Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2012, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2012, Blaðsíða 38
38 Viðtal 18.–20. maí 2012 Helgarblað vini mínum Friðþjófi Helgasyni. Það er til allt þetta ómetanlega efni sem aldrei verður hægt að taka aftur og ég þarf bara að klára að skrifa handritið. Ég bara bið guð um að gefa mér tíma til að skrifa þetta handrit og skilja þetta eftir og þá verð ég rólegri.“ Ómar telur þó að önnur verkefni sem hann er með í pípunum þar sem hann er að reyna að forða öðrum svæðum frá því að verða sömu ör- lögum að bráð séu mikilvægari þessa stundina. „En ég veit hins vegar að þegar fólk sér hvað það gerði við þetta svæði þá mun það hugsanlega fara varlega úr því það fór svona fyrir svæðinu og við vissum það aldrei til fulls, eða forðuðumst að vita það.“ Í tímahraki með tónlistina En það eru ekki einungis kvikmyndir sem Ómar er að dunda sér við, hann er kominn með mikið efni í ljós- myndabækur og telur líklegt að ljósmyndabók verði það næsta sem komi frá honum. Þá er hann alltaf að semja ný lög og texta, en það liggur betur fyrir honum en flestum öðrum. „Nú þarf ég að fara að velja því ég er alltaf að gera nýja texta og ný lög. Ég hefði átt að athuga miklu fyrr hvernig ég eyði tíma í þetta því svo mikið af því fer forgörðum af því ég hirði lítið um að geyma þetta. Og núna er ég allt í einu kominn á þann punkt að þegar ég hugsa að ég ætli að eyða tíma í nýtt lag hvort tímanum væri ekki betur varið í að finna tvö gömul sem annars glatast. Nú stend ég frammi fyrir þessu á hverjum degi. Þannig þetta er eitt af því sem ég er í tímahraki með. Það er að reyna að safna saman allri þessari tónlist, allt að tvöþúsund lögum og textum, og ákveða hvort ég endurlífga eitthvað eða læt það drepast og bý til eitt- hvað nýtt. Ég verða að gera einhverja blöndu því mér finnst svo gaman að gera nýja texta ef tími vinnst til.“ Aldrei auglýst, nema fyrir DAS Fyrst talið hefur borist að laga- og textasmíð Ómars þá leikur blaða- manni forvitni á að vita hvernig hafi verið að leika í auglýsingu fyrir happ- drætti DAS þar sem hann stýrir fríð- um flokki eldri borgara í söng lagsins Lax, lax, lax, en textanum hefur verið breytt í DAS, DAS, DAS. Þetta nýjasta verkefni Ómars vek- ur athygli fyrir þær sakir að um er að ræða fyrsta skipti á löngum ferli hans sem hann leikur í auglýsingu. Hann tók þá ákvörðun sem ung- ur skemmtikraftur á ferð um landið að taka ekki þátt í auglýsingagerð, nema ef um líknarmálefni væri að ræða. Það varð svo prinsipp hjá hon- um og þegar hann keppti í rallinu á sínum tíma reyndu hann og bróðir hans eins og þeir gátu að sleppa því að vera með auglýsingar á bílnum. Þeir fengu þó litlu um það ráðið og neyddust að lokum til að hafa aug- lýsingar á bílnum. „Þegar ég var ungur var ég mik- ill hugsjónamaður eins og ungt fólk á að vera. Ég áttaði mig á því að það væru takmörk fyrir því hvað maður ætti að ganga langt í að afla sér pen- inga, eða hvernig. Þótt ég færi að auglýsa vöru sem ég væri ánægður með sjálfur myndi ég samt lenda í ógöngum. Það er ástæðan fyrir því að ég hef aldrei auglýst bílmerki eða nokkurn skapaðan hlut. Hef bara hjálpað til við safnanir og skemmtanir. Loksins núna, 54 árum seinna, þá kemur allt í einu DAS og af því ég gerði textann við Lax, lax, lax þá báðu þeir mig um að gera þetta.“ Hann sagði forsvarsmönnum DAS frá prinsippinu sínu en sam- þykkti að taka þátt í auglýsingunni því um væri að ræða gott málefni. „Það er búið að vera mjög gam- an að þessu. Blessað fólkið sem var þarna þurfti að syngja þetta upp undir 100 sinnum í sjö klukkutíma. Allt þetta gamla fólk, það afrekaði að gera þetta með sama kraftinum og sömu ánægjunni allan tímann. Það var rosalega mikið fjör enda var mað- ur kominn mjög langt út á tún undir lokin við að halda þeim við efnið,“ segir Ómar og rekur upp roknahlát- urinn sem er einkennandi fyrir hann. „Héðan af tekur því ekki fyrir mig að brjóta þetta prinsipp,“ bætir hann við og hlær ennþá meira. Stjórnlagaráð stofnaði hljómsveit Prinsippmaðurinn Ómar er líka pólitískur, en ásamt íslenskri landa- fræði þá hafa stjórnmál verið hon- um hugleikin frá blautu barnsbeini. Hann hefur verið formaður Íslands- hreyfingarinnar og einn fulltrúa í stjórnlagaráði sem vann að frum- varpi um endurbætta stjórnarskrá. Hann segir það starf skemmtilegustu félagsvinnu sem hann hefur unnið og er mjög sáttur við útkomuna. „Það sem var svo gott við þetta var að það var útilokað að við hefð- um getað gert þetta nema af því við vorum með önnur vinnubrögð en hafa því miður tíðkast oftast í svona starfi á Íslandi.“ Hann segir stjórn- lagaráðsfulltrúana hafa stundað svo- kölluð „samhjálpar- eða samvinnu- stjórnmál“. „Í stað þess að reyna að eyðileggja hvert fyrir öðru þá vorum við að endur bæta rök hvert annars. Þetta er afar gefandi hugsun.“ Ómar segir mikla stemningu hafa myndast í hópnum. „Við sung- um á öllum fundum og vorum með skemmtanir fyrir okkur sjálf og bjuggum til hljómsveit. Þetta var svo mikið kynslóðabil sem var brúað að einn fulltrúinn fæddist í miðjum klíðum og við vorum því í raun 26 í lokin. Hann kom og var á síðasta fundinum, smyglaði sér inn,“ segir Ómar og rekur upp aðra hláturgusu. „Það var óskaplega góð stemning í hópnum,“ bætir hann við þegar hlátrinum sleppir. Það er greinilegt að hann hugsar til þessa tíma með gleði í hjarta. Gæti flogið á forsetafrúnni Það er við hæfi að spyrja pólitíkus- inn og stjórnmálaáhugamanninn út í það hvernig honum lítist á forseta- frambjóðendurna. Hann viðurkenn- ir að eiga eftir að kynna sér betur þá einstaklinga sem hafa boðið sig fram. „Forsetinn þarf að vera umboðs- maður fæddra jafnt sem ófæddra, því milljónir ófæddra Íslendinga eru nefnilega stærsti minnihlutahópur- inn á Íslandi. Forsetinn þarf einnig að hafa bæði hugrekki og auðmýkt. Hann eða hún þyrfti að hafa hug- rekki til að leiða okkur saman, ferðast með þjóðinni inn í nýjan veruleika þessa heims. Hann þarf að hafa hug- rekki til að segja okkur hvað er að gerast. Og hann verður að hafa auð- mýkt fyrir því sem er að koma, hafa auðmýkt fyrir því að við séum ansi smá en að við getum saman gert ansi stóra hluti. Það er það sem ég er að kalla eftir.“ Þá vonast Ómar til þess að stjórn- arskráin komist í framkvæmd og sá forseti sem verði kosinn í sumar geti seinni hluta kjörtímabilsins unnið eftir nýrri stjórnarskrá. En velti hann því ekkert fyrir sér af einhverri alvöru að bjóða sig fram sjálfur? Hann skellihlær að spurn- ingu blaðamanns, sem hlær honum til samlætis. Enda ekki hægt annað þegar Ómar byrjar að hlæja. „Ég hef oft í lífinu sagt að ef ég sjái eitthvert annað fólk sem getur gert eitthvert verk jafnvel og ég eða betur en ég held að ég geti gert það, þá vilji ég frekar reyna að leita að einhverju öðru þar sem ég get unnið eitthvert verk sem enginn annar vill vinna eða getur. Það var einhver umræða um þetta byrjun en ég veit að forsetaembættið er þess eðlis að það myndi verða svo krefjandi. Ég bara held ég hafi ekki tíma, og myndi þá vera stopp með allt það sem ég er að gera annað. Ég vil klára það sem ég er í. Ég hef bara gert grín að þessu,“ segir Ómar og sveiflar snjáðu vasadagbókinni sem hann hefur haft á milli handanna allt viðtalið. „Ég yrði eini forsetinn sem gæti flogið á forsetafrúnni um allt land og lent á heimreiðinni á Bessastöð- um með leyfi forseta. Það væri mjög „grand entrance“,“ segir Ómar og tek- ur bakföll af hlátri. Með því að fljúga forsetafrúnni á hann vissulega við flugvélina sína góðu sem ber ein- kennisstafina TF-FRU. „Ef ég hefði boðið mig fram í þetta embætti þá hefði ég viljað breyta embættinu að stórum hluta í tákn- rænt hlutverk í samræmi við naum- hyggjunautnina sem ég tel að þurfi að innleiða. Munum: „Smávinir fagr- ir …“ og „… gætið að liljum vallarins“.“ Lífið er eins og 400 metra hlaup Ómar sem telur sig ekki hafa tíma fyrir forsetaembættið gerir sér jafn- framt grein fyrir að á áttræðisaldri er hann kominn í tímahrak með mörg þau verkefni sem hann hefur verið að vinna að. Hann viðurkennir hreinskilinn að hann telji að sér end- ist ekki ævin til að ljúka þeim öllum. En hann sættir sig við það og er þakk- látur fyrir lífið. Ef hann nær að klára handritið að Örkinni, þá er hann sáttur. „Það var nú eitt af djókunum sem komu upp þegar ég var með DAS- fólkinu, að þegar maður er kominn á áttræðisaldur þá fattar maður allt í einu mikið spakmæli: þeim mun lengur sem maður lifir, því meiri líkur eru á að maður drepist,“ segir Ómar og rekur upp roknahlátur. „Og sömuleiðis: það er tvennt sem leng- ir lífið, það er hláturinn og afmæli. Því fleiri afmæli, því lengra líf. Við suðum þetta saman, ég og Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur.“ Blaða- maður skýtur inn í að hann hljóti nú verða 150 ára, að minnsta kosti. Enda hlátur mildur með eindæmum, eins og alþjóð veit. Auðvitað hlær hann að því en verður svo örlítið alvarlegri. „Eftir því sem maður lifir leng- ur þá verður maður að verða við- búnari því að fara og ég er nú bara í óða önn að því. Svo verður nú bara að ráðast hvernig fór,“ segir Ómar og setur lífið upp í áhugaverða mynd- líkingu. „Þetta er eins og að hlaupa inn í þoku 400 metra hlaup. Maður byrjar á einum stað og endar á sama stað eins og lífinu, – „af moldu ertu kominn, að moldu skaltu verða.“ Og í þokunni geta komið grindur og þú getur dottið og þú veist ekkert hve- nær hlaupinu lýkur nákvæmlega. Þú veist ekkert hvaða tíma þú færð fyrr en þú ert kominn í mark, og hvort hann var eitthvað betri eða lakari en tími annarra. Ég sé þetta svona,“ út- skýrir hann. Sér um síðasta uppistandið „Ég hljóp 400 metra hlaup hérna í gamla daga og ég hafði svo mikla nautn af því að enda aftur á sama stað og ég byrjaði. Og svo var það bara næsta 400 metra hlaup sem ég held að sé hugsanlega til í dæminu. Ekkert síður en hitt. Maður fer úr þessu 400 metra hlaupi í annað sem verður öðruvísi,“ segir Ómar sem úti- lokar ekki líf eftir dauðann. Hann verður fjarlægur á svip um stund og veltir snjáðu vasadagbókinni sinni á milli handanna. Svo tekur hann við sér á nýjan leik. „Ég er nýbúinn að syngja lag sem heitir „Þar ríkir fegurðin“ við lagið „The last farewell“ og ég ætla að syngja það yfir sjálfum mér. Það er tilbúið sko. Ég mun syngja þrjú lög yfir sjálfum mér þegar ég fer. Það verður fjörleg jarðarför,“ segir hann hlæjandi. „Þá segja menn: jarðarfarir eru alltaf „live“, en ég svara: neinei, af hverju skyldi hún vera „live“ úr því að „I‘m dead?““ Það er aldrei langt í grínið og hlát- urinn hjá honum þrátt fyrir að um- ræðan sé á alvarlegum nótum. Ómar er vel undirbúinn, það er ekki hægt að segja annað, og vill sjálfur fá að sjá um síðasta uppstand- ið. „Neinei, maður reynir bara að standa sig sæmilega það sem eftir er. Að hafa ánægju af hverjum degi sem guð gefur manni.“ Þrátt fyrir að Ómar geri sér grein fyrir þeirri staðreynd lífsins að það styttist í marklínuna í 400 metra hlaupinu hans, þá er hann enn í fullu fjöri, 72 ára, og segist aldrei hafa haft meira að gera. „Maður verður að njóta þess sem er að gerast, njóta hvers dags. Við fáum ekki nema einn dag í einu, og svo bara allt í einu ekki nema hálf- an,“ segir Ómar kíminn. Hann tek- ur í kjölfarið bakföll af hlátri og slær vasadagbókinni í borðið. Með því slær hann einnig lokatóninn í við- talinu. „Áður en við ætlum að vaða áfram í þessari ofurhyggjunautn okkar þá þurfum við að vita hvað við erum að gera gagnvart því sem framundan er. Þekkt andlit Þó að Ómar hefði hæglega getað haft ágætis aukatekjur af því að auglýsa ýmiss konar vörur og þjónustu í gegnum tíðina tók hann þá ákvörðun snemma að taka ekki þátt í auglýsingagerð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.