Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2011, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2011, Síða 15
Neytendur | 15Mánudagur 2. maí 2011 Guðrún greiddi 12 þúsund fyrir bílastæði í tvo daga: Okrað á bílastæðum „Ég ætlaði ekki að trúa því að þetta hefði kostað næstum 12 þúsund krónur. Það hefði líklega borgað sig fyrir mig að taka leigubíl báðar leið- ir,“ segir Guðrún Guðmundsdóttir bankastarfsmaður. Guðrún, sem á við fötlun að stríða, flaug til Spánar frá Kefla- víkurflugvelli þann 16. apríl. Hún fór á einkabílnum sínum að flug- stöðinni, ók inn um hlið inn á bíla- stæði og lagði þar í stæði fyrir fatl- aða. „Ég var mjög ánægð með að stæðið skyldi vera nálægt inngang- inum,“ segir Guðrún. Það sem hún vissi þó ekki var að stæðið var svo- kallað skammtímastæði og að á öðr- um stað væru langtímastæði. „Þeg- ar ég hafði lagt bílnum fór ég með lyklana ásamt miðanum fyrir bíla- stæðinu í afgreiðsluna í geymslu þar sem bíllinn átti að vera sóttur tveim- ur dögum síðar. Mér var ekki bent á að ódýrara væri fyrir mig að leggja í langtímastæði.“ Hún segir reyndar að langtímastæðin henti fötluðum illa þar sem þau séu lengra í burtu. Það hefði þó sannarlega borgað sig í þetta skiptið. Tveimur dögum síðar var bíll- inn sóttur og reikningurinn hljóðaði upp á 11.800 krónur, að sögn Guð- rúnar. „Ég trúi því varla að það sé löglegt að rukka svona mikið fyrir bílastæði,“ segir hún og bætir við að starfsmanni sem tók við lyklunum til geymslu hefði verið í lófa lagið að benda henni á ódýrara stæði. „Mér finnst þetta algjör ósvífni,“ segir hún. baldur@dv.is Perlur og nælonsokkar Að perla er góð og róandi afþreying fyrir börn og fullorðna. Flestir foreldrar kannast þó við að það getur verið þrautin þyngri að ná upp perlunum sem hafa dottið á gólfið og ansi tímafrekt að týna þær upp. Gott ráð við því er að skella nælonsokk á ryksugustútinn og sjúga perlurnar upp, taka sokkin af og tæma í perluboxið. Fljótlegt og gott ráð sem kemur í veg fyrir að kaupa þurfi nýjar perlur í bráð. Skipuleggjum matseðilinn Það er hægt að spara töluverðan pening með því að skipuleggja matseðil heimilisins í kringum tilboðin á markaðnum hverju sinni. Á matarkarfan.is segir að tilboðsbækling- arnir geti verið ágætis tilbreyting frá matreiðslubók- unum. Gómsætar uppskriftir í matreiðslubók geti verið dýrar í framkvæmd og því sé gott að láta tilboðs- bæklinginn gefa hugmyndir að máltíðum og kryddin í kryddhillunni heima krydda tilveruna og réttinn. Ræktum græn- metið sjálf Þó frost sé farið úr jörðu þarf að bíða þangað til moldin nær að verða 5–7 stiga heit, annars spíra fræin ekki. Viðkvæmar plöntur skulu forræktað- ar inni en harðgerum plöntum eins og gulrótum, vorsalati, hreðkum, dilli og spínati má sá beint út í maí undir akríldúk. Gott ráð er að setja áburð í beðin á haustin og breiða svart plast yfir, þá hitnar moldin fyrr. Stundum finnast kartöflur frá fyrra ári þegar stungið er upp eða smá- fíflar sem hægt er að steikja á pönnu, bæði blöðin og ræturnar. Þessar upplýsingar má finna á nattura.is. Innköllun á „Topp5“ Matvælastofnun hafa borist upplýs- ingar frá matvælaeftirliti Heilbrigð- iseftirlits Reykjavíkur um innköllun á Topp5 ís frá Emmessís vegna van- merktra ofnæmis- og óþolsvalda. Í innihaldslýsingum á umbúðum var- anna kemur ekki fram að þær inni- halda hnetur og sojalesitín en hvort tveggja er á lista yfir ofnæmis- og óþolsvalda.  Samkvæmt matvælalög- gjöfinni eiga ofnæmis- og óþolsvald- ar að vera skýrt merktir í merkingum matvæla. Vörunni hefur væntanlega verið dreift um allt land. Svona geymir þú blómkál Á islenskt.is segir að blómkál geym- ist langbest við 0–2°C og við réttar aðstæður geti það geymst í nokkuð langan tíma. Það megi ekki vera þar sem sterkt ljós er né dragsúgur þar sem það er geymt. Einnig verði að passa mjög vel að það standi ekki nálægt öðru grænmeti eða ávöxtum því blómkál er mjög viðkvæmt fyrir etýlen en það er er lofttegund sem myndast í grænmeti og ávöxtum og framkallar oft beiskt bragð. Ósátt Guðrún segir að starfsmaður hefði auðveldlega getað bent á ódýrara stæði. „Það sem þarf að gerast er að stjórn- völd, framleiðendur og neytend- ur þurfa að taka höndum saman. Við hjá Samtökum lífrænna neyt- enda erum ekki að halda því fram að bændur eða framleiðendur séu með- vitað vondir við dýrin. Það eru að- búnaðarreglurnar sem fara illa með dýrin,“ segir Oddný Anna Björns- dóttir, hjá Samtökum lífrænna neyt- enda. Verksmiðjubúskapur án gagnrýni Oddný bendir á að þar sem lítill áhugi hafi verið á þessum málum á Íslandi hafi verksmiðjubúskapur við- gengist án gagnrýni í áratugi. Á með- an hafi almenningur á Íslandi haldið að íslenskar búfjárafurðir væru næst- um því lífrænar og allt hreint og heil- næmt. „Þegar betur er að gáð kem- ur í ljós að 100 prósent af kjúklingi koma frá verksmiðjubúum, 90 pró- sent svínaframleiðslu eru í höndum þriggja risaverksmiðjubúa og 85 pró- sent af eggjunum koma frá búrhæn- um. Afgangur eggjanna er vistvæn framleiðsla, það er frá hænum sem ganga lausar. Það er samt sem áður verksmiðjubúskapur, þar sem þær eru alltaf lokaðar inni,“ segir Oddný. Stuðlar að bættri heilsu Hún telur að flestir Íslendingar geri sér ekki grein fyrir þessu og það sé þetta sem samtökin vilji benda á. Er- lendis hafi slík umræða verið lengi í gangi og þar sé þróunin að snú- ast við. „Stjórnvöld hafa mótað sér stefnu um að auka lífræna ræktun og styðja við lífræna bændur. Með því stuðla stjórnvöld að minni meng- un, heilnæmari afurðum og bættri heilsu.“ Oddný segir að það þurfi að skoða málið frá grunni, gera rann- sóknir og með rétta stofninum ætti þetta að vera vel framkvæmanlegt. Fyrst og fremst snúist þetta um að neytendur hafi val en hún viður- kennir þó að þetta gerist ekki á einni nóttu. Vilja hleypa dýrunum út Eins og fram hefur komið í umræðu um aðbúnað búdýra að undanförnu lifa búrhænur í búrum alla ævi og fá ekkert sólarljós. „Þær kroppa hver í aðra og eru hálffiðurlausar. Þetta eru algjörlega óásættanlegar að- stæður fyrir lifandi verur. Vistvæn egg, svo sem Brúnegg, Hamingju- egg og Ómegaegg svo einhver séu nefnd, eru svo sannarlega betri kost- ur en búreggin og það er himinn og haf þar á milli. Hins vegar viljum við að næsta skref verði tekið og dýrun- um hleypt út. Einnig þarf að bæta andrúmsloftið og veita þeim meira pláss,“ segir Oddný sem vonast eftir frekara samstarfi við framleiðendur og bændur. Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is „Er óásættanlegt fyrir lifandi verur“ n Búrhænur lifa við óásættanlegar aðstæður n Samtök líf- rænna neytenda segja stjórnvöld, bændur og neytendur þurfa að taka höndum saman n Þetta snúist um að neytendur hafi val Vistvæn framleiðsla 85 prósent eggja á Íslandi koma frá búrhænum. Mynd PhoToS.coM oddný Anna Björnsdóttir Einn stofnenda Samtaka lífrænna neytenda. „Á meðan hafi almenningur á Íslandi haldið að íslenskar búfjárafurðir væru næstum því lífrænar og allt hreint og heilnæmt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.