Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2011, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2011, Blaðsíða 4
4 | Fréttir 20.–22. maí 2011 Helgarblað Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? Reykjavík - Reykjanesbæ Akureyri - Húsavík Vestmannaeyjum Verið sýnileg í sumar! – tilvalið í hjólaferðina Varúðarvesti kr. 890 Flísjakki með hettu kr. 6.450Polo bolur kr. 2.190 Skv. staðli EN471 Skv. staðli EN471 Skv. staðli EN471 COOLPASS ÖNDUNAREFNI Söluferli Iceland hafið: Eiga 99 prósent upp í Icesave- skuld Slitastjórn Gamla Landsbankans á 99 prósent upp í forgangskröfur í þrotabúið og þar af leiðandi 99 prósent upp í Icesave-skuldina. Þetta kom fram á blaðamannafundi skilanefndar og slitastjórnar Gamla Landsbankans á fimmtudag. Þess ber að geta að vaxtakröfur vegna Icesave-skuldarinnar teljast ekki sem forgangskröfur í þrota- búið. Forgangskröfur í þrotabúið eru sagðar um 1.319 milljarðar króna en áætlaðar endurheimtur um 1.300 milljarðar króna. Af þeim endurheimtum sem slitastjórnin áætlar þá telur hún að um 60 prósent af þeim séu öruggar. Þar af eru um 408 milljarðar sem liggja fyrir í lausu fé, eða um þriðj- ungur af áætluðum endurheimt- um. Þegar slitastjórnin birti síðasta verðmat um áramótin þá hefur verðmatið hækkað um 70,1 milljarð króna, eða 6 prósent. Gengisbreyt- ingar eru þar af 33,3 milljarðar, eða 3 prósent. Skýrt var frá því að söluferli í Ice- land Foods væri hafið undir ráðgjöf svissneska bankans UBS og banda- ríska bankans Bank of America Merrill Lynch. Talið er að aðstæður séu góðar á markaði til að selja hlut slitastjórnarinnar í félaginu og því ákvað slitastjórnin að hefja form- legt söluferli með hlutinn. Eignarhaldsfélagið Hverfiseignir, sem er alfarið í eigu 365 miðla, keypti árið 2010 þrjár fasteignir út úr félaginu IP Studium Reykjavík ehf. sem er í eigu Ingibjargar Pálmadóttur, stjórnarfor- manns og aðaleiganda 365, og flug- skýli á Reykjavíkurflugvelli, sem áður var í eigu Síðustu mílunnar ehf., félags í eigu Guðmundar Inga Hjartarsonar, æskuvinar Jóns Ásgeirs Jóhannesson- ar. Stefán H. Hilmarsson, fjármála- stjóri 365, er framkvæmdastjóri Hverfiseigna. Í stjórn félagsins sitja Ingibjörg Pálmadóttir, sem er titl- uð stjórnarformaður félagsins, Ari Edwald, forstjóri 365, og lögmaður- inn Einar Þór Sverrisson. „Í mars og ágúst 2010 voru keyptar fasteignir við Hverfisgötu, Laugaveg og flugskýli á Reykjavíkurflugvelli fyrir samtals 315 milljónir króna,“ segir í ársreikningi Hverfiseigna. „Það er ákveðin ástæða fyrir því. Ég veit bara ekki hvort mér sé heim- ilt að upplýsa um það,“ segir Stefán H. Hilmarsson, framkvæmdastjóri Hverfiseigna, í samtali við DV að- spurður um hvers vegna félagið hefði keypt umræddar fasteignir fyrir 315 milljónir króna í fyrra. Þegar blaða- maður óskaði eftir upplýsingum um hvernig kaupin hefðu verið fjármögn- uð vísaði Stefán á Ingibjörgu Pálma- dóttur, stjórnarformann félagsins. 101 Hótel tekið úr IP Studium 2009 Samkvæmt ársreikningi félagsins IP Studium Reykjavík ehf. árið 2008 átti félagið fjórar fasteignir sem nú eru allar horfnar út úr félaginu. Eigandi IP Studium er síðan félagið Edmound Holdings, sem skráð er í Lúxemborg sem keypti félagið af Eignarhalds- félaginu IPS árið 2008. Verðmætasta eign félagsins var fasteign að Hverfis- götu 8–10, þar sem 101 Hótel er til húsa. Í febrúar árið 2010 var fasteignin færð frá IP Studium yfir á þau Ingi- björgu Pálmadóttir og Jón Ásgeir Jó- hannesson. Síðar lét skilanefnd Glitn- is kyrrsetja eignina vegna málaferla í New York. Í ársreikningi IP Studium árið 2008 kemur fram að félagið hafi þann 30. júní árið 2009 veitt lánsveð upp á sjö milljónir dollara. Var um að ræða veðsetningu á lúxusíbúð Jóns Ásgeirs í New York sem Landsbank- inn hafði fjármagnað árið 2007. Í mars á þessu ári var síðan greint frá því að skilanefnd Landsbankans hefði yfir- tekið lúxusíbúðina í New York. Þrjár fasteignir til Hverfiseigna 2010 Þann 25. mars árið 2010 voru síð- an hinar þrjár fasteignir IP Studium seldar til félagsins Hverfiseigna, sem er alfarið í eigu 365 miðla þar sem Ingibjörg Pálmadóttir er stjórnarfor- maður. Um er að ræða vörugeymslu að Laugavegi 1B þar sem IP Studium hefur verið skráð til húsa, Hverfisgata 18, þar sem myndagallerí í eigu Ingi- bjargar Pálmadóttur hefur verið til húsa auk kaffihússins Cafe Culture og lóð við Traðarkotssund 6. Í ársreikn- ingi IP Studium árið 2008 er bókfært verðmæti allra fasteigna félagsins metið á um 670 milljónir króna. Einn- ig kemur þar fram að árið 2010 átti fé- lagið að greiða um 190 milljónir króna af 210 milljóna króna langtímaskuld- um félagsins. Í árslok 2008 átti félagið líka kröfu á Gamla Kaupþing upp á 117 milljónir króna vegna óuppgerðs afleiðusamnings. Í ágúst árið 2010 tóku Hverfiseignir síðan 30 milljóna króna fasteignalán sem skráð er á fasteignina að Hverfisgötu 18. Flugskýli Baugs til Ingibjargar Örfáum dögum eftir íslenska banka- hrunið haustið 2008 var flugskýli Baugs á Reykjavíkurflugvelli fært í hendur Síðustu mílunnar ehf., sem er í eigu Guðmundar Inga Hjartar- sonar. Baugur keypti flugskýlið í júlí árið 2007 af Sigkari ehf. en greiddi aldrei fyrir það. Verðmæti skýlisins er 25 milljónir króna. Hinn 16. októ- ber 2008 var skýlið fært frá Baugi til Síðustu mílunnar ehf. með samþykki stjórnar Baugs. Samkvæmt ársreikn- ingum borgaði Síðasta mílan Baugi aldrei fyrir eignina frekar en Baugur. Síðasta mílan er í eigu Guðmundar Inga Hjartarsonar og eiginkonu hans, Sigríðar Sigmarsdóttur, en hann er æskuvinur Jóns Ásgeirs af Seltjarnar- nesinu. Þeir eru jafnaldrar og voru skólabræður til fjölda ára. Guð- mundur Ingi keppti með Jóni Ásgeiri í Gumball 3000-kappakstri ríka og fræga fólksins sumarið 2006. Hann- es Smárason, þáverandi forstjóri FL Group, settist undir stýri á Porsche- bifreið, Ragnar Agnarsson ók á BMW M5, á meðan Jón Ásgeir og Guð- mundur Ingi óku Bentley-bifreið. Guðmundur Ingi, æskuvinur Jóns Ásgeirs, seldi síðan flugskýlið frá Síð- ustu mílunni til Hverfiseigna þann 26. júlí árið 2010. Ekki liggur fyrir hversu mikið hann fékk greitt fyrir það en samkvæmt ársreikningi Síð- ustu mílunnar árið 2009 er flugskýl- ið metið á 25 milljónir króna og bún- aður í eigu félagsins á tvær milljónir króna. Stórskuldugt eignarhaldsfélag Svo virðist sem Ingibjörg Pálmadóttir hafi verið dugleg að færa ýmsar eignir sínar á milli félaga eftir bankahrunið. Félagið IP Studium, sem átti þrjár fast- eignir sem nú eru farnar til Hverfis- eigna auk 101 Hótels, var fyrir banka- hrunið í eigu Eignarhaldsfélagsins ISP. Árið 2008 var það síðan fært til félagsins Edmound Holding, sem skráð er í Lúxemborg. Eignarhalds- félagið ISP skuldaði rúmlega sex millj- arða króna árið 2007 og í ársreikningi félagsins kemur fram að hlutur félags- ins í IP Studium hafi þá verið metinn á 470 milljónir króna. Ekki liggur ljóst fyrir hvað Edmound Holding borgaði fyrir hlutinn. Þess skal getið að flest- ar eignir Eignarhaldsfélagsins ISP eru verðlausar í dag. Stærsta eign félags- ins var 4,5 milljarða króna hlutur í Baugi en stærsti hlutinn af rúmlega sex milljarða króna skuldum félags- ins voru í erlendum myntum. Félagið hefur ekki enn verið keyrt í þrot af kröfuhöfum né hefur verið farið fram á greiðslustöðvun þess. n Félagið Hverfiseignir keypti fasteignir af Ingibjörgu Pálmadóttur árið 2010 n Færðu líka flugskýli í eigu æskuvinar Jóns Ásgeirs til félagsins Fasteignirnar færðar til félags í eigu 365 „Það er ákveðin ástæða fyrir því. Ég veit bara ekki hvort mér sé heimilt að upplýsa um það. Annas Sigmundsson blaðamaður skrifar as@dv.is Ingibjörg og Jón Ásgeir Hverfiseignir ehf., í eigu 365, keyptu þrjár fasteignir út úr IP Studium í fyrra. Ingibjörg er eigandi félagsins og jafnframt stjórnarformaður 365. Hættir sem bæjarstjóri Bæjarstjóri Seyðisfjarðar, Ólaf- ur Hr. Sigurðsson, hefur sagt upp störfum eftir níu ára starf. Fréttavefur Tímans sagði frá því á fimmtudag að ársreikningur bæjarsjóðs sýni verri stöðu en áætlanir gerðu ráð fyrir. Þá hafi hann átt erfið samskipti við Arn- björgu Sveinsdóttur, forseta bæj- arstjórnar. Bærinn skilaði sjötíu milljóna króna tapi á síðasta ári, samkvæmt ársreikningi bæjar- ins sem lagður var fyrir á síðasta fundi bæjarstjórnar. Sjálfstæðis- flokkur og Framsóknarflokkur mynda meirihlutann í bæjar- stjórn Seyðisfjarðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.