Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2012, Side 16
Sandkorn
Í
slenskir útgerðarmenn sem gera
út við strendur Afríku hafa sumir
hverjir orðið uppvísir að rányrkju.
Að undanförnu hefur DV rakið
í máli og myndum dæmi um að
útgerðarmenn sem hæla sér af því
að stunda ábyrgar veiðar undir ís-
lensku kvótakerfi gera út með lög-
legum en siðlausum hætti í lögsögu
vanþróaðra, fátækra þjóða. Og þeir
virðast sumir skammast sín því þeir
vilja helst ekki ræða þessar veiðar og
eignarhaldinu á útgerðum þeirra er
kirfilega haldið í myrkri aflandseyja
og fjarlægra landa.
Við strendur Máritaníu keppir ryk-
sugutogarinn Blue Wave við heima-
menn sem stundað hafa strand-
veiðar sínar um aldir. Þar keppir
verksmiðjutogarinn við trébátinn
og leikurinn er ójafn. Útgerðarfélag
hans er skráð í skattaskjólinu Jersey á
Ermarsundi og eignarhaldið á togar-
anum á Tortóla. Að baki útgerðinni er
fjármagn sem komið er frá íslenskum
lífeyrissjóðum og Landsbankanum,
þjóðarbanka Íslands, og Nýsköp-
unarsjóði atvinnulífsins, sjóði í eigu
íslenskra skattborgara. Öll íslenska
þjóðin er þannig innvinkluð í það
sem útgerðin aðhefst við strendur
Afríku.
Íslenskir útgerðarmenn eru valda-
miklir í íslensku samfélagi. Eftir hrun-
ið og fall krónunnar hefur útgerðin
hagnast gríðarlega. Hluti þess fjár-
magns hefur runnið til beinnar áróð-
ursstarfsemi. Svo langt er gengið að
þrýstihópurinn hefur keypt fjölmiðil
og upphafið leigupenna til að reka
áróður sinn innanlands. Söngurinn
er sá að þeir ástundi sjálfbærar ábyrg-
ar veiðar við Ísland og eigi fullan rétt
á því að eiga fiskistofnana. Það eru
meira að segja dregnir á flot mátt-
leysingjar úr stétt starfsmanna þeirra
til að vitna um það í sjónvarpsauglýs-
ingum að þeir missi vinnuna ef grein-
in verði skattlögð meira en orðið er.
En þeir tala ekkert um þann sóðaskap
sem viðgengst undir þeirra merkjum í
lögsögu vanþróaðra ríkja.
Þögnin ein hefur ríkt á Íslandi
um þessa útrásarvíkinga sem lifðu af
hrunið og pönkast á fátækum þjóðum.
Um árabil hefur framganga þjóða eins
og okkar Íslendinga verið fordæmd.
Bent er á að þarna eigi sér stað rán-
yrkja ríkra þjóða á auðlindum fátækra
þjóða í þriðja heiminum. Og það eru
orð að sönnu. Sóðaskapurinn er með
eindæmum. Á meðan við flytjum fyrir-
lestra um allan heim um það hversu
vel við göngum um fiskiauðlindina við
strendur Íslands er siðleysið ríkjandi
við Afríku og víðar. Og í mynstri útgerð-
arfélaganna má lesa allt það versta sem
kom við sögu í hruni Íslands. Þarna eru
aflandsfélögin, skattaskjólin og felu-
leikurinn. Þeir þurrka upp auðlindir
hinna fátæku. Og það versta er að allur
íslenskur almenningur er dreginn inn í
óskapnaðinn í gegnum spillta banka og
lífeyrissjóði. Við ættum að skammast
okkar. En það er ljóst að sumir kunna
það ekki.
Sótt að Jóhönnu
n Jóhanna Sigurðardóttir, for-
maður Samfylkingar, liggur
fremur lágt í skoðanakönn-
unum með
flokk sinn
þessa dag-
ana. Þá er
forsætis-
ráðherrann
jafnframt
að glíma við
uppreisn innan flokks en
Árni Páll Árnason, alþingis-
maður og fyrrverandi ráð-
herra, sækist eftir því að
verða formaður. Óljóst er
með stuðning hans til emb-
ættisins en fáir flokksmenn
hafa þorað að opinbera
skoðun sína. Víst er að blóð-
ugt uppgjör er í aðsigi.
Guðsvolaður
flokkur
n Besti vinur þess um-
deilda Huang Nubo er Hjör-
leifur Sveinbjörnsson þýð-
andi. Ein af
samsæris-
kenning-
unum um
Nubo er sú
að leiga hans
á Grímsstöð-
um sé upp-
haf kínverskrar innrásar
og runnin undan rifjum
samfylkingarfólks. Eigin-
kona Hjörleifs, Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, gantast
með málið á Facebook og
spyr hvort hann sé þessi
áhrifamaður í Samfylk-
ingunni. „Ert þú að makka
þar, og það með Oddnýju
Harðardóttur?“. Hjörleifur
var snöggur til svars: „Ég
er ekki einu sinni í þessum
guðsvolaða flokki!“
Eftirspurn eftir
Bauhaus
n Talið er að hátt í sex þús-
und manns hafi mætt á opn-
un Bauhaus á laugardags-
morgun. Það eru tæplega
tvö prósent þjóðarinnar.
„Yndislegt, mjög gaman að
sjá þennan fjölda. Einn tal-
aði um það úti á plani áðan
að þetta væri bara þjóðhá-
tíð,“ sagði framkvæmda-
stjóri Bauhaus við Stöð 2 og
sagði aðsóknina undirstrika
þörfina fyrir Bauhaus. Sé
stuðningur tæplega tveggja
prósenta þjóðarinnar sönn-
un fyrir virkilegri þörf er
ljóst að Ástþór Magnússon
forsetaframbjóðandi getur
fagnað. Stuðningur við hann
er oftar en ekki á svipuðum
slóðum.
Erfitt á Veðurstofu
n Miklir fjárhagserfiðleikar
eru sagðir hrjá Veðurstofu
Íslands sem heyrir undir
umhverfis-
ráðuneyti
Svandísar
Svavarsdótt-
ur. Fullyrt er
að framund-
an séu upp-
sagnir allt
að 15 starfsmanna á næstu
vikum. Þetta mun starfsfólki
hafa verið kynnt. Staðan
þykir vera grafalvarleg í því
ljósi að Veðurstofan gegnir
afar mikilvægu hlutverki á
einu erfiðasta veðursvæði
heims.
Takk samt
fyrir boðið
Sóley Tómasdóttir er búin að prófa Bootcamp. – Vísir
Íslensk rányrkja
Leiðari
Reynir Traustason
rt@dv.is
„Þögnin ein
hefur ríkt á
Íslandi um þessa
útrásarvíkinga
F
yrir utan trú þjóðarinnar á hæfni
íslensku forréttindastéttarinnar
til að framleiða peninga eftir
brúðkaupsveisluvínsuppskrift
Krists lýsir fátt betur skorti lands-
manna á gagnrýnum og vísindalegum
hugsunarhætti en gegndarlaus dellu-
fíkn og trúgirni í heilbrigðismálum.
Vinsældir krassandi töfralausna
og dellukúra vekja upp spurningar
um hvernig kennslu í rökfræðum og
grundvallarheilbrigðisvísindum sé
háttað. Mikið skortir hér á aðgerðir
af hálfu neytendaverndarstofnana og
að fjölmiðlar sinni fræðsluhlutverki
sínu; þvert á móti er ekki óalgengt að
fjölmiðlar birti gagnrýnislaust rang-
færslur og ranghugmyndir, sbr. nýlegt
viðtal Fréttatímans við konu sem „af-
þakkaði hefðbundnar lækningar við
brjóstakrabbameini …“ og „hafði sigur
[á krabbameininu].“
Hver skar krabbameinið „í
burtu“?
Greinin lýsir hinum „óhefðbundnu
lækningum“ sem konan leitaði sér og
skoðunum hennar á sjúkdómnum,
sem hún á að sjálfsögðu fullan rétt á,
þó hvorki þær né „lækningaaðferðirn-
ar“ eigi sér nokkra stoð í raunveruleik-
anum. Blaðamaðurinn spyr ekki um
augljósar mótsagnir viðmælandans,
eins og þá að hún hafi valið að „af-
þakk[a]...hefðbundnar lækningar“ en í
segist í sömu andrá hafa „verið skorin
í brjóst og meinið fjarlægt“! Þar sem
viðmælandinn lýsir yfir að hún „ætl-
aði ekki að setja mig í hendur á lækn-
unum“ spyr maður sig óhjákvæmilega
hver hafi framkvæmt skurðaðgerðina
– hómópatinn eða grasalæknirinn?
Engar viðurkenndar rannsóknir
renna stoðum undir að „óhefðbundnu
lækningarnar“, „miðlun, nálastung-
ur og blómadropaþerapíu[r]“ lækni
krabbamein, eða aðra sjúkdóma
(enda var það raunverulega læknis-
meðferðin – skurðaðgerð – sem við-
mælandinn „trúir ekki á“, sem fjar-
lægði meinið). Í besta lagi framkalla
þessar meðferðir vellíðunartilfinningu
og lyfleysuáhrif, en í versta lagi geta
þær hvatt fólk til að sneiða hjá raun-
verulegum lækningum.
Viðmælandi FT gagnrýnir ráðlegg-
ingar íslensku læknanna og að erlend-
is geti fólk „valið óhefðbundnar leiðir
og þá fær fólk stuðning í því. En það
er ekki í boði hér og það er miður.“ Sú
meðferð við brjóstakrabbameini sem
„er í boði hér“ er sama meðferð og
ráðlögð er alls staðar á Vesturlöndum
og víðar: skurðaðgerð, lyfjameðferð,
geislun. Auðvitað er fólki í sjálfsvald
sett að velja „óhefðbundnar leiðir“, en
varla er hægt að ætlast til að læknar
verði klappstýrur sjúklinga sem hunsa
ráðgjöf þeirra og kjósa að reyna að
ráða bug á alvarlegum sjúkdómum
með skottulækningum.
Hver er svo statusinn á krabba-
meininu sem viðmælandinn „ sigraðist
á“ því hún „afþakkaði hefðbundnar
lækningar“? Jú, „Krabbameinið er far-
ið ... það fór. Það var skorið í burtu...“
(Lækning er þó ekki talin örugg fyrr
en eftir fimm ár án merkjanlegs æxlis-
vaxtar.)
Áminningar Landlæknis virtar að
vettugi
Seljendur „óhefðbundinna læknis-
meðferða“ hafa án athugasemda
yfirvalda sem gæta eiga hagsmuna
neytenda, auglýst í fjölmiðlum að
„meðferðirnar“ „virki á“, „komi í veg
fyrir“ fjölda alvarlegra sjúkdóma.
Í skýrslu Landlæknisembættisins
frá 2010 vegna auglýsinga svokallaðr-
ar „detox-meðferðar“ segir „Upptaln-
ing á sjúkdómum sem [meðferðin] á
að hafa áhrif á byggir ekki á neinum
viðurkenndum rannsóknum og er til
þess fallin að gefa sjúklingum, oft með
erfiða sjúkdóma, falskar vonir… Orða-
lagið „recognized medical method in
Iceland“ [viðurkennd læknismeðferð
á Íslandi] á ensku er bein rangfærsla
... Allt bendir til þess að auglýsingin...
brjóti í bága við lög. Með tilliti til með-
alhófsreglu stjórnsýslulaga þykir rétt
að ganga ekki lengra … en að benda
á þessi atriði og gefa forsvarsmanni
starfsseminnar tækifæri á [úrbótum].“
Þessar áminningar voru virtar að
vettugi, eins og augljóst er af auglýs-
ingum á netinu og víðar.
Ekki láta staðreyndirnar
flækjast fyrir
Hollt mataræði og hreyfing, sem
áhersla er lögð á í „óhefðbundnum
meðferðum“ er vitanlega undirstaða
heilbrigðis og ekkert nema gott um
hvatningu þessa að segja (þó ekki sé
hægt að mæla með matarsvelti) ef
ráðgjafarnir vita um hvað þeir eru að
tala. Hins vegar, þegar fólk greinist
með alvarlega sjúkdóma – hvort sem
ástæðan er áratuga langur óhollur lífs-
stíll eða annað – er yfirleitt ekki unnt
að snúa við blaðinu með því ein-
göngu að „fara í detox“ „heila áruna“
eða á sérstaka matarkúra, nú, eða á
jákvæðninámskeið, svo minnst sé á
aðra vinsæla söluvöru sem lofar öllu
frá aukinni velgengni og betri launum
til betri heilsu, þó ekki hafi enn tekist
að sanna að unnt sé að hugsa sig til
heilbrigðis. En það er engin ástæða
til að láta staðreyndirnar flækjast
fyrir sér, svo vitnað sé í einn jákvæð-
nifrömuð: „Ef við hefðum beðið eftir
vísindunum, værum við enn að tala
og plana.“
Neytendur eiga að hafa frjálst
val, en valkostirnir verða að byggjast
á staðreyndum, ekki vanþekkingu
og ranghugmyndum. „Frelsið er
yndislegt“ söng Nýdönsk. Það er líka
vandmeðfarið, enda „vandasamara
vel að nýta en í upphafi að öðlast.“
Krassandi krabba-
meinslækningar
Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Lilja Skaftadóttir Ritstjórar: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) og Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is)
Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri: Stefán T. Sigurðsson (sts@dv.is)
Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Hönnunarstjóri: Jón Ingi Stefánsson (joningi@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: DV.is
F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð
Heimilisfang
Tryggvagötu 11
Hafnarhvoli, 2. hæð
101 Reykjavík
FRéTTASkoT
512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
AÐALnúmeR
RiTSTJÓRn
ÁSkRiFTARSími
AuGLýSinGAR
16 9. maí 2012 Miðvikudagur
Kjallari
Íris Erlingsdóttir
„Seljendur „óhefð-
bundinna læknis-
meðferða“ hafa án at-
hugasemda yfirvalda
sem gæta eiga hags-
muna neytenda, auglýst í
fjölmiðlum.
Svanur
Sigurbjörnsson
Megrun getur verið
lífsnauðsynleg
Svanur Sigurbjörnsson, læknir og sérfræðingur í lyflækningum. – DV