Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2011, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2011, Blaðsíða 2
2 | Fréttir 23. maí 2011 Mánudagur Ómögulegt er að spá fyrir um hvert framhaldið verður á gosinu í Gríms- vötnum að mati veðurfræðingsins Sigurðar Þ. Ragnarssonar. Eldgosið í Grímsvötnum er að öllum líkindum það stærsta á svæðinu í um hundr- að ár. Sigurður segir að það eina sem menn viti nú með vissu sé að virknin fari nú minnkandi og muni gera það áfram en það gefi væntingar um að áhrif gossins verði ekki langvarandi. Á heimasíðu Veðurstofunnar kemur fram að ekki sé búist við jökulhlaupi vegna gossins. Ekkert eldfjall á Ís- landi gýs jafn oft og Grímsvötn en í eldstöðinni eru þrjár samliggjandi öskjur. Grímsvötnin sjálf eru í yngstu öskjunni.  Hjálmar Björgvinsson hjá sam- hæfingarstöð Almannavarna segir að allt sé nú gert til þess að létta und- ir með íbúum á svæðinu. Búið er að opna tvær fjöldahjálparstöðvar, aðra á Kirkjubæjarklaustri og hina í Hof- görðum í Öræfasveit, en hægt verður að fjölga þeim upp í sex ef þurfa þyk- ir. Gosmökkurinn hefur hæst náð 18 kílómetra hæð en af því ráða menn að það sé að minnsta kosti tífalt öfl- ugra en síðasta gos í Grímsvötnum. Svört nótt „Þetta var svartasta nótt sem ég hef upplifað,“ segir Baldur Þ. Bjarnason, bóndi á bænum Múlakoti sem er rétt austan við Kirkjubæjarklaustur. Ljós- myndari DV ræddi við Baldur og eig- inkonu hans Helgu Björnsdóttur á sunnudag en þá hafði aðeins rofað til eftir niðamyrkur sem ríkt hafði á svæðinu fram eftir degi. Var tækifærið notað til þess að smala um 300 sauðkindum inn í fjár- hús á meðan bjart var. Múlakot er kúa- og sauðfjárbú en synir þeirra Baldurs og Helgu hafa undanfarið séð um sauðféð. Það kom því í hlut þeirra að finna féð og koma því aft- ur í hús. Við fyrstu yfirferð um túnin fundu drengirnir dautt lamb og nokkrar rollur ofan í skurðum, en sauðfé sækir oft í skjól fyrir vindum með því að koma sér fyrir í skurðum. Hjónin voru að vonum í þónokkru áfalli en Helga sagði í samtali við ljósmyndara að hún hefði aldrei vitað til svo mikils öskufalls á svæðinu. Sagðist Baldur aldrei hafa upplifað jafnmyrka nótt og þessa, en hann hefur búið á bæn- um frá árinu 1942. Í stöðuskýrslu vegna eldgossins í Grímsvötnum kemur fram að um þúsund íbúar séu á hamfarasvæð- inu, en íbúanir njóta aðstoðar beggja vegna Skeiðarársands þar sem Vega- gerðin hefur lokað veginum af örygg- isástæðum.Vísindamenn flugu yfir gosstöðvarnar í gærmorgun og hafði gosmökkurinn þá lækkað úr um 20 kílómetrum í gærkvöldi og niður í 10–15 kílómetra í dag.  Vítiseldar Blaðamaður DV ræddi við Sigurð Þ. Ragnarsson veðurfræðing um mál- ið: „Ef við reynum að átta okkur á því hvað sé að gerast þarna þá er gríðarlega öflugt jarðhitasvæði und- ir Grímsvötnum. Þar undir er mjög mikil kvikusöfnun og í kvikugeymin- um virðist hafa verið mun meiri upp- söfnuð virkni en áður en eins og fram hefur komið er gosið mun stærra en núlifandi fólk hefur séð þarna áður. Það lýsir sér kannski best í því að við upphaf fór gosmökkurinn hátt í 20 kílómetra hæð sem er tíu kíló- metrum hærra en flugvélar fljúga al- mennt í.“ Sigurður segir öskudreifinguna á svæðinu nokkuð óreiðukennda sökum þess að vindáttir niðri við jörðu séu aðrar en í háloftunum. Hann segir í raun ógeðslegt að þurfa að hafast lengi við á slíku svæði en eitur gufurnar geri það meðal ann- ars að verkum að koma verði gras- bítum í skjól hið snarasta. „Þú getur ekki leyft grasbítum að bíta gras á svæðinu vegna gríðarlegs magns flú- ors sem sest í það. Flúorið leysir upp bein og tennur með þeim afleiðing- um að tennurnar hrynja hreinlega úr dýrunum og beinin freyða. Þannig að þetta er ekkert túrista- og gælugos. Þarna erum við bara að tala um vítis- elda, það er ekkert öðruvísi.“ Ekki búist við hlaupi Sigurður segir menn hafa haft minni áhyggjur af eldstöðinni undir Gríms- vötnum en öðrum eldstöðvum þar sem hún sé langt frá mannabyggð- um. Nú hafi hins vegar sýnt sig að hún geti valdið miklu meiri usla en menn hefðu þorað að trúa. „Sumir hafa verið þeirrar skoðunar að við séum að sigla inn í virkara eldgosa- tímabil en verið hefur undanfarna áratugi. Það er auðvitað óskaplega þreytandi fyrir fólk sem býr á svæð- inu að lenda í þessu og það kæmi mér ekki á óvart ef íbúar nálægt Eyja- fjallajökli hafi fengið hroll við að heyra fregnirnar,“ segir Sigurður. Á heimasíðu veðurstofunnar var á sunnudag staðfest að gosið í Gríms- vötnum sé í öskjunni nærri þeim stað þar sem gaus árið 2004. Þegar gaus á sama stað árin 1998 og 2004 urðu jökulhlaup nokkru eftir að gos- ið hófst en ekki er talið að samsvar- andi aðstæður séu til staðar nú og ekki búist við jökulhlaupi. Síðast hljóp úr Grímsvötnum árið 2010 og hefur lítið vatn safnast þar saman og þunnur ís er á öskjunni. Viðurstyggilegar gosgufur. „Það má segja að gosframleiðsluvél- in sé þarna undir Grímsvötnum og að hún eigi þátt í því að halda land- inu saman, og þar sem landið er að reka í sundur myndum við einfald- lega losna í sundur ef ekki væri fyrir gosefni þaðan,“ segir Sigurður. Hann segir þó að gasið sem sprengi kvik- una og blandist við vatnið af jöklin- um sé ávísun á viðurstyggilegar gos- gufur. Hann segir gosefnin öðruvísi en þau sem komu úr gosinu í Eyja- fjallajökli og því sé ólíklegt að gosið muni geta valdið jafn miklum trufl- unum á flugi eins og gosið í Eyja- fjallajökli gerði. Fram til þessa hafa gos í Grímsvötnum verið í styttra lagi en Sigurður segir ómögulegt að spá fyrir um þróun þessa goss sök- um þess af hversu miklum krafti það hófst. Sigurður segir gosstöð- ina undir Eyjafjallajökli algjörlega ótengda þeirri sem er undir Gríms- vötnum og því sé ekki hægt að halda því fram að um tengsl á milli gos- anna sé að ræða. Á heimasíðu Veðurstofunnar hef- ur sérstakur vefur verið settur upp vegna mikilla eldinga sem hafa ver- ið í gosmekkinum. Á síðunni kemur fram að skráðar eldingar í gosinu í gærkveldi og í nótt mældust um þús- und sinnum fleiri en í gosinu í Eyja- fjallajökli í fyrra. „Á fyrstu 18 klst. gossins hafa mælst um 15 þús. eld- ingar, en á 39 dögum Eyjafjallajök- ulsgossins mældust 790 eldingar með sama mælikerfi. Rannsóknir í Eyjafjallajökulsgosinu benda til að eldingar verði þegar mökkurinn rís það hátt að vatn í honum frýs,“ segir á heimasíðunni. Óvissuástand Hjámar Björgvinsson hjá samhæf- ingarstöð Almannavarna sagði í samtali við blaðamann á sunnudag n Eldgosið í Grímsvötnum er það stærsta á svæðinu í um hundrað ár n Bóndi segir aðfaranótt sunnudags hafa verið svörtustu nótt sem hann hafi upplifað n Þetta er ekkert túrista- og gælugos, segir veðurfræðingur Hrein aska eins og úr Eyjafjallajökli Haraldur Briem sóttvarnarlæknir segir öskuna sem fellur úr eldgosinu í Grímsvötnum innihalda lítið af flúori og öðrum eitruðum efnum. „Við höldum að þetta sé frekar hrein aska eins og eins og hún var úr Eyjafjallajökli. Það er lítið af flúor og þá væntanlega öðrum eiturefnum.“ Haraldur segir viðbúnað vegna öskufallsins vera góðan og gott auga sé haft með afleiðingum öskufalls á heilsu manna og dýra. Upplýsingar um heilsufar eftir öskufall úr Eyjafjallajökli koma sér vel. „Við gerðum talsverða heilsufarskönnun í lok Eyjafjallajökuls- gossins og höldum ekki að þetta valdi langvarandi áhrifum. Eitt af því sem fólk óttaðist í fyrra var að öskufallið gæti valdið öndunarfærasjúkdómum en það varð ekki. Við fylgdumst með heilsufari bæði manna og dýra og þetta fór vel. Við fylgdumst til dæmis með lömbunum sem fæddust í fyrra og voru síðan seld til slátrunar og einnig með hestunum sem voru aflífaðir af einhverjum ástæðum. Það fannst ekkert í lungunum á þessum dýrum og þetta leit fremur vel út.“ Haraldur ítrekar að vel sé fylgst með öskufallinu og að óráðlegt sé að fara út í öskufallið að óþörfu. „Askan veldur særindum í hálsi, hósta og óþægindum í augum og jafnvel húð,“ segir hann og bendir fólki á að nota bæði grímur og gleraugu til að verja sig. „Við eigum sem betur fer mikið grímum af vegna inflúensufaraldursins, sem sýnir að góður viðbúnaður er alltaf til góðs.“ Jón Bjarki Magnússon blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is „Þarna erum við bara að tala um vítiselda, það er ekkert öðruvísi.“ „Við erum núna að huga að fólki inni á þessu svæði og reyna að gera allt sem hægt er til að létta undir með því.“ Í áfalli Hjónin Baldur Þ. Bjarnason og Helga Björnsdóttir voru að vonum í nokkru áfalli á sunnudaginn. „Svartasta nótt sem ég hef upplifað“ Lítið skyggni Afar lítið skyggni var á svæðinu í kringum Kirkjubæjar- klaustur á sunnudaginn eins og sést á þessari mynd ljósmyndara DV. Myndir rÓBErt rEyniSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.