Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2012, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2012, Side 8
8 Fréttir 18.–20. maí 2012 Helgarblað Leigubílstjóri með óra dæmdur n Framdi skyndilegt kynferðisbrot á Austurvelli eftir að hafa lent í tjóni með bílinn sinn H æstiréttur dæmdi á miðviku­ dag leigubílstjórann Ólaf Guðmundsson í átján mán­ aða óskilorðsbundið fang­ elsi fyrir nauðgun konu á Austur­ velli þann 3. maí í fyrra. Ólafur, sem fæddur er árið 1981, þarf einnig að greiða konunni 700 þúsund krónur í skaðabætur. Staðfesti Hæstiréttur þar með dóm Héraðsdóms Reykja­ víkur frá því í september í fyrra. Mál­ ið vakti gríðarlega athygli þegar það kom upp enda þykir það sérstakt. Þannig var mál með vexti að kon­ an var stödd ásamt vinafólki á Aust­ urvelli þegar hún ákvað að kasta af sér vatni. Ólafur sem var að vinna við leigubílaakstur þessa nóttina kom skyndilega aftan að konunni meðan hún var að pissa og stakk fyrirvara­ laust tveimur fingrum sínum inn í endaþarm hennar. Konan hrökk skiljanlega við og spurði hvað Ólafi gengi til sem hún sagði hafa hlaup­ ið hlæjandi á brott, látið sig hverfa upp í leigubílinn sinn og ekið af vett­ vangi. Ólafur neitaði ávallt að um hefði verið að ræða nauðgun, en játaði að hafa veist að konunni. Kvaðst hann hafa verið að fá útrás fyrir reiði og kynferðislega óra þegar hann réðst á konuna. Fram kom í dómi hér­ aðsdóms á sínum tíma í skýrslu sál­ fræðings að Ólafur hafi þegar brot hans átti sér stað átt við fjárhags­ vanda að stríða og að hann hefði snöggreiðst við að tjóna bílinn sinn. Í skýrslu sálfræðingsins kom einn­ ig fram að Ólafur hafi um nokkurt skeið haft óeðlilega kynferðislega „fantasíu sem hafi tengst hugsunum um konur sem hefðu þvaglát og hafi sú ímynd örvað hann kynferðislega.“ Sálfræðingurinn tók einnig fram að Ólafur ætlaði að gangast undir meðferð vegna þessara tilfinninga og hegðunar. Bæði héraðsdómur og Hæstirétt­ ur töldu að háttsemi mannsins teld­ ist vera kynferðismök í skilningi al­ mennra hegningarlaga og sakfelldu hann fyrir nauðgun. Kaupir laugina og íþróttahúsið E nn leikur vafi á rekstrarhæfi sveitarfélagsins Álftaness þrátt fyrir að fjárhagstaða þess hafi skánað nokkuð á milli ára. Í fyrsta skipti frá ís­ lenska bankahruninu árið 2008 dugðu tekjur sveitarfélagsins fyrir útgjöldum. Skuldir Álftaness nema nú rösklega 5,7 milljörðum króna en þær má meðal annars rekja til byggingar glæsilegrar sundlaugar og íþróttahúss fyrir hrunið. Þetta kemur fram í ársreikningi sveitarfélagsins sem undirritaður var í bæjarstjórn þann 14. maí síðastliðinn. Bæjarstjóri Álftaness, Pálmi Þór Másson, er bjartsýnn á framtíð bæj­ arins í ljósi þess að nýverið var lokið við fjárhagslega endurskipulagningu hans með samningum við Eignar­ haldsfélagið Fasteign. Endurskipu­ lagningin felur meðal annars í sér að bærinn kaupir sundlaugina og íþróttahúsið í bænum af fasteigna­ félaginu. Staða Álftaness í ársreikn­ ingnum er hins vegar dökk. Fjárhaldsstjórn stýrir sjóðnum Í skýrslu endurskoðanda bæjarins, Grant Thornton, er lýsing á stöðu sveitarfélagsins þar sem gerður er fyrirvari við álit endurskoðandans á reikningnum. Orðrétt segir þar: „Eins og fram kemur í skýrslu stjórnar og skýringu 38 í ársreikningi sveitar­ félagsins á sveitarfélagið í miklum greiðsluerfiðleikum. Bæjastjórn Álfta­ ness sendi Eftirlitsnefnd með fjár­ málum sveitarfélaga (EFS) tilkynn­ ingu, í nóvember 2009, þess efnis að sveitarfélagið væri komið í fjárþröng og að bæjarstjórn teldi sér eigi unnt að standa í skilum. Að tillögu EFS skipaði ráðherra sveitarfélaginu fjár­ haldsstjórn þann 8. febrúar 2010 með skipunartíma til 1. ágúst 2010. Fjár­ haldsstjórn er nú skipuð til 2. júlí 2012. Fjárhaldsstjórn tók við stjórn fjármála sveitarfélagsins og er bæjarstjórn óheimilt að inna greiðslur af hendi úr bæjarsjóði án samþykkis hennar. Því ríkir veruleg óvissa um áframhaldandi rekstrarhæfi sveitarfélagsins.“ Samkvæmt vinnureglum fjárhalds­ stjórnarinnar sem eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga skipaði, má bæjarstjórn Álftaness ekki nota fjár­ muni bæjarins nema með samþykki hennar. Álftanesbær þarf að sýna fram á hallalausan rekstur eigi síðar en á næsta ári samkvæmt tilmælum eftir­ litsnefndarinnar. Endurskipulagningu lauk ekki Álftanes tapaði rúmlega 400 milljón­ um króna í fyrra en samkvæmt fjár­ hagsáætlun sem gerð var fyrir árið í fyrra var gert ráð fyrir rekstraraf­ gangi upp á 1.380 milljónir króna af rekstri sveitarfélagsins. Eigið fé sveit­ arfélagsins var neikvætt um ríflega 1.650 milljónir í lok árs í fyrra. Rekstr­ arniðurstaða bæjarins var hins vegar jákvæð fyrir fjármagnsgjöld upp á nærri 217 milljónir króna. Rekstraráætlun bæjarins gerði ráð fyrir því að fjárhagslegri endur­ skipulagningu bæjarins lyki í fyrra en í ársreikningnum kemur fram að þetta hafi ekki tekist. Viðsnúningur­ inn í rekstraráætlun bæjarins byggði á því að þessi áætlun væri raunhæf. „Í fjárhagsáætlun fjárhaldsstjórnar fyrir árið 2011 var gert ráð fyrir að fjárhagslegri endurskipulagningu lyki fyrir árslok 2011. Nú liggur fyrir að það tókst ekki.“ Miðað við fjár­ hagsáætlunina áttu skuldir Álftaness að lækka úr 5,7 milljörðum króna niður í 3,3 milljarða og eigið fé bæj­ arins átti að fara frá því að vera nei­ kvætt um 1.600 milljónir og niður í að vera jákvætt um ríflega 215 millj­ ónir króna. Metur stöðuna góða Pálmi Þór segir að það sem hafi gerst frá reikningsskiladegi, í lok síðasta árs, sé að bærinn hafi náð samkomulagi við Eignarhaldsfélag­ ið Fasteign, eiganda sundlaugar­ innar og íþróttahússins sem byggð voru í bænum. „Það voru nokkr­ ir samningar sem við náðum ekki að klára, sérstaklega samningur­ inn við Eignarhaldsfélagið Fast­ eign. Við vorum hins vegar að ljúka samningi við Eignarhaldsfélagið Fasteign, líkt og kemur fram í bók­ un frá nýliðnum bæjarstjórnar­ fundi. Samningurinn við Fasteign markar endalokin á fjárhagslegri endurskipulagningu bæjarins.“ Pálmi segist meta stöðu Álfta­ ness sem góða. „Reksturinn er í góðu standi hjá okkur og við vorum að klára þessa fjárhagslegu endurskipu­ lagningu. Við erum bara að einbeita okkur að því að halda áfram viðræð­ um við Garðabæ um sameiningu sveitarfélaganna. Vonandi geta íbú­ arnir kosið um sameininguna síðar á þessu ári.“ Bæjarstjórinn segir að í samn­ ingnum við Fasteign felist að Álfta­ nes kaupi sundlaugina í bænum og íþróttahúsið, sem og lóðirnar undir eignunum, af fasteignafélaginu fyrir rúmlega 1.300 milljónir króna. Pálmi Þór segir að bærinn hafi tryggt sér fjármögnun fyrir kaupunum. „Við förum út úr Fasteign og kaupum þessar eignir. Fjármagnið er tryggt í allan pakkann hjá okkur. Bæði með nýju fjármagni og með endurskipu­ lagningu á eldri skuldum. Við kom­ um til með að fá lánsfé frá Lána­ sjóði sveitarfélaga til að fjármagna verkefnið. Tillögur fjárhaldsstjórnar sveitarfélagsins eru því allar að ganga eftir þó þetta hafi tekið tíma hjá okkur.“ n Endurskipulagningu Álftaness lokið n Óvissa um rekstrarhæfi Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Þungar framkvæmdir Álftanesbær byggði glæsilega sundlaug og íþróttahús í bænum fyrir hrunið 2008. Samkomulag við Eignarhalds- félagið Fasteign gerir ráð fyrir að bærinn kaupi eignir af því á rösklega 1.300 milljónir króna. Bjartsýnn Pálmi Þór Másson, bæjarstjóri Álftaness, er bjartsýnn á stöðu bæjarins í ljósi þess að fjárhagslegri endurkipulagn- ingu hans er lokið. „Því ríkir veruleg óvissa um áfram- haldandi rekstrarhæfi sveitarfélagsins. Átján mánaða dómur Dómur yfir Ólafi Guðmundssyni var staðfestur í Hæstarétti á miðvikudag. Mynd: dV/SViðSEtt Sigurður greiði hálfan milljarð Sigurði Einarssyni, fyrrverandi stjórnarformanni Kaupþings, er gert að greiða 550 milljónir af 5,5 milljarða láni frá Kaupþingi. Það var Héraðsdómur Reykjavíkur sem komst að þessari niðurstöðu á miðvikudag eftir að þrotabú Kaupþings hafði höfðað riftunar­ mál á hendur Sigurði vegna láns sem hann fékk í stjórnartíð sinni hjá bankanum á árunum fyrir hrun. Lánið, sem Sigurður notaði til að kaupa hlutafé í bankanum, nam 5,5 milljörðum króna en hann bar ábyrgð á tíu prósentum lánsins. Stuttu eftir hrun ákvað stjórn bankans að fella niður ábyrgðir á hlutabréfalánum til starfsmanna og æðstu stjórnenda bankans en þrotabúið ákvað að ógilda þá ákvörðun. Hvorki Sig­ urður né lögmaður hans voru við­ staddir dómsuppkvaðninguna. Í síðustu viku féll dómur í Hér­ aðsdómi Reykjavíkur þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að þrotabúi bankans væri heimilt að snúa við ákvörðun um að fella niður ábyrgðir á lánunum. Nammigrísir gripnir Tveir nammigrísir voru hand­ teknir í miðborg Reykjavíkur á þriðjudag en þeir stálu sælgæti úr ónefndri verslun. Eftir að þjófarnir höfðu stungið sælgætinu inn á sig mættu þeir lögreglunni nánast við inngang verslunarinnar. Hinir síðarnefndu voru óeinkennis­ klæddir en þeir þekktu annan mannanna vegna fyrri afskipta og sáu jafnframt að viðkomandi var með eitthvað innan klæða. Sá hinn sami á það til að vera ansi fingralangur, eins og stundum er sagt og virðist eiga erfitt með að láta af þessari iðju. Sælgætinu var skilað óskemmdu aftur til kaup­ mannsins. Kjallara breytt í kannabisrækt Lögreglan á höfuðborgarsvæð­ inu stöðvaði kannabisrækt í húsi í Garðabæ um miðjan dag á þriðjudag. Við húsleit var lagt hald nokkra tugi kannabis­ plantna auk lítilræðis af öðrum fíkniefnum. Ræktunin var vel falin í kjallara hússins í rými sem var sérstaklega útbúið fyrir þessa starfsemi.  

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.