Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2011, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2011, Side 26
Ekkert í lífinu getur fært okkur meiri hamingju en hjartagæska okkar sjálfra. Það er því ekki til neins að væla þótt Harpan verði að stofnun utanum þarfir þeirra sem hugsa fyrst um snobbið, þá um lang­ anir almennings og síðast um sköp­ unargleði listamannanna. Við verð­ um nú sem fyrr að líta í eigin barm, láta okkur líða vel og leyfa hjarta­ gæsku okkar sjálfra að ljóma. Við getum ekki gert neitt til að sporna við ágangi afætanna sem einvörðungu hugsa um að snobbliðið haldi aumk­ unarverðri elítuhugsun á lofti. Fróður maður sagði eitt sinn, að hinn illi vilji myndi kenna okkur góð­ vild. Það er mikill sannleikur í þess­ um orðum. Allavega er því haldið fram nú á dögum, að vitleysingjar og þrjótar séu jafnan það fólk sem setur þau viðmið í viðskiptalífi sem heiðarlega fólkið þarf síðan að sætta sig við. Það er bókstaflega þannig að við virðumst þurfa að sætta okk­ ur við það, þegjandi og hljóðalaust, að stórriddarar stærilætis og upp­ dubbuð snobbhænsn haldi eðal­ teboð fyrir horngrýtis hyski og þjóð­ frægar þurrkuntur. Já, kæru vinir, við erum alltaf að díla við húmbúkkið og hégómlegu hvatirnar. Við leyf­ um fréttunum að fjalla um allt þetta ómissandi fólk, sem er svo til hreinn­ ar óþurftar þegar öllu er á botninn hvolft. Hamingja okkar flestra felst í því að vera á hliðarlínunni, láta ekki að­ alinn raska okkar ró. Leyfum afdönk­ uðum stjórnmálaskúrkum, kúlul­ ánakóngum og drottningum þeirra að njóta lífsins lista á okkar kostn­ að. Við, sem í mesta lagi getum tal­ ist þjónar elítunnar, verðum að sýna þakklæti. Harpan er risin úr hafi og HÚRRA! fyrir því. Ísland er eitt stórt og mikið Séð og heyrt. Líklega eigum við ekkert betra skilið en þingmenn sem grenja yfir launum sínum, þingmenn sem dæmdir eru fyrir þjófnað og ráðherra sem grunaðir eru um stórfelld mis­ ferli. Sagan kennir okkur að Útvarp Matthildur byrjaði sem grín en end­ aði sem skelfilegur harmleikur. Sag­ an á líka eftir að kenna okkur að von um farsæla lausn mála í Hörpunni er bundin við það að einhvern veginn í ósköpunum takist að öngla sam­ an klinki til að greiða fyrir það bruðl sem á þar eftir að eiga sér stað. Og von okkar er svo að sjálfsögðu einn­ ig bundin við það, að þeir verði ekki margir Íslendingarnir sem kjósa að boíkotta þetta fína hús. Höfum hugfast, að hjartans hörpu strengir syngja um það sem sálin þráir. Í faðmi lífsins finnur þú, ef fögur leið er valin, að hamingjan er hér og nú í hjarta þínu falin. 26 | Umræða 20.–22. maí 2011 Helgarblað „Við förum bara eftir því mati og tökum enga áhættu.“ n Konráð Júlíusson er eigandi dalmatíuhundsins sem réðst á bréfber- ann á mánudaginn. – DV.is „Það orkar mjög tvímælis að flokka khat sem fíkniefni.“ n Bjarni Harðarson, upplýsingafulltrúi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, um fíkniefnin sem lögreglan haldlagði á miðvikudag. – bjarnihardar.blog.is „Við erum ekki í vinsælda- keppni.“ n Hjalti Jón Sveinsson, skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri, gefur lítið fyrir úttekt stærðfræðings sem bendir til þess að VMA sé verstur 32 framhalds- skóla á Íslandi. – visir.is „Mér finnst mjög mikil- vægt að menn skoði þennan reikning.“ n Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarfulltrúi Reykjavíkurborgar. – mbl.is „Auðvitað á það ekki að vera leyndarmál hverjum er boðið.“ n Gestalistinn á opnunarhátíð Hörpu fæst ekki uppgefinn. Katrín Jakobs- dóttir menntamálaráðherra er ósammála því að leynd eigi að hvíla yfir listanum. – pressan.is Karlar sem hata konur Leiðari Bókstaflega Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir blaðamaður skrifar Hugprýði og hamingja Skáldið skrifar Kristján Hreinsson „Hamingja okkar flestra felst í því að vera á hliðarlínunni. Birgitta hringlar n Á opnunarhátíð Hörpunnar vakti ýmislegt athygli, svo sem að Björgólfi Guðmundssyni, hinum fallna athafna­ manni, skyldi vera boðið. Aftur á móti undraðist enginn að Birgittu Jónsdóttur alþingismanni væri boðið. Þar var stóra fréttin sú að hégóminn náði yfirhöndinni og hún mætti til að hringla skartgrip­ unum sínum með hinum. Þá er óhætt að segja að andlitið hafi dottið af ein­ hverjum þegar Birna Þórðardóttir, einn mesti róttæklingur og mótmælahetja sögunnar, lét fallerast og mætti inn í dýrðarljómann. Kampavín og snjókúlur n Jón Ásgeir Jóhannesson, athafna­ maður og lykilmaður 365, er mikið á milli tannanna á fólki. Sú saga fór sem eldur í sinu eftir helgina að leikkonan Margrét Vilhjálms- dóttir hefði ausið hann kampavíni í bræði sinni. Þetta átti að hafa gerst á veitingastaðnum Boston en hvorki Jón Ásgeir né eigandi staðarins vildu kannast við atvikið. Jón Ásgeir hefur stundum orðið fyrir aðkasti á almannafæri og var grýttur með snjókúlum á sínum tíma fyrir utan hótel sitt. Gúmmídoktor n Össur Skarphéðinsson utanríkisráð­ herra var í stuði í umræðu um utan­ ríkismál og hæddi mann og annan úr liði ESB­andstæðinga sem hann sagði að „nenntu ekki að lesa heima“. Pétur Blöndal alþingismaður hefði stagast á því oft í þinginu að það tæki að minnsta kosti 35 ár að uppfylla skilyrði ESB um skuldir ríkissjóðs og fyrr yrði ekki hægt að taka upp evruna. Össur sagði að greinilega dygði honum ekki eitt gúmmídoktorspróf, því nú lægi fyrir að evruna væri auðveldlega hægt að taka upp á þremur árum ynnu menn heimavinnuna sína í tíma. Reiknað er með að Pétur eigi eftir að launa Össuri doktorsnafnbótina. Kraftaverka- menn í þrot n Eitt stærsta fall kraftaverkamanna eftir hrun er gjaldþrot byggingarverk­ takanna Gylfa Héðinssonar múrara­ meistara og Gunnars Þorlákssonar byggingarmeistara, sem kenndir eru við verktakafyrirtækið BYGG. Einka­ hlutafélag þeirra heitir CDG ehf. en hét áður BYGG Invest ehf. Nafni félagsins var breytt eftir bankahrunið 2008. Það hefur nú verið úrskurðað gjaldþrota og milljarðar gufa upp. Sú var tíð að Gunnar og Gylfi voru á meðal valdamennstu viðskiptajöfra á Íslandi en nú er sú tíð að baki. Sandkorn tRyGGVAGötu 11, 101 REyKjAVÍK Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Lilja Skaftadóttir Ritstjórar: jón trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir traustason, rt@dv.is Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is Ritstjórnarfulltrúi: jóhann Hauksson, johann@dv.is Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is Umsjón innblaðs: Ásgeir jónsson, asgeir@dv.is DV á netinu: dv.is Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010, Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050. Smáauglýsingar: 512 7004. Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Með fullri virðingu, nauðgun er nauðgun,“ sagði fréttakona BBC þegar dómsmálaráð­ herra Breta, Ken Clarke, sagði að sum­ ar nauðganir væru alvarlegri en aðrar. „Nei,“ sagði hann þá og talaði um klass­ ískar nauðgarnir og alvarlegar nauðg­ anir, sem átti við um nauðganir þar sem nauðgarinn beitir ofbeldi og konan er andvíg nauðguninni. Konur eru alltaf andvígar nauðgun, jafnvel þótt kenn­ ari haldi því fram að það sé „alþekkt vís­ indaleg staðreynd að fjöldi kvenna læt­ ur sig dreyma um nauðgun“. Á meðan þingheimar Lundúna loga vegna ummæla dómsmálaráð­ herrans situr sá sem var talinn líkleg­ asti forsetaframbjóðandi Frakka, framkvæmdastjóri Alþjóða­ gjaldeyris sjóðsins Dominique Strauss­Kahn, í gæsluvarð­ haldi í New York vegna ákæru um að hafa nakinn dreg­ ið þernu inn í hótelher­ bergi og reynt að nauðga henni og neytt hana til munnmaka. Hér á Íslandi liggur kona þungt haldin í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítalans. Eiginmaður hennar réðst á hana tveimur vikum eftir brúð­ kaupið og réði henni nánast bana. Annar banaði sambýliskonu sinni og barnsmóður. Síðustu fjórar vikur hefur þetta ver­ ið í fréttum: Sérsveitin var kölluð til þar sem maður var handtekinn fyrir heim­ ilisofbeldi. Karlmaður um tvítugt var handtekinn eftir að hann tók unnustu sína hálstaki. Maður sló konu þannig að hún fékk sár á enni og reif í hárið á henni. Ástæður árásarinnar voru óljós­ ar og talið að hann hefði farið konuvillt. Rúmlega tvítugur mað­ ur var dæmdur fyrir líkamsárás. Hann nefbraut stúlku en sagðist ekki muna vel eftir atvikinu þar sem hann væri með athyglisbrest og gleymdi auð­ veldlega því sem fyrir hann bæri. Ári seinna hrinti hann annarri svo hún slasaðist. Ungur maður situr í gæsluvarð­ haldi vegna gruns um að hafa nauðgað sautján ára stelpu í apríl og fjórum dög­ um síðar nauðgað og barið aðra 19 ára ásamt félaga sínum. Maður var kærður fyrir nauðgun í heimahúsi. Annar stakk fingri í endaþarm ungrar stúlku á Aust­ urvelli og sagði að um fíflaskap hefði verið að ræða. Karlarnir hafa afsakanir á reiðum höndum. Einn fór konuvillt, annar var með athyglisbrest og sá þriðji var bara að fíflast. Ráðherrann valdi vitlaus orð, kennarinn var að stríða og forstjórinn er saklaus. Kannski er hann saklaus. Engu að síður var kvennafar hans al­ þekkt í frönsku stjórnmálalífi. Önnur kona steig fram og sakaði hann um að hafa brotið gegn sér fyrir níu árum. Á sínum tíma var henni sagt að þegja. Út­ varpsmanni var sagt upp eftir að hann fjallaði um þráhyggju Strauss­Kahns gagnvart konum. Blaðakonur þorðu ekki einar á fund með honum. Samt var hann álitinn líklegastur til að verða næsti forseti Frakka. Og enginn sagði neitt. Ábyrgð þeirra sem líta undan og láta sem ekkert sé er mikil. Allar þessar konur þurfa að glíma við miklar og alvarlegar afleiðingar. Í flestum tilfellum er bataferlið langt og strangt. Sálin grætur þótt sárin grói. Al­ þjóðleg mannréttindasamtök hafa bent á að rætur ofbeldis liggi í sögulegum valdamun kynjanna og langvarandi mismunun. Því hefur jafnvel verið hald­ ið fram að á meðan kynbundinn launa­ munur er enn til staðar og flestar valda­ stöður skipaðar karlmönnum verði kynbundið ofbeldi ekki upprætt. Jafn­ vel þótt litlu muni er samþykkt að kon­ ur séu ekki metnar til jafns á við karla, að þær séu aðeins minna virði en þeir. Það má líka velta því fyrir sér hvaða áhrif ofbeldið hefur á feril kvenna. Flestar þurfa að verja mikilli orku, tíma og peningum í að vinna úr afleiðing­ unum og öðlast fullan styrk á ný. Til að geta það þurfa þær bæði kraft og kjark, sem þær hefðu betur getað nýtt annars staðar hefðu þær bara fengið að lifa í friði, án ofbeldis. Maður á dánarbeði kveður til sín prest. Hans eini jarð­neski moli er kotjörð. Með­ an þjónn almættisins gengur að hinum deyjandi stendur venslafólk hjá andaktugt. Prestur veitir mann­ inum hinstu blessun, beygir sig síð­ an að vitum hans. Í sama mund gef­ ur maðurinn upp öndina og glennt augu viðstaddra fyllast tárum. Prest­ ur lýkur aftur augum líksins nýbak­ aða og horfir raunamæddur á fólkið. Segir svo: „Gefur hann enn.“ Þannig lýsir sagan göfgi synd­ ugra manna sem á kveðjustund gáfu kirkjunni aleiguna. Þessi þrá eftir eilífri himnavist virðist seinni tíma fólki ekki eins og töm. Trú manna á himnainnlegg­ ið er blendnari sem ásamt löskuðu trausti prestastéttarinnar dregur úr þessari gjafmildi fólks á lokasprett­ inum. Spurningin um aðskilnað ríkis og kirkju hefur jafnhliða ofangreindu orðið áleitnari. Æ fleiri kjósa sér annan lífsgrundvöll en þjóðkirkjuna og þó saga hennar sé samofin sögu landsins veitir það í margra hug­ um engan rétt til mismununar. Enn fremur telja menn 1.000 ára forskot eiga að duga kirkjunni til sjálfstæðis. Forsvarsmenn hennar eru sem fyrr grandvarir þegar kemur að skoðana­ skiptum um þjóðmál en þó má með nokkurri vissu segja aðkilnað ekki þeirra æðstu ósk. En verði af aðskiln­ aði mun þjóðkirkjan ekki standa uppi slypp og snauð. Jarðarsamn­ ingar frá 1997 tryggja þjóðkirkjunni kirkjujarðir frá ómunatíð sem efalít­ ið truflar veraldlega ráðamenn. Gíf­ urlegur auður er í þessu jarðnæði og sóknarbörnin aldei spurð. Því má búast við hasar nema prestastéttin sjálf komist að þeirri niðurstöðu að sjálfstæð þjóðkirkja eigi að byggja framhaldslíf sitt á fagnaðarerindinu en ekki eháeffi. Við slíku kraftaverki er þó vart að búast. Hverju sem fólk vill trúa hafa lífsgildi kristninnar reynst okkur vel. Þau hafa hjálpað okkur í plág­ um og harðæri, viðhaldið ákveð­ inni festu í samfélaginu og kom­ ið okkur skammlaust í jörð. Við erum laus við öfgar og óréttindi, étum okkar svið án blóðsúthell­ inga. Sameinuð á jólum, sundruð yfirleitt annars, en samt má segja að missir þessara gilda kom okkur í koll í bankahruninu. Niðurstaða mín er því sú að leiðsögn í anda kristninnar getur aldrei nema leitt til góðs, hins vegar er vafa undir­ orpið hvort slíkt þurfi endilega að vera í nafni ríkisrekinnar kirkju. Best að þjóðin ákveði það. Kjallari Lýður Árnason „Gefur hann enn“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.