann leggur sitt mat á
fótboltasumarið sem hefst um helgina. Geir
hefur fylgst ötullega með Völsurunum sínum
að undanförnu og sat á fremsta bekk á
mánudagskvöldið þegar Valur vann Lengju-
bikarinn eftir framlengdan leik gegn Fylki.
Hemmi Gunn ekki
á leið í pólitík
Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr,
Gaukur Úlfarsson leikstjóri og Heiða
Helgadóttir, framkvæmdastjóri Besta
flokksins, hafa undanfarið haft í nógu
að snúast vegna heimildarmyndar um
borgarstjórann og Besta flokkinn sem
tekin var til sýninga á Tribeca-kvik-
myndahátíðinni í New York. Þau hafa
meðal annars farið í ótal viðtöl við
erlenda miðla en í viðtali við vefritið NY1
sögðust þau Heiða og Gaukur merkja
breytingar í stjórnmálum.
Heiða sagði forsætisráðherra vera
farinn að nota Facebook meira en áður
og Gaukur bætti við að hann hefði
heyrt orðróm þess efnis að Sjálfstæðis-
flokkurinn væri að reyna að fá Hemma
Gunn til liðs við sig. Blaðamaður DV
sló á þráðinn til Hemma og innti hann
eftir þessu en Hemmi kom af fjöllum:
„Nei, ég kannast nú ekkert við það.
Alþýðuflokkurinn, Framsóknarflokkur
og Sjálfstæðisflokkurinn leituðu til mín
um einhvers konar
liðsstyrk á sínum
tíma en ég hef
aldrei viljað gefa
kost á mér í neitt
svona,“ sagði
Hemmi sem lá
slakur í 28 stiga
hita í sólinni á
Spáni. „Hann
Gaukur hefur
bara eflaust
verið eitthvað
að grínast,“
sagði hann
og bætti við:
„Er þetta
ekki allt
eitthvert
grín hjá
þessum
flokki?“
JULIU STILES
OG TAYE DIGGS
VINNUR MEÐ
É
g er aðallega að finna og skoða tökustaði víða
um Suður-Kaliforníu og mun vera í ýmsum
verkefnum í tökunum,“ segir
Ragnhildur um þátt sinn í kvik-
mynd í Hollywood með þeim Juliu Stiles
og Taye Diggs í aðalhlutverkum. „Ég er
auðvitað bara að gera þetta sem hluta
af starfsnámi í námi mínu við New York
Film Academy hjá Universal. Ég var
heppin að detta í þessa indí-mynd með
skemmtilegu fólki.“
Fleiri frægir í myndinni
Myndin sem um ræðir er kolsvört grín-
mynd sem heitir Between Us. Myndin
er byggð á samnefndu Broadway-leik-
riti og fjallar um tvö vinapör og gamla
félaga sem hittast og ræða um afdrif
sín í lífinu og hvernig peningar, frami
og barneignir hafa haft sitt að segja um
gang lífsins.
Aðrir frægir leikarar í myndinni eru
Melissa George, sem lék í In Treat-
ment, og David Harbour, úr The
Green Hornet. Handritið skrifaði Joe
Hortua og Dan Mirvish leikstýrir.
Myndin er framleidd í Los Angeles
þar sem Ragnhildur stundar nám.
Líður vel í Bandaríkjunum
Ragnhildi líður vel úti í Bandaríkjun-
um þar sem hún varði stórum hluta
æsku- og unglingsáranna. Hún fluttist
aftur þangað síðastliðið sumar ásamt
Mikael Torfasyni rithöfundi til þess
að fara í þetta vandaða nám. Þau slitu
sambandinu og Ragnhildur er ein eft-
ir úti og gengur augljóslega vel í nám-
inu. „Við erum í „pre-production“, eða
að undirbúa tökur. Julia Stiles er mjög
flott og hefur komið til Íslands. Þetta er
verulega skemmtilegur hópur og fjöl-
breyttur sem ég vinn með og leikstjór-
inn er mjög flippaður og skemmtilegur
Ameríkani af bestu gerð.“
Ragnhildur fær nóg af tækifærum
í Hollywood. Hún lærir allt frá lög-
fræði upp í að framleiða myndir,
skrifa handrit og vinna við stærri myndir eins og
þessa sem hún mun vinna við í maí og júní.
Í stjörnufans
Ragnhildur fær
ótrúleg tækifæri í
Hollywood.
Íslandsvinur Julia Stiles dvaldi hér á landi
við tökur á myndinni A Little Trip to Heaven
með Forrest Whitaker.
Dáður leikari Taye Diggs er virtur og dáður í Hollywood.
n Lærir við New York Film Academy hjá Uni-
versal Studios n Líður vel í Bandaríkjunum
n Vinnur með stórstjörnum í náminu