Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2011, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2011, Blaðsíða 2
2 | Fréttir 20.–22. maí 2011 Helgarblað „Hún var góð mamma“ „Hún var rosalega góð mamma og stóð sig mjög vel í móðurhlutverk- inu,“ sagði ung kona um Þóru Elínu Þorvalds- dóttur, tvítuga konu sem ráðinn var bani á fimmtudaginn í síðustu viku. Axel Jóhannsson, kærasti henn- ar og barnsfaðir, viðurkenndi að hafa ráðið henni bana. „Hún var mjög opin manneskja og tók öllum vel. Ég kynntist henni í gegnum mömmuhóp og frá því ég hitti hana fyrst fannst mér eins og ég hefði þekkt hana alla mína ævi. Þannig var hún við okkur allar í Ung- um mæðrum,“ sagði unga konan í samtali við DV á mánudag. Iðrast að hafa svindlað á fólki Pétur Emil Gunnars- son, sem haft hef- ur háar fjárhæðir af allnokkrum Ís- lendingum, segist ætla að endur- greiða þeim sem hann hefur svikið. Þetta kom fram í DV á mánudag. „Ég veit alveg hvað ég gerði,“ sagði Pétur. Líkt og DV hefur greint frá hefur Pét- ur stundað það að svíkja fé út úr fólki með því að selja miða á leiki með Manchester United í Meistaradeild Evrópu. Pétur hefur hins vegar ekki staðið við að afhenda miðana. Þann- ig hafði hann til dæmis 312 þúsund krónur af vinahópi sem hann sagðist ætla að afhenda miða á úrslitaleikinn í Meistaradeild Evrópu í næstu viku. Jón Ólafsson dreginn fyrir dóm Jóni Ólafs- syni, at- hafnamanni og eiganda vatns- fyrirtækisins Ice- landic Glacial, hefur verið stefnt af Landsbank- anum vegna tæp- lega 420 milljóna króna sjálfskuldarábyrgðar sem hann gekkst í vegna láns til eignarhalds- félags á Bresku Jómfrúaeyjum. SpKef- veitti Jervistone Limited lánið árið 2006, samkvæmt stefnunni. Ástæðan fyrir því að Landsbankinn stefnir Jóni er sú að í mars tók Landsbankinn við rekstri, eignum og skuldbindingum Sparsjóðsins í Keflavík. Umrætt lán til Jervistone Limited er því hluti af þeim eignum Sparisjóðsins í Keflavík sem færðist yfir til Landsbankans. Fréttir vikunnar í DV 1 2 3 Betra loft betri líðan Airfree lofthreinsitækið • Eyðir frjókornum og svifryki • Vinnur gegn myglusveppi og ólykt • Eyðir bakteríum og gæludýraflösu • Er hljóðlaust og sjálfhreinsandi Hæð aðeins 27 cm Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is Í sumar er opið virka daga frá kl. 9 -18 „Ég viðurkenni það alveg að þetta er mikil yfirferð og ég tefli ansi djarft,“ segir Þorsteinn Jakobsson fjallgöngugarpur hlæjandi. Hann hyggst þann 27. maí ganga á ellefu fjallstinda á fimmtán klukkutímum til styrktar Ljósinu, sem er endur- hæfingar- og stuðningsmiðstöð fyr- ir fólk sem hefur fengið krabbamein eða blóðsjúkdóma og aðstandend- ur þeirra. Hann er þó viss um að ná takmarki sínu. Þorsteinn er búinn að styrkja Ljósið með fjallgöngu- uppátækjum sínum frá árinu 2009 og er þetta fjórða verkefnið sem hann ræðst í. Stefnir á heimsmet Í fyrra gekk Þorsteinn á 365 tinda og með því setti hann líklega heimsmet, en hélt þó ekki nógu vel utan um það til að fá það stað- fest í Heimsmetabók Guinness. Á þessu ári hyggst hann hins vegar gera enn bætur og ætlar að ganga á 400 tinda. Í þetta skiptið heldur hann betur utan um alla skráningu og ætlar að freista þess að fá tinda- gönguna skráða sem heimsmet. „Ég er samt fyrst og fremst að gera þetta bara fyrir Ljósið og sjálfan mig, ég þarf ekkert endilega að sanna þetta allt fyrir umheiminum eða að vera að ná endalausum metum. Þetta er svona meira partur af því að minna á hvað hægt er að gera,“ segir Þor- steinn sem valdi að styrkja Ljósið meðal annars því kunningjakona hans barðist við krabbamein. „Fyrst og fremst er ég að minna á að það geta allir fengið betra líf og gott líf með því að hreyfa sig. Það ekkert sem gefur manni meira en að vera úti í náttúrunni og vera í tengslum við fjöllin og taka á, fara aðeins yfir þægindaþröskuldinn.“ Stofnaði ferðafélag 8 ára Það má segja að snemma hafi krók- urinn beygst í tilfelli Þorsteins en hann man varla eftir sér öðruvísi en á fjöllum. „Áhugi minn á fjöllum kviknaði fyrst þegar ég var átta ára. Æskuvinur minn, sem er jarðfræð- ingur, var að rifja það upp að við hefðum stofnað fyrsta ferðafélag- ið þegar við vorum átta ára gamlir. Svo var ég í sveit sem krakki og allar mínar minningar eru þannig að ég sleppti ekki einu einasta fjalli.“ Gengur eitt skref í einu „Partur af þessu er hugarfarið,“ segir Þorsteinn aðspurður hvernig hann undirbýr sig fyrir svona göngutörn. „Ég geng náttúrulega bara á eitt fjall í einu, reyndar eitt skref í einu og svo þegar ég er búinn að taka nokk- ur skref þá er ég kominn á toppinn og svo tek ég bara næsta fjall.“ Hann segist vissulega vera vel á sig kom- inn líkamlega en jákvætt hugarfar skipti mestu máli. „Ég veit að þetta verður alveg ótrúlega flottur dag- ur, eins og allir hinir dagarnir. Það hefur aldrei verið leiðinlegt veður þegar ég er að ganga. Ég er alveg með samninga þarna uppi,“ segir Þorsteinn sem hefur eitt gott ráð ef veðurguðirnir eru honum ekki hlið- hollir: „Þá bara klæðir maður sig!“ Opið hús hjá Ljósinu Tindarnir sem Þorsteinn hyggst ganga á þann 27. maí eru Helga- fell í Mosfellsbæ, Helgafell í Kald- árseli, Stapatindur, Hellutindar, Miðdegis hnjúkar, Trölladyngja, Grænadyngja og Keilir. Því næst mun þyrla flytja hann til Vest- mannaeyja þar sem hann mun klífa Helgafell, Blátind og Heimaklett. Þorsteinn leggur af stað á miðnætti og ætti því að hafa lokið göngunni klukkan 15.00. Hann mun ekki ganga alveg einn því þrautþjálfað fólk mun skiptast á að ganga með honum. Þennan sama dag verð- ur opið hús í Ljósinu, frá kl. 11.00 til 20.00 og þangað eru allir vel- komnir. Þar verður útimarkaður og skemmtilegar uppákomur fyrir börn jafnt sem fullorðna. Þá verða einnig seldar veitingar á staðnum. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður skrifar solrun@dv.is Hægt er að leggja styrktarframlög inn á reikning Ljóssins: Reikningsnúmer: 0130-26-410420 Kennitala: 590406-0740 Viltu styrkja Ljósið? Össur Skarphéðinsson: Hillary bað að heilsa til Húsavíkur Það vakti athygli í fréttum af fundi Össurar Skarphéðinssonar utanríkis- ráðherra og Hillary Clinton, kollega hans í Bandaríkjunum, að hann færði henni sérstaka kveðju frá þremur húsvískum feðgum, sem opna í lok vikunnar sýningu á myndum frá frægri heimsókn geimfarans Neils Armstrong. Hann, ásamt öðrum geimfaraefnum, var þá sendur til Ís- lands til þjálfunar, en landsvæðinu í grennd við Öskju þótti svipa mest til landslagsins á tunglinu. Össur lýsti aðdragandanum fyrir DV.  „Þetta var merkisheimsókn geim- faranna, sem allir á mínum aldri muna eftir, og gerði Ísland á sínum tíma heimsfrægt. Ég var á leið út í Eyjafjallajökul, en svo nefnist flug- vélin sem fór þessa fyrstu sögulegu ferð í nýju áætlunarflugi Icelandair til Washington þegar brast á með símtali frá Örlygi eldra. Hann sagði mér af sýningunni, sem sonur hans og nafni, Örlygur Hnefill, hefur veg og vanda af, en jafnframt að hann sjálfur og Gunnar yngri sonur hans væru hjálparkokkar við að koma henni upp. Örlygur taldi að fátt myndi gleðja utanríkisráðherra Bandaríkjanna jafn mikið þessa dagana og að fá kveðju þeirra feðga með fregnum af sýning- unni.“ Össur kvaðst hafa munað eftir þessu í lok fundarins með Hillary Clinton og hann hafi skotið þessu inn, og borið henni kveðju feðganna þriggja. „Frá því er skemmst að segja að hún varð glöð við, spurði margs út í málið, og bað að lokum kærlega að heilsa þeim feðgum, sem og öllum á Húsavík.“ Össur rifjaði upp að geimfararnir hefðu skilið eftir nýtt heiti á lands- lagi, sem hefði ratað inn á landakort. „Þannig var að starfsheiti geimfara á enskri tungu er „astronaut“ og meðan á dvölinni stóð tóku einhverjir upp á að kalla þá „nautin“.  Þeir æfðu sig meðal annars í gili nokkru, sem bar þá ekkert sérstakt nafn, en var jafnan upp frá því kallað Nautagil. Líklega vita fáir að það er ekki dregið af íslenskum nautpeningi, heldur af astrónaut- um.“ Klífur 11 fjöll á 15 tímum n Þorsteinn Jakobsson ætlar að ganga á 400 fjallstinda á árinu til styrktar Ljósinu n Segist líklega eiga heimsmetið en vill bæta það n Byrjaði að ganga á fjöll 8 ára „Fyrst og fremst er ég að minna á að það geta allir fengið betra líf og gott líf með því að hreyfa sig. Stefnir á heimsmet Þorsteinn hefur gengið á fjöll síðan hann var 8 ára og stefnir á að ganga á 400 fjallstinda á þessu ári til styrktar Ljósinu. mynd JóHann SmáRi KaRLSSOn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.