Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2012, Blaðsíða 55
Sport 55Helgarblað 18.–20. maí 2012
P
unkturinn yfir fína knatt-
spyrnuvertíð í Evrópu
þessa leiktíðina verður
settur á morgun þeg-
ar Bayern München
og Chelsea mætast í úrslita-
leik Meistaradeildar Evrópu.
Sé mark takandi á helstu veð-
bönkum, sem ákveða líkur byggðar
á hundruðum mismunandi breyta,
gæti leikurinn orðið stórkostlegur en
bæði lið eru almennt talin eiga svip-
aða möguleika.
Enn eru væntanlega einhverjir
knattspyrnuaðdáendur nokkuð súrir
yfir að spænsku stórliðin Barcelona
og Real Madrid mætist ekki í þessum
úrslitaleik eins og hefði getað orðið
en bæði féllu úr leik í undanúrslitum
og það að margra mati mjög óverð-
skuldað. En knattspyrna hefur aldrei
verið sanngjarn leikur enda líklega
töluvert leiðinlegri ef svo væri.
Lítið rokk en meira ról
Bæði Bayern og Chelsea enduðu
leiktíðina í heimalöndum sínum á
lakari nótum en kröfur voru gerðar til
af eigendum og aðdáendum. Bayern
endaði í öðru sæti þýsku deildarinn-
ar heilum átta stigum á eftir Borussia
Dortmund sem pakkaði þeirri deild
saman. Sjötta sætið fyrir Chelsea
telja aðdáendur hreint hörmulegt en
liðið hefur undanfarin ár verið með
Meistaradeildarsæti nokkuð í áskrift.
Chelsea tapaði alls tíu leikjum í
ensku deildinni þessa leiktíðina eða
fleirum en þeir hafa tapað síðan 2001.
Á móti kemur að liðið vann enska
bikarmeistaratitilinn. Bayern ógnaði
Dortmund lítið í síðustu umferðum
Bundesligunnar en þá er aðeins hálf
sagan sögð því tölfræði Bayern er að
mörgu leyti betri. Bayern fékk aðeins
á sig 22 mörk í 34 deildarleikjum.
Vörn Bayern hélt líka oftast hreinu
marki, alls 18 sinnum. Enn betri er
sagan sé aðeins litið til heimaleikja
Bayern, og úrslitaleikurinn fer fram í
München, en þar fékk liðið aðeins á
sig sjö mörk í 17 leikjum alls.
Terry eða ekki Terry
Stóra spurningin í hugum margra er
hversu mikil áhrif það mun hafa á
Bretana að vera án fyrirliðans John
Terry sem fékk glórulaust rautt spjald
í seinni undanúrslitaleiknum. Spek-
ingar eru almennt sammála að Terry
hafi ekki spilað sína bestu leiktíð í
vetur með Chelsea en hann er engu
að síður máttarstólpi í liði Chelsea
Sjö sem reyta hár sitt og skegg
Það er æði óheppilegt að geta ekki
spilað úrslitaleik í Meistaradeildinni
vegna meiðsla en ætli það sé ekki það
fúlasta af öllu fúlu að mega ekki spila
vegna gulra eða rauðra spjalda. Það
er raunin með alls sjö leikmenn. Þá
John Terry, Branislav Ivanovic, Raul
Meireles og Ramires hjá Chelsea og
þá Holger Badstuber, Luiz Gustavo
og David Alaba hjá þýska liðinu.
Vinningslíkurnar 50/50
Albert Örn Eyþórsson
blaðamaður skrifar
n Veðbankar geta ekki gert upp á milli liðanna n Fleiri veðja þó á sigur Chelsea í úrslitunum
Mörk
Bayern 25 / Chelsea 24
Skot á mark
Bayern 90 / Chelsea 78
Skot framhjá
Bayern 65 / Chelsea 83
Horn
Bayern 63 / Chelsea 51
Rangstöður
Bayern 16 /Chelsea 32
Leikbrot
Bayern 195 / Chelsea 157
Gul spjöld
Bayern 28 / Chelsea 27
Rauð spjöld
Bayern 1 / Chelsea 1
Tölfræðin í
Meistaradeildinni
Margir í banni Þrír af betri leikmönnum beggja liða eru í leikbanni í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á morgun. Munar þar þó sýnu mest um
John Terry fyrirliða Chelsea