Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2012, Qupperneq 20
Ódýr einbýlishús
til sölu hjá Ikea
20 Lífsstíll 5. mars 2012 Mánudagur
Íslensk keramiklistakona slær í gegn
n Valin ein af fimm helstu keramiklistamönnum Norðurlanda
Þ
óra Finnsdóttir keramiklista-
kona útskrifaðist frá Dan-
marks Design-skólanum árið
2009. Hún er búsett í Dan-
mörku og hefur fengið mikla athygli
fyrir keramikverk sín sem þykja
frumleg, fínleg og skemmtileg. Þóra
hannar undir merkinu „Finnsdottir“
og hannar jöfnum höndum skart-
gripi á við armbönd og hálsfestar
sem og eigulega muni á borð við
lampa, kertastjaka og blómavasa.
Hönnunartímaritið danska Rum
valdi Þóru sem eina af helstu ker-
amiklistamönnum ársins nýverið og
fleiri hönnunartímarit hafa birt um
hana víðtækar umfjallanir.
Hér á landi fást vörur Þóru í versl-
uninni Mýrinni sem selur blómavasa
og babúskuvasa eftir listakonuna.
kristjana@dv.is
Þ
að eru nokkur ár síðan hætt
var að kalla Ikea-fyrirtæk-
ið húsgagnaframleiðanda
enda hefur þetta sænska
stórfyrirtæki víkkað út starf-
semi sína síðustu ár til muna. Fyrir-
tækið selur nú nánast allt er við-
kemur heimilishaldi: húsgögn og
vefnaðarvörur, heimilistæki og mat-
vörur. Færri vita að Ikea hefur selt
hús frá árinu 1990. Verkefnið sem
hefur verið á tilraunastigi öll þessi ár
verður æ vinsælla og í náinni fram-
tíð er stefnan að sem flestar versl-
anir Ikea selji hús. Húsin er reist á
svipaðan máta og einingahús og
innréttuð með Ikea-innréttingum,
-húsgögnum og -búnaði. Þau eru
reist með sjálfbærni í huga, sólarljós
nýtt sem best til hitunar og hugað að
veðurkerfi hvers staðar þar sem þau
eru reist. Þetta verkefni Ikea
er þekkt undir nafninu BoK-
lok. Um eitt þúsund hús
rísa árlega í Skandinavíu
frá Ikea og í Bretlandi voru
reist tæplega 100 hús í Ga-
teshead. Í Bandaríkjunum
er verkefnið farið af stað í
samstarfi við Ideabox og
útkoman þar þykir einkar
glæsileg. Húsin frá Ikea og
Ideabox koma til með að
kosta um 86.500 dollara,
eða um 11 milljónir króna.
Hagkvæm fjárfesting
Þórarinn Ævarsson, fram-
kvæmdastjóri Ikea, segist vel geta
hugsað sér að selja einbýlishús hér á
landi í verslun Ikea.
„Ég hef fylgst með þessu verk-
efni í nokkur ár. Verkefnið var kynnt
í Bandaríkjunum nýverið en í Dan-
mörku hafa verið reist hús í út-
hverfum Kaupmannahafnar í sam-
starfi Ikea og byggingarfyrirtækis í
nokkur ár. Ef húsin standast kröfur
Dana hvað varðar einangrun og raf-
magn og fleira, þá ætti ekki neitt að
vera því til fyrirstöðu að selja húsin
hér á landi. Ég sé fyrir mér að húsin
geti nýst sem sumarbústaðir eða
lítil einbýlishús. Þeim er einfald-
lega smellt á sökkul og sett saman að
hætti einingahúsa og pallurinn fylgir
með. Þetta eru svo kölluð sjálfbær
hús og hugmyndafræðin þykir mér
skemmtileg. Það þyrfti að athuga
með einangrun og annað með til-
liti til íslensks veðurfars, en ég hefði
gaman af því ef þetta verkefni Ikea
yrði að raunveruleika hér á landi.“
Aðspurður hvort húsin geti reynst
jafn hagkvæm fjárfesting og ytra þar
sem þau kosta aðeins 11 milljónir
segist hann telja að það ætti ekki að
vera mikill munur. „Ég sé enga sér-
staka ástæðu fyrir því að kostnaður
við þessi hús ætti að verða meiri hér
en annars staðar. Það væri vissulega
áhugaverður kostur fyrir Íslendinga
eftir hrun að eiga kost á svo ódýru
húsnæði.“
n Húsin sett saman eftir hugmyndafræði Ikea n Kosta úti um 11 milljónir
Stórir gluggar Á suðurhlið hússins eru stórir gluggar en minni á norðurhliðinni.
BoKlok Hér má sjá eitt húsa Ikea sem
seld eru í Svíþjóð, Bretlandi, Finnlandi,
Danmörku og Noregi. BoKlok merkir búðu
vel, eða búðu gáfulega.
Eldhúsið Eldhúsin eru fullbúin innréttingum sem og heimilistækjum frá Ikea.
Stofan Falleg stofa með stórum gluggum.
Sushi fyrir
börnin
Sushi þýðir ekki alltaf hrár fiskur.
Orðið „sushi“ þýðir frekar klístruð
hrísgrjón. Þú getur sett kjúkling,
grænmeti eða jafnvel nautakjöt
í stað fisksins og jafnvel brauð í
stað hrísgrjóna. Leyfðu börnun-
um að taka þátt í sushi-gerðinni
og reyndu að velja litskrúðug hrá-
efni. Matreiðslan gæti orðið hin
mesta skemmtun enda hafa börn
oft gaman af því að leika sér að
matnum. Taktu svo fram prjónana
og láttu krakkana æfa sig.
Gjöf handa
þeim sem
elska
Barbie
Nýjasta varan
frá Barbie heitir
Barbie Photo Fas-
hion Doll og kemur á
markað í ágúst í sumar.
Dúkkan sjálf er einnig
digital myndavél sem
getur geymt allt upp
í 100 ljósmyndir auk
þess sem auðvelt er að
dæla myndunum inn í
tölvu. Litlar tískulögg-
ur geta því búið til sína
eigin tískusýningu með
hjálp Barbie og félaga.
Þeir sem geta ekki beðið
fram í ágúst geta huggað
sig við að skoða nýjustu Barbie-
dúkkuna á markaðnum í dag en
sú dúkka tengist einnig tísku-
bransanum.
Áfengislaus
mojito
Mojito er hættulega góður drykkur
og þess vegna er ágætt að kunna
að blanda hann áfengislausan
líka. Þennan drykk mega allir
drekka, líka börnin.
Uppskrift
n 1 bolli reyrsykur
n 1 bolli vatn
n 1 bolli fersk minta
n 2 lime
n 1/2 bolli kókosvatn
n Sódavatn
Settu sykur og vatn í pott og láttu sjóða
í eina til tvær mínútur eða þar til allur
sykurinn er bráðnaður. Hrærðu í á meðan.
Bættu mintulaufunum saman við og
taktu af hitanum. Láttu standa í tíu mín-
útur áður en þú hellir drykknum í gler-
könnu og lætur kólna. Kreistu safann
úr lime-inu og skiptu á milli fjögurra
glasa. Settu eitt lauf af mintu í hvert
glas og tvær skeiðar af sykursýrópinu
sem þú sauðst. Bættu kókosvatninu við
og hrærðu. Bættu ísklökum við og fylltu
glösin með sódavatni. Skreyttu með lime.
Pastellitir vasar Úr umfjöllun veftímaritsins Design-
hunter um Þóru.
Babúskur Fallegar og brothættar babúskur eftir Þóru.
Vasar í hillu Fallegir vasar Þóru hafa slegið í gegn á Norðurlöndum og í
Bretlandi.