Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2011, Page 27
Umræða | 27Helgarblað 20.–22. maí 2011
„Sýnir
samhug
Íslendinga“
Á aðalfundi UNICEF í Bern fékk Ísland
viðurkenningu fyrir mestu aukningu
framlaga árið 2010. Hvergi í heiminum
eru fleiri styrktaraðilar miðað við
höfðatölu. Stefán Ingi Stefáns-
son er framkvæmdastjóri UNICEF á
Íslandi.
Hver er maðurinn? „Stefán Ingi Stefánsson
heiti ég.“
Hvaðan ertu? „Ég er fæddur í Bergen en
uppalinn í Hlíðunum.“
Hver eru áhugamálin þín? „Ég hef til
dæmis gaman af hlaupum og auðvitað
vinnunni minni!“
Hefurðu áður unnið að góðum mál-
efnum? „Ekki sams konar málefnum.
Fyrir þetta vann ég sem sjúkraþjálfari á
Grensásdeild.“
Hvernig myndirðu lýsa starfi UNICEF á
Íslandi í stuttu máli? „UNICEF snýst um
að tryggja réttindi barna. Við gerum það
fyrst og fremst með því að bjóða fólki að
taka þátt í verkefnum sem miða að því
að tryggja rétt barna sem búa við hvað
sárasta neyð í fátækustu ríkjum heims. Við
kynnum verkefnin og söfnum framlögum
fyrir þau. Hjálpin fer síðan meðal annars í að
bólusetja börn við lífshættulegum sjúkdóm-
um, tryggja þeim aðgang að heilsugæslu,
menntun og hreinu vatni.“
Eru Íslendingar almennt vel að sér um
störf UNICEF? „Já, alltaf betur og betur. Ég
held að fólk sé almennt mjög áhugasamt
um þessi mál og viðurkenningin sýnir að fólk
hefur mikinn áhuga á að koma til aðstoðar.
Viðurkenningin sem við fengum er auðvitað
fyrst og fremst viðurkenning til heimsfor-
eldra okkar.“
Er fjölgun heimsforeldra á Íslandi hröð?
„Þetta hefur vaxið jafnt og þétt. Í fyrra
bættust til dæmis við um 2.000 manns og
núna eru þeir hátt í 17.000 talsins. Við erum
mjög þakklát fyrir þetta – og að þeir sem
byrjuðu að styrkja okkur fyrir hrun hafa
haldið því áfram. Þetta er okkur mikils virði.“
Hvað er fram undan? „Aðalfundur UNICEF
verður haldinn á fimmtudaginn í næstu viku,
í Þjóðminjasafninu. Hann hefst klukkan
fimm og þangað eru allir velkomnir. Þar
verður ársskýrslan kynnt og viðamikil
skýrsla um stöðu barna á Íslandi.“
„Já, já.“
Haukur Emilsson
„Nei, það er nú ekki einu sinni komið,
sumarið.“
Kolbrún Halldórsdóttir
21 árs afgreiðslumaður
„Nei, það er ekki svo. Eigi getur haustað á
vori.“
Styrmir Örn Hansson
30 ára verslunarrekandi og flugfreyr
„Já, klárlega.“
Dögg Guðmundsdóttir
22 ára, afgreiðsludama og lífskúnstner
„Já, það virðist taka sinn tíma til þess að
koma hingað.“
Ólafur Björn Tómasson
20 ára glaumgosi
Maður dagsins
Haustar snemma á þessu vori?
Svanur í Hörpu Lúðrasveitin Svanur hélt vortónleika sína í Eldborg, aðalsal Hörpu, síðastliðið mánudagskvöld. Efnisskráin var mjög fjölbreytt og einleikari í einu
verkanna var saxófónleikarinn Sigurður Flosason en hann lék með sveitinni á sínum yngri árum. myND DavÍð þÓr
Myndin
Dómstóll götunnar
Í pistli fyrir tveimur vikum ræddi ég mikilvægi þess að endurreisa Al-þingi sem meginafl í stjórnmálalífi
þjóðarinnar og frelsa þingið undan
oki ríkisstjórnarinnar. Í stjórnlaga-
ráði höfum við í B-nefndinni, sem
fjallar um valdþætti stjórnskipun-
arinnar, náð saman um 25 leiðir til
þess að styrkja löggjafann gagnvart
framkvæmdavaldinu. Við höfum nú
þegar útfært ríflega helming leið-
anna í afmarkaðar tillögur að ákvæð-
um í stjórnarskrá en aðrar eru enn
til umfjöllunar, bæði í nefndinni og
hjá ráðinu í heild. Flestar tillagnanna
eru í eðli sínu óháðar því hvort rík-
isstjórn sitji áfram í skjóli þings eða
verði kjörin beinni kosningu. Það
stóra mál er enn óútkljáð.
þvingað samráð
Í núverandi stjórnarskrá segir að Al-
þingi og forseti fari saman með lög-
gjafarvaldið. Við byrjum hins vegar
á því að segja að Alþingi sæki vald
sitt til þjóðarinnar og fari með
löggjafarvald og fjárstjórnar-
vald og hafi eftirlit með fram-
kvæmdavaldinu. Til að
styrkja þingið í því hlut-
verki leggjum við til að
ráðherrar víki af þingi
– séu þeir á ann-
að borð valdir úr
hópi þingmanna.
Varamenn komi
þá í staðinn. Einn-
ig af þeim sökum
er brýnt að styrkja
minnihluta þings-
ins til mótvægis.
Flestar tillagn-
anna lúta einmitt
að því .
Sú mikil-
væg-
asta er kannski sú að það verði í
höndum forsvarsmanna þingnefnda
að mæla fyrir stjórnarfrumvörpum í
stað ráðherra eins og nú er. Því viljum
við styrkja stefnumótunarstarf þing-
nefnda í undirbúningi lagagerða án
þess þó að tvöfalda sveit sérfræðinga
sem kemur að undirbúningi mála hjá
stjórnsýslu og þingi. Með því móti
yrði kerfisbundið og virkt samráð á
milli stjórnarráðsins og viðkomandi
þingnefnda hreinlega þvingað fram
í stað þess að þinginu sé aðeins ætl-
að að stimpla verk ríkisstjórnarinn-
ar eins og nú viðgengst. Ráðherrar
koma þá aðeins til þings sérstak-
lega kvaddir til þess að svara
fyrirspurnum og taka þátt
í mjög afmörkuðum
umræðum.
aukið eftirlit
Tillögur okkar miða að því að styrkja
eftirlitshlutverk Alþingis verulega.
Kveðið er á um upplýsingaskyldu
ráðherra gagnvart Alþingi um mál
sem undir þá heyra um leið og fjár-
laganefnd Alþingis fær heimild til
að krefja stofnanir ríkisins, ríkisfyr-
irtæki og aðra þá sem fá framlög úr
ríkissjóði um upplýsingar sem fram-
laginu tengjast.
Til að hnykkja á eftirlitshlutverki
þingsins viljum við aukinheldur
stjórnarskrárbinda meginstofnan-
ir þess, svo sem Ríkisendurskoðun
og Umboðsmann Alþingis – sem
mætti raunar heita Umboðsmað-
ur almennings. Gagnrýnt hefur ver-
ið að stjórnvöld víli ekki fyrir sér að
hunsa álit umboðsmanns og því höf-
um við áhuga á að styrkja stöðu hans
gagnvart framkvæmdavaldinu. Við
leggjum enn fremur til að stjórnar-
skrárbinda nýja eftirlits- og stjórn-
skipunarnefnd þingsins sem hafi
það hlutverk að kanna athafnir og
ákvarðanir ráðherra. Enn fremur er
ætlunin að heimila þing-
nefndum að rannsaka
mikilvæg mál er almenn-
ing varða.
þingið sjálft
Í viðleitni til að lyfta yfirstjórn þings-
ins svolitla ögn yfir versta argaþras
dægurstjórnmálanna leggjum við
til að Alþingi kjósi sér forseta með
auknum meirihluta atkvæða, en það
þvingar stjórnarliðið til samráðs við
stjórnarandstöðuna um þingforyst-
una. Um leið leggjum við til að þing-
forsetinn greiði ekki atkæði og víki í
reynd frá almennum þingstörfum.
Við viljum einnig styrkja málefn-
arekstur einstakra þingmanna með
því að þingmál falli aðeins niður við
lok kjörtímabils í stað hvers þing-
misseris eins og nú er. Svo viljum
við færa þingrofsréttinn frá forsætis-
ráðherra til þingsins sjálfs, það er að
segja meirihluta þings.
Óútkljáð er hvort rétt sé að tak-
marka setutíma ráðherra og hvernig
koma megi böndum á reglugerða-
vald þeirra. Við erum hins vegar
sammála um að leggja þá skyldu á
ráðherra og önnur stjórnvöld að líta
einungis til hæfni og málefnalegra
sjónarmiða við skipun manna í emb-
ætti. Í stað þess að banna erlendum
ríkisborgurum að gegna embættum
á Íslandi eins og nú er leggjum við til
að í lögum megi kveða á um að í til-
tekin embætti megi einungis skipa
íslenska ríkisborgara.
Öll eru þessi mál enn í gerjun
og ekkert hefur enn verið endan-
lega afgreitt í okkar hópi. Þeir sem
hafa áhuga á að leggja okkur lið geta
komið tillögum á framfæri í gegn-
um vefinn okkar stjornlagarad.is.
Öllum góðum ábendingum er ákaft
fagnað.
Áfram alþingi
Kjallari
Dr. Eiríkur
Bergmann
„Gagnrýnt hefur
verið að stjórnvöld
víli ekki fyrir sér að hunsa
álit umboðsmanns og
því höfum við áhuga á að
styrkja stöðu hans gagn-
vart framkvæmdavaldinu.