Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2012, Blaðsíða 46
TóksT loks að sigrasT á
síþreyTu með hugleiðslu
46 Lífsstíll 18.–20. maí 2012 Helgarblað
K
vikmyndaframleiðandinn
Sigurjón Sighvatsson hefur
búið í Los Angeles í marga
áratugi en kemur reglulega
hingað til lands. Hann var
staddur hér á landi í síðustu viku
til þess að kynna innhverfa íhugun
með aðstoð David Lynch sem talaði
við gesti í Gamla bíói með aðstoð
samskiptaforritsins Skype.
Vorið 2009 kom David Lynch til
Íslands fyrir atbeina Sigurjóns. Þá
talaði Lynch fyrir fullum sal í Há-
skólabíói þegar hann kynnti inn-
hverfa íhugun í kjölfar bankahruns-
ins og þúsundir kynntu sér aðferðir
leikstjórans.
Leikstjórinn víðfrægi Lynch
kynntist Sigurjóni vel þegar þeir
gerðu saman þættina Twin Peaks og
hefur hugleitt á hverjum degi í næst-
um fjörutíu ár.
Sjálfur hefur Sigurjón lagt stund
á innhverfa íhugun í fjölda ára með
góðum árangri en hann segist hafa
verið kominn í andlegt þrot áður en
Lynch kom honum til leiðsagnar.
Veiktist illilega
„Ég er áhugamaður um alla hluti
en ég gaf mér aldrei tíma í áhuga-
mál mín vegna þess að ég var svo
árangurs drifinn. Ég var fórnarlamb
þess að þurfa alltaf að sjá árangur af
því sem ég gerði í stað þess að skoða
og njóta. Svo lenti ég í því að veikjast
illilega. Veikindin gat enginn útskýrt
en fljótlega komst ég að því að þrot
mitt sem var bæði líkamlegt og á
endanum andlegt gat flokkast undir
síþreytu. Ég tók veikindin alvarlega
og sá fljótt að venjuleg læknavísindi
höfðu ekkert á boðstólum sem gat
gagnast mér. Ég var að vinna með
David Lynch á þessum tíma og hann
sagði mig ekki eiga nein ráð eftir
önnur en að leita inn á við.
Sigurjón segist á þeim tíma sem
David Lynch hafi veitt honum leið-
sögn sína hafi hann verið búinn að
missa líkamlegt þrek.
„Mér tókst að ná mér, það var
vegna þess að ég gjörbreytti um alla
lifnaðarhætti og fór að hugsa um
það sem er óáþreifanlegt.
Ég fór fljótt að finna árangur og
áhrif af því að íhuga, kannski vegna
þess að ég var svo illa staddur. Mér
fannst erfitt að stíga fyrstu skrefin.
Þess vegna skil ég aðra sem hika.“
Aðferðir David Lynch
Hreyfing David Lynch er runnin
undan rótum gúrúsins Maharishi
Mahesh Yogi sem kom með hana
til Bretlands árið 1958. Hún vakti
heimsathygli þegar Bítlarnir gengu
henni á hönd og bæði Paul McCart-
ney og Ringo Starr hafa stutt dyggi-
lega við bakið á Lynch Foundation,
sjóði sem er hugsaður til þess að
veita henni brautargengi sem víð-
ast.
„Maharishi bjó til kerfi sem
styðst við austrænan búddisma en
hentar vestrænum hugsunarhætti
betur. Þessi þekktu austurlensku
kerfi eru mjög stór. Ef þér tekst ekki
að komast strax inn í það þá gefstu
upp. Fyrir marga Vesturlandabúa
er það stórt stökk að stunda hug-
leiðslu. Svo stórt stökk að þeir kom-
ast aldrei þangað, þessu vill hann
breyta. Honum finnst til dæmis
allt í lagi að fólk sofni í miðri hug-
leiðslu. Ég sofna alltaf, en í sumum
kerfum þá þykir það ekki allt í lagi.
Þá er það þannig að ef þú getur ekki
hugleitt nema í fimm mínútur, þá
er það betra en ekkert. Bara að við
leggjum það á okkur að hugleiða er
þess virði.“
Lífið er breytt
Hann segir líf sitt breytt með til-
komu hugleiðslu. „Ég hef fundið
mikla breytingu. Öll mín afstaða til
lífsins er breytt. Ég er meira með-
vitaður og er skilningsríkari mann-
eskja en áður.“ Sem dæmi um
breytta afstöðu sína nefnir hann af-
stöðu sína til stórra verkefna í kvik-
myndabransanum. „Í gamla daga
þegar ég var að kaupa kvikmynda-
verkefni þá fannst mér allt mótlæti
mikill persónulegur ósigur. Lífið
varð óhemjuerfitt ef ég tapaði stóru
verkefni til annarra stórlaxa. Mér
fannst ég hreinlega hafa brugðist.
Ég hugsa allt öðru vísi í dag. Ég
nýt þess frekar að vera í samkeppni
við stórlaxana og fái þeir verkefni
sem ég hef sóst eftir þá hugsa ég til
þeirra af virðingu og held áfram að
reyna við næsta verkefni og held
einbeitingunni. Ekkert er „big deal“.
Hugleiðslan hefur gefið mér þenn-
an kraft og ég er þakklátur enda
hljóta allir að sjá að ég hefði orð-
ið útbrunninn karl í Hollywood ef
ég hefði haldi uppteknum hætti.
Spurning hvort ég væri á lífi ennþá,“
segir hann og hlær. „Þetta er bara
svona einfalt dæmi um það hvern-
ig mín andlega líðan hefur breyst
og hefur gert mér kleift að stunda
mitt starf af meiri ánægju. Ég missti
móðinn og starfskraftinn á meðan
ég lét raska ró minni. Þetta gerist
ekki í dag.“
Andleg vakning í kjölfar hruns
„Aðstæður mínar voru kannski svip-
aðar og íslensku þjóðarinnar,“ segir
hann íhugull. „Að minnsta kosti var
um algjört hrun að ræða.
Í öllu sem gerist þá verða líka já-
kvæðir hlutir. Það sem gerðist á Ís-
landi í kjölfar efnahagshrunsins
var að það varð að fullu ljóst að sú
kenning að hagvöxtur, frjálst hag-
kerfi og kapítalismi auki andlega
velsæld er misskilningur.
Markaðskerfið hrundi, og það
hrundi ekki bara vegna þess að
markaðskerfið var þanið. Það
hrundi vegna þess að það var kom-
ið að mörkum hvað varðar okkar
eigin siðferðisvitund.
Ég held að innra með okkur höf-
um við gert okkur grein fyrir því að
með þessum markaðskerfum var
verið að innræta okkur gildi sem
eru okkur óholl. Það sem gerist þá
er að fólk finnur fyrir því hvað það
er óánægt með eigið líf. Það finnur
fyrir því að peningar gáfu því aldrei
fyllingu. Að leitin að hinu verald-
lega er innantóm.“ Sigurjón segist
finna fyrir því að á Íslandi hafi orð-
ið heilmikil andleg vakning.
„Fjöldi manns hefur lært inn-
hverfa íhugun með aðferðum
Lynch hér á landi. Andleg vakning
varð á öllum sviðum. Ekki síst hjá
bankafólki. Það er einhver lenska
að segja bankafólk slæmt, en auð-
vitað er það ekki svo.
Auðvitað vill fólk ennþá eiga þak
yfir höfuðið en Range Rover-væð-
ingin er búin.
Íslendingar hafa alltaf verið opn-
ir fyrir straumum. Þeir eru mjög já-
kvæð og opin þjóð og tilbúin að
reyna eitthvað nýtt og því gengur
þeim vel að vakna til lífsins. En nú
þegar þjóðfélagið er að normalíse-
rast aftur þá þarf miklu meira átak
til að viðhalda þessum þroska. Það
verður áskorun til allra að gleyma
því ekki aftur að í nútímaþjóðfélagi
er nauðsyn að búa yfir tækni til þess
að vera með sjálfum sér. Öll hug-
leiðsla og andleg iðja krefst þess.“
Hann nefnir að hvað varðar and-
lega iðju sé margt í samfélaginu
n Sigurjón Sighvatsson hefur breytt og bætt líf sitt með hugleiðslu
Fór í andlegt þrot Ég fór fljótt
að finna árangur og áhrif af því að
íhuga, kannski vegna þess að ég
var svo illa staddur. Mér fannst
erfitt að stíga fyrstu skrefin.
mynD sigtryggur Ari
„Lífið varð
óhemju-
erfitt ef ég tapaði
stóru verkefni til
annarra stórlaxa.
Mér fannst ég hrein-
lega hafa brugðist.