Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2012, Blaðsíða 14
14 Fréttir 18.–20. maí 2012 Helgarblað
Rekinn úr Hells Angels
n Beitti þrettán ára dreng kynferðislegu ofbeldi um borð í bát
M
eðlimur Hells Angels á Ís-
landi var kosinn út úr sam-
tökunum í nóvember á síð-
asta ári vegna dóms sem
hann hlaut í kynferðisbrotamáli þar
sem hann í félagi við aðra áreitti 13
ára dreng um borð í skipi. Maður-
inn var kosinn út í „bad standing“,
en meðlimir Hells Angels eiga það
á hættu að vera kosnir út í „bad
standing“ og eru þar með reknir úr
samtökunum. Þetta kemur fram í
skýrslu sem starfshópur innan lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu
og á Suðurnesjum setti saman, en
DV hefur skýrsluna undir höndum
og nánari umfjöllun um hana má
finna í þessu blaði.
DV greindi frá kynferðisbrota-
málinu í nóvember í fyrra, en mað-
urinn var rekinn úr samtökunum
stuttu eftir að dómurinn féll í sama
mánuði. Það var á skipinu Erling
KE 140 sem fjórir skipverjar nídd-
ust á þrettán ára dreng í júlí 2010.
Tveir ákærðu voru dæmdir í 45
daga fangelsi skilorðsbundið til
tveggja ára, sá þriðji í 60 daga, skil-
orðsbundið til tveggja ára, og sá
fjórði hlaut þriggja mánaða fangelsi
einnig skilorðsbundið til tveggja
ára.
Drengurinn hafði fengið að fara
á sjó með föður sínum og var alls í
tíu daga á meðal áhafnarinnar en
fjórir meðlimir hennar niðurlægðu
hann andlega og líkamlega og hót-
uðu meðal annars að nauðga hon-
um. Mennirnir voru ákærðir fyrir
að hafa beitt drenginn kynferðis-
legri áreitni með lostugu athæfi og
þannig sært blygðunarkennd hans.
Fyrir dómi vildu mennirnir meina
að um létt grín hafi verið að ræða.
Sálfræðingur sem bar vitni fyrir
dómi sagði að drengurinn hafi ver-
ið mjög hræddur og stöðugt þurft
að vera á varðbergi og viðbúinn
hverju sem var. Hann hafi upp-
lifað algert hjálparleysi þar sem
hann hafi ekki ráðið líkamlega við
skipverjana og verið hættur að bú-
ast við því að einhver kæmi honum
til bjargar þar sem þeir hefðu allir
brugðist honum að því leyti. Það
hafi verið særandi og erfiður lær-
dómur fyrir drenginn, að engum
væri treystandi.
F
riðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri Landssam-
bands íslenskra útvegs-
manna, ætlar ekki að verða
við áskorun hagfræðingsins
Ólafs Arnarsonar um að mæta í Hér-
aðsdóm Reykjaness og veita skýr-
ingar á tilteknum atriðum í kringum
stefnu Friðriks gegn Ólafi. Eins og
greint hefur verið frá stefndi Friðrik
Ólafi vegna ummæla hans á blogg-
síðu sinni á vef Pressunnar. Sagði
Ólafur Friðrik bera ábyrgð á skrifum
á vefsíðunni AMX.is.
Lögmaður Ólafs, Gunnar Ingi Jó-
hannsson, segir lögmann Friðriks
hafa tjáð sér að Friðrik myndi ekki
verða viðstaddur aðalmeðferðina
þann 27. september næstkomandi
þrátt fyrir kröfu Ólafs um það.
Sér ekki tilganginn
Ástæða Friðriks fyrir að vera ekki
viðstaddur aðalmeðferðina er sú að
hann sér ekki hvaða tilgangi skýrsla
hans myndi þjóna, að sögn Gunnars
Inga. Ekki er þó útséð um hvort Frið-
rik verði viðstaddur að sögn Gunnars
Inga en hann mun halda þeirri kröfu
til streitu að Friðrik verði viðstaddur
aðalmeðferðina. „Við látum reyna á
þetta ákvæði í einkamálalögum að
eftir kröfu gagnaðila sé dómara rétt
að kveðja aðila fyrir dóm til að gefa
skýrslu. Ef dómarinn telur skýrsluna
sýnilega þarflausa eða tilgangslausa
þá gerir hann það ekki. Við munum
fara fram á að dómarinn kveðji hann
fyrir dóm,“ segir Gunnar Ingi.
Sagði Friðrik bera
ábyrgð á ósóma
Pistlarnir voru ritaðir 24. júlí árið
2010 og 26. júlí ári síðar. Í pistlunum
sagði Ólafur LÍÚ, undir stjórn Frið-
riks, bera ábyrgð á því sem væri rit-
að í skjóli nafnleyndar á vefsíðunni
AMX.
Ummælin sem Friðrik vill að
dæmd verði ómerk eru: „LÍÚ, und-
ir stjórn Friðriks Arngrímssonar,
situr uppi með það að bera ábyrgð
á ósómanum, sem birtur er í skjóli
nafnleyndar á slefritinu AMX“,
„Treystir Friðrik sér til að þvertaka
fyrir, að LÍÚ greiði næstum 20 millj-
ónir á ári (1,5 milljónir á mánuði) til
aðstandenda AMX slefsíðunnar eða
félaga á þeirra vegum?“, „Svo er það
spurning, hvort sómakærir forráða-
menn aðildarfyrirtækja LÍÚ sætta
sig við að fjármunum samtakanna sé
komið eftir krókaleiðum til slefbera
eins og aðstandenda AMX.is?“
Þessi ummæli birtust í pistlinum
„Getur Friðrik ekki betur“ en Frið-
rik vill líka að ummæli Ólafs úr pistli
hans sem nefnist „AMX gungurnar“
verði dæmd ómerk. Þau eru: „LÍÚ
ku styðja AMX vefinn um næstum
20 milljónir á ári í gegnum félög í
eigu Friðbjörns Orra Ketilssonar.“
„Mér er kunnugt um, að einhverjir
stjórnarmenn LÍÚ vita ekki af stuðn-
ingnum við fugladritið á AMX enda
munu greiðslurnar vera vel dulbún-
ar í reikningum samtakanna.“ og
„Því hefur verið haldið fram við mig
að mögulega viti enginn í stjórn LÍÚ
um milljóna stuðning samtakanna
við nafnlaus níðskrif á AMX –
að framkvæmdastjórinn hafi
einn ákveðið að nota fjár-
muni samtakanna með
þessum hætti.“
Baðst afsökunar
Friðrik vill einnig að Ólafur
borgi fyrir birtingu dóms-
ins í fjölmiðlum sem og fá
eina milljón króna í skaða-
bætur frá honum. Ólafur
hefur þegar beðist afsök-
unar á ummælunum en vill
ekki draga þau til
baka sökum
þess að þau
hafa verið
birt. Ólafur
baðst afsökunar í grein sem hann
birti á bloggsíðu sinni á vefmiðlinum
Pressunni í september í fyrra en þar
sagði hann Friðrik deila sömu skoð-
unum og hann á AMX.is. „Þegar ég
skoðaði bréf lögmannsins í sam-
hengi við pistlana, sem Frið-
rik kveinkar sér undan,
rann upp fyrir mér ljós.
Friðrik J. Arngrímsson
deilir skoðun minni
á viðbjóðsvefnum
AMX. Honum býð-
ur bersýnilega við
vefnum og þeim
skrifum, sem þar
eru birt,“ skrifaði
Ólafur.
Friðrik steFnir
en vill ekki mæta
n Ólafur Arnarson gerir kröfu um að Friðrik J. Arngrímsson mæti fyrir dóm
„Við munum
fara fram á
að dómarinn kveðji
hann fyrir dóm
Birgir Olgeirsson
blaðamaður skrifar birgir@dv.is
Vill Friðrik fyrir dóm Ólafur Arnarson hefur krafist þess að Friðrik
verði viðstaddur aðalmeðferð gegn sér.
Sér ekki tilganginn
Friðrik Arngrímsson,
framkvæmdastjóri LÍÚ,
sér ekki að skýrsla hans
við aðalmeðferð þjóni
einhverjum tilgangi.
Forstjóri hafnar
ásökun um fals
Forstjóri Deloitte hafnar algjör-
lega ásökunum um meint fals og
blekkingar í greinargerð sem end-
urskoðunarfyrirtækið gerði um
afleiðingar veiðigjalds á útgerðir
landsins. Stendur fyrirtækið að
fullu við það sem þar kemur fram.
Því var haldið fram í Fréttablaðinu
á miðvikudag að sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðuneytið teldi
Deloitte vísvitandi falsa tölur í
greinargerð um áhrif veiðigjalds á
útgerðir landsins samkvæmt nýju
frumvarpi til fiskveiða. Telur ráðu-
neytið ekkert að marka greinar-
gerðina sem send var atvinnu-
veganefnd Alþingis enda taki sú
greining meira mið af því sem
henta þyki en raunverulegri grein-
ingu á afkomu og arðsemi fisk-
veiða.
Segir ráðuneytið að í skýrslu
Deloitte sé bæði afskriftaþörf og
fjármagnskostnaður útgerða afar
ofmetinn enda séu rangar for-
sendur að baki þeim útreikn-
ingum. Greining Deloitte sé því
marklaus með öllu.
Þessu hafnar Þorvarður Gunn-
arsson forstjóri í samtali við DV
og segir fyrirtækið standa að fullu
við sína útreikninga. Segir hann
fráleitt að halda fram að fyrirtækið
sé að falsa tölur eins og haldið sé
fram í Fréttablaðinu.
„Þegar maður les greinargerð
ráðuneytisins sé ég ekki að það sé
sagt í henni. Þetta er líklega mat
blaðamannsins sjálfs. En auðvitað
er ágreiningur um þessi mál og
þeir eru nátturulega að reyna að
draga úr trúverðugleika þeirra
sem standa á móti þeim í þessu.
Þeir gera það með þessum hætti.
En vissulega kemur fram gagn-
rýni á okkur í skýrslu ráðuneytis-
ins. Við höfnum þeirri gagnrýni
alfarið en við munum fara betur
yfir einstaka liði hennar og svara
því skilmerkilega sem þar er gagn-
rýnt. En ég vil líka benda á að þeir
sérfræðingar sem atvinnuvega-
nefnd kallaði sér til ráðgjafar þeir
gefa þessu frumvarpi algjöra fall-
einkunn. Ég held að það væri gott
að skoða þá skýrslu og reyna að
koma þessari umræðu upp á al-
vöru stig staðreynda í stað þess að
drulla yfir þá sem með einhverj-
um hætti eru ekki sammála ráð-
herranum.“
„Bad standing“ Maðurinn
var rekinn úr Hells Angels í
nóvember síðastliðnum.
Semja fyrst,
kjósa svo
Þingflokksformaður Samfylkingar-
innar, Magnús Orri Schram, segir
að það þjóni hagsmunum Íslands
best að ljúka að-
ildarviðræðum við
Evrópusamband-
ið, og leyfa þjóð-
inni svo að kjósa
um samninginn.
Hann tekur ekki
undir hugmyndir
samflokksmanns síns, Árna Páls
Árnasonar, um að leyfa þjóðinni
að kjósa um áframhaldandi við-
ræður. Árni Páll sagði í ræðu á
fundi Samtaka atvinnulífsins á
miðvikudag, að besta leiðin til að
afnema gjaldeyrishöftin væri að
ganga í Evrópusambandið. Hann
sagði hins vegar að andstaða við
inngöngu í sambandið tefji málið
og að til greina komi að þjóðin
kjósi um hvort halda eigi aðildar-
viðræðum áfram. Magnús Orri er
ósammála þessari hugmynd Árna
Páls og segir í samtali við RÚV að
það sé hans skoðun að það þjóni
hagsmunum Íslands best að ljúka
ferlinu og leyfa þá þjóðinni að
taka afstöðu til samnings.