Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2011, Qupperneq 56
Djöfullinn
danskur!
Ánægður með Egil
n Rithöfundurinn Stefán Máni er
ánægður með vöðvatröllið Egil Ein-
arsson sem leikur í myndinni Svartur
á leik. Myndin er byggð á samnefndri
bók Stefáns en rithöfundurinn
skrifaði á fésbókarsíðu starfsbróður
síns: „Var að horfa á upptökur í gær.
Þú negldir þetta: Respect.“ Egill
leikur undirheimahrotta í myndinni
en hann þurfti meðal annars að lita
hár sitt svart fyrir
hlutverkið. Það
lagðist ekki vel
í ljóskuna Egil
sem lýsti sér
sem „ógeðsleg-
um“ í samtali
við DV á sínum
tíma.
Einar gæti sloppið
n Ef Facebook-aðdáendum útvarps-
stöðvarinnar Kanans fjölgar ekki
snögglega á næstu dögum gæti svo
farið að Einar Bárðarson sleppi við
að hjóla hringveginn. „Vinasöfn-
unin“ hefur staðið í stað eftir að hafa
tekið nokkurn kipp. Nú eru liðlega
12 þúsund manns „vinir“ Kanans en
starfsfólk stöðvarinnar gaf það út ef
þeir yrðu 20 þúsund í lok mánaðarins
myndi Einar hjóla hringinn í kringum
landið. Vinunum hefur lítið fjölgað
síðustu daga. Þó Einar
hafi lést um sjö kíló
undanfarna þrjá
mánuði er óhætt
að fullyrða að
það aðeins sé á
færi hraustustu
manna að hjóla
1.400 kílómetra.
Vilja komast úr
skammarkróknum
n „Er Pétur beðinn afsökunar á
þessu og vona Huginn og Muninn
að þeir komist úr skammarkróki
hins skelegga útvarpsstjóra, Arn-
þrúðar Karlsdóttur, sem fyrst,“ segir
í lítilli frétt sem Viðskiptablaðið birti
á fimmtudag. Blaðið greindi frá því í
síðustu viku, í dálki sem ber yfirskrift-
ina Huginn og Muninn, að komið
hafi til handalögmála milli Péturs
Gunnlaugssonar á Útvarpi Sögu og
Björns Vals Gíslasonar,
þingmanns Vinstri
grænna, í þætti
Péturs á stöðinni.
Ekki reyndist
vera fótur fyrir
þessari frásögn
og neituðu Pétur
og Björn að
atburðarásin
hefði verið
eins og
lýst var í
blaðinu.
Það blæs ekki byrlega hjá danska leik-
stjórann Lars von Trier þessa dagana.
Hann baðst afsökunar á ummælum
sínum um nasista á kvikmyndahátíð-
inni í Cannes en það dugði ekki til því
hann er kominn í ónáð hjá aðstand-
endum hátíðarinnar.
Von Trier var í Cannes til að kynna
nýjustu mynd sína Melancholia en
hún er framleidd í samstarfi við kvik-
myndafyrirtækin Trust Nordisk og
Nordisk Film.
Trust Nordisk tryggði sér alþjóðlegt
söluumboð á myndinni Eldfjalli, sem
Rúnar Rúnarsson leikstýrir, en mynd-
in er íslensk/dönsk samframleiðsla
Zik Zak kvikmynda og Fine & Mellow
í Danmörku. Elsa María Jakobsdóttir
er stödd í Cannes sem fulltrúi Zik Zak
kvikmynda, þar sem Eldfjall er sýnd, en
hún ræddi við Síðdegisútvarp Rásar 2
á fimmtudag þar sem hún lýsti ástand-
inu í kringum kvikmynd von Triers.
Aðstandendum Eldfjalls var boðið í
mat fyrir frumsýningu myndar von
Triers en sá kvöldverður var sleginn af
eftir ummæli leikstjórans því eigendur
veitingastaðarins, sem eru gyðingar,
kærðu sig ekki um að fá Danann til sín.
Elsa María greindi einnig frá því
að Trust Nordisk hefði verið búið að
skipuleggja frumsýningarstrandpartí
eftir sýningu myndarinnar en eigend-
ur staðarins þar sem veislan átti að fara
fram, sem einnig eru gyðingar, hættu
við allt saman eftir ummæli leikstjór-
ans.
Elsa sagði að það hefði verið þungt
hljóð í mönnum við frumsýningu
myndarinnar. Þegar von Trier gekk inn
í kvikmyndasalinn heyrðust nokkr-
ir kvikmyndagestir púa á hann. Sagði
Elsa að einn meðframleiðandi Mel-
ancholiu hefði sagt við sig að það væri
allt í einu ömurlegt að vera Dani.
Aðstandendur Eldfjalls í miðri hringiðu Melancholiu:
Lars von Trier eyðilagði teitin
Grunnur að góðri máltíð
www.holta.is
Gullverðlaun
Starfsmenn Holtakjúklinga mega vera stoltir, því á dögunum hlaut
léttreykta kjúklingabringuáleggið frá Holtakjúklingum gullverðlaun
í fagkeppni kjötiðnaðarmeistara. Þeir eru vel að þessum
gullverðlaunum komnir enda er áleggið framleitt af mikilli
fagmennsku úr besta hráefni sem völ er á.
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HElgarblaÐ 20.–22. MAí 2011 58. tbl. 101. árg. leiðb. verð 595 kr.
Fúlt að vera Dani Elsa segir danska
framleiðendur hafa verið miður sín eftir
ummæli von Triers.