Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2011, Síða 54
54 | Fólk 20.–22. maí 2011 Helgarblað
Jóhannes, kenndur við Bónus, hefur sigrast á veikindum sínum er og kominn með hár:
„Ég er betri en Ég var áður“
„Já, já, mér líður miklu betur,“
segir Jóhannes Jónsson kaupmað-
ur, kenndur við Bónus, í samtali
við DV. Fram kom á vefmiðlinum
menn.is um daginn að Jóhannes
hefði, eftir sjö mánaða meðferð við
krabbameini, sigrast á veikindum
sínum.
Fyrir um tveimur árum fór Jó-
hannes í aðgerð til að láta fjarlægja
gallsteina og kom þá í ljós hjá hon-
um illkynja eitlastækkun. Í fyrstu
var fylgst með veikindum hans á
tveggja mánaða fresti og á endan-
um talið ljóst að ströng lyfjameð-
ferð væri nauðsynleg til að reyna að
sporna gegn krabbameininu.
Hann staðfestir við DV að hann
hafi nú náð sér. „Ég er ágætlega
kominn yfir þetta,“ segir Jóhannes
sem var staddur í útlöndum þegar
DV náði af honum tali. Honum líð-
ur að sögn betur en áður en hann
veiktist. „Ég er betri en ég var áður.
Þetta er bara gott eins og það er,“
segir Jóhannes en krabbameins-
meðferðin varð til þess að hann
missti hárið. Hann er nú kominn
með hárið aftur og er því orðinn
eins og hann á að sér að vera.
Mikið hefur gengið á í lífi Jó-
hannesar undanfarið. Til viðbót-
ar við veikindin missti hann glæsi-
hýsið Hrafnabjörg sem hann reisti
í Eyjafirði, gegnt Akureyri. Skila-
nefnd Landsbankans leysti til sín
húsið og seldi erlendum viðskipta-
jöfri fyrir 200 milljónir króna. Þá
hefur hann misst hlut sinn í Baugi
sem átti verslanakeðjuna sem hann
byggði upp frá grunni.
baldur@dv.is Missti hárið Lyfjameðferðin varð til þess að Jóhannes missti hárið. Það hefur nú vaxið aftur.
L
oftleiðir, forveri Icelandair, lék hlutverk í
tilhugalífi Íslandsvinanna Hillary Clinton,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Bills
Clinton, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna.
Þetta speglaðist í ummælum bandaríska utan-
ríkisráðherrans á fundi með Össuri Skarphéðins-
syni, utanríkisráðherra Íslands, í Washington á
miðvikudaginn. Í stuttu samtali við blaðamenn
fyrir fundinn kom fram hjá Hillary Clinton að
hún minntist Icelandair með hlýju en utanríkis-
ráðherrann lýsti sérstakri ánægju með að Ice-
landair hefði nú tekið upp beint flug til Washing-
ton. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra var
einmitt með í þessu fyrsta beina flugi félagsins til
Washington.
„Ég komst að því í þessari ferð, að Icelandair
er greinilega flugfélag ástarinnar,“ sagði Össur
Skarphéðinsson utanríkisráðherra meðal annars
í viðtali við DV eftir fund hans með Hillary Clin-
ton á miðvikudagskvöld. Hann sagði að Hillary
Clinton hefði í upphafi fundar þeirra rifjað upp
að áður en þau Bill gengu í hjónaband hefðu þau
ferðast saman til Evrópu, og hún minntist þess
með gleði í sinni að þá hefðu þau einmitt ferðast
með íslenska flugfélaginu, sem á þeim tíma hefði
verið í uppáhaldi meðal bandarískra námsmanna
á leið til Evrópu, af því að það hefði boðið upp á
lægstu fargjöld.
Össur sagði að Icelandair hefði greinilega treyst
fleiri hjónabönd en þeirra Bills og Hillary. „Við
móttökuathöfnina á Dulles-flugvellinum hélt stór-
glæsilegur áttræður stjórnarformaður flugvall-
arins, Charles Snelling, ræðu og sagði frá því að
þegar hann bað konu sinnar upp úr miðbiki síð-
ustu aldar hefði hann lofað henni brúðkaupsferð
til Evrópu. Langódýrasti farmiðinn yfir hafið hefði
verið með hinu rómaða íslenska flugfélagi, sem í
dag heitir Icelandair. Glæsimennið sagðist aldrei
hafa gleymt Íslandi og Icelandair síðan, og ferða-
lagið hefði lagt grunn að 58 ára farsælu hjóna-
bandi. Mér fannst þetta mjög krúttlegt og kyssti
þann gamla að lokum að íslenskum sveitasið.“
bill og Hillary Clinton:
Ástfangin á vængjum
íslensks flugfélags
n Hillary og Bill flugu ung og ástfangin með Loftleiðum n Hillary
sagði Össuri frá reynslunni n Icelandair treysti fleiri hjónabönd
Hillary og Bill
Þykir vænt um
Icelandair.
Össur Hillary
sagði honum
allt af létta.
baktal í
boltanum
„Já, klárlega. Stelpur eru sjálfum sér verstar,
við erum alveg rosalegar. Ég ætla nú ekki
að koma með nein dæmi en það er ótrúlegt
hvernig stelpur láta stundum,“ segir Sara
Björk Gunnarsdóttir, landsliðsmaður í
knattspyrnu, í viðtali við Monitor, þegar
hún er spurð hvort mikið sé um baktal í
kvennaboltanum. Í viðtalinu lætur hún
ágætlega af lífi atvinnumannsins en segist
þó búa í pínulítilli íbúð. Sara, sem er á
föstu, viðurkennir að hún fái nokkra athygli
frá strákum en tekur fram að hún sé „vel
frátekin“ þó kærastinn búi heima á Íslandi
en hún í Svíþjóð.
Frumflytja lag
á ungfrú Ísland
„Þetta er popptónlist en aðeins öðruvísi en
algengt hefur verið hingað til. Við blöndum
klassískum áhrifum inn í popptónlistina
sem hefur ekki verið gert hér á Íslandi í
langan tíma þannig að þetta eru í raun and-
stæður að mætast – eins og við Védís,“ segir
fegurðardísin og fiðluleikarinn Magdalena
Dubik í viðtali við nýjasta tölublað Séð og
heyrt. Þær Védís Vantída Guðmundsdóttir
hafa tekið sig saman og myndað hljóm-
sveitina Galaxis. Þær eru báðar hljóðfæra-
leikarar en Védís leikur á flautu. Þær munu
frumflytja nýtt lag á fegurðarsamkeppninni
Ungfrú Ísland sem fer fram í dag, föstudag.
Fjölskyldan
í fyrirrúmi
Útgefandinn Björn Ingi Hrafns-
son stendur á ákveðnum kross-
götum þessa dagana. Á mánudag
ákvað hann að gefa ekki kost á sér
til áframhaldandi formennsku í
íþróttafélaginu ÍR. Það sem athygli
vekur er að aðeins fjórum dögum
áður hafði Björn Ingi gefið kost á
sér til formanns. Það sem breyttist á
þessum fjórum dögum var að mót-
framboð barst. Hann dró
því framboð sitt til baka
og sendi í kjölfarið yfir-
lýsingu þar sem fram
kom að hann að hann
hefði í raun ekki
tíma til að sinna
starfinu. For-
mennskan hafi
bitnað á vinnu
hans og fjöl-
skyldu sökum
anna.