Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2012, Page 10
Plott Framsóknar og Kaupþings
10 Fréttir 9. maí 2012 Miðvikudagur
Bjargaði lífi 27 ára konu
n Mikilvægi þess að byrja hjartahnoð strax undirstrikað
S
nör viðbrögð Vilhjálms Vern-
harðssonar, ferðaþjónustu-
bónda á Möðrudal á Fjöllum
og björgunarsveitarmanns,
urðu 27 ára konu til lífs. Konan, sem
er erlend, var á ferðalagi á svæðinu
í fyrra þegar hún hneig skyndilega
niður og fékk endurtekna krampa-
kippi sem stóðu yfir í eina til tvær
mínútur.
Fjallað er um málið í nýjasta tölu-
blaði Læknablaðsins og er þar minnt
á mikilvægi þess að kunna hjarta-
hnoð.
„Auðvitað líður manni ekkert vel
þegar svona kemur upp á þó svo
maður kunni þetta auðvitað. Maður
hefur farið á námskeið og þetta tókst
í þetta skiptið. En það er mikið stress
í gangi þegar kona deyr í fanginu
á manni í raun og veru,“ sagði Vil-
hjálmur um málið í fréttum RÚV á
þriðjudag en atvikið varð á tjald-
svæðinu á Möðrudal sem er eins
fjarri heilbrigðisþjónustu og hugsast
getur.
Vilhjálmur hringdi á sjúkrabíl
sem kom frá Mývatni og sótti kon-
una. Vilhjálmur hnoðaði hana í bíln-
um, eða allt þar til hún var flutt með
sjúkraflugi til Reykjavíkur. Í fréttum
RÚV sagði Bjarni Árnason, deildar-
læknir á bráðadeild Landspítalans,
að enginn vafi leiki á því að Vilhjálm-
ur hafi bjargað lífi konunnar. Í raun
hafi tvennt orðið henni til lífs; fólk
varð vitni að því þegar hún hneig
niður og byrjað var á hjartahnoði
strax. Segir Bjarni að það geti skil-
ið milli lífs og dauða ef byrjað er að
hnoða ef einstaklingur hnígur niður
og hjarta hættir að slá.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
L
ýður Guðmundsson, eigandi
Exista og hluthafi í Kaup-
þingi, kom að því með bein-
um hætti að selja rúmlega
þriggja prósenta hlut í bank-
anum til fjárfestingarfélagsins Giftar
í desember 2007, samkvæmt heim-
ildum DV. Söluverð hlutabréfanna
var um 20 milljarðar króna. Átti
Lýður í beinum samskiptum um
viðskiptin við forsvarsmenn Gift-
ar á Sauðárkróki en Þórólfur Gísla-
son var stjórnarformaður félags-
ins samkvæmt heimildum blaðsins.
Fjárfestingarfélag Lýðs, Exista, var
stærsti hluthafi Kaupþings fyrir
hrunið 2008.
Þetta sýnir, meðal annars, þau
miklu beinu afskipti sem Lýður hafði
af rekstri Kaupþings sem stjórnar-
maður og hluthafi í bankanum og
jafnframt þau tengsl sem voru á
milli eigenda Kaupþings og þeirra
sem stýrðu Gift, meðal annars Þór-
ólfs Gíslasonar. Lýður og Þórólfur
höfðu setið saman í stjórn Vátrygg-
ingafélagsins VÍS á árunum 2005 til
2007. Í árslok 2006 seldi dótturfélag
Kaupfélags Skagfirðinga hlutabréf
sín í Vátryggingafélaginu til Exista í
skiptum fyrir hlutabréf í því félagi.
Kaupfélagið seldi svo hlut sinn í Ex-
ista með milljarða króna hagnaði í
árslok 2006.
Sérstakur saksóknari rannsakar
Gift
Viðskipti Giftar við Kaupþing hafa
verið til rannsóknar hjá embætti
sérstaks saksóknara vegna gruns
um markaðsmisnotkun. Hlutabréf-
in sem Gift keypti í viðskiptunum
í desember 2007 höfðu áður verið
í eigu fjárfestingarfélagsins Gnúps
sem lenti í rekstrarerfiðleikum í árs-
lok 2007 en félagið hafði meðal ann-
ars átt hlutabréf í Kaupþingi sem
selja þurfti á þessum tíma. Kaup-
þing sá um söluna á Gnúpsbréf-
unum, líkt og fjallað er um í skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis, og
lánaði fyrir þeim. Um var að ræða
rúmlega 23 milljónir hluta í bank-
anum.
Dótturfélag KS keypti líka
Í skýrslu rannsóknarnefndar Al-
þingis er einnig rakið hvernig eitt
af dótturfélögum Kaupfélags Skag-
firðinga, AB 57 ehf., keypti einn-
ig 3,5 milljónir hluta í Kaupþingi
fyrir um þrjá milljarða króna.
Kaupþing lánaði félaginu fyrir
hlutabréfunum. AB 57 ehf. var í
eigu útgerðarfélagsins FISK Sea-
food, dótturfélags Kaupfélags Skag-
firðinga.
Félög sem tengdust Kaupfélagi
Skagfirðinga, Gift og AB 57 ehf.,
keyptu því hlutabréf í Kaupþingi
fyrir samtals um 23 milljarða króna
í árslok 2007 og var í báðum tilfell-
um um að ræða bréf sem áður voru
í eigu fjárfestingarfélagsins Gnúps.
Í árslok 2007 átti Gift verðbréf fyr-
ir rúmlega 54 milljarða króna og
vógu bréfin í Kaupþingi þar hæst,
voru metin á rúmlega 23 milljarða
króna.
Hefði getað leitt til lækkunar
Í skýrslu rannsóknarnefndar Al-
þingis kemur fram að ef hlutabréf
Gnúps í Kaupþingi hefðu farið á
markað má ætla að bréfin hefðu
lækkað í verði. Jafnframt segir þar
að ef Kaupþing hefði átt bréfin
sjálft hefði bankinn farið yfir það
lögbundna hámark af eigin hluta-
bréfum sem bankinn mátti eiga.
Markaðsmisnotkunin í viðskiptun-
um gæti því hafa falist í því að með
sölunni til Giftar hafi verið komið í
veg fyrir að Kaupþingsbréfin færu á
markað sem aftur hefði getað lækk-
að verð á hlutabréfum í bankanum.
Um þessi atriði segir í skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis: „Þó
má ljóst vera að ef hlutur í Kaup-
þingi af þessari stærðargráðu hefði
verið seldur á markaði þá hefði það
valdið umtalsverðum þrýstingi til
lækkunar á verði bréfanna. Einn-
ig má ljóst vera að hefði bankinn
sjálfur keypt umrædd hlutabréf þá
hefði hann farið nálægt, eða jafn-
vel yfir, þau mörk sem gilda um
flöggun á eignarhlut í eigin bréfum.
Því má ætla að ríkur hvati hafi verið
n Sérstakur saksóknari rannsakar Gift n Lýður ræddi við Giftarmenn
Ríkisstjórnin á Egilsstöðum:
Fljótsdalshérað
fær nýtt hjúkr-
unarheimili
„Ég vona að þetta verði næstu
ríkisstjórn fordæmi sem tekur við,“
sagði Jóhanna Sigurðardóttir for-
sætisráðherra þegar ríkisstjórnin
fundaði á Gistiheimilinu á Egils-
stöðum á þriðjudag. Í kjölfarið
hélt hún stutta fundi með sveitar-
stjórnarmönnum í fjórðungnum
og ræddi þau mál sem brenna á
sveitungum, tvær mínútur í senn.
Jóhanna leiddi blaðamanna-
fund sem haldinn var í kjölfarið,
bauð gesti velkomna og sagði það
hluta af byggðastefnu stjórnvalda
að halda ríkisstjórnarfundi úti á
landi. Þetta er í fjórða sinn sem
það er gert og sagðist hún vonast
til þess að því yrði haldið áfram
þótt þessi ríkisstjórn hyrfi af vett-
vangi.
Því næst kallaði hún velferðar-
ráðherra, Guðbjart Hannesson,
að borðinu en hann undirritaði
samning um hjúkrunarheimili á
Fljótsdalshéraði. Ráðgert er að
byggja fjörutíu rýma hjúkrunar-
heimili sem heimamenn hanna
og byggja. Kostnaður við byggingu
hjúkrunarheimilisins er áætlaður
einn milljarður króna. Sveitar-
félagið fær fjármagnið að láni frá
Íbúðalánasjóði en á móti mun
Framkvæmdasjóður aldraðra
greiða sveitarfélaginu húsaleigu
til 40 ára sem nemur 85 prósent-
um leigukostnaðar. Framkvæmd-
ir hefjast í byrjun næsta árs og er
ráðgert að heimilið taki til starfa
sumarið 2014. Í kjölfarið klöpp-
uðu heimamenn og glöddust yfir
þessum áfanga.
Þá skrifaði menntamálaráð-
herra, Katrín Jakobsdóttir, undir
samning um jarðfræðisetur á
Breiðdalsvík en gert er ráð fyrir að
ríkissjóður greiði helming kostn-
aðar við rekstur setursins eða
fimm milljónir á ári fram til ársins
2015, samtals 20 milljónir króna á
fjórum árum.
Að lokum skrifaði Jóhanna
undir viljayfirlýsingu um rann-
sóknir, þróun, nýsköpun og mark-
aðssetningu á afurðum úr áli og
sjávarfangi á Austurlandi. Er um
nýtt verkefni að ræða sem fellur
undir sóknáráætlun landshlutans.
Austurbrú hefur yfirumsjón með
ráðstöfun þeirra tuttugu millj-
óna sem ríkisstjórnin ætlar að
veita í verkefnið á næstu tveimur
árum. Sveitarfélög, fyrirtæki og
stofnanir munu hins vegar vinna
saman með það að markmiði að
auka verðmætasköpun og fjölga
atvinnutækifærum. Sjónum verð-
ur sérstaklega beint að störfum
sem henta fólki með fjölbreytta
menntun.
Þessir samningar þýða að ríkis-
stjórnin mun með einum eða öðr-
um hætti veita rúmum milljarði í
verkefni á Austurlandi. Að fundi
loknum kvöddu heimamenn en
ráðherrar snæddu hádegisverð á
Gistiheimilinu áður en þeir héldu
niður á firði, þar sem fleiri verk-
efni biðu þeirra. Hjartahnoð Vilhjálmur kunni réttu handtökin enda reyndur björgunarsveitarmaður.
Finnur Ingólfsson
fyrrverandi forstjóri VÍS
og fyrrverandi ráðherra
Framsóknarflokksins.
Óskar H. Gunnarsson
fyrrverandi forstjóri.
Þórólfur Gíslason
forstjóri Kaupfélags
Skagfirðinga.
Ingólfur
Ásgrímsson
hluthafi í VÍS
og Skinney-
Þinganesi.
Ingólfur er
bróðir Halldórs
Ásgrímssonar.
Jón Eðvald
Friðriksson
framkvæmda-
stjóri Fisk
Seafood,
dótturfélags
Kaupfélags
Skagfirðinga.
Erlendur
Hjaltason
fyrrverandi
forstjóri Exista.
„Því má ætla að
ríkur hvati hafi ver-
ið fyrir bankann að liðka
fyrir sölunni á bréfunum
með lánveitingum.