Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2012, Síða 40
40 18.–20. maí 2012 Helgarblað
Stórafmæli
Stórafmæli
Einar Kjartansson smiður, 70 ára 20. maí
Emilía Tómasdóttir hárgreiðslumeistari, 30 ára 19. maí
18. maí
1565 – Tyrkjaveldi hóf umsátur
um Möltu sem var hrundið þremur
mánuðum síðar.
1897 – Stokkseyrarhreppi var
skipt í Stokkseyrarhrepp
og Eyrarbakkahrepp.
1908 – Rannsóknarskipinu Pour-
quoi–Pas? (4.) var hleypt af
stokkunum í Saint-Malo í Frakk-
landi.
1920 – Sambandslögin frá 1918
voru staðfest með breytingum
á stjórnarskrá.
1978 – Selfoss fékk kaupstaðar-
réttindi.
1980 – Eldfjallið Sankti
Helena gaus í Washingtonfylki.
57 létust og tjónið var metið á
þrjá milljarða dollara.
1989 – Verkfalli Bandalags
háskólamanna lauk og hafði það
staðið í sex vikur og valdið mikilli
röskun á skólastarfi og fleiru.
2006 – Silvía Nótt söng fyrir
hönd Íslands í forkeppni Söngva-
keppni evrópskra sjónvarps-
stöðva.
19. maí
1536 – Anne Boleyn, önnur
eiginkona Hinriks 8. Englands-
konungs, var tekin af lífi vegna
hórdóms.
1604 – Í Kanada var borg-
in Montreal stofnuð, þá Ville–
Marie eða Borg Maríu en nafninu
var síðar breytt.
1875 – Fyrsta sláttuvélin kom
til Íslands frá Noregi.
1917 – Eimskipafélag Ís-
lands fékk sitt þriðja skip og var
það Lagarfoss.
1933 – Í Vestmannaeyjum réðst
æstur múgur inn í fangelsið og
leysti þar fanga úr haldi. Síðar
voru tíu manns dæmdir til fang-
elsisvistar fyrir tiltækið.
1950 – Þúsundir Reykvík-
inga fögnuðu Gullfossi, nýju far-
þegaskipi Eimskipafélagsins.
1983 – Geimskutlan Enter-
prise hafði viðkomu á Keflavíkur-
flugvelli, borin af Boeing 747 þotu.
1990 – Í Laugardal í Reykja-
vík var opnaður nýr fjölskyldu–
og húsdýragarður með tuttugu
tegundir húsdýra, sjávardýra og
villtra dýra. Meira en tíu þúsund
gestir komu í garðinn fyrsta
daginn.
20. maí
1471 – Játvarður 4. varð konungur
Englands eftir morðið á Hinriki 6.
1498 – Vasco da Gama kom
til Kalíkút á Indlandi. Hann var
fyrstur Evrópubúa til að komast
þangað með því að sigla suður
fyrir Afríku.
1570 – Abraham Ortelius gaf út
fyrstu nútímalandabréfabókina.
1631 – Þrjátíu ára stríðið: Magde-
burg féll fyrir keisara-
her Tillys og Pappenheims.
1818 – Siglufjörður varð löggiltur
verslunarstaður.
1840 – Kristján 8. konungur
gaf fyrirheit um endurreisn full-
trúaþings á Íslandi og gekk það
eftir 5 árum síðar.
1889 – Ítalía gerðist aðili að
bandalagi Miðveldanna í Evrópu.
1902 – Yfirráðum Bandaríkj-
anna yfir Kúbu lauk.
1922 – Vinna hófst við Flóaá-
veituna og voru það mestu
áveituframkvæmdir hérlendis.
1944 – Þjóðaratkvæða-
greiðsla um lýðveldisstofn-
un hófst og stóð í fjóra daga.
1966 – Gengið var í land
á Jólni við Surtsey og var eyjan
þá 35 m há, en hún hvarf í hafið
næsta vetur.
Merkis-
atburðir
40 ára 19. maí
Jenny Berggren er sænsk söngkona
sveitarinnar Ace of Base en sveitin var
gífurlega vinsæl á tíunda áratugnum.
47 ára 20. maí
Ted Allen er amerískur sjónvarpsþáttastjórn-
andi og rithöfundur en líklega þekktastur fyrir
þættina Queer Eye for the Straight Guy.
42 ára 18. maí
Tina Fey er bandarísk sjónvarpsstjarna sem
er þekktust fyrir grínþættina Saturday Night
Live og þáttaseríuna 30 Rock.
É
g er fæddur og uppal-
inn á Eyrarbakka, það
var gott að vera barn á
Bakkanum. Allir leik-
irnir okkar voru tengd-
ir sjónum og fjörunni. Við
strákarnir smíðuðum okkur
pramma og alls kyns fleytur
til að komast frá landi. Svo var
vinsælt að ræna árabátunum
frá körlunum sem áttu báta
fram á legunni. Við rerum á
þeim út í brimgarðinn til að
fá ágjöf. Fyrst byrjaði maður
að fara með stærri strákum en
svo 11 – 12 ára fórum við strák-
arnir að fara sjálfir og þá gjarn-
an einhverjir yngri með okkur.
Það urðu aldrei nein slys af
þessu enda lærðum við mjög
ungir að fást við sjóinn. Karl-
arnir sem áttu bátana voru
kannski ekkert hrifnir af þessu
þegar vont var í sjóinn en
samt gengu þeir alltaf þann-
ig frá bátunum að við gæt-
um tekið þá. Þeir höfðu svo
sem allir leikið þennan leik á
undan okkur. Núna yrði allt
vitlaust ef krökkum dytti í hug
að prófa þetta. Ætli kæmi ekki
löggan og landhelgisgæslan til
að stöðva leikinn,“ segir Ein-
ar kíminn þar sem hann rifjar
upp fjör og kraft bernskunnar.
Þegar hann var ungur
drengur var flugið að ryðja sér
til rúms og flugmenn hreinar
ævintýrahetjur. „Ég ætlaði að
verða flugmaður. Fór á sjóinn
til að ná mér í peninga fyrir
námi, ég þraukaði á sjónum í
5 – 6 ár þrátt fyrir að vera allt-
af sjóveikur. Ég ældi lifur og
lungum á hverjum degi þann-
ig að þetta var ekkert gam-
an grín. Svo fékk ég berkla og
var á sjúkrastofnunum í tvö ár.
Þar með var draumurinn um
flugið úti því ekki þótti ráðlegt
að menn sem hefðu veikst af
berklum yrðu flugmenn.“
Það fékkst aldrei skýring
á því hvers vegna komu upp
berklar á Bakkanum, þeir voru
þrír sem urðu alvarlega veikir
en smit fannst í allnokkrum í
þorpinu.
Einar varð því að hasla
sér völl á öðrum vettvangi og
lærði trésmíði. „Þegar ég kom
út af Reykjalundi tókum við
okkur saman þrír félagar og
stofnuðum trésmíðafyrirtækið
Hagsmíði. Síðan hef ég starfað
á eigin vegum. Það hefur verið
nóg hjá mér að gera í smíðun-
um síðan ég byrjaði og er ekk-
ert lát á því ennþá. Maður fann
aðeins fyrir lægð eftir hrunið
en ekki þannig að væri ekki
eitthvað að gera. Núna er ég
hættur að sinna útivinnu yfir
veturinn. Hætti því núna í vet-
ur, vil ekki vera í vosbúðinni
sem fylgir því. Það er kostur-
inn við að vera sjálfs sín herra
að maður ræður þessu alveg,“
segir Einar með skrúfvélina
á lofti. Hann er ekki maður
sem stöðvar vinnu þó verið
sé að spjalla við hann. Sím-
inn hringir og menn leita eft-
ir honum til verka eða vantar
faglegar ráðleggingar og hann
afgreiðir ljúfmannlega öll er-
indi án þess að missa stund frá
verki.
Hann segir tímamótin vera
skemmtileg enda nóg að gera
og engu að kvíða. „Ég ætla að
minnka við mig vinnuna og
sinna meira heimilinu og fjöl-
skyldunni, svo er nóg að gera
í sumarbústaðnum þannig að
ég hef ekkert að óttast.
Afmælisdagurinn verður
rólegur, ætli ég láti mig ekki
bara hverfa. Að minnsta kosti
verður engin veisla, ætli ég
eigi ekki bara góða stund með
mínu kærasta. Það verður fá-
mennt en umfram allt góð-
mennt,“ segir þessi iðni iðnað-
armaður sem fellur ekki verk
úr hendi þrátt fyrir truflanir.
É
g er alveg Árbæingur,
hef verið hér frá fæð-
ingu. Hér ólst ég upp og
átti ekki bara mín bestu
ár heldur öll mín ár,“
segir Emilía Árbæjarmær.
„Uppáhaldið mitt var
íþróttir, ég var bæði í hand-
bolta og fótbolta þegar ég var
yngri og gerði eiginlega ekkert
annað en að vera á æfingum
enda er ég komin af mikilli fót-
boltafjölskyldu. Ég keppti fyrir
Fylki í báðum greinum en þeg-
ar kom að því að ég þurfti að
velja á milli valdi ég handbolt-
ann og náði að verða Íslands-
meistari árum saman með lið-
inu, svo tókum við náttúrlega
bikarinn og Reykjavíkurmótið
reglulega. Við unnum öll mót
sem hægt var að vinna. En eftir
að ég hætti í liðinu hefur þetta
ekki verið svipur hjá sjón. Ár-
bæjarboltinn leið undir lok
þegar ég hætti,“ segir hún og
hlær einlægt og innilega.
Þegar Emilía var lítil stúlka
í Árbænum var hún alveg
ákveðin í að verða dýralækn-
ir þegar hún yrði stór. „Ég var
alveg ákveðin í þessu en þeg-
ar ég vissi að þá yrði ég að lóga
kettlingum hætti ég snarlega
við. Kettir hafa alltaf verið mitt
uppáhald og ég hef átt ketti
alla tíð. Núna á ég tvo. Undan-
farin ár hef ég tekið eftir því að
ég verð ólétt í hvert skipti sem
ég eignast kettling þannig að
ég ætla ekki að bæta við mig
köttum alveg næstu árin,“ segir
þessi glaðværa kona og skelli-
hlær.
Hárgreiðsla varð fyrir val-
inu þegar dýralæknadraumur-
inn var búinn og Emilía opnaði
í framhaldi af því hárgreiðslu-
stofuna Emóra með vinkonu
sinni og auðvitað í Árbæn-
um. „Einhver skemmtilegasta
minning mín tengist einmitt
hárgreiðslunni. Þegar Hera
Björk fór til Noregs að syngja í
Eurovision 2010 fór ég með til
að greiða henni og öllu liðinu
sem keppti fyrir Ísland. Það var
ótrúlega gaman að taka þátt í
þessu og sjá hvað þetta er allt
stórt og mikið. Hera er einhver
skemmtilegasta kona sem til
er. Við erum búnar að þekkj-
ast lengi. Hún er svona eins og
týnda systirin,“ segir þessi káta
kona og strýkur blíðlega ann-
arri kisunni sinni.
Emilía setur upp svip þeg-
ar spurt er um tímamótin.
„Ég verð ekkert þrítug, ég verð
bara ennþá meira tuttugu og
eitthvað. En það verður samt
veisla hjá mér. Núna erum við
að byggja yfir útipallinn til að
koma öllum fyrir. Það koma
ættingjar og vinir en þó fyrst
og síðast skemmtilegt fólk í
veisluna mína,“ segir brosmilt
afmælisbarnið með geislandi
gleði í björtu andlitinu.
Hera Björk er eins
og týnda systirin
Fjölskylda
Emilíu
n Foreldrar: Ása Haraldsdóttir
bókari og náttúruprjónari f. 1951
Tómas Kristinsson kjötiðnaðar-
maður f. 1950
n Sambýlismaður: Elvar Skúli
Sigurjónsson skrifstofumaður
f. 1979
n Börn: Katla Sigrún Elvars-
dóttir f. 2008
Kristján Darri Elvarsson f. 2011
n Systkin: Kristinn Tómasson
prentsmiður f. 1972
Kristjana Tómasdóttir af-
greiðslustúlka f. 1976 Kettir í uppáhaldi „Kettir hafa
alltaf verið mitt uppáhald og ég hef
átt ketti alla tíð. Núna á ég tvo.“
Fjölskylda Einars
n Foreldrar:Kjartan Einarsson
bílstjóri f. 1901 d. 1997
Fríða Böðvarsdóttir húsmóðir f.
1907 d. 1988
n Maki: Þórhildur Gísladóttir
leiðbeinandi og hárgreiðslukona
f. 1943
n Barn: Margrét Einarsdóttir
húsmóðir f. 1961
n Hennar maður: Bjarni Jakobs-
son járnsmiður f. 1963
n Þeirra börn: Adda Þóra
Bjarnadóttir hárgreiðslukona og
nuddari f. 1984
Karen Bjarnadóttir nemi f. 1997
n Barn: Fríða Björk Einarsdóttir
fulltrúi f. 1966
n Hennar börn: Þórhildur Guð-
mundsdóttir f. 1999
Einar Guðmundsson f. 2007
n Barn: Gísli Ragnar Einarsson
smiður f. 1969 d. 1991
n Hans dóttir:Arna Viktoría
Gísladóttir f. 1989
n Barn: Kjartan Júlíus Einarsson
umsýslufulltrúi f. 1975
n Hans kona: Danielle Harme
mannréttindalögmaður f. 1976
n Systkin: Jónína Kjartansdóttir
leiðbeinandi f. 1939
Bryndís Kjartansdóttir af-
greiðslukona f. 1945
Nú kæmi löggan og
Landhelgisgæslan