Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2011, Page 13
farið saman upp á spítala að kveðja
hana. „Það var rosalega erfitt, eig-
inlega ólýsanlegur harmur. Þetta
er eitthvað sem fólk verður að upp-
lifa til þess að geta skilið það. Þetta
er rosalega skrýtið og ég er ekki að
trúa þessu. Mér þótti mjög vænt um
hana.“
„Ég skil ekki hvað gerðist“
Bára er ekki sú eina sem á erfitt með
að trúa því sem gerðist. Það sama
sögðu vinir hennar tveir. Annar
þeirra sagðist ekki hafa vitað til þess
að hún neytti fíkniefna og því væri
hann mjög sleginn yfir þessum frétt-
um. „Ég skil ekki hvað gerðist. Þetta
var bara frábær stelpa sem átti að
vera edrú.“
Undir það tók annar vinur Hörpu
Bjartar. „Ég er bara í sjokki hérna, ég
bara trúi þessu ekki. Mér þykir mjög
vænt um þessa stelpu og við vorum
mjög nánir vinir. Hún var alltaf jafn
fyndin og skemmtileg en það er svo-
lítið langt síðan ég hitti hana.“
Senda fjölskyldunni samúðar-
kveðjur
Fjölskylda Hörpu Bjartar var að von-
um harmi slegin yfir áfallinu og bað
um frið til þess að syrgja. Enn er margt
óljóst varðandi hvað gerðist nákvæm-
lega en vinir Hörpu Bjartar sögðu að
hún hefði verið lítið í skemmtanalíf-
inu í vetur, þar sem hún hafi einbeitt
sér að skólanum. Hins vegar hefði
hún sennilega ætlað að gera sér glað-
an dag í tilefni afmælisins.
Að lokum vildu vinir Hörpu
Bjartar koma því á framfæri að hug-
ur þeirra væri hjá fjölskyldunni.
Eins og Bára orðaði það: „Ég hugsa
til fjölskyldunnar og samhryggist
henni. Ég sendi þeim innilegar sam-
úðarkveðjur.“
Fréttir | 13Mánudagur 2. maí 2011
Talið er líklegt að Harpa Björt hafi lát-
ist eftir neyslu á svokölluðu PMMA-
amfetamíni (parametoksamfetam-
íni). Krufning hefur ekki enn farið
fram en grunur leikur á að hún hafi
látist skyndidauða vegna fíkniefna-
neyslu og vitað er að PMMA-amfeta-
míns var neytt í partíinu í Árbæ þar
sem hún var gestur.
Karl Steinar Valsson hjá fíkni-
efnadeild lögreglunnar vill vegna
málsins vara við fíkniefnum sem nú
kunna að vera á markaði. Hann seg-
ir lögregluna fyrst hafa orðið vara við
efnið fyrir um hálfum mánuði þegar
lögreglan í Borgarnesi fann nokkur
grömm af því við leit í bíl. „Um er að
ræða mjög eitrað efni, blandað met-
amfetamín sem inniheldur PMMA,“
segir Karl Steinar. „Við hvetjum fólk
sem hefur neytt amfetamín-efna
og alsælu að leita læknis og koma
upplýsingum til lögreglu.“ Lög-
reglan bendir í þessu sambandi á
Facebook-síðu lögreglunnar og vef
lögreglunnar, logregla.is.
Selt sem e-töflur
Karl Steinar telur enda brýna
ástæðu til því að minnsta kosti 12
hafa látist í Noregi eftir neyslu efn-
isins síðasta hálfa árið og vitað er
um fleiri dauðsföll víða um heim.
Karl Steinar segir að ekki sé hægt að
útiloka að dauðsföllin tengist og um
sama efni sé að ræða. Spurður hvort
böndin berist að glæpasamtökum
sem eru bæði starfrækt í Noregi og
hér heima segist hann ekkert geta
sagt um slík tengsl vegna rannsókn-
arhagsmuna.
Í umfjöllun um dauðsföllin í
Noregi kemur fram að efnið er oft-
ast selt sem e-töflur því það hafi
svipuð áhrif, talið öllu hættulegra
þó, en sé ódýrara í framleiðslu. Karl
Steinar segir lögregluna hins vegar
ekki hafa fundið efnið í pilluformi í
íbúðinni í Árbænum. Búið hafi ver-
ið að malla efnið til notkunar. Hann
segir hins vegar vitað mál að efnið
sé selt í pilluformi og því sé rétt að
vara við því.
Eitrað amfetamínefni er stundum selt sem e:
Lögreglan varar
við fíkniefninu
Parametoksamfetamín
PMMA er náskylt amfetamíni og metamfetamíni að gerð en mun hættulegra í neyslu.
Jakob Kristinsson, sérfræðingur hjá Eitrunarmiðstöðinni, segir það vera vegna þess að
það sé mun eitraðra. „Ein af ástæðum þess að efnið er hættulegra er að það er vissulega
mun eitraðra eins og dæmin sanna. Þetta er amfetamínafleiða og framleidd til þess að
koma í staðinn fyrir alsælu því verkunin er töluvert lík.“
Jakob segist aðspurður hafa rekist á fleiri amfetamínafleiður nýverið. „Hingað kom til
lands svokallað paraflúoramfetamín, um það efni er töluvert lítið vitað og ég hef ekki
frétt af dauðsföllum vegna þess efnis.“
Ungur maður í Noregi var hætt kominn:
Bjargað í tæka tíð
Í Noregi hefur verið mikil umræða um PMMA og dauðsföll 12 ungmenna sem neyttu
efnisins. Sjónvarpsstöðin NRK í Noregi náði tali af ungum manni sem hafði neytt
efnisins. Hann segist hafa misst meðvitund stuttu eftir inntöku þess.
„Ég hef tekið efnið. Ég missti meðvitund en til mikillar lukku rankaði ég við mér við það
að vatni var skvett framan í mig, það hefur líklega bjargað mér. Þetta er dauðadóp.“
Eftir að þetta henti hann hefur hann að eigin sögn tryggt sig fyrir því að það sé ekki
PMMA í því dópi sem hann kaupir. Lögreglan hér á landi kemur þeim tilmælum áfram til
ungmenna að alsæla og amfetamín valdi líka dauðsföllum á ári hverju og því sé ekki nóg
að varast PMMA.
Dauðsföll af völdum PMMA
Þegar neytandinn er í hættu sýnir hann skýr einkenni örari hjartsláttar, hækkaðs blóð-
þrýstings, sérlega útþaninna sjáaldra, kviðverkja og uppkasta.
Í slæmum tilfellum getur viðkomandi fengið krampa en oft fylgir einnig hækkaður hiti og
blæðingar úr nefi.
Það er frekar óalgengt að of stórir skammtar, sem slíkir, valdi því að fólk deyi og því vekja
dauðsföll ungmennanna í Noregi og stúlkunnar hér á landi mikinn ugg. Dauðinn er þá
oftast tengdur heilablæðingu, hjartaslagi eða ýmsum krömpum.
Mjög mikilvægt er að koma þeim er sýnir slík einkenni undir læknishendur eins fljótt og
mögulegt er.
Í dulbúningi PMMA er oft selt sem alsæla, 12 dauðsföll hafa orðið af völdum þess í Noregi.
„Hún var sannur
vinur vina sinna,
vildi öllum vel og reyndist
mér vel. Þetta var bara
góð stelpa og ég vona að
henni líði ágætlega þar
sem hún er núna.
ljúf og góð stúlka látin
„Ég á erfitt með að trúa þessu“
Vinir Hörpu Bjartar og vandamenn
bera henni allir vel söguna og segja
hana hafa verið afskaplega góða
og blíða stúlku sem vildi öllum vel.
Eins og Bára segir var Harpa góð og
skemmtileg stelpa: „Hún átti mjög
auðvelt með að kynnast nýju fólki.
En þrátt fyrir að hún hafi alltaf átt
mikið og gott félagslíf vildi hún allt-
af vera í skóla og gera eitthvað,“ seg-
ir hún og bætir því við að það reyn-
ist henni erfitt að tala um Hörpu svo
skömmu eftir fráfall hennar. „Ég á
erfitt með að trúa þessu og veit ekki
hvað ég á að segja.“
Kvaddi hana í gær
Bára heyrði fyrst af atburðinum um
fimmleytið á laugardag og fór þá
með frænku Hörpu Bjartar að sækja
bestu vinkonu hennar svo þær gætu
Leiddir á lögreglustöð Lögreglan færði alla af vettvangi niður á stöð. Þeir voru látnir
lausir eftir yfirheyrslu.