Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2012, Qupperneq 17
Spurningin
Þetta er
prinsippmál
Ég er alveg gróinn
sára minna
Jónas Garðarsson um samninga um kaup og kjör háseta sem ekki hafa náðst. – DV.isGuðni Bergsson braggast eftir árás sem hann varð fyrir. – Í bítið á Bylgjunni
Með lögum skal land
byggja – en fyrir hverja?
„Já, ég fór en var bara að skoða.“
Gunnar Jóhannesson,
26 ára matreiðslumaður
„Nei, ég veit ekki einu sinni
hvenær hún opnaði.“
Helga Magnúsdóttir,
34 ára þjónn
„Nei, mig langaði ekki að fara.“
Lovísa Árnadóttir,
19 ára nemi
„Nei, ég fór ekki.“
Melkorka Huldudóttir,
40 ára myndlistarmaður
„Nei, ég fór ekki. Fer kannski
seinna, ekki endilega strax.“
Sigrún Óskarsdóttir,
68 ára forstöðumaður
Fórstu í Bau-
haus þegar
búðin opnaði?
Þ
ví lengur sem ég sit innan kerfis,
því augljósara er að eitthvað
verulega mikið er að réttarrík-
inu þegar helstu verk löggjaf-
ans eru bútasaumur á löggjöf til að
stemma stigu við árásum og siðlaus-
um skemmdarverkum á þeim. Þeir
sem hafa fjárhagslegt bolmagn ráða
sér sérfræðinga í lögum til að fara inn
á gráu svæðin. Tökum hér dæmi um
nokkur af þessum gráu svæðum sem
farið hefur verið inn á undanfarið:
1 Innheimta ólöglegra lána heldur áfram þrátt fyrir dóm Hæstaréttar
um ólögmæti þeirra aðgerða fyrir all-
nokkru síðan. Allt of margir hafa misst
heimili sín og aðrar eigur út af þessum
ólöglegu lánum. Á mannamáli má
segja að eigum þeirra hafi hreinlega
verið stolið. En þó að lögin hafi verið
dæmd ólögleg, þá er innheimta þeirra
enn í fullum gangi. Er hægt að treysta
réttarríki sem lætur slíkt viðgangast.
Yfirleitt þá þurfa smáþjófar að skila
þýfinu, strax, ef þeir eru gómaðir. Þeir
eru dæmdir og þeir þurfa að sæta refs-
ingu. Það er frekar blátt áfram og ein-
falt að dæma smáþjófa. Þá virka lögin
okkar og allir eru sammála um að t.d.
bankaræningjar sem ógna starfsfólki
til að fá sínu fram séu samfélaginu
hættulegir og eigi að afplána sem fyrst
dóm fyrir slíkt ofbeldi. En hvað með
þá sem beita fólk ofbeldi með því að
hafa af þeim húsin, skapa ótta um
afkomu og framtíð og dæma fólk á
svarta lista um ókomna tíð? Af hverju
virka lögin okkar ekki fyrir þá og af
hverju fá þeir að komast upp með að
þurfa ekki að framfylgja dómsorðinu?
2 Afskriftir lána þingkvendis og eiginmanns þess upp á 2.000
milljónir er síðan eitthvað sem mér
er fyrirmunað að skilja. Lögum um
hlutafélög var breytt í stjórnartíð Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknar til að
hægt væri að fara þessa siðlausu leið.
Þetta fólk fær að halda húsinu sínu á
meðan þeir sem sitja uppi með ólög-
leg lán þurfa að horfa upp á sín hús
fara undir hamarinn. Eru lögin í ólagi
eða er eitthvað annað að? Ef ég er EHF
þá fæ ég afskriftir: en ekki ef ég er ein-
staklingur, því þá virðist það vera of
kostnaðarsamt fyrir kerfið. Hvar er
þessi svokallaði andi laganna okkar?
Er það í anda þess samfélags sem við
viljum búa í, að svona lagað fái að
viðgangast, ekki bara einu sinni, sið-
ferðislega rangir lagalegir gjörning-
ar viðgangast og það er eins og ekki
verði hjá þeim komist, eða hvað? Af-
skriftir hinnar svokölluðu elítu eru
töfrum hlaðnar, þær skuldir gufa upp
en þessir aurar sem farið er fram á að
afskrifaðir verði hjá almenningi með
stökkbreytt og ólögleg lán, það er ein-
hver myllusteinn sem restin af okkur
þarf að bera? Er það réttlátt, siðlegt
eða skynsamlegt?
3 Núpó-maðurinn dularfulli sem gengur um í gamalli lopapeysu frá
Íslandi fyrir myndatökur, borðar harð-
fisk og elskar ljóð fékk ekki að kaupa
0,3% af flatarmáli landsins. Gleymum
því ekki að þrátt fyrir að vera hvers
manns hugljúfi þá er fyrirtækið ekki
hann. Alþekkt er líka að flest stór fyrir-
tæki frá Kína eru smíði hins kínverska
alþýðulýðveldis til að koma undir sig
grunnstoðum fallvaltra og veikburða
ríkja. Þegar ákveðið var að verða ekki
við ósk Núpó um kaupin þá tóku sig til
nokkrir vaskir Íslendingar og ákváðu
að finna lagalega leið til að komast
handan við ákvörðun innanríkisráð-
herra (dómsmálaráðherra). Þeir fara
stoltir og borubrattir inn á gráa svæðið
og vinna sennilegan lagalegan snið-
göngusigur. Já, með lögum skal land
byggja, en fyrir hverja?
Ólögum skal eyða
Mér finnst lagaflækju- og bútasaums-
aðferðafræðin vera ólög. Ég vil ekki
búa í réttarfarsríki sem er hannað
fyrir þá sem hafa best aðgengi að
fjármunum og snjöllum lögfræðing-
um. Mér finnst tímabært að endur-
hugsa hvernig réttarfarsríki viljum
við búa í? Viljum við búa í lagaflækju
og klækja ríki þar sem enginn þarf
í raun og veru að bera neina sam-
félagslega ábyrgð eða viljum við búa
í siðmenntuðu samfélagi þar sem
ALLIR axla ábyrgð? Viljum við búa
í samfélagi þar sem óréttlæti ólaga
ræður ríkjum og við látum óréttlæt-
ið ganga yfir okkur því það er ekki á
okkar ábyrgð að breyta þessu heldur
hinna? Við verðum að einfalda kerfið,
einfalda lögin, tryggja að verkfæri
borgaralegrar þátttöku séu til staðar,
eins og t.d. þjóðaratkvæðisákvæði og
aðgengi að upplýsingum og ákvarð-
anatöku ráðamanna.
Saman erum við sterk
Nú stöndum við frammi fyrir miklum
breytingum á samfélagsgerðinni, eins
og t.d. ný stjórnarskrá inniber, nýr
rammi um hvað má virkja og hvað
má ekki, grænt hagkerfi, ein öflug-
ustu upplýsinga- og tjáningarfrelsis-
viðmið á byggðu bóli, endurheimt
auðlinda og svo má lengi telja. Tökum
þátt, munum að það er enginn riddari
á hvítum hesti sem kemur og bjargar
okkur. Notum hið stórkostlega verk-
færi sem ný stjórnarskrá gefur okkur
til að móta hvers konar samfélag við
viljum búa í. Gefið okkur, kjörnum
fulltrúum ykkar á Alþingi, skýran veg-
vísi með meiri þátttöku og aðhaldi. Ég
óska eftir þessum vegvísi. Ég óska eftir
aðhaldi, ég óska eftir áhuga á þeim
störfum sem mér var falið að inna af
hendi.
Austurvöllur Þessar stúlkur létu ekki kalda goluna aftra sér frá því að leggjast í sólbað á Austurvelli í vikunni.
Mynd: Sigtryggur Ari JÓhAnnSSonMyndin
Umræða 17Miðvikudagur 9. maí 2012
1 Heimsfrægðin á næsta leiti Ebba Guðný Guðmundsdóttir fékk
bókasamning hjá virtu bókaforlagi í
Bretlandi.
2 Á skóladansleik samanPatrick Schwarzenegger bauð vinkonu
sinni á ball.
3 American Airlines vill að ákveðnir farþegar hætti að
fljúga
Flugfélagið gerir eilífðarfarþegum
erfitt fyrir.
4 Hlífar ákærður fyrir hrottafengið morð
Ákærður fyrir morð í Hafnarfirði.
5 Vikugömlu hjóli stolið frá ellefu ára dreng
„Við erum alveg miður okkar yfir
þessu,“ segir mamman.
6 Megrun getur verið lífs-nauðsynleg
Nauðsynlegt að snúa við blaðinu ef í
óefni er komið að sögn sérfræðings.
7 „Ég ætla að verða af-bragðsmóðir og húsmóðir,
eilífðarstúdent og líklega
forseti“
Rifjað var upp viðtal við Þóru Arnórs-
dóttur forsetaframbjóðanda frá 1999.
Mest lesið á DV.is
Ekki má af
þér líta
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir gantaðist við Hjörleif mann sinn á Facebook. – DV
„Afskriftir lána
þingkvendis og
eiginmanns þess upp á
2.000 milljónir eru síðan
eitthvað sem mér er fyrir-
munað að skilja.
Kjallari
Birgitta
Jónsdóttir