Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2012, Síða 47
TóksT loks að sigrasT á
síþreyTu með hugleiðslu
Lífsstíll 47Helgarblað 18.–20. maí 2012
Reynir
Traustason
Baráttan
við holdið
Þ
að er afstætt
hvernig menn
sjá fegurð
landsins.
Sumir þurfa að fara
upp á hálendið þar
sem þeir gráta yfir virkjunum og
umhverfisspjöllum. Fæstir hafa
auga fyrir því sem þeim er næst. Á
mel örfárra útvistarparadísa á höf-
uðborgarsvæðinu er Úlfarsfell. Þetta
fjall í miðju borgarlandsins er í senn
fjölbreytt og fallegt. Það er aðeins
rúmlega 300 metrar á hæð og því
auðgengið fyrir flesta.
H
undruð manna
leggja leið sína
daglega upp á
fjallið í borginni.
Sjálfur hef ég farið oftar
en 330 sinnum upp. Í hvert
sinn er eitthvað nýtt að sjá sem opn-
ar augun fyrir fjölbreytni íslenskrar
náttúru. Eitt lítið blóm getur lýst
upp tilveruna og rjúpa í vetrar-
búningi sem situr á klettanefi og
fylgist með þeim sem koma og fara.
Hjartalaga steinn fær mann til að
brosa út í annað. Og eins og skáldið
sagði forðum þá glóir grámosinn.
Það eru fjölmargar leiðir upp Úlf-
arsfellið þannig að tilbreytingin er
mikil. Vetur, sumar, vor og haust hef
ég notið fegurðarinnar. Og fjallið
hefur gefið mér aukin lífsgæði.
F
jallið í borginni
heyrir undir
tvö sveitarfé-
lög. Reykjavík-
urborg ræður hluta
þess en Mosfellsbær
öðrum hluta. Og það er
himinn og haf á milli þess hvernig
þessi sveitarfélög umgangast fjallið.
Yfirvöld Mosfellsbæjar hafa lagt
rækt við að merkja gönguleiðir og
loka vegaslóðum fyrir bílaumferð.
Þar þekkja menn gildi þess að eiga
útivistarparadísir. Menn umgangast
þær af virðingu og alúð. Reykjavík-
urmegin í fjallinu er allt annað uppi
á teningnum. Þar liggja vegaslóðar
þvers og kruss, opnir fyrir umferð.
Og á hátindi fjallsins er belta grafa
sem böðlast yfir landið og ristir í
sundur klettabelti. Jón Gnarr borg-
arstjóri og félagar eru enda stór-
huga. Þeir hafa gefið símarisanum
Vodafone og einokunar risanum
Ríkisútvarpinu heimild til að valda
því jarðraski sem þarf til þess að
hægt verði að reisa 40 metra hátt
mastur. Fyrir utan allt jarðrask-
ið sem fylgir hlýst af sjónmengun
hinna himinháu mastra sem ætlað
er að standa um ókomna tíð.
Þ
etta lið sem stjórnar Reykja-
vík í dag lætur sig í engu varða
hvernig gengið er um nátt-
úru Úlfarsfells. Aðalatriðið er
að þjóna umræddum fyrirtækjum.
Hörmungin blasir nú við öllum
sem um fjallið ganga. Másandi
beltagrafa og trukkur böðlast dag-
langt á efsta hnjúk. Sárin í fjallinu
eru æpandi. Umhverfisníðingarnir
úr Reykjavík fara sínu fram. Það er
traðkað á því fegursta sem borgar-
landið býður upp á. Þar sem ég
stend á sundurgröfnu fellinu á milli
gröfu og vörubíls dettur mér aðeins
eitt í hug og ég lyfti göngustöfunum
til himins og kalla upp í vindinn:
„Látiði Úlfarsfellið vera, helvítin
ykkar.“ En það er enginn að hlusta.
Þ
essi pistill átti að vera um
heilsu en endaði svona. Þar
ber að taka fram að ég skulda
fjallinu sem hjálpaði mér
að ná tökum á offitunni. Og þá er
nauðsynlegt að lækka blóðþrýst-
ing reiðinnar með því að skrifa sig
frá málinu. Þetta er því heilsupistill
eftir allt saman.
Úlfarsfellið
stórskemmt
sem fólk átti sig ekki á að sé í raun
tækni sem varðar þroska og nefn-
ir kórsöng sem dæmi.
„Kóramenning okkar er ekkert
venjuleg, þetta er sjálfboðastarf-
semi sem er mikil í öllum sveit-
um landsins. Ákaflega falleg iðja
sem er þroskandi og í raun and-
leg. Þá er það gott hversu mikið
fólk sækir í laugarnar til að njóta
þess að vera til. Þetta er nokk-
uð sem við eigum og eigum að
rækta. Því fylgir andlegur þroski
sem gefur okkur betra tækifæri til
að takast á við krefjandi verkefni
framtíðarinnar.“
kristjana@dv.is
Flott föt á alla
fjölskylduna
n Gersemar á fatamarkaði Fjölskylduhjálpar Íslands
Í
húsakynnum Fjölskylduhjálpar
Íslands, við Eskihlíð 2–4 er að
finna fatamarkað sem fáir vita
af. Markaðurinn er öllum opinn
og þar leynast ýmsar gersemar.
Fataverslunin Rokk og rósir, sem
selur fallegan notaðan kvenfatnað
gaf til að mynda Fjölskylduhjálpinni
nýlega, mjög stóran lager af
einstökum kjólum.
Fjölskylduhjálp Íslands fær allan
fatnað sem seldur er á markaðnum
gefins frá hinum ýmsu verslunum
og um er að ræða bæði ný og notuð
föt á alla fjölskylduna. Eins og sjá
má á meðfylgjandi myndum er hægt
að dressa sig upp á markaðnum
fyrir mjög lítinn pening. En allur
fatnaðurinn er seldur á mjög lágu
verði. Sem dæmi má nefna þá er
verð á kjólum frá 1.500 og upp í
3.000 krónur, en allur söluágóði
rennur í matar- og lyfjasjóð
Fjölskylduhjálpar Íslands. Vert er
að taka fram að þeir sem eru bágt
staddir og þurfa á aðstoð að halda,
fá fatnað án endurgjalds.
Fatamarkaðurinn er opinn alla
virka daga frá 10 til 18.
Flottar fyrirsætur Hjá Fjölskylduhjálpinni er hægt að kaupa
bæði ný og notuð barnaföt á gjafverði.
Töffarastrákar Allur ágóði af fatasölunni rennur í matar- og
lyfjasjóð Fjölskylduhjálpar Íslands.
Í stíl Það leynast ýmsar gersemar á
markaðnum, líkt og þessi fallegi græni kjóll.
Ungar skvísur Þessar dömur taka sig vel
út í notuðum fatnaði frá Rokki og rósum.
Föt á alla aldurshópa Allir ættu
að geta fundið eitthvað við sitt hæfi á
markaðnum.
Glæsimenni Þessir herramenn eru ansi
reffilegir í fatnaði frá Fjölskylduhjálpinni.
Föt á herramennina Karlpeningurinn
getur dressað sig upp, bæði í hversdags-
klæðnað og jakkaföt.
Hvernig á að
hugleiða?
Sérhver einstaklingur fer eigin leiðir
við iðkun hugleiðslu, en eftirfarandi
aðalatriði eru sameiginleg
öllum hinum hefðbundnu
hugleiðsluaðferðum:
n Hugleiðið reglulega á sama tíma
hvern dag, ein í ró og næði.
n Sitjið í þægilegri stöðu með beinan
hrygg.
n Slakið á öllum vöðvum – djúp
öndun hjálpar til.
n Dragið meðvitað athyglina frá öllu
ytra áreiti.
n Æfið einhverja af neðangreindum
athygliæfingum.
n Geislið meðvitað til alls heimsins
þeim friði og kærleika, sem þið upp-
lifið í hugleiðingunni.
n Komið eftir u.þ.b. 15 mínútur
rólega til baka til hinnar venjulegu
dagvitundar.
Til að hjálpa við að koma á hugarkyrrð
eru margar mismunandi æfingar
til reiðu fyrir hugleiðandann og eru
nokkrar þær helstu tilgreindar hér að
neðan:
A Fasthygli á andardráttinn Haldið athyglinni
stöðugri við streymi loftsins um
nasirnar. Reynið ekki að telja
andartökin, látið andardráttinn flæða
eðlilega en verið meðvituð um flæðið
inn og út. Þetta heldur athyglinni við
hið líðandi andartak – sem er hið eina
hlið til æðri vitundar.
B Notkun mantra Möntrur eru orð, sem tengja okkur við
hin andlegu svið vitundarinnar vegna
sérstakra hljómeiginleika. Að kyrja
möntru á borð við hið forna indverska
„ÓM“ (hin vestræna samsvörun er
amen) er öflugt tæki í hugleiðingunni.
C Að sjá fyrir sér hlut eða hugmynd Tákn eða
spakmæli á borð við „ég er eitt með
alverunni“, má nota sem viðfangsefni
fasthygli til að vekja hugarkyrrð.
D Að tæma hugann Margir hugleiðendur reyna einfaldlega
að tæma hugann eða kyrra athafnir
hans, meðvitaðir um að ef það tekst
mun útvíkkun vitundarinnar fylgja.
Heimild: GUðspekiFélaGið.