Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2011, Side 15
Neytendur | 15Miðvikudagur 27. apríl 2011
Vorverkin nálgast Nú þegar farið er að vora er
tilvalið að fara að huga að því að laga allt sem aflaga hefur
farið um veturinn. Þegar vorhret og næturfrost eru að mestu
um garð gengin má til að mynda fara að huga að því að taka
til í blóma- og runnabeðum. Þá þarf að yfirfara grasflötina á
hverju vori. Laga ójöfnur með sandi og skera burt fífla, reyta burt
sóleyjar og annað illgresi. Annars er ekkert því til fyrirstöðu að
skreyta garðinn með sumarblómum eins og stjúpum og fagur-
fíflum nú strax í apríl.
Kvörtun send til ESA Hagsmunasamtök heimil-
anna og Samtök lánþega hafa með aðstoð hæstaréttarlög-
manna, sérfræðinga í Evrópurétti og löggiltra endurskoðenda,
ásamt um eitt þúsund einstaklingum, undirritað og sent form-
lega kvörtun til ESA vegna meintra brota íslenskra stjórnvalda
og stjórnsýslu á Evrópurétti. Framkvæmdastjórn ESB og forseta
Evrópuþingsins hafa jafnframt verið tilkynnt um kvörtunina og
aðstoðar þeirra óskað vegna málsins innan ramma aðildarvið-
ræðna Íslands.
Góður svefn er afar mikilvægur fyrir
heilsu fólks og lífsgæði. Ýmsar rann
sóknir hafa sýnt fram á það að sofi
fólk í minna en sex til sjö tíma á sólar
hring eigi það frekar á hættu að þróa
með sér ýmsa sjúkdóma. Regluleg
ur og góður svefn getur meðal ann
ars komið í veg fyrir krabbamein og
hjartaáföll, auk þess að bæta minnið
og minnka streitu. Ef þú sefur vel get
urðu stundað vinnuna betur og verð
ur síður fyrir tekjumissi vegna þreytu,
slappleika, gigtar eða hálseymsla.
Það eru því margt sem mælir með
því að fólk vandi sig þegar kemur að
svefnvenjum.
Svefnstellingar fólks geta valdið
bakverkjum, verkjum í hálsi og jafn
vel ótímabærum hrukkum. Á vef
CNN er farið yfir hvaða stellingar séu
bestar fyrir líkamann – auk þeirra
stellinga sem fólk gæti viljað forðast.
Sú besta: Bakstellingin
Með því að sofa á bakinu er auðveld
ara fyrir fólk að halda höfði, hálsi
og hrygg í hlutlausri stellingu. Með
því að halda bakinu nokkurn veg
inn beinu er ekki verið að auka álag
á það, segir Steven Diamant, hnykk
læknir í New York.
Kostirnir við stellinguna eru þeir
að hún kemur í veg fyrir bakverki,
minnkar bakflæði og hægir á hrukku
myndun. Ástæða þess er sú að þá er
ekkert sem þrýstist gegn andlitinu í
svefni, segir Dee Anna Glaser, próf
essor í húðsjúkdómafræði í Saint Lo
uisháskólanum. Ókostirnir við stell
inguna eru þeir að hún getur valdið
miklum hrotum. Besti koddinn fyrir
stellinguna er vel bústinn. Með slík
um kodda fæst góður stuðningur við
höfuð og háls.
Næstbesta: Hliðarstellingin
Að sofa á hliðinni er almennt gott fyr
ir heilsuna. Það kemur í veg fyrir hrot
ur og heldur hryggnum ílöngum. Fyr
ir fólk sem þjáist af bakflæði er þetta
næstbesta svefnstellingin, á eftir bak
stellingunni. Kostirnir við stellinguna
eru þeir að hún kemur í veg fyrir bak
verki, minnkar bakflæði og kemur í veg
fyrir hrotur. Þá er stellingin sérstaklega
góð fyrir óléttar konur, en í grein CNN
er mælt með því að þær sofi á vinstri
hliðinni þar sem það auki blóðflæði.
Þá eru ókostirnir sagðir vera þeir
að stellingin geti valdið hrukkum þar
sem fólk snúi sér að koddanum í rík
ara mæli en þegar það liggur á bakinu.
Besti koddin fyrir stellinguna er sagð
ur vera þykkur, svo hann geti fyllt upp í
plássið fyrir ofan axlir þannig að höfuð
og háls haldist í hlutlausri stellingu.
Ekki góð: Fósturstellingin
Ekki er mælt með því að fólk sofi í
fósturstellingunni eftir að það fæðist
í þennan heim, samkvæmt umfjöllun
CNN. Þeir sem sofa í þessari stellingu
eiga til að finna fyrir því að morgni,
sérstaklega ef þeir eru gigtveikir, segir
Eric Olson hjá Mayoheilsugæslunni
í Rochester, Minnesota. Þá eru miklar
líkur á því að þeir sem venja sig á þessa
stellingu hrjáist af bakverkjum og fái
hrukkur fyrr en ella.
Kostirnir eru þó þeir að hroturnar
minnka og margar barnshafandi kon
ur eiga auðveldara með svefn sofi þær
í fósturstellingunni. Fólk sem sefur í
þessari stellingu ætti að íhuga að reyna
að rétta aðeins úr sér. Besti koddinn er
vel bústinn eins og fyrir hliðarstell
inguna – til þess að styðja við höfuð og
háls.
Sú versta: Magastellingin
Stellingin setur pressu á liðamót og
vöðva, sem getur valdið taugatitringi,
sársauka, doða og kláða. Að liggja á
maganum til lengri tíma getur gert það
að verkum að erfitt er að halda hryggn
um í hlutlausri stöðu. Kostir stellingar
innar eru þó þeir að hún kemur í veg
fyrir hrotur. Þannig að ef þú átt ekki við
bakvandamál að stríða en vilt minnka
hroturnar er þetta kannski stellingin
fyrir þig. Besti koddinn er þunnur og
lítill, eða ef til vill ekki neinn.
Best að sofa á bakinu
n Best er fyrir líkamann að sofa á bakinu n Ekki mælt með fóstur-
stellingunni n Góður svefn getur komið í veg fyrir sjúkdóma „Ekki er mælt með
því að fólk sofi í
fósturstellingunni eftir
að það fæðist í þennan
heim, samkvæmt um-
fjöllun CNN.
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
Misgóðar stellingar Það skiptir
miklu máli í hvaða stellingu fólk sefur.