Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2012, Blaðsíða 29
L
ady Gaga trúir ekki á skilnaði. Ef
hún giftir sig mun það endast til
æviloka. Þetta fullyrti hún í við-
tali hjá Amöndu De Cadenet í
síðustu viku.
„Amma mín var gift afa í 60 ár.
Foreldrar mínir eru ennþá saman
eftir 30 ára hjónaband. Svo skilnaður
kemur ekki til greina fyrir mig. Þann-
ig er það bara. Ég ætla að gifta mig og
láta það duga. Hann mun sitja uppi
með mig,“ sagði söngkonan sem ný-
lega hætti með kærasta sínum og er
því ekki með neinn ákveðinn mann í
huga til að giftast.
Hún sagði foreldra sína hafa fylgst
að í gegnum súrt og sætt og þannig
vill hún hafa það hjá sér líka. „Mig
langar til að finna mann sem er sömu
skoðunar og ég. Einhvern sem er til-
búinn að fylgja mér í gegnum allt líf-
ið, jafnvel þótt það verði mjög erfitt
á köflum.“
Fólk 29Miðvikudagur 9. maí 2012
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
+
Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is
OXYTARM
Sól og
heilsa ehf
30
=
Losnið við hættulega
kviðfitu og komið maganum
í lag með því að nota náttúrulyfin
Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur
days
detox
Trúir á hjónabandið Lady Gaga vill finna
mann sem hefur ekki trú á skilnaði líkt og
hún.
Trúir ekki á skilnaði
D
ustin Hoffman er kominn í
hóp frægra sem hafa bjarg-
að lífi. Dustin var á gangi í
Hyde Park í London þegar
hann varð vitni að því þeg-
ar skokkari hrasaði féll með froðu í
munnvikunum. Hann hringdi strax
á sjúkrabíl og kom skokkaranum til
aðstoðar með hjartahnoði meðan
hann beið eftir frekari hjálp.
Skokkarinn var með lífsmarki
þegar sjúkrabíll kom á vettvang og
er afar þakkláttur stjörnunni. „Ég
er þakklátur Dustin Hoffman, hann
bjargaði lífi mínu,“ sagði hann við
dagblaðið The Sun í Bretlandi.
Með krafta í kögglunum Dustin
Hoffman er gæðablóð og notaði kraft-
ana til að bjarga skokkara í lífshættu.
Bjargaði
skokkara
N
uddari nokkur sakar John
Travolta um kynferðislega
áreitni og krefst tveggja
milljóna dollara í miska-
bætur. Nuddarinn, sem er
kallaður John Doe í fjölmiðlum
vestanhafs, segir leikarann hafa
berað sig og káfað á sér. Talsmað-
ur Travolta segir ásakanirnar ekki
eiga við rök að styðjast. „Þessi
kæra er algjör þvæla og uppspuni
frá grunni. Ekkert af þessu gerð-
ist. John var ekki einu sinni í Kali-
forníu þegar atvikið á að hafa átt
sér stað. Við getum sannað að
hann var á austurströndinni. Við
munum kæra viðkomandi fyrir
meiðyrði,“ kemur fram í fréttatil-
kynningu sem talsmaður leikar-
ans sendi frá sér.
n Nuddari segir John Travolta hafa káfað á sér
Sakaður um
kynferðiS-
lega áreitni Í klandri John Travolta segist ekki hafa verið á þeim stað sem atvikið á að hafa gerst.
Lost-stjarna í vanda
n Matthew Fox tekinn fyrir ölvunarakstur
L
eikarinn Matthew Fox var hand-
tekinn á föstudaginn vegna ölvun-
araksturs. Lost-stjarnan, sem er 45
ára, var að stoppa við skyndibita-
stað þegar lögreglan lét hann blása.
Fox, sem var með farþega með sér í bíln-
um, var undir eins færður á lögreglustöð.
Honum var svo sleppt síðar sama dag.
Leikarinn býr nú í Oregon en þetta er ekki
í fyrsta skiptið sem hann fer á svig við lög
og reglur. Í haust var hann sakaður um lík-
amsrárás þegar rútubílstjóri í Cleveland
sagði leikarann hafa ráðist á sig með kjafti
og klóm. Leikarinn var einnig undir áhrif-
um áfengis í það skiptið. Talsmaður Matt-
hews vildi ekki tjá sig um atvikið þegar
tímaritið People leitaði til hans.
Týndir Engir voru heitari en aðalleikararnir í Lost þegar þáttaserían var sem
vinsælust.
Tekinn fullur
Matthew Fox hefur
tvisvar á stuttum tíma
lent í vandræðum
vegna drykkju.
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
www.birkiaska.is
Bodyflex Strong vinnur gegn stirðleika
og verkjum í liðamótum og styrkir
heilbrigði burðarvefja líkamans.
2 hylki tvisvar á dag í tíu daga. Síðan er hægt
að minnka skammt í 2 hylki á dag. Inniheldur
hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni.
Bodyflex
Strong
Tökum að okkur alla
almenna garðaþjónusTu
upplýsingar hjá hlyni í síma 777 9543
láTTu okkur sjá
um vorverkin í
garðinum þínum