Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2012, Qupperneq 2
2 Fréttir 5. mars 2012 Mánudagur
H
áskóli Íslands fylgist náið með
framvindu lögreglurann-
sóknarinnar á málefnum
iðnfyrirtækisins Sigurplasts
og Jóns Snorra Snorrasonar,
lektors í viðskiptafræði við skólann.
Þetta segir Ólafur Þ. Harðarson, forseti
félagsvísindasviðs Háskóla Íslands,
en viðskiptafræðiskorin tilheyrir því
sviði. Jón Snorri var einn af eigendum
Sigurplasts og stjórnarformaður fyrir-
tækisins.
Líkt og DV hefur greint frá eru
málefni Sigurplasts til rannsóknar
hjá sérstökum saksóknara en meðal
annars er um að ræða meint veðsvik
Jóns Snorra sem Arion banki kærði.
Skýrslutökur yfir starfsmönnum Ar-
ion banka, sem eru vitni í málinu, fóru
fram hjá sérstökum saksóknara fyrir
nokkrum vikum. Rannsóknin er því í
fullum gangi.
Margs konar lögbrot til rann-
sóknar
Grunur leikur á að margs konar lög-
brot, allt frá skattalagabrotum, skilas-
vikum, umboðssvikum til fjárdráttar,
hafi átt sér stað í rekstri iðnfyrirtækis-
ins því árið 2007 þar til það var tekið til
gjaldþrotaskipta haustið 2010. Skipta-
stjóri Sigurplasts, Grímur Sigurðsson,
og Arion banki, aðalkröfuhafi félags-
ins, kærðu viðskiptahætti Sigurplasts
til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglu-
stjóra og skattrannsóknarstjóra á fyrri
helmingi síðasta árs.
DV lék forvitni á að vita hvort Há-
skóli Íslands væri meðvitaður um þá
stöðu að viðskipti Jóns Snorra væru til
rannsóknar hjá sérstökum saksókn-
ara. Blaðið reyndi að ná sambandi við
rektor skólans, Kristínu Ingólfsdótt-
ur, til að spyrja hana um málið en var
bent á að ræða við Ólaf.
Töldu óþarft að aðhafast nokkuð
Ólafur segir að háskólinn hafi ekki tal-
ið tilefni til að aðhafast nokkuð í máli
Jóns Snorra eftir að DV greindi frá
lögreglurannsókninni á Sigurplasti í
fyrra. Umfjöllun DV byggði á skýrslu
sem endurskoðendafyrirtækið Ernst
& Young vann um starfsemi félags-
ins. Rannsókn Ernst & Young á starf-
semi Sigurplasts byggði meðal annars
á kæru sem skiptastjóri Sigurplasts,
Grímur Sigurðsson, sendi til lögregl-
unnar. Orðrétt sagði í skýrslu Ernst &
Young að hafa ætti til hliðsjónar „…
kæru sem send hefur verið ríkislög-
reglustjóra vegna meints fjárdráttar og
annarra brota í rekstri Sigurplasts ehf.“
Rannsóknin á starfsemi Sigurplasts
hefur því staðið yfir frá síðasta ári.
Sekt og sakleysi
„Þegar þetta kom upp þá bara skoðuð-
um við það, ræddum við Jón Snorra og
á þeim tíma fannst okkur ekki ástæða
til að gera neitt að svo stöddu. Þannig
að það er í rauninni ennþá bara þann-
ig. Við bara fylgjumst með þessu. Það
hefur ekki ennþá neitt komið fram
sem okkur hefur sýnst gefa tilefni til
einhverra aðgerða,“ segir Ólafur þeg-
ar hann er spurður um hugsanlegar
aðgerðir háskólans vegna máls Jóns
Snorra.
Ólafur segir að engar reglur séu í
gildi í háskólanum um hvernig taka
beri á málum kennara við skólann
sem eru til rannsóknar eða hafa jafn-
vel verið ákærðir hjá ákæruvaldi.
Hann undirstrikar að menn séu sak-
lausir uns sekt þeirra hefur verið
sönnuð og að háskólinn fari eftir lög-
um um opinbera starfsmenn. Ólafur
segist ekki áður hafa komið að slíku
máli hjá Háskóla Íslands. „Í málum af
þessu tagi viljum við hins vegar gjarn-
an fylgjast vel með […] Hins vegar er
ekki hægt að kveða upp neina niður-
stöðu í slíkum málum áður en þau eru
rannsökuð.“
Miðað við það sem Ólafur segir
gæti rannsókn sérstaks saksóknara
á Sigurplasti og Jóni Snorra haft ein-
hverjar afleiðingar í för með sér, það er
að segja ef Jón Snorri verður ákærður
fyrir efnahagsbrot. Fram að því mun
Háskóli Íslands hins vegar halda að
sér höndum í málinu.
Átta stefnur þingfestar
Inntakið í skýrslu Ernst & Young, sem
rannsókn saksóknara byggir með-
al annars á, er að gengið hafi verið á
eignir og fjármuni Sigurplasts eftir
að fyrir lá að félagið væri ógjaldfært
í kjölfar efnahagshrunsins. Eignir og
fjármunir Sigurplasts voru færðir yfir
í nýtt félag, Viðarsúlu ehf., árið 2009 á
kostnað kröfuhafa félagsins, aðallega
Arion banka. Viðarsúla sérhæfir sig í
framleiðslu á alls kyns umbúðum úr
plasti líkt og Sigurplast. Haustið 2010
gáfu eigendur Sigurplasts, Sigurður L.
Sævarsson og Jón Snorri Snorrason,
fyrirtækið svo upp til gjaldþrotaskipta.
Litlar eignir voru þá í búinu en skuld-
ir félagsins við Arion banka námu um
1.100 milljónum króna. Niðurstaða
skýrslunnar er að stjórnendur Sigur-
plasts hafi með þessum hætti gengið
með óeðlilegum hætti á eignir félags-
ins og þar af leiðandi rýrt þær á kostn-
að Arion banka.
Skiptastjóri Sigurplasts hefur
sömuleiðis notað skýrslu Ernst & Yo-
ung til að útbúa og þingfesta átta
stefnur fyrir hönd þrotabúsins. Stefn-
urnar beinast að fyrri stjórnendum
félagsins. Um er að ræða riftanir og
skaðabótakröfur. Þá er þrotabúið að
reyna að fá einstaka greiðslum til ein-
stakra kröfuhafa rift. Stefnurnar voru
þingfestar þann 19. janúar síðastlið-
inn.
Jón Snorri Snorrason höfðaði
meiðyrðamál í fyrra á hendur ritstjór-
um og fréttastjóra DV vegna umfjöll-
unar blaðsins um hann og lögreglu-
rannsóknina á málefnum Sigurplasts.
Dómur verður kveðinn upp í meið-
yrðamálinu í dag, þann 5. mars 2012.
Háskólinn fylgist
með rannsókninni
„Það hefur ekki
ennþá neitt kom-
ið fram sem okkur hefur
sýnst gefa tilefni til ein-
hverra aðgerða.
n Rætt við Jón Snorra n Ekki talið tilefni til aðgerða
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
F R J Á L S T , Ó H Á Ð D A G B
L A Ð
KOLSVÖRT SKÝRSLA UM SIGURPLAST:
14.–15. MARS 2011 31. TBL. 101. ÁRG. LEIÐ
B. VERÐ 395 KR. MÁNUDAGUR OG ÞRIÐJUDAGUR
xx xx–xx
LÖGREGLAN
RANNSAKAR
LEKTOR
AF
HJ
ÚP
UN
n Einar Andreas Helgason býr í Sendaí se
m fór einna verst út úr skjálftanum
AÐFÖR AÐ
KATTAFÓLKI
n Ragnheiður þarf að borga 90 þúsund á
ári
HEPPINN AÐ
EIGA NÆGAR
MATARBIRGÐIR
Ísskápur
fullur af
sýklum
n Eiturefni myndast
í matarleifum
n Guðmundur þjálfari baðst afsökunar, e
n fínn möguleiki á að komast á EM
BANKAR
BORGA
SIG FRÁ
BROTUM
Ragnar Önundarson:
Ásdís Rán:
AFTUR Í
PLAYBOY
Neytendur 16
Fréttir 10
Fréttir 13
Fréttir 6
Fólk 26
STRÁKARNIR OKKAR
VORU RASSSKELLTIR Sport 24–25
Fréttir 2–3
n Grunur um skilasvik, umboðssvik og fjárdrátt
n Jón Snorri Snorrason, lektor í
viðskiptafræði, var stjórnarformaður
n Jón Snorri hafði umsjón með MBA-
námi í Háskóla íslands
n Sigurplast greiddi persónulegan
kostnað stjórnarformanns
n Símakostnaður lektorsins upp á 740 þúsund
n Risareikningar fyrir veitingar
14. mars 2011
Rannsóknin í
fullum gangi
Rannsóknin á mál-
efnum Sigurplasts
og Jóns Snorra
Snorrasonar er í
fullum gangi hjá sér-
stökum saksóknara.
Sérstakur saksóknari Rannsakar mál-
efni Sigurplasts.
Geir H. Haarde svarar til saka:
Geir fyrir
landsdóm
Aðalmeðferð í máli Geirs H.
Haarde, fyrrverandi forsætis-
ráðherra, fyrir landsdómi hefst
í Þjóðmenningarhúsinu í dag,
mánudag, klukkan 9. Geir verð-
ur fyrstur í vitnastúku í aðal-
meðferðinni í dag. Samkvæmt
áætlun á Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir einnig að bera vitni
í dag, en það er háð því að hún
nái til landsins í tæka tíð. Ingi-
björg starfar nú sem yfirmaður
UN Women í Kabúl, höfuðborg
Afganistan. Ekki náðist í Ingi-
björgu í síma á sunnudag.
Samkvæmt Fréttablaðinu er
stefnt að því að sex vitni verði
kölluð til á þriðjudag. Fyrst eiga
fjórir ráðherrar úr ríkisstjórn
Samfylkingar og Sjálfstæðis-
flokksins að bera vitni. Þau eru
Björgvin G. Sigurðsson, fyrrver-
andi viðskiptaráðherra, Össur
Skarphéðinsson, núverandi
utanríkisráðherra, Árni Mathie-
sen, fyrrverandi fjármálaráð-
herra, og Jóhanna Sigurðardótt-
ir, núverandi forsætisráðherra.
Þá mun Arnór Sighvatsson
aðstoðarseðlabankastjóri bera
vitni og Davíð Oddsson, fyrr-
verandi seðlabankastjóri, ber
vitni á eftir honum. Alls verða
á sjötta tug vitna kölluð fyrir
landsdóm.
Ákæran gegn Geir var upp-
haflega í sex liðum, en lands-
dómur hefur þegar vísað tveim-
ur ákæruliðum frá dómi. Eftir
stendur að Geir er ákærður fyrir
að hafa vanrækt að gæta þess
að störf samráðshóps stjórn-
valda um fjármálastöðugleika
væru markviss og skiluðu ár-
angri. Þá er hann ákærður fyrir
að hafa ekki haft frumkvæði að
virkum aðgerðum af hálfu ríkis-
valdsins til að draga úr stærð ís-
lenska bankakerfisins með því
að stuðla að því að bankarnir
minnkuðu efnahagsreikning
sinn eða einhverjir þeirra flyttu
höfuðstöðvar sínar úr landi.
Hann er enn fremur ákærður
fyrir að hafa ekki fylgt því eftir
og fullvissað sig um að unnið
væri að því að flytja Icesave-
reikninga Landsbankans í Bret-
landi yfir í dótturfélag með
virkri aðkomu ríkisvaldsins.
Þá er Geir ákærður fyrir að
halda ekki ráðherrafundi um
mikilvæg stjórnmálaefni í að-
draganda hrunsins, en í ákær-
unni segir að á ráðherrafundum
mánuðina fyrir hrunið hafi lítið
verið fjallað um hinn yfirvof-
andi háska, ekki var formlega
fjallað um hann á ráðherra-
fundum og ekkert skráð um þau
efni á fundum.
Búist er við því að aðalmeð-
ferðin í landsdómsmálinu geti
orðið mjög tímafrek í ljósi þess
hversu mörg vitni verða kölluð
fyrir dóminn. Ekki liggur því
fyrir hvenær stefnt er að því að
ljúka aðalmeðferðinni í málinu.
valgeir @dv.is