Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2011, Qupperneq 29
Fólk | 29Miðvikudagur 27. apríl 2011
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
Verkstæði - Varahlutir - Smurþjónusta - Metan ísetningar
Karlhóran
GENGIN Í ÞAÐ HEILAGA
Íslandsvinurinn Rob Schneider fann draumadísina:
Leikarinn Rob Schne
ider sem
er þekktastur fyrir leik sinn í
myndunum um karlhóruna
Deuce Bigalow gekk í það heilaga
á laugardaginn. Sú heppna heitir
Patricia Azarcoya Arce en athöfn-
in fór fram í Beverly Hills og aðeins
þeim allra nánustu var boðið.
Rob hefur einnig komið fram
í mörgum myndum með Adam
Sandler og árið 2005 heiðraði hann
Íslendinga með nærveru sinni þeg-
ar hann kom hingað til að kynna
myndina Deuce Bigalow: European
Gigolo, sem er framhald myndar-
innar Deuce Bigalow: Male Gigolo.
Rob sagði í viðtali við People
Magazine að laugardagurinn hefði
verið besti dagur ævi sinnar en
Rob er 47 ára. „Við skemmtum okk-
ur stórkostlega í brúðkaupinu og
hlökkum nú til brúðkaupsferðar-
innar,“ sagði gamanleikarinn sátt-
ur. Í hlutverki gígólós Rob varð
frægur fyrir að leika karlhóru.
Gullfalleg eiginkona
Patricia og Rob eru
lukkuleg saman.
Lindsay Lohan er sérlega lagin við að koma sér í vandræði en nýverið var hún dæmd til að sinna samfélagsþjónustu í líkhúsi og
sinna heimilislausum konum. Lindsay vann sér
það til saka að þessu sinni að rjúfa skilorð og því
var hún dæmd til að vinna í 120 klukkustundir
við samfélagsþjónustu í líkhúsi.
Hún á að sinna helstu verkum húsvarðar og
ræstitæknis, meðal annars þrífa klósett, þurrka
úr gluggum, sópa gólf og sitthvað fleira. Þetta
mun vera í annað sinn sem Lindsay Lohan
starfar í líkhúsinu en árið 2007 var hún dæmd
til starfa þar fyrir að aka undir áhrifum áfengis.
Fyrir utan að sinna ræstistörfum innan um
látna þarf Lindsay jafnframt að leggja af mörk-
um 360 klukkustunda vinnu á heimili fyrir vega-
lausar konur í Los Angeles. Sökum þessara anna
verður eflaust nokkuð langt að bíða þar til vand-
ræðagemlingurinn nær að blása lífi í það sem
eitt sinn hét leiklistarferill.
Lindsay Lohan fer hamförum:
Dæmd til að
þrífa klósett
í líkhúsi
Elton John er ekki þekktur fyrir annað en að fara sínar eig-in leiðir í lífinu og það sama gildir þegar kemur að um-önnun sonar hans en popparinn lætur staðgöngumóður
drengsins senda brjóstamjólk á degi hverjum með hraðpósti.
Drengurinn litli er fjögurra mánaða og hefur fengið hið nánast
konunglega nafn Zachary Jackson Levon Furnish-John. Þrátt
fyrir að slúðurblöðin í Bretlandi haldi öðru fram er drengur-
inn sagður búa við gott atlæti frá feðrum sínum og aðeins ein
fóstra var ráðin til að annast hann en ekki fjórar eins og haldið
var fram. Sá litli er heldur ekki með sinn eigin kokk eða barna-
herbergi sem hefur verið innréttað fyrir marga milljarða.
Elton John, sem er 64 ára, og eiginmaður hans David Furn-
ish, sem er 48 ára, segjast leggja sig fram um að annast þann
litla sjálfir en í því felst að þeir baða hann, skipta á honum, gefa
honum að borða og lesa fyrir hann á kvöldin. Pabbarnir leggja
áherslu á að kenna syninum góð gildi í lífinu og segjast meðvit-
aðir um gallana sem fylgja því að alast upp hjá heimsfrægum
foreldrum.
Elton og David hugsa vel um son sinn:
Fær brjóstamjólk
með hraðpósti
Mariah Carey er fremur þekkt fyrir glaðlyndi en stíl og þokka. Mariah á von á barni bráðlega með manni
sínum Nick Cannon og tók upp á því um
páskana að mála á sér bumbuna. Hún
sýndi svo afraksturinn á Twitter-síðu sinni
og skrifaði: „Gleðilega páska! Namm...
Tilbúið!!!“
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Mariah tekur
upp á því að skreyta bumbuna en í síðasta
mánuði lét hún skreyta hana með risastóru
fiðrildi.
Páskabumba!
Mariah Carey skreytir bumbuna:
Ja, hérna hér!
Mariah er ekkert
lítið hrifin af því að
ota fram bumbunni
á meðgöngunni.
Endurnærir og hreinsar ristilinn
allir dásama OXYTARM
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
30+
Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is
OXYTARM
Sól og
heilsa ehf
=
Losnið við hættulega
kviðfitu og komið maganum
í lag með því að nota náttúrulyfin
Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur
days
detox