Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2012, Page 8
S
víinn Hans Correll, fyrr-
verandi aðallögfræðingur
Sameinuðu þjóðanna, segir
í samtali við DV að veiðar
evrópskra togara úti fyrir
ströndum Vestur-Sahara í Afríku séu
ólöglegar að sínu mati. Correll var
aðallögfræðingur Sameinuðu þjóð-
anna þar til árið 2004. Árið 2002
vann hann álit að beiðni Öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna þar sem hann
komst að þessari niðurstöðu um
notkun á auðlindum Vestur-Sahara.
Correll tekur fram að afstaða hans
sé fyrst og fremst lögfræðileg. „Ég tek
ekki stöðu með neinu öðru en lög-
unum og ég tel þessar veiðar ólög-
legar samkvæmt alþjóðalögum. Að
mínu áliti hefur Marokkó ekki rétt
til að selja fiskveiðiréttindi í lögsögu
Vestur-Sahara, nema það sé gert með
samþykki íbúanna þar. Evrópusam-
bandið ætti ekki að taka þátt í veið-
um þar sem alþjóðalög eru brotin,“
segir Correl í símtali við DV frá heim-
ili sínu í Stokkhólmi.
Áratuga deila
DV hefur síðastliðna daga fjallað um
fiskveiðar íslenskra verksmiðjutog-
ara úti fyrir ströndum Vestur- Afríku,
meðal annars við Vestur-Sahara,
Marokkó og Máritaníu. Þær íslensku
útgerðir sem veitt hafa á svæðinu eru
Samherji, Sjólaskip, Úthafsskip, Sæ-
blóm og útgerðin sem gerir út togar-
ann Blue Wave, sem er í eigu meðal
annars íslenskra lífeyrissjóða. Evr-
ópskir togarar veiða í lögsögu Mar-
okkó og Vestur-Sahara á grundvelli
samnings sem Evrópusambandið
gerði við ríkisstjórn Marokkó og í
einhverjum tilfellum á grundvelli
samninga sem útgerðirnar gera beint
við ríkisstjórnina í Marokkó.
Veiðarnar við Vestur-Sahara eru
sérstaklega umdeildar vegna þess að
landsvæðið er hernumið af ríkis stjórn
Marokkó. Árið 1975 hurfu Spánverj-
ar frá Vestur-Sahara en svæðið hafði
verið nýlenda þeirra fram að þeim
tíma. Eftir það hertók ríkisstjórnin í
Marokkó landsvæðið og hefur verið
þar síðan. Íbúar landsvæðisins berj-
ast hins vegar fyrir sjálfstæði þess
frá Marokkó – Sahrawi-menn kall-
ast þeir. Frelsissamtök Vestur-Sahara
kallast Polisario.
Samningurinn ekki endurnýjaður
Correll telur að veiðar úti fyrir
ströndum Vestur-Sahara, sem byggja
á leyfi frá marokkósku ríkisstjórn-
inni, séu ólöglegar þar sem ríkið eigi
ekki réttmætt tilkall til landsvæðis-
ins. „Marokkó hefur ekki lögsögu yfir
þessu landsvæði og þar af leiðandi
ekki yfir þessum fiskimiðum.“
Þessi skoðun Corrells var í reynd
staðfest af Evrópusambandinu í lok
árs í fyrra þegar sambandið endur-
nýjaði ekki samninginn við Marokkó
vegna deilnanna um yfirráð yfir Vest-
ur-Sahara. Viðræður standa nú yfir
um endurnýjun samningsins þar
sem markmiðið er að taka meira til-
lit til hagsmuna íbúa Vestur-Sahara.
Blanda sér ekki í innanríkismál
Í viðtali við Fréttablaðið í fyrra sagði
Þorsteinn Már Baldvinsson, spurður
hvort deilur um Vestur-Sahara á milli
Marokkó og Sahrawi-manna myndu
hafa áhrif á veiðar Samherja úti fyr-
ir ströndum Marokkó og Vestur-Sa-
hara, að íslenska útgerðarfélagið
blandaði sér ekki í innanríkismál.
„Nei. Við erum ekki að blanda okkur
í innanríkismál.“ Togarar Samherja
höfðu þá verið við veiðar á svæðinu
undan ströndum Vestur-Sahara en ís-
lenska útgerðarfyrirtækið veiddi við
Marokkó bæði á grundvelli samnings
Evrópusambandsins og eins á grund-
velli samninga sem fyrirtækið hafði
sjálft gert við yfirvöld í Marokkó.
Að mati Corrells eru þessar veið-
ar Samherja og annarra íslenskra
útgerðarfyrirtækja hins vegar ólög-
legar, líkt og áður segir. Í erindi sem
Correll hélt í háskólanum í Pretoria í
Suður-Afríku árið 2008 sagði hann til
dæmis um veiðarnar við Vestur-Sa-
hara: „Sem Evrópubúi þá skammast
ég mín. Að sjálfsögðu myndi mað-
ur ætla að Evrópuþingið – af öllum
– myndi setja fordæmi með því að
fylgja alþjóðalögum í hvívetna í máli
sem þessu,“ en með þessum orðum
var Correl að vísa til samnings Mar-
okkó og Evrópusambandsins sem
veiðar íslensku útgerðanna byggðu á
í einhverjum tilfellum.
„Ég tel þessar
veiðar ólöglegar“
8 Fréttir 9. maí 2012 Miðvikudagur
Minni umferð
n Nýjar tölur frá Vegagerðinni
A
kstur um höfuðborgarsvæðið
í apríl reyndist 1,5 prósenti
minni en á sama tíma í fyrra
ef marka má þrjú mælisnið
Vegagerðarinnar. Þrátt fyrir þennan
samdrátt hefur umferðin fyrstu fjóra
mánuðina aukist lítillega.
Áfram er reiknað með smávegis
aukningu umferðar á höfuðborgar-
svæðinu í ár öfugt við umferðina á
Hringveginum þar sem reiknað er
með samdrætti í ár.
Mest dró úr umferð í aprílmánuði
yfir mælisnið á Hafnarfjarðarvegi,
eða um 2,3 prósent en aukning varð
um mælisnið á Vesturlandsvegi um
0,7 prósent.
Það sem af er ári hefur akstur
á höfuðborgarsvæðinu aukist um
0,5 prósent milli ára. Eftir mars þá
hafði akstur aukist um 1,2 prósent en
vegna minni umferðar nú í apríl þá
fer þetta hlutfall niður í 0,5 prósent
að liðnum apríl.
Skoðanakönnun Útvarps Sögu:
Hægri grænir
vinsælir
Hægri grænir, nýstofnaður stjórn-
málaflokkur Guðmundar Frank-
líns Jónssonar, virðast falla vel að
stjórnmálaskoðunum hlustenda
Útvarps Sögu, ef marka má skoð-
anakönnun útvarpsstöðvarinnar
sem framkvæmd var 7. og 8. maí.
Spurt var „Hvaða flokk kysir þú í
dag til Alþingis?“ en könnunin fór
fram á vef stöðvarinnar. Greidd
voru 1.593 atkvæði en af þeim
féllu um það bil 920 Hægri græn-
um í skaut.
Ríkisstjórnarflokkarnir tveir,
Samfylking og VG, virðast hlust-
endum stöðvarinnar ekki að skapi
en flokkarnir hafa saman stuðning
færri en fjögurra prósenta hlust-
enda. Samfylkingin mælist þannig
með um tveggja prósenta fylgi en
VG aðeins með rúmt eitt prósent.
Dögun, nýstofnað framboð
Hreyfingarinnar, Frjálslyndra
og Borgarahreyfingarinnar auk
einstaka stjórnlagaráðsfulltrúa
mælist með meiri stuðning en
stjórnarflokkarnir til samans eða
3,75 prósent.
Þátttakendur skoðanakönnun-
arinnar eru ánægðari með Sjálf-
stæðisflokkinn sem mælist með
rúm tíu prósent. Framsókn mælist
tveimur prósentustigum hærri,
eða með rétt rúm tólf prósent.
Lilja Mósesdóttir og félagar henn-
ar í Samstöðu mælast með rúm-
lega 11 prósent í könnuninni.
Undirskriftir
afhentar
Íbúar Fjarðabyggðar afhentu á
þriðjudag Ögmundi Jónassyni
innanríkisráðherra undirskriftir
þúsunda einstaklinga sem skora á
ríkisstjórn Íslands að hefja fram-
kvæmdir við gerð nýrra Norð-
fjarðaganga eigi síðar en fyrir árs-
lok 2012. Undirskriftirnar voru
afhentar við athöfn við Safnahús-
ið í Neskaupstað. Á þriðjudags-
kvöld var svo haldinn íbúafundur
þar sem farið yfir frumvarp ríkis-
stjórnarinnar um stjórn fiskveiða
og frumvarp til laga um veiðileyfa-
gjöld. Meðal frummælenda voru
Steingrímur J. Sigfússon, sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðherra.
n Aðallögfræðingur Sameinuðu þjóðanna gagnrýnir veiðar við Vestur-Sahara
„Við erum
ekki að
blanda okkur í
innanríkismál
Telur veiðarnar ólöglegar Hans
Correll telur að veiðar Evrópubúa við
strendur Vestur-Sahara séu ólöglegar þar
sem Marokkó eigi ekki réttmætt tilkall til
svæðisins.
Samdráttur Umferð dróst lítillega saman
í aprílmánuði.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Mótmæltu hernáminu Mótmæli brjótast reglulega út í Evrópu þar sem Sahrawi-menn og stuðningsmenn þeirra láta í sér heyra út af
hernámi Marokkó á svæðinu. Þessi mynd er frá mótmælum í Madríd á Spáni í nóvember 2010 en þá hafði marokkóski herinn barið niður mikil
mótmæli gegn Marokkó í Vestur-Sahara.