Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2012, Page 15
Sá feitaSti er
farinn í megrun
K
eith Martin, 42 ára Breti, hef
ur ekki yfirgefið heimili sitt
undanfarin tíu ár – nema í
sjúkrabíl til að fara í lækn
isskoðun á spítala. Nú eru
bjartari tímar fram undan enda er
Martin, sem vó 370 kíló þegar hann
var þyngstur, farinn í megrun. Hann
lagði það í vana sinn að innbyrða
allt að 20.000 hitaeiningar á dag sem
gerði það að verkum að hann þyngd
ist og þyngdist. Nú borðar hann ein
ungis 1.500 hitaeiningar á dag og er
árangurinn þegar farinn að sjást.
Hann er búinn að missa tíu sentí
metra af mittismálinu og nokkur kíló
eru fokin. Martin gerir sér þó grein
fyrir því að góðir hlutir gerast hægt.
Vakning
„Að verða sá feitasti í heimi er það
sem þurfti til að ég rankaði við mér.
Ég kenni engum öðrum en sjálfum
mér um þá hrikalegu stöðu sem ég
er kominn í,“ segir Martin í viðtali
við breska blaðið The Daily Mail.
Martin var í eðlilegum holdum allt
fram á unglingsárin að hann fór að
fitna. Það gerðist í kjölfar móður
missis sem fékk mikið á hann. „Ég
fór að borða til að deyfa sársaukann.
Ef ég komst í uppnám út af einhverju
hámaði ég í mig mat. Ég fitnaði en í
raun og veru tók ég ekki eftir því fyrr
en ég hætti að passa í stærstu fötin
sem eru fáanleg í verslunum.“
Þarf að léttast um helming
Það sem honum var tjáð í læknis
skoðun fyrir skemmstu varð ekki
síður til að hvetja hann til að fara í
megrun en sú staðreynd að hann
væri feitasti karlmaður heims.
„Læknarnir sögðu mér að ég myndi
ekki ná að verða fimmtugur ef ég
myndi ekki gera róttæktar breyting
ar á líferni mínu,“ segir hann. Hann
þarf að léttast um helming til að eiga
möguleika á að fara í magaminnkun
og það er eitthvað sem hann stefnir
á. „Það væri frábært að vera grann
ur eins og var þegar ég var ungur. En
draumur minn er sá að geta setið í
venjulegum stól. Ég er staðráðinn í
að léttast.“
Tvær pítsur í kvöldmat
Martin innbyrti gríðarlegt magn af
mat á hverjum degi áður en hann
fór í megrun. Í morgunmat borðaði
hann jafnan heilan pakka af beikoni
með sex spæleggjum. Sem meðlæti
borðaði hann ristað brauð og bak
aðar baunir. Í hádegismat borðaði
hann nokkrar samlokur og í kvöld
mat tvær stórar pítsur eða þrjá keb
ab. „Í dag get ég í hreinskilni sagt að
ég sakna þess ekki að borða. Ég þarf
að gera þetta fyrir sjálfan mig og fjöl
skyldu mína.“ Þó að markmið hans
sé enn langt undan virðist Martin
vera staðráðinn í að breyta lífi sínu
til frambúðar. Hann fær heimsókn
frá heilbrigðisstarfsmönnum þrisvar
í viku sem hafa eftirlit með heilsufari
hans og baða hann.
„Ég vil bara vera hamingjusamur
og geta notið lífsins án þess að stóla
á að matur muni gera það. Ég vil geta
farið með hundinn minn út að ganga
– ég myndi fara með hann hvert sem
ég færi.“
Erlent 15Miðvikudagur 9. maí 2012
Ólétt kona gómuð í Pakistan:
Gæti fengið
dauðadóm
Ólétt bresk kona, hin 25 ára Kha
dija Shah, gæti átt dauðadóm yfir
höfði sér eftir að hafa verið gómuð
með rúm 63
kíló af heróini
í fórum sínum
á flugvellinum
í Islamabad í
Pakistan fyrir
skemmstu.
Götuverðmæti
efnanna er
talið nema 3,2
milljónum punda, eða 640 millj
ónum króna.
Shah var á leið til Birmingham,
ásamt tveimur börnum sínum,
þegar tollverðir stöðvuðu hana.
Efnin voru vandlega falin í þremur
ferðatöskum og segir Shah að hún
hafi tekið við töskunum frá ónafn
greindum mönnum í Pakistan og
ekki vitað hvert innihald þeirra
væri. Þetta er eitt stærsta fíkni
efnamál sem komið hefur upp á
alþjóðaflugvellinum í Islamabad.
Samkvæmt lögum í Pakistan
á hver sá sem gerist sekur um að
hafa meira en 10 kíló af fíkniefn
um í fórum sínum átt dauðadóm
yfir höfði sér. Vægasta refsingin er
lífstíðarfangelsi samkvæmt lögum.
Shah hafði verið í heimsókn hjá
skyldmennum sínum í borginni
Mirpur í einn og hálfan mánuð
en hún er fædd og uppalin í Bret
landi.
Kærasti Shah, Amar Ali, segir
í samtali við breska fjölmiðla að
hann hafi ráðlagt henni að taka
töskurnar ekki með sér. Hún hafi
hitt menn sem hafi beðið hana um
að gera sér greiða og samþykkt að
taka töskurnar gegn gjaldi. Hann
er nú á leið til Pakistans að sækja
dætur hennar.
n Keith Martin innbyrti allt að 20 þúsund hitaeiningar á dag
„Ég þarf að gera
þetta fyrir sjálfan
mig og fjölskyldu mína.
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Fitnaði mikið Martin fitnaði mikið eftir að hann missti móður sína. Hér er hann á unglingsárunum í nokkuð eðlilegum holdum.
Staðráðinn Keith Martin
ætlar að gera róttækar
breytingar á lífi sínu með
því að fara í megrun.
Hætt í svelti
Yulia Tymoshenko, fyrrverandi
forsætisráðherra Úkraínu, ætlar
að hætta í mótmælasvelti sínu í
dag, miðvikudag. Þetta tilkynnti
dóttir Yuliu á þriðjudag en Tymos
henko hefur ekki borðað í tæpar
þrjár vikur. Hún afplánar nú sjö
ára fangelsisdóm sem hún hlaut í
október fyrir spillingu í embætti.
Með sveltinu vildi Yulia mótmæla
illri meðferð sem hún hefur hlotið
í fangelsi.