Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2012, Page 27
Fólk 27Miðvikudagur 9. maí 2012
n Komin með nóg af hasshausum með uppblásin egó
H
ip hop-senan á Íslandi
er bólgin af kvenfyrir-
litningu. Það er löngu
kominn tími til að það
breytist og það ætla ég að
reyna að gera,“ segir Þórdís
Nadia Semichat rappari sem
hefur sent frá sér lagið Pass-
aðu þig.
Nadia hefur hingað til verið
þekkt sem uppistandari en er
nú komin á kaf í tónlist. „Lag-
ið er eitt stórt „diss“ á typpa-
fnykinn sem er búinn að vera
viðloðandi í íslensku rappi.
Í þessu lagi sný ég dæminu
við. Rapparar hafa hingað til
verið að hlutgera kvenfólk en
nú hlutgeri ég karlmenn. Ég
hef nú þegar fengið góð við-
brögð við laginu. Reyndar var
ég spurð hvort ég yrði ekk-
ert hrædd við að verða lamin
þegar lagið kæmi út en það er
ég alls ekki.“
Nadía segist vera orðin
þreytt á því að strákar, sem
séu í rauninni fullvaxta karl-
menn, séu endalaust að hlut-
gera konur. „Þeir tala mikið um
typpið sitt og að ríða mellum.
Svo kemur oft í ljós að þetta
eru bara einhverjir hasshaus-
ar á atvinnuleysisbótum með
uppblásið egó,“ segir Nadia
sem fæst til þess að koma með
dæmi úr textanum við lagið
Passaðu þig: „Hvað er þetta,
finn ég typpalykt? Í bland við
hormónaða svitalykt og gras-
lykt að tala um stóra typpið sitt“.
Meðfram tónlistinni starfar
Nadía á bar auk þess sem hún
kennir magadans og vinnur
sem módel í Fjölbrautaskól-
anum í Breiðholti. Aðspurð
segist hún sjálf líta upp til
listamanna á borð við Lauryn
Hill og M.I.A. „Ég er líka búin
að vera að hlusta mikið á Úlf-
ur úlfur,“ segir Nadía sem er
hætt í uppistandinu. „Ég fékk
leið og ákvað að gera eitthvað
annað. Það var orðið of pirr-
andi að fá hvert símtalið á fæt-
ur öðru þar sem fólk bjóst við
að ég tæki mun lægri upphæð
en karlkyns uppistandararnir.
Nú er ég komin á kaf í tónlist
og það er eins gott að íslenska
rappsenan taki mig alvarlega.
Ég er að þessu í fullri alvöru.“
Myndband við lagið Pass-
aðu þig verður frumsýnt á
morgun, fimmtudag, á Bakk-
usi en það er Eilífur Örn Þrast-
arson sem leikstýrir mynd-
bandinu. „Við tókum upp
myndbandið hjá Íslenska
gámafélaginu. Þetta er mynd-
líking. Ég ofan á öllu hip hop-
ruslinu,“ segir Nadia að lokum
og bætir við að það séu allir
velkomnir á Bakkus á fimmtu-
dagskvöldið.
Smáauglýsingar
smaar@dv.is
sími 512 7004
Opið virka daga kl. 10.00–18.00 og laugardaga kl. 11.30–15.00
BÍLALIND.is - Funahöfða 1 - 110 Reykjavík - S: 580-8900
LAND ROVER RANGE ROVER SPORT
SE DISEL 09/2006, ekinn 104 Þ.km,
dísel, sjálfskiptur, 20“ felgur, skjárinn
ofl. Verð 5.990.000. Raðnr. 322117 -
Jeppinn er í salnum!
HYUNDAI TUCSON 4X4 LUX
10/2007, ekinn 88 Þ.KM, bensín, sjálf-
skiptur, leður, vindskeið, filmur ofl.
Verð 2.490.000. Rnr.321992
- Jepplingurinn er á staðnum!
FORD F150 SUPER CAB HARLEY-
DAVIDSSON 4WD 02/2006, ekinn 76
Þ.km, sjálfskiptur, leður ofl. Mjög flott
eintak! Verð 3.330.000. Raðnr. 284091
- Pikkinn er á staðnum!
BMW 530D
12/2003, ekinn 241 Þ.km, dísel,
sjálfskiptur, leður, nýtt lakk. Verð
3.390.000. Raðnr. 282173 - Sá þýski er
á staðnum!
AUDI A4 SEDAN 1,8T S-LINE
10/2007, ekinn 56 Þ.km, sjálfskiptur,
leður ofl. Verð 3.990.000. Raðnr.118051
- Bíllinn er á staðnum!
TOYOTA LAND CRUISER 120
VX 12/2005, ekinn 111 Þ.km, dísel,
sjálfskiptur, vindskeið, filmur ofl.
Tilboðsverð 4.590.000. Raðnr.250041
-Jeppinn fallegi er á staðnum!
VW TOUAREG V6 01/2006, ekinn
aðeins 66 Þ.km, sjálfskiptur, leður,
lúga ofl. Verð 3.490.000. Raðnr. 250105
- Jeppinn er á staðnum!
MMC PAJERO DID 3.2 38“
breyttur Árgerð 2004, ekinn 177 Þ.km,
dísel, sjálfskiptur. Verð 4.390.000.
Raðnr.118312 - Jeppinn stóri er á
staðnum!
TOYOTA HILUX DOUBLE CAB D/C,
SR 35“ 02/2008, ekinn 38 Þ.km, 3,0l dí-
sel, sjálfskiptur. Verð 5.390.000. Raðnr.
282006 - Pallbíllinn er á staðnum!
KAWASAKI VN900 CUSTOM SPECIAL
EDITION 04/2010, ekið 4 Þ.km,
lítur út sem nýtt! Verð 1.350.000.
Raðnr.284281 - Hjólið er í salnum!
FORD MUSTANG Árgerð 1965, V8
289cc, sjálfskiptur. Raðnr. 282066
- Sá flotti er í salnum!
FORD EXPLORER LTD 4X4 Árgerð
2006, ekinn 86 Þ.km, sjálfskiptur,
leður ofl. Verð 3.390.000 Tilboðsverð
2.790.000. Raðnr.283890
- Jeppinn er á staðnum!
Tek að mér
Hreinsa þakrennur, laga riðbletti á
þökum, gluggaþvottur, hreinsa lóðir
og tek að mér ýmiss smærri verkefni.
Upplýsingar í síma 847-8704 eða á
manninn@hotmail.com
Funahöfða 1, 110 Reykjavík
S. 567 4840 www.hofdahollin.is
Minkapels
til sölu, ný yfirfarinn
Upplýsingar í síma: 898-2993
Beinteinn.
Gerum tilboð í alla flutninga. Frysti-
vagnar, malarvagnar, flatvagnar, gröfur
,kranabílar." Silfri ehf - s: 894-9690
Rapp í stað uppistands
Nadia Segist vera komin í tónlist
af fullri alvöru. Þess vegna þurfi
íslenska rappsenan að taka hana
alvarlega.
Frumsýning á
Town of Runners
n Kjarnakonan Kristín Ólafsdóttir mætti með góðum vinkonum
R
eykjavík Shorts & Docs
og UN Women á Ís-
landi kynntu heim-
ildarmyndina Town
of Runners eftir Jerry
Rothwell á sunnudag á kvik-
myndahátíðinni Reykjavík
Shorts & Docs. Myndin fjallar
um þrjá efnilega langhlaup-
ara í smábænum Bekoji í Eþí-
ópíu en þar eru ekki ýkja mörg
tækifæri sem bíða unga fólks-
ins önnur en að gerast lang-
hlauparar. Unga fólkið vill
feta í fótspor þeirra fjölmörgu
langhlaupara sem ólust upp
í bænum og eru nú meðal
bestu hlaupara heims. Á síð-
ustu 20 árum hefur afreksfólk
frá Bekoji unnið til átta gull-
verðlauna á ólympíuleikum,
32 heimsmeistaratitla og sleg-
ið tíu heimsmet. Árangurinn
er ekki síst að þakka hlaupa-
þjálfaranum Sentayehu Es-
hetu sem hefur þjálfað margan
heimsmeistarann í langhlaup-
um til fjölda ára.
UN Women á Íslandi stóð
fyrir móttöku áður en sýning
hófst. Þangað mættu góðir
gestir og meðal annars Krist-
ín Ólafsdóttir, framleiðandi
myndarinnar Town of Run-
ners.
Gestir og
aðstandendur
Dana Rún og
Brynja Dögg
Friðriksdóttir,
einn aðstandenda
hátíðarinnar.
MyNdir Hörður SveiNSSoN
Bíógestir Róbert, Þrúður og Linda.
Í boði uN Women Hrund,
Sigurjón og Regína.
Framleiðandi og virtur leikstjóri Kristín
Vigdís og Jerry Rothwell, leikstjóri Town of
Runners.
Kjarnakona í kvik-
myndagerð Kristín Ólafs-
dóttir er virtur framleiðandi
og samstarf hennar með
Jerry Rothwell vekur athygli
á heimsvísu.
Fagrar fjölmiðlakonur
Erla Tryggvadóttir og Helga
Arnardóttir.