Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2012, Page 6
6 Fréttir 9. maí 2012 Miðvikudagur
Nýju hjóli stolið af barni
n Lásinn sagaður af á meðan mæðginin sátu við eldhúsborðið
V
ið erum alveg miður okkar
yfir þessu,“ segir Svan-
dís Nína Jónsdóttir, móðir
hins ellefu ára gamla Jóns
Þórs. Jón Þór varð fyrir því óláni að
hjólinu hans var stolið fyrir utan
heimili þeirra mæðginanna um
kvöldmatar leytið á mánudag. Þjóf-
urinn virðist hafa verið snar í snún-
ingum því enginn varð hans var,
enda flestir sestir við kvöldverðar-
borðið á þessum tíma.
Hjólið var glænýtt en Jón Þór
beið lengi eftir að eignast það og
höfðu mæðginin safnað fyrir því
saman. „Hann skildi það eftir úti í
klukkutíma og þegar hann kom aft-
ur út var búið að saga lásinn af hjól-
inu,“ segir Svandís í viðtali við DV.
Hjólið hafði verið fest með lásnum
við handrið fyrir utan heimili þeirra.
Hjólsins er sárt saknað og von-
brigðin eru mikil enda aðeins vika
síðan Jón Þór fékk hjólið.
Svandís segir að sá sem rekist
á hjólið eða búi yfir upplýsingum
um þjófnaðinn geti haft samband
við sig í síma 772-5586 en sá sem
stal hjólinu getur líka skilað því
aftur þangað sem hann tók það.
Þetta hjól er af gerðinni JAMIS
12 TRAIL X1, blátt að lit með
svörtum lit hér og þar og er 26
tommur.
Hjólaþjófnaður er nokkuð al-
gengur en Svandís fékk þær upp-
lýsingar hjá lögreglunni að þjóf-
arnir stælu oft hjólunum, notuðu
þau í skamma stund og þau væru
svo skilin eftir á víðavangi. Hún
biðlar því til þeirra sem sjá hjólið
að hafa samband við sig.
iess
járnsmíði
Dalvegi 24 • 544 4884 • iess@iess.is
Sakna hjólsins Svandís og Jón Þór biðla
til þeirra sem kunna að hafa upplýsingar um
þjófnaðinn að láta sig vita.
S
litastjórn Glitnis hefur höfð-
að mál á hendur fjárfest-
ingarfélagi Jóns Helga Guð-
mundssonar, sem kenndur
er við byggingarvöruversl-
unina BYKO, og krafist greiðslu á
rúmlega þremur milljörðum króna.
Fyrirtaka var í málinu á þriðjudag-
inn. Fjárfestingarfélag Jóns Helga og
fjölskyldu hans heitir Straumborg.
Glitnir krefst upphæðarinnar
vegna framvirks samnings um hluta-
bréf í Kaupþingi sem Straumborg
gerði við Glitni fyrir hrunið 2008.
Fjallað er um möguleikann á mála-
ferlunum í ársreikningi Straumborg-
ar fyrir árið 2009.
Skuldaði 46 milljarða
Straumborg var stór hluthafi í Kaup-
þingi fyrir hrunið 2008 og skuldaði
félagið, og önnur félög tengd Jóni
Helga, Kaupþingi rúmlega 46 millj-
arða króna samkvæmt lánayfirliti
Kaupþings frá því í september 2008. Í
skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis
kemur fram að félagið hafi verið búið
að selja hlutabréf sín í íslensku bönk-
unum við fall þeirra árið 2008: „Við
fall bankanna var Straumborg ehf.
búin að selja öll hlutabréf sín í bönk-
unum.“
Þessi staðhæfing virðist hins veg-
ar ekki hafa átt við um framvirka
samninga um hlutabréf í bönkun-
um, að minnsta kosti ekki ef marka
má skilning Glitnis sem telur sig eiga
inni fjármuni hjá Straumborg vegna
samningsins um Kaupþingsbréfin.
Á eignir upp á 37 milljarða króna
Félagið heldur meðal annars utan
um hluta af hlutabréfaeign Jóns
Helga í verslanakeðjunni Norvik sem
meðal annars á Nóatún, BYKO, ELKO
og Krónuna. Þá heldur Straumborg
utan um eignarhluti Jóns Helga í
Norvik-bankanum í Lettlandi og
Rússlandi. Norvik-samstæðan er
næststærsta verslanasamstæðan
á smásölumarkaði á Íslandi á eftir
Högum og er í öðru sæti yfir mark-
aðshlutdeild á matvörumarkaði. Þá
heldur félagið einnig um eignarhald-
ið á starfsemi BYKO í Lettlandi.
Bókfært verð á eignum félagsins
nam tæplega 37 milljörðum króna
í árslok 2009 og námu skuldirnar
sömu upphæð. Félagið er því mjög
umsvifamikið, bæði hér heima og er-
lendis.
Telur uppsögnina ólögmæta
Ragnar Tómas Árnason, lögmaður
Straumborgar, staðfestir í samtali við
DV að málið snúist um áðurnefndan
framvirkan samning með hlutabréf
í Kaupþingi: „Ég get staðfest það að
málaferlin snúast um þennan samn-
ing.“
Í ársreikningi Straumborgar fyrir
árið 2009 kemur fram að Straumborg
hafi sagt framvirka samningnum við
Glitni upp en að deilur séu uppi um
hvernig ganga beri frá honum. Í árs-
reikningnum kemur fram að Glitnir
hafi farið fram á greiðslu upp á rúma
þrjá milljarða króna plús vexti frá því
í upphafi árs 2009. „Uppsögn samn-
ings er talin ólögmæt af hálfu Glitn-
is. Til að útkljá deiluna mun Glitn-
ir höfða dómsmál gegn félaginu og
krefjast greiðslu á 3.004 milljónum
króna ásamt vöxtum frá 5. janúar
2009.“
Ef Straumborg verður dæmt til að
greiða þessa upphæð til Glitnis getur
það haft veruleg áhrif á rekstrarhæfi
félagsins.
Sterkt félag Straumborg, fjárfestingarfélag Jóns Helga í BYKO, er sterkt félag. Glitnir
sækir nú á félagið og vill þrjá milljarða frá því vegna viðskipta með hlutabréf í Kaupþingi.
„Ég get staðfest
það að málaferl-
in snúast um þennan
samning.
n Deilt um hlutabréfaviðskipti í Kaupþingi n Straumborg stefnt
Glitnir vill milljarða
frá jóni HelGa í ByKO
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Reiðubúnir
til samstarfs
Þingflokkur framsóknarmanna hef-
ur yfirfarið frumvörp sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra um breyt-
ingar á lögum um stjórn fiskveiða
og veiðigjald. Þetta kemur fram í
tilkynningu frá þingflokknum en
þar kemur jafnframt fram að þing-
flokkurinn hafnar framkomnum
frumvörpum. „Tillögur ráðherrans
samræmast ekki þeim útfærslum
er samþykktar voru á flokksþingi
Framsóknarflokksins 2011. Fram-
sóknarflokkurinn leggur áherslu
á að sjávarauðlindin er sameign
þjóðarinnar og hægt sé að reka
sjávarútvegsfyrirtæki á arðbæran
hátt til framtíðar. Þingflokkurinn
hafnar því framkomnum frumvörp-
um en lýsir sig tilbúinn til að hefja
að nýju vinnu við endurskoðun á
lögum um stjórn fiskveiða á grunni
sáttanefndarinnar svokölluðu.“
Kannabisrækt-
un í Vesturbæ
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
stöðvaði kannabisræktun í fjölbýlis-
húsi í vesturbæ Reykjavíkur á þriðju-
dag. Við húsleit á áðurnefndum stað
fundust 115 kannabisplöntur á ýms-
um stigum ræktunar. Geymslurými í
kjallara hússins hafði verið innréttað
og útbúið til ræktunarinnar. Karl á
fertugsaldri, íbúi í húsinu, var yfir-
heyrður á vettvangi og játaði hann
aðild sína að málinu.
Gistinóttum fjölgar
Gistinætur á hótelum í mars
voru 134.000 samanborið við
97.300 í mars í fyrra. Þetta
kemur fram í nýjum tölum frá
Hagstofu Íslands en gistinætur
erlendra gesta voru um 77 pró-
sent af heildarfjölda gistinátta í
mars. Gistinóttum þeirra fjölg-
aði um 45 prósent samanborið
við sama mánuð í fyrra. Á sama
tíma fjölgaði gistinóttum Ís-
lendinga um ríflega 17 prósent.
Gistinóttum á hótelum
fjölgaði í öllum landshlutum. Á
höfuðborgarsvæðinu voru ríf-
lega 104.300 gistinætur í mars
sem er fjölgun um tæp 40 pró-
sent frá fyrra ári.