Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2012, Qupperneq 24
24 Sport 9. maí 2012 Miðvikudagur
K
nattspyrnusumarið
hófst með látum á
sunnudaginn þegar
fyrsta umferð Pepsi-
deildar karla í knatt-
spyrnu var leikin eftir margra
mánaða bið. Liðin voru klár og
stuðningsmenn flykktust í þús-
undatali á vellina. Ljóst var að
stuðningsmennirnir voru bún-
ir að bíða sumarsins af sömu
óþreyju og leikmennirnir.
Pepsi-deildar sumarið stefnir í
það stærsta í langan tíma.
Það kostar sitt að halda úti
samkeppnishæfu félagsliði í
efstu deild á Íslandi. En hvað
kostar sumarið fyrir stuðnings-
mennina? Það þarf að kaupa
miða á völlinn, varning og
ferðast. DV ákvað að kortleggja
kostnaðinn fyrir einn gallharð-
an stuðningsmann sem mætir
á alla heimaleiki og hvern ein-
asta útileik og setja upp í eitt
lauflétt dæmi.
Misdýrir ársmiðar
DV leitaði upplýsinga hjá
félögunum í Pepsi-deild karla
og út frá því má sjá hversu mik-
il útgjöld gallharðir stuðnings-
menn geta átt von á að standa
straum af í sumar. Það fyrsta
sem stuðningsmenn ættu að
gera er að tryggja sér ársmiða
hjá sínu félagi. Þeir geta verið
afar mismunandi en allir veita
þeir aðgang að heimaleikj-
um liðanna í sumar. Síðan eru
mismunandi verðflokkar þar
sem hægt er að greiða meira
fyrir ýmis fríðindi eins og kaffi
og með því á vellinum sem út-
listað er nánar hér við skýring-
armyndina. Allt frá rúmlega 8
þúsund krónum upp í 40 þús-
und krónur fyrir sumarið. DV
tekur dæmi um stuðnings-
mann FH. Þar er ársmiðakerfið
í fimm stigum. Hægt að greiða
allt frá 8.400 krónum í bein-
an styrk á ári og upp í 33.756
krónur fyrir aðgang að öll-
um heimaleikjum FH í fót- og
handbolta, veitingar fyrir leik
og í hálfleik með svokölluðu
Gull Bakhjarl Plús korti. Okkar
maður vill styðja vel við bakið
á FH svo hann skellir sér á slíkt
kort.
Sama verð við innganginn
En þá á eftir að borga sig inn
á alla útivellina. 12 lið eru í
deildinni svo útileikirnir eru
11. Stakur miði fyrir fullorðinn
kostar 1.500 krónur við inn-
ganginn hjá öllum félögum.
Mismunandi er eftir völlum
hvort rukkað sé fyrir börn/
unglinga. Miðað við að fullorð-
inn einstaklingur kaupi sig inn
á alla útileiki mun það kosta
hann samtals 16.500 krónur.
Heildarkostnaður okkar
manns við það eitt að koma
sér inn á leikina er nú kominn
í 50.256 krónur. En þá á eftir að
koma sér á völlinn.
Kostar að komast
á útivellina
Til að gera sér í hugarlund
hver eldsneytiskostnaðurinn
er þá stendur Hafnfirðing-
urinn okkar frammi fyrir því
að mesti kostnaðurinn verði
við ferðirnar upp á Akranes,
á Selfoss og Vestmannaeyja á
einkabíl. Ferðalagið fram og
til baka frá Akranesi kostar
um 2 þúsund krónur í elds-
neyti, tvö þúsund krónur í
göngin. Samtals fjögur þús-
und krónur fyrir að heim-
sækja ÍA.
Fyrir Eyjaleikinn má gera
ráð fyrir svipuðum bensín-
kostnaði og 2.300 krónur
fyrir Herjólfsferð, fram og til
baka frá Landeyjahöfn. Um
4.300 krónur þar. Afar gróf-
lega áætlað má gera ráð fyrir
að útileikjakostnaður, þar
sem bensín er stærsti út-
gjaldaliðurinn, sé um 15.000
krónur fyrir sumarið. Þá er
ekki næstum allt tínt til eins
og matur og drykkir. Heildar-
kostnaður fyrir okkar mann
er nú kominn í 65.256 krónur.
Hátt í 80 þúsund með
varningi
En hinn grjótharði stuðn-
ingsmaður er ekki alveg
hættur. Hann ákveður að
skella sér í verslunina Mús-
ík og Sport og kaupa nýjustu
keppnistreyju FH. 10 þús-
und kall þar og í ljósi þess
að við búum á Íslandi ákveð-
ur hann að kaupa eina FH-
húfu fyrir skallann fyrir 1.650
krónur.
Þegar upp er staðið eft-
ir sumarið er hinn grjót-
harði stuðningsmaður bú-
inn að punga út að minnsta
kosti 76.906 krónum. Nú er
að vona að sumarið verði
hverrar krónur virði.
Þetta kostar sumarið
hörðustu aðdáendur
n Stuðningurinn getur kostað einstakling 80 þúsund krónur
Sigurður Mikael Jónsson
blaðamaður skrifar mikael@dv.is
Næstu leikir
Fimmtudagur 10. maí
n 18:00 - ÍBV- Breiðablik
n 19:15 - Valur- Selfoss
n 19:15 - Grindavík - Keflavík
n 19:15 - FH-Fram
n 19:15 - Stjarnan-Fylkir
n 19:15 - ÍA - KR
Verðdæmi
Grjótharður FH-ingur:
Ársmiði: Gull Bakhjarl Plús: 33.756 kr.
Aðgangseyrir að öllum útileikjum:
16.500 kr.
Ferðakostnaður: 15.000 kr.
Varningur: 11.650 kr.
Samtals: 76.906 kr.
ÍBV
Fullorðnir: 1.500 kr.
16 ára og yngri: Frítt
Eldri borgarar: Frítt
Öryrkjar: 1.000 kr.
Ársmiðar:
Árskort: 12.500 kr.
Hjónakort: 20.000 kr.
Grindavík
Fullorðnir: 1.500 kr.
Börn: 500 kr.
Ársmiðar:
11.000 kr.
16.000 kr. (m. súpu og
brauði fyrir leik og kaffi í hálfleik)
Ársmiði fyrir börn: 4.000 kr.
Keflavík
Fullorðnir: 1.500 kr.
Börn: 500 kr.
Eldri borgarar/
öryrkjar: 1.200 kr.
Ársmiði:
13.000 kr.
ÍA
Fullorðnir: 1.500 kr.
12–15 ára: 500 kr.
Ársmiðar:
n Brons: 11.000 kr. (Allir heimaleikir)
n Silfur: 24.000 kr. (Allir heimaleikir + kaffi og meðlæti
í hálfleik)
n Gull: 40.000 kr. (Allir heimaleikir + kaffi, meðlæti, ÍA-
málið og trefill, VIP-upphitun, aðeins 50 stk. fáanleg)
*Öllum miðum fylgir árlegur stuðningsmannafundur með
leikmönnum, þjálfara og stjórn.
Selfoss
Fullorðnir: 1.500 kr.
16 ára og yngri: Frítt
Ársmiði:
20.000 kr. FH
Fullorðnir: 1.500 kr.
11–16 ára: 500 kr. (frítt ef
viðkomandi æfir hjá FH)
0–10 ára: Frítt
Eldri borgarar/öryrkjar: Frítt
Ársmiðar:
Bakhjarl 8.400 kr. (Styrkur, enginn aðgangur)
Silfur: 19.296 kr. (11 heimaleikir í hand- og fótbolta)
Silfur Plús: 22.296 (11 heimaleikir + veitingar)
Gull: 27.756 (22 heimaleikir í hand- og fótbolta)
Gull Plús: 33.756 (22 heimaleikir + veitingar)
Breiðablik
Fullorðnir: 1.500 kr.
Yngri iðkendur fá frítt mæti þeir í græna gallanum sínum.
Öryrkjar: Frítt
Ársmiðar:
Stuðnings-Blikar: 14.400 kr. (Styrkur, enginn aðgangur)
Sport-Blikar: 26.400 kr. (Allir heimaleikir, karla og kvenna, + kaffi og meðlæti)
Fjölskyldu-Blikar: 46.800 kr. (Gildir fyrir tvo á heimaleiki, blikagjöf + kaffi og meðl.)
Stór-Blikar: 70.000 kr. (Fyrir tvo, frátekin sæti í VIP-stúku, kaffi, meðlæti, fundur
með liði og aðstandendum o.fl. fríðindi)
Stjarnan
Fullorðnir:
1.500 kr.
Engar upp-
lýsingar
fengust um
ársmiða-
verð hjá
Stjörnunni.
KR
1.500 kr.
Ársmiði:
KR-klúbburinn.
15.000 kr. – gildir á alla
heimaleiki + kaffi í hálfleik.
Fylkir
Fullorðnir: 1.500 kr.
11–16 ára: 500 kr.
10 ára og yngri: Frítt
Eldri borgarar/öryrkjar: 1.000 kr.
Ársmiðar:
15.000 kr. (Fyrir einn + kaffi og meðl. í hálfleik)
28.000 kr. (Fyrir tvo + kaffi og meðl. í hálfleik)
39.000 kr. (Fyrir þrjá + kaffi og meðl. í hálfleik)
Valur
Fullorðnir: 1.500 kr.
12–16 ára: 500 kr.
Ársmiði:
14.000 kr. – allir heimaleikir karla og
kvenna, ásamt kaffikorti.
Fram
Fullorðnir: 1.500 kr.
12–15 ára: 500 kr.
Eldri borgarar/öryrkjar fá 10% afslátt
Ársmiðar:
Brons: 15.000 kr. (Gildir fyrir einn á alla heimaleiki)
Silfur: 22.500 kr. (Fyrir tvo á alla heimaleiki)
Gull: 30.000 kr. (fyrir þrjá á alla heimaleiki)