Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2011, Blaðsíða 38
38 | Sakamál Umsjón: Kolbeinn Þorsteinsson kolbeinn@dv.is 20.–22. maí 2011 Helgarblað
Allt á einum stað!
Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir
Þú færð fría olíusíu ef þú lætur
smyrja bílinn hjá okkur
Komdu með bílinn til okkar og
þú færð fría ástandsskoðun
B
obby Joe Long fæddist árið
1953 í Vestur-Virginíu. Sum-
ir myndu fullyrða að ör-
lög hans hefðu aldrei getað
orðið önnur en þau urðu. Hann
fæddist með auka X-litning sem
orsakaði að hann fékk brjóst á
gelgjuskeiðinu og olli því að hann
var gjarna fórnarlamb miskunnar-
lausrar stríðni.
Til að bæta gráu ofan á svart
var samband hans við móður sína
allt annað en eðlilegt og hann svaf
uppi í hjá henni langt fram á ung-
lingsár og þurfti að umbera elsk-
huga hennar, sem voru margir en
stöldruðu alla jafna stutt við. Hann
gekk í hjónaband með skólasyst-
ur sinni 1974 og eignuðust þau tvö
börn áður en hún fór fram á skiln-
að 1980. Sagan segir að eiginkonan
hafi verið drottnunargjörn úr hófi
fram.
Smáauglýsinganauðgarinn
En áður en Bobby Joe Long hóf
morðferil sinn setti hann mark sitt
meðal annars á Fort Lauderdale,
Ocala, Miami og Dade-sýslu. Þar
gekk hann undir nafninu Smá-
auglýsinganauðgarinn og nauðg-
aði yfir fimmtíu konum að því sem
talið er. Árið 1981 svaraði Bobby
Joe smáauglýsingum um lítil raf-
magnstæki og ef svo vildi til að
aðeins kona var á heimilinu, þá
nauðgaði hann henni. Hann var
dæmdur fyrir nauðgun 1981 en fór
fram á ný réttarhöld og varð að ósk
sinni. Síðar voru kærurnar felldar
niður.
Bobby bjó á Long Beach þar
sem hann leigði íbúð með stúlku
að nafni Kathy. Hann fór á nám-
skeið í neðansjávarlogsuðu og byrj-
aði með sautján ára stúlku sem bjó
hinum megin við götuna þar sem
hann bjó. Ekkert virtist athugavert
við tilveru hans. En hann átti til-
veru sem fáum var kunnugt um.
Hann svaraði smáauglýsingum og,
eins og fyrr segir, ef kona var ein
heima fyrir bað hann gjarna um að
fá að nota baðherbergið þar sem
hann tók fram „nauðgunargræj-
urnar“ sínar. Síðan nauðgaði hann
konunni á hrottalegan hátt. Glæp-
ir hans þar komu aldrei inn á borð
dómsvalda í Kaliforníu.
Eitt morð á viku
Svo virðist sem Bobby Joe hafi
komist upp með þessa iðju víðar
allt til ársins 1983 þegar hann flutti
á svæðið við Tampa-flóa þar sem
yfirvöld í Hillsborough-sýslu höfðu
þurft að glíma við um 30 til 35 morð
á ári að jafnaði. Árið eftir að Bobby
Joe flutti á svæðið varð fjandinn
laus.
Um átta mánaða skeið var á
ferli morðingi sem kunni hnúta og
nauðgaði og myrti konur unnvörp-
um og skildi líkin eftir í óvenjuleg-
um stellingum. Að jafnaði framdi
morðinginn eitt morð hálfsmánað-
arlega.
Fyrsta fórnarlambið fannst í
maí 1984 og markaði upphaf langr-
ar og umfangsmikillar rannsókn-
ar á nauðgunum og morðum á að
minnsta kosti tíu konum í þremur
sýslum á svæðinu við Tampa-flóa
og komu hin ýmsu lögregluemb-
ætti að rannsókninni. Af ástandi
líkanna að dæma var yfirleitt liðinn
þó nokkur tími frá morðinu þegar
þau fundust og líkunum hafði ým-
ist verið fleygt við afvikna vegar-
slóða eða þau dregin inn í kjarr-
eða skóglendi.
Myrti á skilorði
Þannig var mál með vexti að Bobby
Joe var á skilorði vegna líkams-
árásar um þetta leyti. Til að drepa
tímann fór hann að gera sér ferðir
í hverfi þar sem var að finna bæði
vændiskonur og sóðalega bari þar
sem einmana konur eyddu tíma
sínum.
Síðar fullyrti Bobby Joe að kon-
urnar sem hann myrti hefðu gefið
sig að honum og hann í kjölfarið
boðið þeim inn í bíl sinn og ekið
með þær heim.
Heim kominn batt hann fórnar-
lömb sín með reipi og hafði gaman
af að nota ýmsa hnúta til verksins.
Hann viðurkenndi síðar að hafa
fundið til kvalalosta við iðju sína;
brottnám, nauðgun og hrotta-
leg morð á fórnarlömbum sínum.
Sumar kvennanna kyrkti hann,
aðrar skar hánn á háls eða barði
hreinlega til bana. Síðan losaði
hann sig við líkin og skildi þau eftir
líkt og um „sýningu“ væri að ræða,
til dæmis með fæturna glennta
þannig að 1,5 metrar voru á milli
fótanna.
Af konunum sem vitað er að
Bobby Joe myrti voru fimm vænd-
iskonur, tvær voru dansarar, ein
vann í verksmiðju, ein var í námi og
starf einnar er ekki vitað um.
Þegar Bobby Joe var handtek-
inn bitust þrjú lögsagnarumdæmi
á svæðinu við Tampa-flóa nánast
um hann og unnu saman að því
að safna sönnunargögnum; fatn-
aði, efnisþráðum, sæði, áverkum
eftir fjötra og báru saman tegundir
hnúta.
Játaði níu morð
Bobby Joe Long var handtekinn
16. nóvember 1984 og ákærður fyr-
ir kynferðislega árás og mannrán
á konu að nafni Lisa McVey. Lisa
var síðasta fórnarlamb Bobbys sem
hann sleppti eftir að hafa kynferð-
islega misþyrmt henni svo klukku-
stundum skipti. Hann sleppti
henni, að eigin sögn, vegna þess
að hann fann til samhygðar með
henni því hún hafði sætt kynferðis-
legu ofbeldi í æsku. Honum var les-
inn réttur sinn (Miranda), afþakk-
aði lögfræðing, skrifaði undir plagg
þar að lútandi og samþykkti að vera
spurður út í málið.
Eftir að hafa fengið fram játn-
ingu í McVey-málinu hófu rann-
sóknarlögreglumennirnir að spyrja
Bobby Joe út í fjölda óleystra mála
sem snertu kynferðisleg morð á
svæðinu og þá sagði Bobby Joe: „Ég
vil síður svara þessu.“
Rannsóknarlögreglan hélt yfir-
heyrslunum áfram og sýndi Bobby
Joe myndir af hinum ýmsu fórn-
arlömbum. Þá sagði Bobby: „Mál-
ið hefur heldur betur flækst síðan
þið komuð aftur inn í herbergið. Ég
held að ég gæti þurft lögfræðing.“
Bobby fékk engan lögfræðing
og þegar upp var staðið hafði hann
viðurkennt átta morð í Hillsboro-
ugh-sýslu og eitt morð í Pasco-
sýslu.
Bobby Joe Long játaði á sig átta
morð og nauðgun á Lisu McVey í
september 1985. Hann fékk 26 lífs-
tíðardóma án möguleika á reynslu-
lausn og sjö lífstíðardóma með
möguleika á reynslulausn eftir 25
ár.
Í júlí 1986 var réttað yfir Bobby
vegna morðs á konu að nafni Mic-
helle Simms. Bobby Joe Long var
sakfelldur og dæmdur til dauða.
„Málið hefur heldur
betur flækst síðan
þið komuð aftur inn í her-
bergið. Ég held að ég gæti
þurft lögfræðing.
Brjóstgóði
morðinginn
n Bobby Joe Long hefur verið á dauðadeild síðan árið
2007 n Um átta mánaða skeið árið 1984 myrti hann að
minnsta kosti 10 konur í Tampa í Bandaríkjunum n Áður
hafði Bobby Joe nauðgað að minnsta kosti 50 konum
Bobby Joe Long Hann fann til samhygðar með síðasta fórnarlambi sínu.