Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2012, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2012, Qupperneq 14
14 Erlent 9. maí 2012 Miðvikudagur Gómuð eftir tólf ár á flótta n Sviku út hundruð milljóna með píramídasvindli B andarísk hjón, Nelson Grant Hallahan og Janet Hallahan, hafa loks verið handtekin eftir að hafa verið á flótta síðastliðin tólf ár. Þau voru fyrst handtekin undir lok síðustu aldamóta vegna gruns um að hafa haft 1,2 milljónir dala, eða tæp­ lega 150 milljónir króna á núverandi gengi, af fjölmörgu fólki, meðal ann­ ars vinum og eftirlaunaþegum. Þau sannfærðu fólkið um að leggja aleigu sína í vafasama fjárfestingu og lofuðu margföldum gróða. Margir þeirra sem lögðu peninga í píramídasvindlið töp­ uðu miklum fjármunum en hjónin lögðu á flótta árið 2000, skömmu áður en kveða átti upp dóm yfir þeim. Lögreglan handtók hjónin í smábæ skammt vestur af borginni Phoenix í Arizona á laugardag. Þau bjuggu ekki saman en ábending barst um dvalar­ stað hjónanna eftir að þátturinn Am­ ericas Most Wanted var sýndur kvöld­ ið áður, á föstudagskvöld. Í þættinum var fjallað um mál hjónanna og virðist einhver þeim kunnugur hafa haft sam­ band við lögreglu. Samkvæmt frétt AP notuðu hjón­ in peningana í að fjármagna sann­ kallaðan lúxuslífsstíl. Þau keyptu sér meðal annars skútu, lúxusbíla og rán­ dýra skartgripi. „Ég er ánægð með að þau hafi náðst. Við sjáum kannski ekki peningana okkar aftur, en aftur á móti munum við fá snefil af réttlæti,“ segir Teresa Allred, 63 ára, en hún og eigin­ maður hennar lögðu fjármuni í svika­ mylluna. n François Hollande er nýr forseti Frakklands n Bíður risavaxið verkefni „Efast um að hann vErði mjög vinsæll“ A ð mörgu leyti má segja að Sarkozy hafi verið hafnað fremur að Frakkar hafi val­ ið Hollande,“ segir Eiríkur Bergmann, stjórnmála­ fræðingur við Háskólann á Bif­ röst, um niðurstöður forsetakosn­ inganna í Frakklandi á sunnudag. François Hollande, frambjóðandi Sósíalistaflokksins, bar sigur úr bít­ um og lagði sitjandi forseta, Nico­ las Sarkozy, að velli nokkuð örugg­ lega. Kosningarnar eru sögulegar því þetta er aðeins í annað sinn sem sósíalistar hreppa forsetastólinn síðan fimmta ríkið var stofnað und­ ir lok sjötta áratugarins og einnig í fyrsta skiptið sem sitjandi forseti fellur. Ekkert bandalag án Frakka Eiríkur Bergmann hefur fylgst náið með gangi mála í Frakklandi að undanförnu og var meðal annars í París þegar kosningabarátta þeirra Hollande og Sarkozy stóð sem hæst. Hann segir að það verði áhugavert að skoða áhrifin á Evrópumálin nú þegar vinstrimaður hefur tekið við stjórnartaumunum. „Sarkozy hefur stillt sér upp við hliðina á Angelu Merkel [kanslara Þýskalands, innsk. blaðamanns] og talað fyrir þessu nýja og mjög stranga fjármálabandalagi. Holl­ ande hefur í rauninni hafnað þeirri leið þannig að hans fyrsta verkefni verður að skreppa yfir til Berlínar,“ segir Eiríkur. Hann bætir við að þó að það verði væntanlega erfitt verk­ efni sé ómögulegt að umrætt banda­ lag verði að veruleika án Frakka. „Bretar geta farið út af því að þeir eru dálítið til hliðar en Evrópu­ sambandið er upprunnið í Frakk­ landi þannig að það er óhugsandi. Þannig að við munum alveg örugg­ lega sjá breytingar á þeim fyrirætl­ unum og þá með félagslegri áherslu en hingað til hefur sést. Merkel og Sarkozy hafa keyrt á harðlínu­ markaðsáherslu þar sem settar eru mjög strangar skorður við aðstoð ESB gagnvart ríkjum í vanda,“ segir Eiríkur en Merkel og Sarkozy hafa einnig talað fyrir strangri umgjörð utan um greiðslu skulda hjá ríkjum í vanda. Verður ekki vinsæll Verkefnið sem Hollande stendur frammi fyrir heima í Frakklandi er stórt og segir stjórnmálaskýrandi þýska blaðsins Der Spiegel að hann muni valda löndum sínum von­ brigðum. Frakkar glíma við efna­ hagsvanda líkt og fleiri ríki í Evr­ ópusambandinu, atvinnuleysi er í kringum 10 prósent og skuldir nema 90 prósentum af vergri lands­ framleiðslu. Þessu hefur Hollande hins veg­ ar lofað að breyta. Hann vill leggja 75 prósenta skatt á þá einstaklinga sem eru með eina milljón evra eða meira í árstekjur. Þá vill hann lækka eftirlaunaaldur úr 62 árum í 60 ár. Og til að minnka atvinnuleysið hef­ ur Hollande talað fyrir því að ráða allt að 60 þúsund nýja kennara til starfa. „Stóra spurningin er sú hvort hann nái að safna þeim stuðningi sem þarf til að umbreyta Frakk­ landi,“ segir í grein Der Spiegel. Eiríkur tekur að nokkru leyti undir þau ummæli sem koma fram í grein­ inni. „Ég efast um að hann verði mjög vinsæll. Hann bara virðist ekki vera vinsæll. Af þessari umræðu sem maður heyrir í París þá virðist þetta ekki vera maður sem menn hrífast mikið af. Hann fær ekki hjartað í fólki til að slá mikið hraðar.“ „Hann fær ekki hjartað í fólki til að slá mikið hraðar. Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is Efast Eiríkur segir Frakka frekar hafa hafnað Sarkozy en valið Hollande. Sigurreifur François Hollande veifar hér til stuðningsmanna fyrir utan kosningaskrifstofu sína í París þegar niður- stöðurnar lágu fyrir. Loks tekin Hjónin voru handtekin í smábæ vestur af Phoenix á laugardag. 42 prósent munu glíma við offitu Allt að 42 prósent Bandaríkja­ manna munu glíma við offitu árið 2030 ef fram heldur sem horfir. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknar sem Centers for Dis­ ease Control framkvæmdi fyrir skemmstu. Talið er að 34 prósent Bandaríkjamanna glími við offitu í dag. Offita kostar bandaríska heilbrigðiskerfið mikla fjármuni á hverju ári og í umfjöllun The Washington Post kemur fram að 550 milljarðar dala gætu sparast ef hlutfallið helst í 34 prósentum til ársins 2030. Í rannsókninni kemur fram að hlutfall of feitra kvenna hafi staðið í stað um nokkurt skeið en hlutfall of feitra karlmanna, sem eru með tekjur yfir meðallagi, hafi hækkað mikið á undanförn­ um árum. Morðrannsókn vegna ljósmynda Sigfrid Fleckseder, sem er ljós­ myndari, lenti í kröppum dansi á dögunum þegar vafasamar mynd­ ir af henni voru sendar til lögreglu. Forsaga málsins er sú að Sigfrid og kærasti hennar, Christian Thomas, höfðu tekið myndir af Sigfrid þar sem hún lá bundin og hálfnakin úti í skógi. Virtist engu líkara en að hún væri liðið lík á myndunum. Það voru starfsmenn verslunar í Vín í Austurríki, þar sem parið býr, sem höfðu samband við lög­ reglu eftir að þeim áskotnaðist minnislykill með myndunum á. Þýska lögreglan hafði samband við Interpol sem hóf rannsókn á málinu en henni var hætt þegar í ljós kom að Sigfrid var sprelllif­ andi. Tsipras í hart Alexis Tsipras, leiðtogi vinstri­ flokksins Syriza í Grikklandi, vill mynda ríkisstjórn með þeim flokki sem er reiðubúinn að berjast gegn þeim niðurskurði sem Grikkir urðu að taka á sig í lánasamningi við Evrópusambandið og Alþjóða­ gjaldeyrissjóðinn. Tsipras vinnur þessa dagana að myndun nýrrar ríkisstjórnar en flokkunum sem farið hafa með stjórn landsins að undanförnu var hafnað í kosn­ ingum um helgina. Efnahagsstaða Grikkja er erfið og þurftu Grikkir að skera mikið niður gegn því að fá neyðarlán. Í samningunum er kveðið á um allt að 40 prósenta lækkun launa opinberra starfs­ manna, lækkun eftirlauna og hækkun skatta. Þessu vill Tsipras hins vegar breyta.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.