Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2012, Síða 20
20 Lífsstíll 9. maí 2012 Miðvikudagur
xxx
n xxx
x
xxx
xxx
Kenndu þér
á hljóðfæri
Margir þrá að læra á hljóðfæri
en fóru á mis við tónlistarnám í
æsku. Í dag má auðveldlega kenna
sjálfum sér á hljóðfæri með aðstoð
tölvu eða spjaldtölvu.
Mörg aukaforrit eru til þess
fallin að kenna fólki að lesa nótur
og spila á píanó og gítar.
Ef að þig langar að læra á gítar
er vefsíðan justinguitar.com með
yfir 500 kennslustundir í boði. Á
netinu má jafnvel læra á flautu
og fiðlu, mörg slík myndbönd má
finna með léttri leit á Youtube.
Þeir sem vilja læra tónfræði
geta kynnt sér vefsíðuna musict-
heory.net þar sem eru ókeypis
kennslustundir í tónfræði.
Sumarleg vinabönd
n Flottir skartgripir sem er auðvelt að útbúa
Fyrir lengra komna Hægt er að finna
ýmis mynstur á netinu, bæði fyrir byrjendur
og lengra komna. Bandið á myndinni er
líklega í erfiðari kantinum.
„Mér finnst ég
alltof grannur“
H
afsteinn Þór Guðjónsson,
betur þekktur sem Haffi
Haff, stundar líkamsrækt til
að friða eigið óöryggi. Hon-
um finnst hann of grannur.
Líkaminn endalaust verkefni
„Því meira sem ég æfi og verð
ánægðari með líkama minn því
meira aðlaðandi finnst mér ég vera
og þá slaka ég á og hef ekki áhyggjur
af því að aðrir dæmi mig. Ég er mjög
óöruggur með sjálfan mig. Ég vildi
að ég væri herðabreiðari, með lengri
fætur og stundum er ég óánægður
með andlitið á mér og hvernig ég lít
út á myndum. Mér finnst ég alltaf
hafa verið of grannur. Ég hef stund-
um ekki matarlyst og þarf að neyða
mig til að borða á morgnana; ég þarf
að „hita mig upp“ með því að fá mér
próteinsjeik, djús og ávexti. Eftir það
get ég borðað annan mat. Svo gæti ég
borðað tonn af mat á kvöldin.“
Hann segist stundum hafa fengið
komment í gegnum tíðina út af
því hve grannur hann er. „Þú ert of
grannur,“ hefur verið sagt við mig.
„Það er ekkert sem ég get gert í því.
Ég er grannur að eðlisfari. Ég myndi
vilja hafa fullkominn líkama; ég held
að allir myndu vilja hafa fullkominn
líkama.“
Hvað er fullkominn líkami í aug-
um hans? „Slíkur líkami fær viðkom-
andi til að líða vel. Ég myndi helst
vilja vera meira „shapely“. Ég myndi
vilja vera með þroskaðri líkama. Þeg-
ar ég lít í spegil þá finnst mér þetta
vera eins og verkefni sem þarf enda-
laust að vinna í.“
Tillitssamur en þrjóskur
Um helgina var „megrunarlausi dag-
urinn“. Hvað segir Haffi um hann?
„Það er fáránlegt að borða lítið. Fólk
verður að borða. Líkaminn er vél.“
Hvernig myndi hann annars lýsa
sjálfum sér burtséð frá líkamanum?
„Ég er þrjóskur því ég vil að hlutirnir
séu eins og ég vil hafa þá. Ég er hrein-
skilinn og segi oftast hvað mér finnst.
Ég er einmana að því leyti að mér
finnst ég alltaf vera að leita að ein-
hverju sem ég finn kannski ekki. Ég
er tillitssamur.“
Er hann með stórt hjarta? „Ég vil
trúa því. Já.“ Er hann góður mað-
ur? „Já, ég vil vera það. Það er mér
mikilvægt að fólki líði vel í kringum
mig hvort sem ég þekki það eða ekki.“
Finnur fyrir fordómum
„Ég kom einu sinni fram og þar fór
maður, sem var áheyrandi, að tala
um það upp úr þurru hvort ég ætti
rétt á því að gifta mig. Ég tala aldrei
um að ég sé samkynhneigður. Ég hef
meira að segja aldrei komið út úr
skápnum. Ég sagði ekki: Mamma, ég
er hommi. Ég hef aldrei sagt neinum
að ég sé samkynhneigður. Af hverju
ætti ég að segja fólki frá þessu? Hvaða
máli skiptir það fyrir það hvort ég sé
samkynhneigður eða ekki? Nema að
viðkomandi hafi áhuga á mér en það
er önnur saga.“
Hann segir að þessi uppákoma
hafi verið vandræðaleg fyrir þá
báða. „Ég spurði manninn hvort
hann væri að reyna að gera lítið
úr mér. Ég benti honum á að hann
hefði langað til að tala við mig og að
það fyrsta sem hann hefði minnst á
væri að ég væri samkynhneigður.
Bað ég hann um að tala við mig
um að ég sé samkynhneigður?
Langaði hann að fræðast um sam-
kynhneigða? Fólki kemur þetta ekki
við. Það á að halda sig frá lífi mínu
og það á ekki að segja mér hvað ég
get og hvað ég get ekki gert. Punkt-
ur. Maðurinn baðst afsökunar á
sinn hátt. Hann ætlaði ekki að vera
dónalegur en þetta var almennileg-
ur maður. Ef fólk veit ekki um hvað
það á að tala þá á það ekki að tala
við mig um þetta. Ég er bara venju-
legur hommi að reyna að lifa lífinu.
Ég er í vörn og ég hef alltaf verið í
vörn vegna þess að ég verð að verja
mig á hverjum einasta degi af því að
ég er hommi.“
Lifum á breyttum tímum
Haffi er stoltur af Íslendingum þar
sem svo margir sýna stuðning við
samkynhneigða með því að mæta
í árlega gleðigöngu. „Það er mikil-
vægt. Það þarf að styðja aðra. Gleði-
gangan snýst um mannréttindi.
Staðreyndin er að samkynhneigðir
búa í þessu þjóðfélagi og eru ekki á
förum. Við lifum á breyttum tímum
og ég er þakklátur fyrir að vera uppi í
dag; þetta er ekki eins og var fyrir 50
árum.“
Svava Jónsdóttir
„Ég
myndi
vilja hafa full-
kominn líkama
Óöryggið rekur hann í ræktina „Ég vildi að ég væri herðabreiðari, með lengri fætur og
stundum er ég óánægður með andlitið á mér og hvernig ég lít út á myndum. Mér finnst ég
alltaf hafa verið of grannur.“
Göngutúr
á dag
Hálftíma göngutúr á dag er góður
fyrir hjartað og geðlæknar segja
að margir kvíða- og þunglyndis-
sjúklingar gætu grætt mikinn bata
aðeins á því að ganga mikið.
n Skoðaðu leiðir til og frá vinnu.
Geturðu gengið í vinnuna?
n Er róluvöllur í innan við 15 mín-
útna fjarlægð? Slökktu á imba-
kassanum og farðu þess í stað
með börnin á völlinn.
Það þykir sannað að ekki þarf
að ganga samfellt í 30 mínútur á
dag til að fá góðu áhrifin fram. Þú
mátt safna því upp yfir daginn.
Mestu máli skiptir að þetta séu 30
mínútur af göngu í viðbót við það
sem þú áður hefur hreyft þig.
V
inabönd eru sérlega litríkir og
skemmtilegir skartgripir sem
auðvelt er að útbúa sjálfur.
Með hækkandi sól er tilvalið
að lífga upp á tilveruna með því að
skreyta sig með slíkum böndum.
Margir tengja vinaböndin hugs-
anlega við börn og unglinga en það
er algjör misskilningur. Vinaböndin
eru alveg jafn mikið fyrir fullorðna.
Það kann að líta út fyrir að flókið mál
sé að útbúa hnýtt vinabönd, líkt og á
myndinni, en sú er ekki raunin. Hægt
er að finna margvísleg mynstur á
netinu, bæði fyrir byrjendur á lengra
komna. Til dæmis á síðunni friends-
hip-bracelets.net. Fyrir þá sem hafa
náð góðum tökum á hnýtingunni er
um að gera að prófa sig áfram með
sín eigin mynstur. Þá geta vinabönd
einnig verið fléttuð og snúin og gam-
an getur verið að skreyta þau með
með perlum eða litlum bjöllum.
Gott er að nota fínlegt útsaums-
garn í vinaböndin, en slíkt fæst í flest-
um föndur- og garnverslunum.
Það er um að gera að taka sig til
í sumarfríinu, hnýta vinabönd í sól-
inni, gefa sönnum vini og óska sér.
n Stoltur af stuðningi við samkynhneigða n Fáránlegt að borða lítið