Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2011, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2011, Síða 24
24 | Erlent 20.–22. maí 2011 Helgarblað „Heimsókn drottningarinnar til Ír- lands er hluti af nýrri almanna- tengslaherferð konungshallarinnar þar sem þess er freistað að skapa nýja ásýnd fyrir Windsor-ættina. Skilaboð drottningarinnar verða eftir sem áður þau sömu, það skipt- ir meira máli hverra manna þú ert – en hvað sem þú afrekar í lífinu,“ sagði breski söngvarinn Morrissey, heimsfrægur tónlistarmaður sem er átrúnaðargoð allra lífshrjáðra ung- linga. Morrissey er óhress með opin- bera heimsókn Elísabetar II til Ír- lands, en foreldrar hans eru báðir af írsku bergi brotnir og hefur hann því alla tíð haft mikinn áhuga á mál- efnum Írlands. Drottningin heim- sótti Írland í tilefni af 90 ára afmæli friðarsamnings milli Írlands og Bretlands, en í kjölfarið fengu Írar heimastjórn – þó fullu sjálfstæði hafi ekki verið náð fyrr en árið 1949. Morrissey sendi aðsenda grein um heimsóknina í írska tímaritið Hot Press, og hefur greinin hlotið mikla athygli. Ekki við hæfi Morrissey, rétt eins og fjölmörgum öðrum Írum, finnst það vart vera við hæfi að Elísabet velji þennan tíma til að koma í sína fyrstu opinberu heim- sókn til Írlands. Það voru þrátt fyrir allt einmitt Bretar sem vou kúgarar hinnar írsku þjóðar. Drottningin tók þátt í athöfn þar sem hún, ásamt for- seta Írlands, Mary McAleese, lagði blómsveig í Minningargarðinum í Dyflinni, við minnismerki þeirra Íra sem féllu í heimsstyrjöldinni fyrri, stríði sem Írar höfðu engan áhuga á að taka þátt í. Því næst heimsóttu þær annað minnismerki, tileinkað þeim Írum sem féllu í frelsisstríðinu við Breta. Á meðan börðust á þriðja hundrað mótmælenda við lögreglu- menn fyrir utan garðinn. Ekki gleyma Bobby Sands Í ár eru liðin 30 ár frá dauða Bobby Sands, sem er þjóðhetja á Írlandi. Sands var handtekinn árið 1977 fyr- ir aðild að hryðjuverkum á vegum Írska lýðveldishersins, IRA. Hann leit ætíð á sig sem pólitískan fanga, þar sem hann barðist fyrir frelsi Norður- Írlands. Sands þurfti að dúsa í „kon- unglega“ Maze-fangelsinu á Norður- Írlandi, rétt eins og allir fangar sem höfðu verið vændir um pólitíska hryðjuverka- eða andófsstarfsemi. Í mars árið 1981 hóf Sands hungur- verkfall, og hvatti aðra fanga til að gera slíkt hið sama. Markmiðið var að fá viðurkennt að þeir sem sætu í Maze-fangelsinu væru í raun póli- tískir fangar. Hungurverkfallið vakti heimsathygli þó fólk hefði vissulega skiptar skoðanir á því. Sambands- sinnar á Írlandi líta í öllu falli á Sands sem hetju og píslarvott, en hann lést 5. maí árið 1981 vegna vannæringar – en 10 aðrir fangar létust af sömu sökum á næstu vikum. Rúmlega 100 þúsund manns fylgdu Sands til graf- ar í Belfast. Morrissey segir að Elísabet II beri í raun ábyrgð á dauða Sands, þar sem hún hafi ekki nýtt sér áskilinn rétt til að víkja Margaret Thatcher, þáver- andi forsætisráðherra Bretlands, úr embætti – en Thatcher vildi ekkert af Sands vita meðan á hungurverkfall- inu stóð. „Írska þjóðin ætti að vera þess minnug, að það var fyrir ekki meira en 30 árum sem drottning- in studdi Margaret Thatcher þegar hún lét hungurverkfallsmenn deyja ... og sagði ekki neitt. Hafi drottning- in á annað borð einhverjar mann- legar tilfinningar í garð fjölskyldu Bobbys Sands, eða fjölskyldna ann- arra hungurverkfallsmanna, þá hef- ur hún ekki látið þær í ljós,“ skrifar Morrissey. Konungsveldið er ráðgáta Morrissey ljóstrar því upp í grein sinni, að hann skilji einfaldlega ekki hvers vegna konungsveldi sé enn við lýði. „Tilgangurinn með konungs- veldinu er, rétt eins og drottningunni sjálfri, flestu fólki hulin ráðgáta [...] Tilvist drottningarinnar ein og sér, ásamt hennar risavöxnu fjölskyldu – þar sem öllum meðlimum er haldið uppi af breskum skattgreiðendum, hvort sem breskum skattgreiðendum líkar betur eða verr – gengur gjör- samlega í berhögg við lýðræðislega hugsun, og gengur einnig í berhögg við tjáningarfrelsi,“ segir Morrissey. Hann minnir á konunglega brúð- kaupið sem fór fram á dögunum, þegar Vilhjálmur prins gekk að eiga Kate Middleton. Var fólki sem var statt í nágrenni Westminster Abbey bannað að vera með nokkuð; skilti eða plaköt, sem hefðu að geyma gagnrýni á konungsfjölskylduna. „Þetta þýðir að pólitísk andstaða er þögguð niður á Englandi, til þess eins að vernda konungsfjölskylduna – en það eitt gengur gegn hverri ein- ustu grunnreglu um lýðræði.“ Fasismi fullum fetum Morrissey segir að ef einhver vilji fá „víðan söguskilning á því hvað drottningin sé, og hvernig hún fari með völdin,“ þurfi sá hinn sami ein- ungis að horfa til Hosnis Mubarak, fyrrverandi forseta Egyptalands, og Muammar al-Gaddafi, leiðtoga Líbíu. „Sjáið hvort þið getið gert greinarmun á þeim. Ykkur mun ekki takast það.“ Morrissey vænir Elísabetu II um fasisma og snýr sér aftur að Írlandi og kennir drottningunni um þá stað- reynd að írsku þjóðinni sé enn skipt upp í tvö ríki á eyjunni grænu. „Það er drottningin sem hefur valdið í hendi sér, til að afhenda írsku þjóð- inni sýslurnar sex [Norður-Írland], og leyfa írsku þjóðinni þar með að sameinast á ný. Sú staðreynd að hún hefur ekki gert það, er fasismi fullum fetum.“ Þjóðarleiðtogar ekki í uppáhaldi Grein Morrissey markar ekki upp- hafið á ferli hans sem gagnrýnandi á ensk stjórnmál, nema síður sé. Drottningin hefur í raun verið hon- um hugleikin, meðal annars í lög- um og textum, allt frá árinu 1986. Þá gaf þáverandi hljómsveit Morrissey, The Smiths, út plötuna „The Queen is Dead“ (Drottningin er dauð). Í titil laginu var meðal annars setn- ingin „Hennar lágtign með höfuðið í ólinni, afsakið mig – en það hljóm- ar undursamlega“ (Her very Low- ness with a head in a sling, I'm truly sorry – but it sounds like a wonder- ful thing). Á sömu plötu var einnig að finna lagið „Panic“ þar sem Morris- sey hvetur alla til að „brenna niður diskótekið og hengja plötusnúðinn.“ Þó hann hafi aldrei viðurkennt það sjálfur er talið fullvíst að í textanum sé diskótekið sem um ræðir annað hvort Buckingham-höll eða Breska þinghúsið, plötusnúðurinn er Elísa- bet II eða þá Margaret Thatcher. Á framtíðarleiðtoga sínum hefur Morrissey takmarkað álit, en hann var eitt sinn spurður um það í spjall- þætti, hvað honum fyndist um kon- unglega parið – þau Vilhjálm og Kate? „Æi, veistu, þau eru svo leið- inleg að það er í raun fullkomlega ómögulegt að ræða þau.“ Þar höfum við það. „Tilgangur kon­ ungs veldisins er, rétt eins og drottningin sjálf, flestu fólki hulin ráðgáta. Drottningin eins og Mubarak og Gaddafi n Breski söngvarinn Morrissey fer hörðum orðum um Elísabetu II n Drottningin var í sinni fyrstu opinberu heimsókn á Írlandi en heimsóknin er mjög umdeild n Morrissey segir konungsveldið ráðgátu Björn Teitsson blaðamaður skrifar bjorn@dv.is Orðheppinn með eindæmum Morrissey hefur löngum þótt hnyttinn í tilsvörum. Hann er líka mikill andstæð- ingur konungsfjölskyldunnar í Bretlandi. Umdeildur blómsveigur Elísabet II og Mary McAleese leggja blómsveig í Minningar- garðinum í Dyflinni. MynD rEUtErS the Queen is Dead Umslag plötu The Smiths. Framan á henni er reyndar mynd af franska leikaranum Alain Delon úr myndinni L'insoumis.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.