Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2012, Page 24
S
kipulag Hells Angels-sam-
takanna á Íslandi er með
sama fyrirkomulagi og
annars staðar í heimun-
um. Þetta kemur fram í 14
blaðsíðna skýrslu sem lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu og lögregl-
an á Suðurnesjum gerðu um starf-
semi Hells Angels á Íslandi. Skýrsl-
an var unnin af rannsóknarteymi
í skipulagðri brotastarfsemi sem
var komið á fót fyrir um ári síðan,
en niðurstaða skýrslunnar er sú
að lögreglan telji engan vafa leika
á því að sé skipulögð glæpastarf-
semi með sterk tengsl við alþjóð-
lega starfsemi.
Sinna þrifum og viðhaldi
Til að öðlast félagsaðild í Hells Ang-
els þarf einstaklingur að ganga í
gegnum nokkur skref sem byggjast
upp á bakgrunnsskoðun, en með-
limir mega ekki hafa sótt um starf
hjá tollinum eða lögreglu, þurfa að
vera áhangendur í tiltekinn tíma, þá
meðlimir til reynslu og loks fullgild-
ir meðlimir.
Vitað er að áhangendur og með-
limir til reynslu þurfa að vinna
ýmis verk, fá ekki að sitja fundi og
þurfa að hlýða fullgildum meðlim-
um í einu og öllu. Meðal verka sem
áhangendur og meðlimir til reynslu
þurfa að sinna eru þrif og viðhald
á félagsheimilinu og, að því er lög-
reglan telur, þátttöku í afbrotum.
Vopn og fíkniefni
Í skýrslunni er einnig upptalning á
handtökum á aðilum sem taldir eru
tengjast klúbbnum og vopnum, þýfi
og eiturlyfjum sem lagt var hald á
við húsleitir í tengslum við hand-
tökurnar.
Í skýrslunni kemur fram að
rannsóknarhópurinn hefur stað-
ið fyrir afskiptum af 101 aðila í 58
ótengdum tilfellum. 50 hafa verið
handteknir. Lagt hefur verið hald
á tæp 500 grömm af maríjuana,
400 kannabisplöntur, 300 grömm
af amfetamíni, 7 virk skotvopn, 65
hnífa, 3 rafbyssur, 3 piparúðabrúsa
og fleira. Ekki tengist allt ofangreint
Hells Angels, en þó stór hluti þess.
Þannig telur lögreglan víst að svo til
allt haldlagt maríjúana, kannabis-
plöntur og amfetamín, 4 skotvopn,
1 rafbyssa, 1 piparúðabrúsi og eitt-
hvað af hnífum tengist beint starf-
semi Hells Angels.
24 Fréttir 18.–20. maí 2012 Helgarblað
Valdastigi og skipulag
innan Hells angels
n Lögreglan kortleggur innra skipulag Hells Angels á Íslandi
Lögregluskýrslan
Af fundargerðarbók sem lög-
regla lagði hald á má ráða eftir-
farandi að mati lögreglunnar:
1 Í klúbbnum er mikil stýring og aug-ljós verkaskipting.
2 Í klúbbnum gilda reglur. Fjársektir og að taka vesti af brotlegum eru
viðurlögin.
3 Erlend samskipti eru talsverð. Klúbburinn svarar til norskra og
danskra Hells Angels-klúbba.
4 Klúbburinn rekur varnarsjóð, „defence fund“.
5 Áhangendur og meðlimir til reynslu hafa ríkar skyldur gagnvart
klúbbnum og meðlimum hans.
6 Meðlimir eiga á hættu að vera kosnir út í „Bad standing“. Þannig
var Einar „Boom“ Marteinsson kosinn
út á fundi þann 14. mars síðastliðinn.
Einnig var maður kosinn út í „Bad
standing“ vegna dóms sem hann hlaut
í kynferðisbrotamáli, þar sem hann í
félagi við aðra áreittu 13 ára dreng um
borð í skipi.
7 Hells Angels er með stuðnings-gengi.
8 Hells Angels rekur „PR“-stefnu til að bæta ímynd sína.
Fyrrverandi forseti Einar
„Boom“ Marteinsson, fyrrverandi
forseti Hells Angels á Íslandi,
í vestinu sínu. Einar var
rekinn úr samtök-
unum og hefur
væntanlega þurft
að skila vestinu.
„Vitað er að áhang-
endur og meðlimir til
reynslu þurfa að vinna ýmis
verk, fá ekki að sitja fundi
og þurfa að hlýða fullgildum
meðlimum í einu og öllu.
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
Hells Angels-meðlimir fyrir utan Héraðsdóm Reykjavíkur Tveir félagar í Hells
Angels í Noregi fóru í mál við íslenska ríkið fyrir að vera meinuð landvist og settir í varðhald í
Keflavík.
Rökkursálir Vesti sem tilheyrir meðlimi
S.O.D. eða Souls of Darkness sem er
stuðningsklúbbur Hells Angels
Valdapýramídi Hells Angels
Stuttar útskýringar á embættum og stöðum innan klúbbsins
Stjórn
Meðlimur: Kallar sjálfan sig
„bróður“ og getur ekki öðlast
fulla aðild án þess að sanna
100 prósent hollustu gagnvart
klúbbnum.
Meðlimur
Prospects/
meðlimur í reynslu
Prospeects/Meðlimur til reynslu: Getur
átt við um einstakling, en einnig um klúbba í
heild. Þetta átti til dæmis við þegar Fáfnir MC
var lagður niður og nafninu breytt í MC Iceland.
Á þeim tíma var klúbburinn í heild meðlimir til
reynslu hjá Hells Angels. Lögregluyfirvöld á
Íslandi og Noregi búa yfir gögnum þess efnis að
norskir Hells Angels-klúbbar beri ábyrgð á þeim
íslenska inni í samtökunum.
n MC Fáfnir Stuðningsgengi
við Hells Angels
n MC Iceland „Prospect-
klúbbur“, það er allir meðlimir
til reynslu hjá Hells Angels
n Hells Angels MC
Iceland Fullgildur Hells
Angels-klúbbur
Hangaround/áhangandi: Eins og er með meðlimi til reynslu
getur þetta átt við einstaklinga og klúbba í heild. Áhangendur
heyra undir bæði meðlimi og meðlimi til reynslu og hafa ekki
heimild til að sækja neina fundi. Eina merking þeirra á vestinu er
nafn staðarins sem þeirra klúbbur er á.
Hangaround/
áhangandi
Vesti og merkingar: Vestin og
merkingar eru Hells Angels mikilvæg og
leggja samtökin mikið upp úr því að nafn
þeirra og merki séu skráð vörumerki í
hverju landi. Ástæðan er sú að samtökin
hafa talsvert fé af sölu stuðningsfatnaðar
með merkjum klúbbsins en ekki síst ímynd
og ógnunarvald samtakanna er að stórum
hluta byggt á vestunum og merkingum.
Áhangandi fær engar merkingar á vestið
sitt annað en staðarheiti á brjóstið. Með-
limur til reynslu fær merkingu um það auk
„Bottom rocker“ aftan á vestið. Fullgildur
meðlimur fær allar merkingar, en menn í
ábyrgðarstöðum fá merkingar um slíkt á
brjóstið. „Side rocker“ merkir vinatengsl
við viðkomandi klúbb.
Meðlimir geta einnig fengið sérstakar
merkingar vegna gjörða sinna. Þannig er
„Filty few“ merking sem eingöngu þeir fá
sem hafa framið morð eða tekið virkan
þátt í morði í þágu klúbbsins. „Dequiallo“
er merking fyrir þá sem hafa streist á móti
handtöku eða framið ofbeldisverk gegn
aðila í valdastöðu. Ekki er vitað til þess að
íslenskir Hells Angels-meðlimir hafi slíkar
merkingar en þó ljóst að þeir geta unnið
fyrir þeim.
Þann 22. mars 2012 lagði lögreglan hald
á fundargerðarbók Hells Angels auk
annarra gagna við leit í félagsheimili
þeirra í Gjáhellu 5. Klúbburinn heldur
vikulega fundi í félagsheimili sínu og er
skyldumæting, en fjársektir og missir
vesta liggja við brotum á þessu. Þetta er
kallað „Vest in a box“. Lögreglan telur að
þetta þýði í raun að viðkomandi missir
vestið sitt tímabundið.
Forseti: Er kosinn af meðlimum og
hefur vald yfir þeim sem og málefnum
klúbbsins. Meðlimir geta ekki farið gegn
ákvörðunum forseta, en forseti getur
tekið yfir ákvarðanir stjórnar og
meðlima og breytt þeim.
Varaforseti: Næst-
ráðandi og leysir forseta af
í fjarveru hans.
Ritari: Miðlar upplýsing-
um til annarra landa. Sækir
embættisfundi Evrópu- og
heimssamtaka Hells Angels.
Gjaldkeri: Ábyrgur fyrir fjármálum
klúbbsins, þar á meðal meðlimagjöldum,
sektum, greiðslum til Evrópu- og heims-
samtaka Hells Angels, varnarsjóði og
fleiru.
Sgt. at arms/Öryggisstjóri: Er
ábyrgur fyrir aga og reglu innan
klúbbsins. Heldur reglu á viku-
legum fundum, hefur vald til
að ákveða refsingu meðlima
sem brjóta reglurnar. Ber
ábyrgð á öryggismálum
klúbbsins. Rannsakar
meðlimi til reynslu.
Road captain/Ferða-
stjóri: Ber ábyrgð á klúbbnum
á vegum úti. Skipuleggur
hópakstur á vegum klúbbsins og sér um
samskipti við lögreglu ef til slíkra afskipta
kemur.