Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2011, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2011, Page 17
Erlent | 17Mánudagur 2. maí 2011 Allt á einum stað! Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir Þú færð fría olíusíu ef þú lætur smyrja bílinn hjá okkur Komdu með bílinn til okkar og þú færð fría ástandsskoðun Það eru eflaust ekki margir sem höfðu heyrt um smábæinn Gyön- gyöspata í Ungverjalandi áður hann komst óvænt í fréttirnar í síðustu viku. Tilefnið var hins vegar síst af öllu gleðilegt. Í bænum búa um 2.800 manns, þar af eru um 450 sem teljast til Róma-fólks. Fyrir nýliðna páskahátíð var þessum minnihluta bæjarins tilkynnt að hægri-öfga- menn sem tilheyra samtökunum Vederö hygðust fylkja liði um göt- ur bæjarins. Þrátt fyrir að lögreglan hefði lofað að skakka leikinn flúðu íbúar úr hópi Róma-fólks bæinn yfir páskana. Með hjálp Rauða krossins og annarra mannréttindasamtaka var íbúunum komið fyrir á útivist- arsvæði í nágrenni Búdapest. Erik Selymes, yfirmaður Rauða krossins í Ungverjalandi, sagði að Róma-fólkið hefði leitað eftir hjálp til að yfirgefa Gyöngyöspata sem fyrst. Peter Szij- arto, talsmaður ríkisstjórnar Ung- verjalands, sagði það aftur á móti vera „hreina lygi“. Ofbeldið byrjaði eftir páska Um leið og Róma-fólkið í Gyön- gyöspata sneri aftur til síns heima á þriðjudag byrjaði ofbeldið af hendi meðlima Vederö-samtakanna. Fylktu þeir liði um bæinn, köstuðu grjóti í átt að húsum Róma-fólksins og réðust að þeim sem mótmæltu aðgerðum þeirra. Á miðvikudag- inn héldu Vederö-menn aðgerðum sínum áfram og þá með stuðningi annarra öfgasamtaka, Betyarsereg. Héldu þeir ógnunum sínum áfram uns rúmlega 100 höfðu flúið bæinn. Samkvæmt ungversku fréttaveitunni MTI voru sjö handteknir, en þeim hefur þegar verið sleppt. Þrír Róma- menn slösuðust alvarlega í aðgerð- unum. Dropi í hafið Róma-fólk er fjölmennasti minni- hlutahópur í Evrópu og umdeilan- lega sá minnihlutahópur sem hef- ur þurft að þola mestan átroðning í gegnum aldirnar. Ofbeldið sem framið var í Gyöngyöspata eftir páskana er aðeins dropi í haf þeirra ofsókna sem það hefur þurft að þola á undanförnum árum og þá sérstak- lega í Ungverjalandi. Nú er tæpt ár síðan Viktor Or- bán tók við embætti forsætisráð- herra Ungverjalands. Þegar hann tók við embætti lofaði hann Ungverjum að það fyrsta sem hann myndi taka sér fyrir hendur væri að auka borg- aralegt öryggi – „koma á lögum og reglu“. Virðist það ekki gilda um alla þegna ríkisins, þar sem uppgang- ur ýmissa öfgahópa og sjálfskipaðra löggæsluhópa hefur verið gífurlegur. Markmið þeirra flestra er að herja á Róma-fólk og svo virðist sem ung- verska lögreglan ráði hreinlega ekki við ástandið – eða að hún kæri sig ekki um það. Hægrisveiflan Þótt Fidesz-flokkur Viktors Orbán hafi ekki verið vændur um kynþátta- fordóma hefur hann hlotið mikla gagnrýni fyrir stranga stjórnarhætti, ef svo má að orði komast. Ungverj- ar fara nú með forsæti í ráðherraráði Evrópusambandsins og hafa þeir hlotið áminningar fyrir að stunda gegndarlausa ritskoðun, en sam- kvæmt Kaupmannahafnarskilyrðun- um svokölluðu er ritskoðun bönnuð í aðildarríkjum sambandsins. Róma- fólk hefur meðal annars fengið að kenna á ritskoðun, þar sem bágum hag þeirra er jafnan leynt. Meira áhyggjuefni fyrir Róma-fólk er þó hægri-öfgaflokkurinn Jobbik, en hann hlaut 17 prósent atkvæða í síðustu þingkosningum í Ungverja- landi og um 30 prósent í sumum hér- öðum í austurhluta landsins í síðustu sveitarstjórnarkosningum, þar sem Róma-fólk er einmitt fjölmennast. Jobbik-flokkurinn hefur löngum ver- ið vændur um kynþáttahatur, hatur á samkynhneigðum og fyrir að aðhyll- ast fasisma. Í stefnu flokksins seg- ir aðeins að hann aðhyllist róttæka stefnu byggða á kristilegum gildum. Flokkurinn fer þó ekki leynt með að hann starfræki Þjóðvarðlið Ung- verjalands (Magyar Gárda), í raun sjálfskipuð hernaðarsamtök stofnuð árið 2007. „Glæpahneigð sígauna“ Þjóðvarðlið þetta, sem starfar í skjóli stjórnmálaflokks, hefur haft það sem yfirlýst markmið „... að berjast gegn glæpahneigð sígauna.“ Róma-fólk hefur löngum verið kallað sígaun- ar, því til mikillar mæðu. Afleiðingar þessa markmiðs hafa verið grimmi- legt ofbeldi gegn Róma-fólki, sem margir Ungverjar virðast þó taka fagn- andi. Árið 2008 fór Þjóðvarðliðið til að mynda að venja komur sínar til bæj- arins Tatárszentgyörgy, sunnan við Búdapest. Gekk Þjóðvarðliðið reglu- lega í þyrpingu um götur bæjarins og hótaði Róma-fólki öllu illu ef það hypjaði sig ekki á brott. Í febrúar árið 2009 lögðu nokkrir þjóðvarðliðar eld að húsi Róma-fjölskyldu. Fjölskyldu- faðirinn og sonur hans reyndu að flýja en voru skotnir til bana á leið út úr brennandi húsinu. Húsmóðirin og dóttir hennar komust undan við illan leik. Þrátt fyrir að nágrannar fjölskyld- unnar hefðu hringt til lögreglu og til- kynnt um eldsvoða og skothvelli var lögreglan hvergi sjáanleg. Næstu þrjá mánuði féllu sex úr hópi Róma-fólks, auk þess sem 55 slösuðust alvarlega – í eldsvoðum og skotárásum þjóðvarðliða. Líkt við nasista Fyrrverandi forsætisráðherra Ung- verjalands, Ferenc Gyurcsány, hefur reyndar gengið svo langt að líkja Job- bik-flokknum við nasistaflokk Adolfs Hitler. Að sama skapi líkir hann Þjóð- varðliðinu við Brúnstakka, storm- sveitir nasista. Leiðtogar flokksins þvertaka ekki fyrir líkinguna og virðast frekar taka henni fagnandi – sé miðað við tungutak þeirra. Stærsti kosninga- sigur Jobbik-flokksins í nýliðnum sveitarstjórnarkosningum var í bæn- um Tiszavasvári, þar sem flokkurinn hlaut 53 prósent atkvæða. Þar er nú borgarstjóri úr Jobbik-flokknum, Erik Fülop, 29 ára lögfræðingur sem marg- ir sjá sem krónprins flokksins. Risa- stórt flokksþing Jobbik-flokksins var því haldið í Tiszavasvári í síðustu viku, en þangað mætti einnig fjöldinn allur af öfgasamtökum sem beita sér fyrir kynþátta- og útlendingahatri. Núver- andi leiðtogi flokksins, Gábor Vana, lýsti yfir að hann væri hæstánægður með mætinguna og velgengni flokks- ins í bænum – sem hann kallar nú „höfuðborg hreyfingarinnar“. Fyrir um 90 árum var München í Þýska- landi einnig kölluð „höfuðborg hreyf- ingarinnar“. Róma-fólk beitt skelfilegu ofbeldi n Öfgahópar sem beita sér fyrir ofsóknum gegn Róma-fólki njóta vaxandi fylgis í Ungverjalandi n Ríkisstjórnin aðhefst lítið sem ekkert n Jobbik-flokkurinn, sem hefur verið vændur um útlendingahatur og fasisma, á uppleið„Þrátt fyrir að ná- grannar fjölskyld- unnar hefðu hringt til lögreglu og tilkynnt um eldsvoða og skothvelli var lögreglan hvergi sjáanleg. Björn Teitsson blaðamaður skrifar bjorn@dv.is Beðið eftir læknisaðstoð Þessi Róma-maður bíður eftir læknisaðstoð eftir að hafa orðið fyrir árás í bænum Gyöngyöspata í Ungverjalandi. MynD ReUteRs

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.