Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2011, Qupperneq 18
18 | Fréttir 20.–22. maí 2011 Helgarblað
Tvær alvarlegar árásir gegn kon-
um vöktu athygli í síðustu viku þar
sem annarri konunni var ráðinn
bani en tilraun var gerð til að ráða
hinni konunni bana. Í skýrslu sem
birt var um áramótin kemur fram
að um 42 prósent íslenskra kvenna
hafa orðið fyrir ofbeldi einhvern
tímann frá 16 ára aldri. Skýrslan
var unnin fyrir velferðarráðuneyt-
ið en hún gefur glögga mynd af of-
beldi gagnvart konum, sem virðist
þó ekki hafa aukist frá árinu 1996.
Málin tvö sem vísað er til hér að
ofan voru þannig að ungri stúlku
var ráðinn bani af sambýlismanni
sínum á fimmtudag og síðan reyndi
karlmaður að bana eiginkonu sinni
í heimahúsi í Grafarholti á sunnu-
dag.
Flestar verða fyrir ofbeldi
af hendi maka
Í báðum málunum þekktu gerend-
urnir konurnar vel þar sem þeir
voru sambýlismenn þeirra. Þar
sem um tilraun til manndráps var
að ræða voru konan og maðurinn
nýgift þegar hann réðst á hana.
Í hinu tilvikinu ætlaði konan að
fara frá manninum þegar hann réð
hana af dögum. Það að konurnar
hafi þekkt mennina vel er í sam-
ræmi við tölfræðina sem kemur
fram í skýrslu velferðarráðuneytis-
ins. Um 16,3 prósent þeirra kvenna
sem urðu fyrir ofbeldi urðu fyrir því
af hendi fyrrverandi maka og 3,9
prósent af hendi þáverandi maka.
Mikill aldursmunur er á einstak-
lingunum sem frömdu þá verknaði
sem vöktu athygli í síðustu viku.
Yngri árásarmaðurinn, sem réð lið-
lega tvítugri unnustu sinni bana, er
ekki nema 25 ára en maðurinn sem
reyndi að myrða eiginkonu sína
með því að grípa hana kverkataki
er 61 árs.
Óvenjulegar árásir
Heimildir DV herma að í
báðum málunum hafi árásar-
mennirnir tekið fórnarlömb
sín kverkataki og þrengt að
öndunarvegi þeirra. Ekki er
algengt að konur verði fyr-
ir slíkri árás og sögðu um 1,9
prósent þeirra kvenna sem
rætt var við í skýrslu velferðar-
ráðuneytisins og höfðu orðið
fyrir ofbeldi að einhver hefði
tekið þær kverkataki, í tilraun
til að kyrkja þær, kæfa eða
brenna.
Athyglisvert er að bera sam-
an niðurstöður rannsóknar-
innar sem var birt um áramótin
en unnin var árið 2008 og niður-
stöður rannsóknar sem unnin var
árið 1996. Í þessum samanburði
kemur fram að ekki hefur dreg-
ið úr ofbeldi gegn konum, né hef-
ur það aukist. Svo virðist sem það
hafi staðið í stað þannig að ástand-
ið hefur verið alvarlegt í mjög lang-
an tíma. Mikilvægt er þó að hafa í
huga að samanburðurinn er ekki
nákvæmur þar sem um tvær mis-
munandi kannanir er að ræða.
Karlar frekar myrtir en konur
Frá árinu 1981 til ársins 2009 hefur
16 konum verið ráðinn bani sam-
anborið við 44 karlmenn. Þetta
kemur fram í tölum Hagstofunnar
sem tekur saman tölur yfir dánar-
orsakir fólks. Það er því mun al-
gengara að karlmönnum sé ráðinn
bani en konum. Ástæðurnar eru
þó oft annars eðlis, líkamsárásir en
ekki heimilisofbeldi.
Í Tölfræðitíðindum um afbrot
sem gefin voru út af ríkislögreglu-
stjóra um afbrot á tímabilinu 1990
til 2010 kemur fram að karlmenn
eru í yfirgnæfandi meirihluta ger-
endur í manndrápsmálum. Eru
málin frá liðinni viku í samræmi
við það.
Konan sem lést af völdum unn-
usta síns á fimmtudaginn er fyrsta
og eina konan sem hefur verið
myrt í ár. Konan sem reynt var að
bana á sunnudagsmorgun er enn í
lífshættu og þungt haldin. Henni er
haldið sofandi í öndunarvél á gjör-
gæsludeild Landspítalans.
Aðeins tvisvar hefur það gerst
að fleiri en tveimur konum var ráð-
inn bani sama árið. Það var 1998 og
2004 en þá var þremur konum ráð-
inn bani sama árið.
Hengingar, kæfingar, reyringar
eða beittum vopnum beitt
Tölur Hagstofunnar frá tímabilinu
1996 til 2009 gefa skýrari mynd af
dánarorsökum þeirra kvenna sem
látist hafa í kjölfar líkamsárása.
Samkvæmt þeim tölum hefur
þremur konum verið ráðinn bani
með hengingu, kæfingu eða reyr-
ingu. Inni í þeim tölum eru þær
konur sem eru kyrktar. Þremur
konum hefur á sama tímabili ver-
ið ráðinn bani með beittum hlut.
Það eru algengustu líkamsárásirn-
ar sem hafa leitt til dauða kvenna á
undanförnum árum.
Til samanburðar hefur aðeins
einum karlmanni verið ráðinn
bani með hengingu, kæfingu eða
reyringu en sjö karlmönnum ver-
ið ráðinn bani með beittum hlut.
Í þeim líkamsárásum sem leitt
hafa til dauða karlmanna hafa því
henging, kæfing eða reyring verið
óalgengustu aðferðirnar, en því er
þveröfugt farið hvað varðar konur.
Karlar sem myrða Konur
12. maí 2011
n Ungur maður ók með lík barnsmóður
sinnar að Landspítalanum í Foss-
vogi. Maðurinn vísaði starfsmönnum
spítalans á líkið sem lá í skottinu á
bílnum og var með áverka á hálsi, sam-
kvæmt heimildum DV. Maðurinn er 25
ára gamall en stúlkan var 21 árs. Sam-
kvæmt heimildum DV réð maðurinn
konunni bana í Heiðmörk en lögreglan
hefur málið enn til rannsóknar. Rann-
sókn málsins stendur enn yfir.
1. nóvember 2004
n Lögreglunni í Kópavogi var tilkynnt
um manndráp í íbúð í fjölbýlishúsi
í Hamraborg 38 í Kópavogi. Þegar
lögreglumenn mættu á vettvang beið
þeirra maður á stigapallinum fyrir utan
umrædda íbúð. Hann var greinilega
í uppnámi og sagðist hafa myrt
eiginkonu sína og hún lægi á gólfinu í
forstofu íbúðarinnar. Maðurinn hafði
banað konunni með því að bregða
þvottasnúru um háls hennar og þrengja
að. Tvö börn þeirra hjóna voru í íbúðinni,
fjögurra ára gömul stúlka og eins árs
drengur, en þau urðu einskis vör og
sváfu þegar lögregla kom á staðinn.
Maðurinn var dæmdur í 11 ára fangelsi.
5. júlí 2004
n Lögreglunni í Reykjavík var tilkynnt
um hvarf 33 ára gamallar konu 5.
júlí 2004. Síðast var vitað af henni
í íbúð við Stórholt í Reykjavík. Eftir
ítarlega vettvangsrannsókn þar var
fyrrverandi sambýlismaður hennar og
barnsfaðir handtekinn. Hann játaði
morðið. Maðurinn kvaðst hafa slegið
konuna nokkrum sinnum með kúbeini
þótt hann myndi ekki eftir því. Hann
viðurkenndi að hafa brugðið belti
um háls hennar og hert að. Í ljós kom
við krufningu að konan lést sökum
kyrkingar. Maðurinn var dæmdur í 16
ára fangelsi.
Maí 2004
n Móðir varð dóttur sinni að bana og særði son sinn
á heimili þeirra á Hagamel í Reykjavík. Móðirin varð
ellefu ára dóttur sinni að bana á meðan dóttirin svaf.
Hún særði son sinn með hnífi. Drengurinn náði að
komast alvarlega slasaður undan. Móðirin var flutt á
gjörgæslu og er talið að hún hafi reynt að svipta sig lífi
eftir að hafa orðið dóttur sinni að bana. Móðirin var
úrskurðuð ósakhæf.
27. apríl 2002
n Móðir réð níu ára dóttur sinni bana með því kyrkja
hana í heimahúsi í Seljahverfi í Breiðholti þar sem
mæðgurnar voru gestkomandi. Móðirin játaði skýlaust
þegar hún var yfirheyrð en ekki var hægt að yfirheyra
hana fyrr en nokkrum dögum eftir harmleikinn þar sem
hún var ekki í andlegu ástandi til þess. Konan var strax
eftir handtöku vistuð á réttargeðdeild og var niður-
staða yfirlæknisins á Sogni að konan væri ósakhæf.
Konan var úrskurðuð ósakhæf.
22. september 2008
n Íslensk kona fannst látin á hótelher-
bergi í Dóminíska lýðveldinu. Konan,
sem var 29 ára, var búsett í landinu
en hún var myrt á hótelinu þar sem
hún vann. Á líki konunnar fundust
ýmsir áverkar, stungusár voru á líkama
hennar, áverkar á munni og höfði. Hafði
hún verið lamin í höfuðið með þungu
barefli og er talið að höggið hafi verið
banamein hennar. Maður sem talinn
var kærasti hennar var handtekinn
grunaður um morðið en talið var að það
hefði verið ástríðuglæpur. Vegna skorts
á sönnunargögnum var ekki ákært í
málinu.
16 morð á 30 árum
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
„Þeir taka þær
kverkataki,
beita skotvopni, eða
hóta því, eða egg-
vopni.
Umfjöllun DV um morð á konum
n Í síðustu viku réðust tveir menn að ástkonum sínum, annar árásarmaðurinn
réð barnsmóður sinni bana n Í sömu viku leituðu 13 konur til Kvennaathvarfsins
n Á síðustu þrjátíu árum hafa sextán íslenskar konur verið myrtar n Flestum
var ráðinn bani með eggvopni og yfirleitt af þáverandi eða fyrrverandi mökum