Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2012, Side 10
10 Fréttir 18.–20. maí 2012 Helgarblað
Söfnuðu yfir 10 tonnum af fatnaði
n Fatasöfnun Rauða krossins gekk vel
M
ér sýnist þetta bara hafa
gengið vel og við safnað
svipað og í fyrra eða 10–12
tonnum,“ segir Örn Ragn-
arsson, verkefnastjóri hjá Rauða
krossinum. Á uppstigningardag stóð
Rauði krossinn fyrir fatasöfnun þar
sem fólk var hvatt til þess að koma
með gömul föt af sér.
Örn segir þau taka fagnandi öllum
fötum, í hvers konar ástandi sem þau
kunna að vera í. „Við erum að sækj-
ast eftir hvers konar fatnaði sem er.
Líka slitnum og skemmdum, glugga-
tjöldum, rúmfötum, handklæðum
og þess háttar. Allt sem heitir tau og
svo sláum við hendinni ekki heldur
á móti því að fá skó. Það mega vera
mjög lélegir skór sem ekki nýtast ein-
hvers staðar,“ segir hann.
Söfnunargámar fatasöfnunar-
innar voru ellefu talsins á höfuð-
borgarsvæðinu og allir staðsettir við
sundlaugar ÍTR í Reykjavík og við
sundstaði í nágrannasveitarfélögun-
um.
Á landsbyggðinni verður tekið
á móti fatnaði á móttökustöðvum
Eimskips Flytjanda en þær voru lok-
aðar í gær, uppstigningardag. Eim-
skip er einn helsti stuðningsaðili
verkefnisins.
Fatnaðurinn sem safnast frá gjaf-
mildum landanum er svo flokkaður
og sumt selt í Rauða kross-búðun-
um hér á landi sem eru fimm tals-
ins. Annað er svo flutt úr landi. „Það
sem við getum ekki nýtt hér innan-
lands sendum við og seljum úr landi
og fjármögnum hjálparstarf innan-
lands og utan með hagnaðinum,“
segir Örn.
Þeim sem vilja gefa föt er bent á
að tekið er á móti fatnaði á gáma-
stöðvum Sorpu og í Fatasöfnunar-
stöð Rauða krossins í Skútuvogi 1 alla
virka daga.
viktoria@dv.is
Þ
rír áhugasamir kaupend-
ur standa eftir í söluferl-
inu um flugfélagið Bláfugl
samkvæmt heimildum DV.
Bláfugl er í eigu Íslands-
banka að 2/3 hlutum en Glitnir á
þriðjung í félaginu. Meira en 20 að-
ilar skoðuðu Bláfugl eftir að Mið-
engi, dótturfélag Íslandsbanka,
auglýsti félagið til sölu fyrr á árinu.
Þrír skiluðu svo inn skuldbind-
andi tilboðum sem eru til skoð-
unar. Endurskoðendaskrifstofan
PwC annast söluferlið fyrir hönd
Miðengis. Hvaða tilboð verður val-
ið mun ráðast í næstu viku, sam-
kvæmt heimildum DV.
Heimildirnar herma að nokkrir
erlendir aðilar hafi skoðað fjárfest-
ingu í Bláfugli. Jafnframt að enginn
af þeim þremur áhugasömu aðilum
sem nefndir eru séu þekktir íslensk-
ir aðilar sem vinna á flugmarkaðn-
um á Íslandi, hvorki Pálmi Haralds-
son né Skúli Mogensen, eigendur
Iceland Express og WOW air. Orð-
rómur hefur verið um það að meðal
annars þessir aðilar kynnu að hafa
áhuga á Bláfugli sem hefur með-
al annars yfir flugrekstrarleyfi á Ís-
landi að ráða – Pálmi hefur til að
mynda ekki yfir slíku flugrekstrar-
leyfi að ráða. Bláfugl er einnig með
flugrekstrarleyfi í Perú og Aserbaíd-
sjan og kynnu einhverjir erlendir
aðilar að hafa áhuga á þeim leyfum.
Flogið til Kölnar á hverjum degi
Bláfugl á eina þotu, Boeing 737, sem
flýgur í fraktflugi með ýmiss konar
varning og vörur, meðal annars ís-
lenskan fisk, til Kölnar í Þýskalandi á
hverri nóttu. Þar að auki leigir Bláfugl
fjórar þotur sem notaðar eru í Evrópu
til að fljúga með sendingar fyrir flutn-
ingafyrirtækin Fedex og DHL. Þessar
fjórar vélar fljúga því ekki frá Íslandi.
Rekstur fyrirtækisins hefur gengið
afar vel og er það ekki síst að þakka
góðum samningum við Fedex og
DHL. Þoturnar fjórar fljúga einung-
is með sendingar fyrir fyrrnefnd tvö
fyrirtæki.
Situr á eignum upp
á 1.700 milljónir
Bláfugl á eignir upp á 26 milljón-
ir dollara, rúmlega þrjá milljarða
króna, en skuldar einungis rúmlega
9 milljónir dollara, rúman millj-
arð króna. Tekjur félagsins námu
rúmlega fjórum milljörðum króna
árið 2010 en tap var á rekstrinum
það ár upp á rúmar 60 milljónir.
Félagið borgaði hins vegar skuldir
upp á rúmlega 18 milljónir dollara á
árinu auk þess sem bankainnistæð-
ur félagsins í reiðufé jukust úr tæpri
milljón dollara og upp í nærri 13,5
milljónir króna á árinu 2010. Banka-
innistæður félagsins nema því tæp-
lega 1.700 milljónum króna um
þessar mundir.
Heimildir DV herma að ein-
hverjir af þeim sem voru áhuga-
samir um Bláfugl hafi verið forvitnir
um þessa góðu peningastöðu. „Það
sem menn voru auðvitað að skoða í
einhverjum tilfellum var þessi góða
peningalega staða hjá félaginu,“ seg-
ir heimildarmaður DV. Skýrast mun
á næstunni hvaða aðili það er sem
mun kaupa Bláfugl.
Þrír berjast
um bláfugl
n Bláfugl situr á nærri tveimur milljörðum í reiðufé„Það sem menn voru
auðvitað að skoða
í einhverjum tilfellum var
þessi góða peningalega
staða hjá félaginu.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Áhugi frá erlendum aðilum Útlendingar
hafa áhuga á íslenska flugfélaginu Bláfugli
en söluferli félagsins er langt komið. Félagið
á meðal annars eina Boeing 737 þotu sem
flýgur fraktflug til Kölnar á hverjum degi.
Stærsti eigandinn Íslandsbanki er stærsti eigandi Bláfugls. Birna Einarsdóttir er banka
stjóri bankans.
Leiguverð
hækkar
Leiguverð á höfuðborgarsvæð-
inu hefur hækkað um 10 pró-
sent síðastliðna tólf mánuði.
Vísir sagði frá. Hækkunin síð-
ustu mánuði var 0,6 prósent en
hækkunin síðustu þrjá mánuði
er 1,8 prósent. Vísitala leigu-
verðs var 113 stig í síðasta mán-
uði. Vísitalan er birt á á vef Þjóð-
skrár og er ætlað að varpa ljósi
á þróun leiguverðs samkvæmt
þeim gögnum sem liggja fyrir á
hverjum tíma fyrir sig.
Forsetar
funduðu í Prag
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, og forseti Tékklands,
Václav Klaus, funduðu á fimmtu-
dagsmorgun í Pragkastala. For-
setarnir ræddu meðal annars um
þróun mála í Evrópu, afleiðingar
fjármálakreppunnar fyrir efna-
hagslíf álfunnar og hvort stöðug-
leiki kunni að skapast á evr-
usvæðinu. Á fundinum var einnig
fjallað um endurreisn íslensks
efnahagslífs og þá lærdóma sem
Íslendingar hafa dregið af glím-
unni við afleiðingar bankahruns-
ins. Forsetahjónin eru stödd í
opinberri heimsókn í Prag ásamt
Össuri Skarphéðinssyni utan-
ríkisráðherra, embættismönnum
frá utanríkisráðuneytinu, skrif-
stofu forseta og fulltrúum fræða
og menningar.
Fögnuðu
17. maí
Norðmenn á Íslandi fögnuðu
þjóðhátíðardegi Norðmanna á
uppstigningardag, 17. maí. Þeir
fylktu liði frá Norræna húsinu
og til Dómkirkjunnar. Þar var
haldin norsk messa. Töluverður
fjöldi var í skrúðgöngunni enda
mikið blíðviðri í höfuðborginni
þennan daginn. Norðmenn hafa
fagnað þjóðhátíðardeginum 17.
maí frá árinu 1814 en þá hlutu
þeir sjálfstæði með undirritun
stjórnarskrár Noregs á Eiðs-
völlum.
Gekk vel Mikið af fatnaði safnaðist
í fatasöfnun Rauða krossins á upp
stigningardag. Hægt er að koma með
gömul föt í gámastöðvar Sorpu.