Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2011, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2011, Blaðsíða 19
Fréttir | 19Helgarblað 20.–22. maí 2011 Karlar sem myrða Konur 3. desember 1999 n Eiturlyfjasjúklingur réð áttræðri konu bana með hnífi í Espigerði 4 í Reykjavík. Tilviljun réð því að konan varð fórnarlamb mannsins. Hann sagði lögreglu að hann hefði viljað drepa einhvern til að hafa ástæðu fyrir vanlíðan sinni sem stafaði af langvinnri eiturlyfjaneyslu. Maðurinn var dæmdur í 16 ára fangelsi. 16. febrúar 1991 n Þroskaskertur maður varð 24 ára konu að bana á sambýli í Njörvasundi. Konan, sem einnig var þroskaskert, þekkti manninn sem varð henni að bana. Áverkar voru á líkinu en mað- urinn sem var handtekinn fljótlega eftir að líkið fannst játaði að hafa banað konunni með hníf. Maðurinn var úrskurðaður ósakhæfur og var vistaður á viðeigandi stofnun. 21. febrúar 1988 n Karlmaður skaut eiginkonu sína á heimili þeirra í Keflavík. Parið hafði verið að skemmta sér á skemmtistað í bænum áður en verknaðurinn átti sér stað. Til einhverra ryskinga kom á milli þeirra sem enduðu með því að maðurinn greip til haglabyssu og skaut konuna. Maðurinn hringdi sjálfur til lögreglunnar eftir að hann hafði banað konunni og bað hana að koma strax. Í símtalinu sagði mað- urinn: „Ég er búinn að gefast upp.“ Mað- urinn framdi sjálfsmorð í kjölfarið. Engin vitni voru að atburðinum. Nágranni á hæðinni fyrir ofan heyrði þó óp konunnar áður en skothvellur heyrðist. Maðurinn framdi sjálfsmorð. 14. apríl 2000 n Ungur Keflvíkingur framdi hrottalega glæpi og var dæmdur í átján ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir manndráp, kynferðisbrot og lík- amsárás. Maðurinn beitti fyrrverandi kærustu sína kynferðislegu ofbeldi í tvígang, í febrúar og mars árið 2000. Um einum og hálfum mánuði seinna, þann 14. apríl, ákvað maðurinn að ráðast inn á heimili konu sem vitnaði gegn honum í nauðg- unarmálinu og sambýlismanns hennar. Þegar konan hljóðaði inni á baðherberginu fór hann inn á baðherbergi íbúðarinnar með hníf í hendi í því skyni að þagga niður í henni. Hann stakk hana 28 sinnum í höfuð, háls, bringu og víðar í líkama hennar. Hróp hennar og köll efldu manninn við ódæðisverk sitt. Maðurinn veitti sambýlismanni hennar einnig áverka með hnífnum. Maðurinn var dæmdur í 18 ára fangelsi. Maí 2000 n 24 ára maður hrinti stúlku yfir 119 sentímetra hátt handrið á svölum á tíundu hæð fjölbýlishúss við Engihjalla í Kópavogi. Maðurinn neitaði sakargiftum og hélt því fram að stúlkan hefði fallið fram yfir handriðið eftir að hann ýtti á öxl hennar. Frásögn hans stóðst ekki meðal annars vegna þess að þegar lík stúlk- unnar fannst voru smekkbuxur vafðar um ökkla hennar og ljóst að þær höfðu verið dregnar niður fyrir fallið. Maðurinn var færður á Landspítalann í Fossvogi til líkamsskoðunar og hafði þar í hótunum við lögreglumenn. Þau höfðu hist úti á lífinu um nóttina en atburðarásin fram að verknaðinum var óljós. Bæði í héraðs- dómi og Hæstarétti þótti þó sannað að maðurinn hafi vísvitandi hrint stúlkunni fram af svölunum í gremju yfir því að hún vildi ekki sofa hjá honum. Maðurinn var dæmdur í 16 ára fangelsi. Þóru Elínu Þorvaldsdóttur, 21 árs, var ráðinn bani í Heiðmörk á fimmtudagskvöld í síðustu viku og á sunnudagsmorgun var gerð til- raun til að bana Hallgerði Valsdótt- ur á heimili hennar í Grafarholti. Enn er ekki útséð með það hvort Hallgerður lifi tilræðið af en hún liggur þungt haldin á gjörgæslu- deild Landspítalans. Báðar kon- urnar voru teknar kverkataki og þrengt að öndunarvegi þeirra þar til að þær misstu lífsmark, sam- kvæmt heimildum DV. Endurlífg- un á Hallgerði tókst en barnsfaðir Þóru kom henni fyrir í farangurs- geymslu bifreiðar sinnar og ók með hana um höfuðborgarsvæðið áður en hann gaf sig fram og vísaði starfsmönnum Landspítalans á lík hennar. Nær dauða en lífi Óvíst er hvort Hallgerður nái sér aftur eftir árásina sem hún varð fyr- ir af hendi eiginmanns síns. Henni er haldið sofandi í öndunarvél en hún var endurlífguð þegar lögregla og sjúkraflutningamenn komu á vettvang árásarinnar á heimili hennar. Eiginmaður hennar, Ólafur Donald Helgason, hringdi sjálfur eftir aðstoð þar sem Hallgerður komst ekki aftur til meðvitundar eftir að hann réðst á hana. Axel Jóhannsson sem réð barns- móður sinni bana á fimmtudag gaf sig líka sjálfur fram við lögregluna. Í tilkynningu frá lögreglunni kom fram að Axel hefði játað að hafa ráðið Þóru Elínu bana, en það hef- ur verið dregið til baka. Heimildir Stöðvar 2 herma að hann hafi kom- ið við hjá vinkonu sinni áður en hann gaf sig fram og það hafi verið hún sem hvatti hann til þess. Báðir mennirnir, Axel og Ólafur, bera við minnisleysi. Vildi slíta sambandinu Samkvæmt heimildum DV ætlaði Þóra Elín sér að slíta sambandinu við Axel þegar bræði rann á hann sem endaði með því að hann réð henni bana. Þeir sem þekkja til parsins hafa þó sagt að þau hafi boðið af sér góðan þokka. Undir niðri virðist þó eitthvað hafa kraumað. Að sama skapi segir vinkona Hallgerðar að hún hafi ekki getað séð annað en að Hallgerður og Ólafur hafi verið ástfangin og „hann virtist gera hana hamingju- sama og það átti hún svo sann- arlega skilið að vera.“ Hallgerður sagði sjálf á Facebook-síðunni sinni eftir að hafa gifst Ólafi: „Var að gifta mig yndislegasta og besta manni sem ég hef kynnst á ævinni. Ég féll í stafi þegar ég sá hann fyrst fyrir 22 árum. Síðan þá hefur þráðurinn sem læsti okkur saman ekki slitnað. Svo gerðist það bara einn daginn að við sameinuðumst og það eru rúm- lega 2 ár síðan.“ adalsteinn@dv.is n Líkindi með morði og morðtilraun Tveir ástríðuglæpir í síðustu viku
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.