Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2012, Page 15
n Missti unnustu sína í bílslysi n Voru í símasambandi skömmu áður
Erlent 15Miðvikudagur 21. mars 2012
n Susanne Eman ætlar að verða feitasta kona heims
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
K
anadamaðurinn Mathieu
Fortin hefur biðlað til fólks að
hugsa sig tvisvar um áður en
það notar farsíma meðan það
keyrir. Fortin missti kærustu
sína, Emy Brochu, 20 ára, í bílslysi
18. janúar síðastliðinn þegar hún ók
á kyrrstæða flutningabifreið skammt
frá bænum Victoriaville í Quebec í
Kanada. Rannsókn lögreglu leiddi
í ljós að farsímanotkun hennar átti
stóran þátt í slysinu en hún og Fortin
höfðu verið í sms-sambandi skömmu
áður en hið hörmulega slys varð.
Varð áhyggjufullur
Fortin hefur nú stofnað Facebook-síðu
þar sem hann vekur athygli á málinu og
biðlar til fólks að einbeita sér að akstr-
inum og láta farsíma ekki trufla sig. Á
Facebook-síðunni birtir Fortin skila-
boðin sem fóru á milli hans og Brochu
í aðdraganda slyssins. „Ég elska þig
líka og ég myndi gera allt til að gera þig
hamingjusaman,“ er meðal þess sem
Brochu sendi til kærasta síns skömmu
fyrir slysið. Fortin svaraði að bragði og
sagðist hlakka til að heyra í henni þeg-
ar hún væri komin á áfangastað. Hann
varð hins vegar áhyggjufullur þegar
nokkrar klukkustundir liðu og engin
svör bárust frá Brochu. „Gengur allt
vel, ástin mín? Ég er orðinn áhyggju-
fullur.“
Vekji fólk til umhugsunar
Skömmu síðar fékk Fortin fréttirnar
um að kærasta hans hefði látist í
hörmulegu bílslysi. Lögreglan í Que-
bec rannsakaði slysið og gat ekki slegið
því föstu strax að farsímanotkun hefði
átt þátt í slysinu. Það væri þó ekki úti-
lokað. Niðurstaðan kom þó skömmu
síðar þar sem grunurinn var staðfestur.
„Rannsóknin leiddi í ljós að farsíma-
notkun meðan á akstri stóð var orsök
slyssins,“ segir Fortin og bætir við að
honum hafi verið mikið brugðið enda
hefði hann verið í sambandi við kær-
ustu sína skömmu áður en slysið varð.
Hann hefur nú ákveðið að hefja bar-
áttu gegn farsímanotkun undir stýri og
vill vekja fólk til umhugsunar.
Líf í húfi
„Slys gera ekki boð á undan sér,“ segir
Fortin á Facebook-síðunni sem hann
stofnaði. Málið hefur vakið mikla at-
hygli á Facebook og fleiri þúsund
manns deilt sögu hans. „Ég vona að þú
hugsir um Emy og alla þá sem elskuðu
hana í hvert skipti sem þú notar sím-
ann undir stýri. Á hvaða tímapunkti
eru smáskilaboð eða tölvupóstur
mikil vægara en lífið sjálft? Á hvaða
tímapunkti er eitthvað í símanum þín-
um mikilvægara en fólkið sem þú elsk-
ar,“ spyr Fortin. Hann segir að Brochu
hafi verið ung og ákveðin stúlka sem
hafi átt frábært líf fyrir höndum. Hann
hvetur fólk til að deila sögunni enda
séu slysin mjög fljót að gerast í umferð-
inni þegar augun eru tekin af veginum
í skamma stund. Heilsa viðkomandi
ökumanns og farþega sé ekki einung-
is í húfi heldur einnig annarra vegfar-
enda.
„Ég vona að þú
hugsir um Emy og
alla þá sem elskuðu hana
í hvert skipti sem þú not-
ar símann undir stýri.
Ekki nota
símann
mEðan
þú kEyrir
Voru í sambandi Emy Brochu og Mathieu Fortin voru í símasambandi skömmu áður en
slysið varð. Talið er að farsímanotkun hennar hafi átt þátt í slysinu og jafnvel verið orsök þess.
Vill vitundarvakningu
Fortin vill að fólk hugsi sig
tvisvar um áður en það
notar farsíma undir stýri.
Emy Brochu lést 18. janúar
síðastliðinn.
Truflar aksturinn Farsímanotkun
og akstur fara ekki saman. Hér sést
hluti þeirra skilaboða sem fóru á milli
Emy og Fortin áður en slysið varð.
Amma stal
600 milljónum
63 ára bresk kona, Shelagh Smith,
hefur verið ákærð fyrir að stela
þremur milljónum punda, eða
600 milljónum króna, af fyrir-
tæki sem hún starfaði hjá. Konan
millifærði upphæðina á fimm ára
tímabili og nýtti fjármunina með-
al annars til að kaupa hús fyrir
son sinn, dóttur sína og barna-
börn.
Málið er nú fyrir dómi í Prescot
á Englandi og að því er breskir
fjölmiðlar greina frá hefur konan
játað sök. Fyrirtækið sem konan
starfaði hjá heitir Stoves og selur
meðal annars bökunarofna og
önnur heimilistæki.
Fleiri en Bales
á bak við árás
Rannsókn afganskrar þingnefnd-
ar hefur leitt í ljós að allt að tutt-
ugu bandarískir hermenn hafi
staðið að árásinni þar sem sextán
óbreyttir borgarar féllu í Kanda-
har-héraði í Afganistan í síðustu
viku. Bandarísk yfirvöld hafa
haldið því fram að hermaðurinn
Robert Bales hafi einn staðið að
árásinni.
Pakistanska fréttaveitan Pajh-
wok greinir frá þessu en í um-
fjöllun hennar er tekið fram að
enginn af stóru fjölmiðlunum
hafi veitt niðurstöðunum athygli.
Ræddi nefndin meðal annars við
fjölskyldur fórnarlamba og eftir-
lifendur.